Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Qupperneq 52

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Qupperneq 52
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.1. 2013 Tvær myndlistarsýningar verða opnaðar í Gerðubergi á sunnudag klukkan 14. Hænur er heiti sýningar Eduardo Perez Baca sem sett er upp í kaffihúsi Gerðubergs. Eduardo er fæddur í Granada á Spáni en hefur búið á Íslandi í rúman aldarfjórðung. Margir kannast við hann af kokkastörfum hans en Eduardo var lengi kokkur á Búðum á Snæfellsnesi. Hann sýnir uppstilltar hænur unnar með bleki og vaxlitum á krossviðarplötur. Sýning Sesselju Ásgeirsdóttur í Boganum nefnist Hugmynd. Sesselja var meðal fyrstu starfsmanna hússins þar sem hún hóf störf nokkru áður en menningarmiðstöðin var formlega opnuð árið 1983. Nú snýr hún aft- ur og sýnir olíu- og vatnslitamyndir. TVÖ SÝNA Í GERÐUBERGI HÆNUMYNDIR Hluti eins verka Sesselju Ásgeirsdóttur sem sýnir í Boganum. Eduardo sýnir í kaffihúsinu. Ólafur Egill Egilsson og Esther Talía Casey leika í frumflutningi Þagnar Andrésar Indriðasonar. Morgunblaðið/Eggert Útvarpsleikhúsið á Rás 1 frumflytur á sunnu- dag kl. 13 leikritið Þögnina eftir Andrés Indriðason. Esther Talía Casey og Ólafur Egill Egilsson leika Maríu og Tómas sem eru ein saman í óbyggðum. Hún hitti manninn fyrst kvöldið áður en fór engu að síður með hon- um út í óvissuna. Það er þoka og þögnin ógn- vænleg. Hún veit vel að hann er ekki allur þar sem hann er séður – sá þráður er spunninn. Andrés er eitt okkar reyndasta útvarps- leikskáld. Hann hefur skrifað á fimmta tug skáldsagna fyrir börn og unglinga og tugi leik- verka fyrir útvarp, sjónvarp og leiksvið. Einn- ig fjölmörg handrit að heimildarmyndum. FRUMFLUTNINGUR Í ÚTVARPI ÞÖGN ANDRÉSAR Hið virta alþjóðlega gallerí Hauser & Wirth opnar nýjan sýningasal í Chelsea- hverfinu í New York á miðvikudaginn kemur með sýningunni Dieter Roth. Björn Roth. Die- ter Roth (1930-1998) er talinn meðal áhrifamestu myndlistarmanna seinni hluta 20. aldar og hefur verið lýst sem „per- formanslistamanni í öllum miðlum sem hann snerti á“. Í sýningunni í New York er sjónum beint að nánu samstarfi Dieters og Björns sonar hans en það stóð í tvo áratugi. Í ítar- legri umfjöllun í The New York Times í vik- unni er fjallað um samstarf feðganna og heils- að í sýningarsalnum upp á Björn og syni hans tvo, Odd og Einar Roth, sem bera keflið áfram. Þeir hafa undanfarinn mánuð unnið þrír saman, ásamt aðstoðarfólki, við að setja upp metnaðarfulla sýninguna í New York. ROTH-FEÐGAR Í NEW YORK FJÖLSKYLDULIST Björn Roth Dómgreindin er spegill nefnist samsýning sex erlendra mynd-listarmanna sem verður opnuð í Nýlistasafninu í dag, laug-ardag, klukkan 17. Áður verður málþing í myndlistardeild Listaháskóla Ísland við Laugarnesveg, í tengslum við sýninguna, og hefst það klukkan 13. Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni eru þau Tiong Ang, Roger Palmer, Jan Kaila, Japo Knuutila, Clodagh Emoe og Mick Wilson. Sýningarstjóri er Henk Slager. Útgangspunkturinn er að skoða möguleika myndmáls þar sem horft er á „hina“ í samfélaginu, út frá togstreitu og innri átökum. Verkin hafa áhrif hvert á annað í gegnum samtal ólíks myndmáls og sögulegra frásagna. Listamennirnir búa og starfa á Írlandi, Hollandi, Englandi og Finnlandi en sýningarstjórinn Slager er hollenskur fræðimaður sem starfað hefur við kennslu á framhaldsstigi, stýrt fjölda sýninga og gefið út efni, meðal annars bókina The Pleasure of Research. Lista- mennirnir hafa einnig allir komið að kennslu, rannsóknartengdri listsköpun og skrifum um myndlist, samhliða því að vera virk í sýn- ingahaldi á alþjóðlegum vettvangi. Listamennirnir vinna með fjölbreytilega miðla í sköpun sinni. Sum vinna að rannsóknarverkefnum, til að mynda skoðar Ang hvernig fjölmiðlar setja mark sitt á hugmyndir okkar um raunveruleikann og á það hvernig við skynjum staði og atburði. Emoe leitar í brunn endurtekinna athafna, til dæmis trúarlegra, og sviðsetur atburði; Kaila er hugmyndalistamaður sem nýtir sér söguleg heimildasöfn og fundna hluti; meðan Wilson vinnur með hljóðheim þar sem hann endurvinnur stef úr sálmum og handritum af trúarlegum uppruna. Palmer vinnur með ýmsa miðla en Knuutile með ljósmyndir. Sýningin er styrkt af stofnunum í heimalöndum listamannanna og í Kína en málþingið er haldið í samstarfi við Listaháskóla Íslands. Á því munu listamennirnir ræða með hvaða hætti og hvers vegna umfjöllunarefni sýningarinnar á erindi til listmenntunar dagsins í dag. METNAÐARFULL SAMSÝNING Í NÝLÓ Skoða mögu- leika myndmáls Rannsakandi myndlistarmenn. Roger Palmer og Japo Knuutila eru fyrir aftan þau Clodagh Emoe, sýningarstjórann Henk Slager og Jan Kaila. Morgunblaðið/Ómar SEX ERLENDIR LISTAMENN EIGA VERK Á SAMSÝNINGU Í NÝLISTASAFNINU. ÁÐUR EN HÚN VERÐUR OPNUÐ ER MÁLÞING Í LISTAHÁSKÓLANUM MEÐ LISTAMÖNNUNUM. Menning S ýningin gefur vísbendingar um það hvað ljósmyndarar voru að gera á þessu tímabili og þarna má sjá óskaplega skemmtilega hluti sem koma áhorfendum á óvart,“ segir Inga Lára Baldvinsdóttir, fag- stjóri Ljósmyndasafns Íslands í Þjóðminja- safninu, um sýninguna Ljósmyndun á Íslandi 1970-1990 sem verður opnuð í Myndasal safnsins í dag, laugardag, klukkan 15. Á sýningunni er úrval mynda fjórtán ólíkra ljósmyndara frá tímabilinu. Í tengslum við sýninguna gefur Þjóðminjasafnið út skýrsluna Þættir úr sögu ljósmyndunar á Ís- landi 1970-1990 eftir Steinar Örn Atlason. Í henni er umfjöllun um ljósmyndun hér á landi á þessum tíma auk viðtala við ljós- myndarana og safnamenn sem unnu með miðilinn á þessum tíma. Þátttakendurnir á sýningunni eru fulltrúar ólíkra sviða ljós- myndunar, frá stofu- og blaðaljósmyndun til listrænnar ljósmyndunar. Sýnendur eru Bragi Þ. Jósefsson, Davíð Þorsteinsson, Guð- mundur Ö. Ingólfsson, Gunnar V. Andrésson, Hallgerður Arnórsdóttir, Jóhanna Ólafs- dóttir, Laufey Helgadóttir, Mats Wibe Lund, Páll Stefánsson, Pjetur Þ. Maack, Ragnar Axelsson, Sigríður Bachmann, Sigurgeir Sig- urjónsson og Svala Sigurleifsdóttir. Flestar myndanna eru í eigu ljósmyndaranna en hluti þeirra er í safneign Þjóðminjasafns og listasafnanna. Heimildir liggja ekki á lausu Steinar Örn segir hefðbundna ljósmyndasögu hafa að mörgu leyti verið bundna listsögu- legum viðmiðum en í skýrslunni sé leitað annarra leiða til að fjalla um sögu íslenskrar ljósmyndunar og sjónum beint að ólíkum fé- lagslegum sviðum innan greinarinnar, svo sem ljósmyndaklúbbum, atvinnu- og áhuga- mönnum og ljósmyndasöfnum. „Það má vissulega segja að þetta sé til- raun til að varðveita upplýsingar um starfs- umhverfið og sköpunarferlið í víðum skiln- ingi,“ segir hann um skýrsluskrifin og viðtölin við ljósmyndarana. Inga Lára segir Þjóðminjasafnið hafa árið 1999 gefið út skýrslu Guðrúnar Harðar- dóttur um ljósmyndun hér á landi á árunum 1950 til 70. Þessi nýja skýrsla sé beint fram- hald hennar. „Við höfum stundað ljósmyndasögurann- sóknir í langan tíma og komumst að því að heimildir um hlutina liggja ekki á lausu,“ segir hún. „Á fyrri hluta 20. aldar birtust til að mynda afar fá blaðaviðtöl við ljósmynd- ara. Því fórum við sjálf að taka viðtöl. Fyrst um áratugina 1950 til 70 og síðan ákváðum við að fylgja því eftir og halda áfram. Hlé varð á því um tíma en afraksturinn kemur nú út. Í viðtölunum sem við tókum við ljósmynd- ara um fagið á árunum 1950 til 70 fréttum við mjög margt sem nú þykir sjálfsögð þekk- ing innan þessa kima,“ segir Inga Lára. „Fram að því vissum við til að mynda lítið um starfsemi ljósmyndaklúbba hér. Menn höfðu verið að gera miklu áhugaverðari og fjölbreytilegri hluti en okkur hafði grunað, og sú var einnig raunin nú. Margir hafa fengist við áhugaverða hluti og sumir verið í allrahanda tilraunamennsku. Þekkingar á þessum hlutum þarf að afla með ýmsum hætti og viðtölin nýtast þá vel,“ segir hún. Um sýninguna sem verður opnuð í dag segir Inga Lára að verk kvennanna hafi einkum verið óþekkt stærð, áhorfendur ÓLÍK VERK Á SÝNINGU Í ÞJÓÐMINJASAFNINU ENDURSPEGLA LJÓSMYNDUN TVEGGJA ÁRATUGA „Þarna má sjá óskaplega skemmtilega hluti“ Í MYNDASAL ÞJÓÐMINJASAFNS ÍSLANDS VERÐUR OPNUÐ SÝNING Á VERKUM FJÓRTÁN LJÓSMYNDARA FRÁ ÁR- UNUM 1970 TIL 90. SÝNINGIN ER SETT UPP Í TENGSLUM VIÐ NÝJA SKÝRSLU UM LJÓSMYNDUN HÉR Á ÞESSUM TÍMA. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Frá uppsetningu sýningar Samtaka fréttaljósmyndara í Norræna húsinu árið 1979. Jens Alexand- ersson, Vísi, Hörður Vilhjálmsson og Ragnar Th. Sigurðsson, Dagblaðinu, Friðþjófur Helgason, Helgarpóstinum, Þórir Guðmundsson, Vísi, og Emilía Björg Björnsdóttir, Morgunblaðinu. Ljósmyndasafn Íslands-Þjóðminjasafn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.