Morgunblaðið - 16.02.2013, Síða 4

Morgunblaðið - 16.02.2013, Síða 4
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Rekstur Lífeyrissjóðs verslunar- manna (LV) gekk mjög vel á síð- asta ári og var ávöxtun eigna 13,4% sem svarar til 8,5% hreinnar raunávöxtunar. Hrein raunávöxtun síðastliðin 10 ár nam 3,9%. Allir eignaflokkar lífeyrissjóðsins gáfu af sér jákvæða ávöxtun í fyrra. Það sem vegur þungt í góðri ávöxtun fjármuna sjóðsins í fyrra var ávöxtun á erlendum verðbréf- um í eigu sjóðsins en þau hækkuðu um 17% mælt í dollurum. Um helmingur af fjármunatekjum sjóðsins eru vegna erlendra verð- bréfa skv. upplýsingum sem feng- ust hjá LV. Ávöxtun á innlendum hlutabréf- um var einnig góð en á síðasta ári hækkuðu skráð hlutabréf í eigu sjóðsins um 24%. Raunávöxtun af innlendum skuldabréfum var um 4,5%. Skv. upplýsingum frá sjóðnum fjölgaði fjárfestingartækifærum á liðnu ári og innlendur hlutabréfa- markaður efldist. Gjaldeyrishöft eru þó enn sögð hamla nokkuð uppbyggingunni og setja mark sitt á starfsemi sjóða eins og LV. Eignir yfir 400 milljarðar Í lok ársins voru eignir lífeyr- issjóðsins um 402 milljarðar sam- anborið við 345 milljarða árið áður. Eignir jukust þannig um rúma 56 milljarða á árinu. Um 28% af eignum sjóðsins eru í dreifðu safni erlendra verðbréfa, 29% í innlendum ríkistryggðum skuldabréfum, 10% í safni sjóð- félagalána og 9% í bankainnstæð- um. Innlend hlutabréfaeign jókst nokkuð á árinu og nemur nú um 12% af eignum sjóðsins. Önnur skuldabréf eru samtals 12% af eignum. Kallar ekki á breytingar á lífeyrisgreiðslum Tryggingafræðileg staða lífeyr- issjóðsins hefur batnað undanfarin ár. Um nýliðin áramót var hún metin -0,4% samanborið við -2,3% árið 2011 og -3,4% árið 2010. Staða sjóðsins í þessu tilliti kallar því ekki á breytingar á lífeyris- greiðslum, að því er segir í tilkynn- ingu frá lífeyrissjóðnum í gær. Á liðnu ári greiddu rúmlega 48 þúsund sjóðfélagar til sjóðsins en alls eiga um 147 þúsund manns réttindi hjá LV og sjóðurinn greiddi um 8 milljarða í lífeyri til rúmlega ellefu þúsund sjóðfélaga. 8,5% raunávöxtun eigna LV í fyrra  Erlend verðbréf hækkuðu um 17% og innlend hlutabréf 24% Morgunblaðið/Kristinn Gott gengi Allir eignaflokkar LV gáfu af sér jákvæða ávöxtun í fyrra. Morgunblaðið/Golli Landspítali Hjúkrunarfræðingar að störfum á hjartadeild. Nýr stofnanasamningur gæti dregið dilk á eftir sér. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „Manni sýnist að aðrar stéttir, ekki eingöngu innan Landspítalans held- ur út um allt, séu að setja sig í stellingar til að fara fram á svip- aðar launahækkanir,“ segir Vil- hjálmur Egilsson, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins, spurður um möguleg áhrif launa- breytinga í nýgerðum stofnana- samningi hjúkrunarfræðinga og Landspítalans á vinnumarkaðinum. Meðalhækkunin í samningunum við hjúkrunarfræðinga er um 6% að mati Vilhjálms. „Þetta er nokk- uð fljótreiknað. Konur eru hátt í helmingur vinnumarkaðarins þann- ig að ef allar konur eiga að fá 6% hækkun þá er vinnumarkaðurinn í heild að hækka í kringum 3% og ef þeir sem eru með meiri menntun eiga svo að fá meira en hinir, þá kemur það þessu til viðbótar. Þar með væri ávísað á launahækkun sem er jafnhá þeirri sem er að ganga yfir núna vegna kjarasamn- inganna. Ef eitthvað slíkt á að ganga yfir þá hefði það bara aukna verðbólgu í för með sér,“ segir hann. Ekki verið leitað samkomulags við aðra með nokkrum hætti Vilhjálmur segir það gleymast í þessari umræðu að það sé sam- hengi á vinnumarkaðinum. „Ef hjúkrunarfræðingar eiga að hækka umfram aðra þá þarf að vera sam- komulag um það við alla hópa á vinnumarkaði. Mér sýnist ekki að slíks samkomulags hafi verið leitað með nokkrum hætti,“ segir hann. ,,Við erum ekki farin að sjá það ennþá hvar ríkisstjórnin ætlar sér að stoppa þennan bolta, sem hún ýtti af stað,“ bætir hann við. Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði gilda til 30. nóv- ember nk. og Vilhjálmur segir að samtökin ætli ekki að taka samn- ingana upp fyrir þá tímasetningu. „Þróunin hjá hinu opinbera hefur áhrif á almenna vinnumarkaðinn og hvernig spilast úr því. Okkar meg- inmarkmið er að geta hækkað laun á grundvelli stöðugleika og það er augljóst mál að ef opinberi vinnu- markaðurinn er að hækka langt umfram almenna vinnumarkaðinn, þá er það ekki gott innlegg.“ Vilhjálmur segist ekki taka afstöðu til samninga hjúkr- unarfræðinga sem slíkra en lykilatriðið sé að ef hækka eigi eina stétt umfram aðra, þá þurfi að vera miklu víðtæk- ara samkomulag um það á vinnumarkaðinum en komi fram í þessum stofn- anasamningi á Land- spítalanum. Telur aðra setja sig í stellingar  Óljóst hvar rík- isstjórnin ætlar að stöðva þennan bolta að mati SA 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013 Aðspurður hvort stefnumörk- un stjórnvalda og LSH í launa- málum hjúkrunarfræðinga eigi við um allar starfsstéttir á spítalanum segir Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra að fyrir liggi að jafnlaunaátakið sé skilgreint til að skoða stöðu kvennastétta. „Það verður far- ið yfir málið heildstætt, fyrst með stofnanasamningum þar sem það á við og síðan í fram- haldinu í kjarasamningum næsta árs. Vonin er að þetta verði forgangsatriði í næstu kjarasamningum, áherslan er á að leiðrétta kynbundinn launa- mun og stöðu kvennastétta gagnvart öðrum stéttum.“ Guðbjartur vill lítið segja til um hugsanlega aðkomu rík- isins að stofnanasamningum þeirra stétta sem berjast nú fyrir kjarabótum og minnir á að hjúkrunarfræðingar séu lang- fjölmennasta stéttin innan LSH eða 1300 starfsmenn. „Stofnunin sjálf (LSH) þarf að meta það með viðkom- andi starfsstéttum, hvað þarf og hvernig, í kjölfarið sjáum við upphæðirnar,“ segir Guðbjartur og tekur fram að stjórnvöld muni fylgjast grannt með gangi mála. Kvenna- stéttir til skoðunar RÁÐHERRA FYLGIST MEÐ Guðbjartur Hannesson Ætla má að bótasvik í almanna- tryggingakerfinu hafi numið allt að 3,4 milljörðum króna árið 2011, er mat Ríkisendurskoðunar sem legg- ur til hert viðurlög við bótasvikum. Ríkisendurskoðun telur að efla þurfi eftirlit á þessu sviði, m.a. með því að rýmka lagaheimildir Tryggingastofnunar til að afla og vinna með persónuupplýsingar. Þá eigi að rýmka heimildir stofn- unarinnar til að beita viðurlögum við bótasvikum. Mikilvægt sé að viðurlög séu þannig að þau fæli fólk frá því að reyna að svíkja út bætur, stendur ennfremur í tilkynningu frá Ríkisendurskoðun. Ekki liggur fyrir mat á ætluðu umfangi bótasvika hér á landi en í Danmörku er talið að þau nemi á bilinu 3–5% af heildarfjárhæð bóta- greiðslna. Sé miðað við þessi hlut- föll má ætla að bótasvik hér hafi í heild numið 2–3,4 milljörðum króna árið 2011, stendur í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar sem fjallar um eftirlit TR með bótagreiðslum í almannatryggingakerfinu. Telja bótasvik nema 3,4 milljörðum kr.  Efla þarf eftirlit með bótagreiðslum Vísbendingar eru um að raun- ávöxtun íslensku lífeyrissjóð- anna hafi verið góð síðasta ári og yfir langtímameðaltali skv. upplýsingum Landssamtaka líf- eyrissjóða, sem hafa birt nýtt hagtölusafn sjóðanna á vefsíðu samtakanna. Rekstrarkostn- aður sjóðanna var 0,3% af með- aleignum 2011 og með lægsta móti í alþjóðlegum samanburði. Góð ávöxtun lífeyrissjóða HAGTÖLUR TEKNAR SAMAN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.