Morgunblaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 35
UMRÆÐAN 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013
PILATES
Markmið Pilates er að lengja og styrkja líkamann með kerfisbundnum
æfingum. Hver æfing er hvetjandi, virkjar kviðvöðvana og heldur
iðkendum við efnið.
Kolbrún kennir hið eina sanna upprunalega Pilates kerfi. Hún segir fólk koma
afslappað út úr tímunum en jafnframt fullt af orku.
Hefst 5. mars•
8 vikur•
Kennari er Kolbrún Jónsdóttir•
Byrjendahópur kl. 18:30•
Framhaldshópur kl. 17:30•
Verð fyrir 8 vikur kr. 21.900 (þ.e. 10.950 pr. mán.)•
Betri heilsa borgar sig!
Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is
Pilates æfingakerfið getur minnkað stress og verki í baki hálsi og öxlum.
Jákvæð áhrif Pilates eru einnig:
Aukin orka og vellíðan•
Meiri sveigjanleiki, aukinn styrkur og bætt jafnvægi•
Réttari líkamsstaða•
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
Þá að spurningunum sem meiri-
hluta Eyjamanna og margra ann-
arra bæjarfélaga langar að fá svör
við:
1. Finnst þér þær upplýsingar
sem Eyjamönnum sem og öðrum
landsmönnum eru veittar um áhrif
breytinga á fiskveiðistjórn á lífs-
afkomu landsbyggðarfólks, full-
nægjandi?
2. Finnst þér árásir stjórnmála-
manna á útgerðarmenn maklegar?
3. Teljið þið að veiðigjaldið komi
vel út fyrir almenning í Eyjum sem
og í öðrum sjávarbyggðum?
4. Er það rangt mat hjá fulltrúum
smábátaeiganda, þeirra sem þið ætl-
uðuð að standa vörð um, að veiði-
gjaldið komi verst út fyrir ein-
staklingsútgerðir?
5. a) Mun aukin „ríkisútgerð“ ekki
hafa í för með sér verri lífskjör fyrir
fólk sem býr í sjávarbyggðum sem
standa vel?
b) Til hve langs tíma teljið þið að
þurfi að leigja út aflaheimildir, til
komast megi hjá því að „gullæði“
grípi um sig með tilheyrandi offjár-
festingu, gjaldþrotum og slæmri
umgengni um fiskveiðiauðlindina?
c) Verður ekki að setja reglur um
hve mikið má leigja til einstakra út-
gerða, sjávarbyggða o.s.frv.?
c) Þarf ekki að banna að einungis
ein tegund sé leigð til að koma í veg
fyrir brottkast, ef já hversu margar
tegundir þarf að leigja?
d) Hvernig ætlið þið að tryggja
nýliðun í greininni, með leigu á
kvóta?
e) Allt í kringum landið eru mörg
hundruð einstaklingsútgerðir, þar
sem útgerðarmenn hafa keypt kvóta
á undanförnum árum og jafnvel veð-
sett heimili sín til að eiga tryggan
aðgang að auðlindinni. Finnst ykkur
í ríkisstjórninni að þetta fólk eigi að
missa heimildir sínar til ríkisins án
þess að fá bætur fyrir?
f) Eitt afsprengi þess að gera afla
upptækan er strandveiðikerfið, ótrú-
legt sóunarkerfi, sem er eins þjóð-
hagslega óhagkvæmt og hugsast
getur. Þeir einu sem virðast hafa
eitthvað upp úr strandveiðum eru
fyrrverandi og núverandi útgerð-
armenn, sem fá nú tækifæri á að
selja eða leigja báta sína á upp-
sprengdu verði og/eða gera sjálfir út
í boði ykkar, (sem sagt gerast „léns-
herrar“, orð sem þú hefur notað yfir
útgerðarmenn í mjög neikvæðri
meiningu).
Óttastu ekki að með væntanlegri
„ríkisútgerð“ endurtaki leikurinn
sig, þ.e. að minni útgerðir með veik-
ari efnahag, detti út á kostnað þeirra
stærri, sem og fyrrverandi útgerð-
armanna, bæði þeirra sem hafa selt
sig út og þeirra sem hafa orðið gjald-
þrota?
Árni Páll, nýkjörinn formaður
Samfylkingarinnar, hefur verið
spurður út í framkomu ykkar í garð
landsbyggðarfólks. Þeim spurn-
ingum hefur hann lofað að svara
fljótlega.
Þrír forystumenn ríkisstjórn-
arflokkana í Vestmannaeyjum hafa
verið spurðir út í svik ykkar og
pretti, en enginn af þeim hefur
treyst sér til að verja gjörðir ykkar.
Ástandið í herbúðum VG og Sam-
fylkingarinnar er mjög dapurt í Eyj-
um, t.a.m. eru tveir af þeim þremur
sem spurðir voru út í verk ykkar
búnir að draga sig út úr pólitík.
Á næstu vikum munu fulltrúar
sjómanna og almennings í Eyjum tjá
sig um vinnubrögð ykkar og mun
það svipta hulunni af þeim blekking-
arleik sem viðhafður hefur verið um
undirstöðuatvinnugrein þjóð-
arinnar.
» Ólína, hvers vegna er
ykkur í ríkisstjórn-
inni í nöp við sumt
landsbyggðarfólk?
Höfundur er iðnrekstrarfræðingur.