Morgunblaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013 BAKSVIÐ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Mér finnst mikilvægt að þetta einstæða bóka- safn verði opið almenningi. Slíkt þarf raunar ekki að vera stórmál og ég vænti þess að á Skál- holtshátíð í júlí nk. verði safnið komið á nýjan stað. Hér er að finna flestar merkustu bæk- urnar sem gefnar hafa verið út hér á landi,“ seg- ir sr. Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup í Skálholti. Eitt áhugaverðasta bókasafn landsins er varðveitt í Skálholti, en það var í febrúar 1965, sem þjóðkirkjan festi kaup á safni mikilla kjör- gripa, einu hinu stærsta í einkaeigu á landinu. Satt að segja er ákveðin dulúð yfir þessu safni því tilvist þess hefur ekki verið á vitorði ýkja margra. Safn á menningarsetri Skálholsstaður og viðreisn hans var áherslu- mál í biskupstíð Sigurbjörn Einarssonar sem tók við embætti árið 1959. Dómkirkjan í Skál- holti var vígð 1963 og starfsemi lýðháskóla að norrænni fyrirmynd hófst um áratug síðar. Með þessu var ætlunin að staðurinn yrði alhliða mennta- og menningarsetur. Í því skyni þótti mikilvægt að góður bókakostur væri á staðnum. Bókasafnið í Skálholti var upphaflega í eigu Þorsteins Þorsteinssonar, sýslumanns í Búðar- dal. Síðar eignaðist Kári Borgfjörð Helgason, kaupmaður í Reykjavík, safnið. Árið 1965 kaus hann svo að láta það frá sér og seldi þjóðkirkj- unni fyrir 3,5 millj. kr. að þávirði, sem var geysihá fjárhæð. Var sú upphæð greidd með fjármunum meðal annars úr svonefndri Skál- holtssöfnun sem margir lögðu lið. Í ýmsum gögnum og frumheimildum viðvíkj- andi kaupunum á bókasafninu er margt athygl- isvert. Lesa má á milli lína orðræðu handrita- málsins. Það var nánast framhald af sjálf- stæðisbaráttunni sem lauk strangt til tekið með stofnun lýðveldisins árið 1944. Á sínum tíma var kvittur um að bókasafnið úr Dölum yrði hugsanlega selt úr landi. Til þess máttu sumir ekki hugsa, með skírskotun til þess að á árunum upp úr 1960 var þjóðareining um endurheimt íslenskra skinnhandrita úr vörslu Dana. Í margra vitund var litið svo á að sjálf- stæð þjóð gæti tæpast látið sína gömlu herra- þjóð varðveita sagnaarf sinn – hvað þá að á sama tíma yrðu merkir íslenskri menning- argripir seldir til útlanda. Bak við þrennar dyr Í bókasafnið í Skálholtskirkju er langur gangur og fara þarf um þrennar rammgerðar og læstar dyr. Fyrst er prílað upp nokkra og bratta þrönga stiga og svo arkað um langan gang undir rjáfri kirkjuskipsins. Svo er tekinn einn stiginn enn og inn í turn kirkjunnar og þar er safnið; í 30 fermetra herbergi. Þar var því komið fyrir árið 1967 og er vel að því búið að flestu leyti. Nokkurt hnjask varð í safninu í jarðskjálftunum árið 2000 og hvetur það ásamt mörg öðru til þess að gerðar verði bragarbætur. Merkustu bækurnar eru í eldtraustum stál- skápum en aðrar í hefðbundnum bókahillum. Í tímans rás hafa ýmsar hugmyndir um bóka- safnið verið settar fram, svo sem að byggð yrði yfir það sérstök bókhlaða sem átti að vera tengi- bygging við Skálholtsskóla. Þær bollaleggingar eða aðrar hafa þó aldrei reynst raunhæfar sakir fyrirsjáanlega mikils kostnaðar, að sögn sr. Kristjáns Vals. Safnið verði í biskupshúsi Árið 2006 samþykkti ríkisstjórnin tillögu Björns Bjarnasonar, þá dóms- og kirkju- málaráðherra, um að gengið yrði til samninga við stjórn Skálholtsstaðar um byggingu húss fyrir móttöku ferðamanna og bókasafnið. Fyrstu drög að slíku mannvirki voru gerð. Svo kom hrun. Þá var í staðinn reist gestastofa sem stendur á Skálholtshlaði og er þar m.a. sýning um sögu staðarins. Bókasafnsmál hafa því beðið en nú telur vígslubiskup hins vegar vera lag. Kjallari embættisbústaðar hans stendur auð- ur og þar segir sr. Kristján Valur auðvelt að koma safninu fyrir svo vel fari og það fyrir lítinn pening. Þá sé í kjallaranum aðstaða fyrir þá sem myndu vilja nýta sér safnið vegna fræðistarfa. Flest frá uphafi prentlistar En hver er safnkosturinn? Í stuttu máli sagt er þar að finna flest það markverðasta sem út kom á Íslandi frá upphafi prentlistar á Íslandi fram undir 1960. Hér má nefna Guðbrands- biblíu frá 1584, Þorláksbiblíu frá 1644 og Steins- biblíu frá Hólum sem kom út snemma á átjándu öldinni. Einnig er í safninu fjöldi annara kirkju- rita, svo sem fyrsta útgáfa Passíusálmanna frá 1666, Grallarinn í ýmsum útgáfum, guðsorða- bækur – og svo fjöldi ævisagna, ljóðabóka, skáldverka, handrit ýmiskonar og smáprent. Talið er að í safninu séu um 10 þúsund bækur og minnst 4.000 bindi tímarita. Mörg þessara rita eru fágæti og ekki er vitað til þess t.d. að frumútgáfa Sálma og kvæða eftir Hallgrím Pét- ursson frá árinu 1755 sé annars staðar til. Þarna eru satt að segja gersemar í hverri hillu þó inni á milli séu líka bækur sem víða eru til og fást á fornsölum fyrir lítið. Flutt á næstu mánuðum „Skálholt er staður mikillar sögu. Fyrir vikið hafa flestir meiningar um mál hér; t.d. um Þor- láksbúð eða miðaldadómkirkju. Nú er bókasafn- ið hins vegar næst á dagskrá og til að koma því máli á rekspöl vil ég virkja sem flesta. Skálholt á marga bakhjarla og fólk sem vill veg þessa stað- ar sem mestan,“ segir vígslubiskup sem hefur kynnt kirkjuráði hugmyndir sínar – um að flytja safnið á hentugri stað án mikils kostnaðar. Voru undirtektir á þeim vettvangi góðar og því líklegt að safnið verði flutt innan tíðar. Kjörgripir á kirkjuloftinu  Tíu þúsund merkar bækur varðveittar í turni Skálholtskirkju  Bak við læstar dyr í áratugi  Guðbrandsbiblía, Grallarar og frumútgáfa Passíusálmanna  Safnið senn aðgengilegt almenningi Helgirit Hér er að finna flestar merkustu bækurnar sem gefnar hafa verið út hér á landi,“ segir sr. Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup. Óverulega hefur þó bæst í safnið eftir 1960. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skálholt Bókasafnið er í turni kirkjunnar. Nú stendur hins vegar til að flytja þar í kjallara bisk- upsbústaðarins sem er fremst á myndinni. Er sú lausn talin hentug og kosta ekki mikið. Bækur Ágætlega er að safninu búið. Mestu dýrgripirnir eru geymdir í stálskápum Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhann- esdóttir, minntist þess við upphaf þingfundar að í gær að liðin voru rétt 90 ár frá því að fyrsta konan, Ingibjörg H. Bjarnason skólastjóri, tók sæti á Alþingi. Í ávarpi sínu sagði þingforseti: Í dag, 15. febrúar, eru liðin rétt 90 ár frá því að fyrsta konan, Ingibjörg H. Bjarnason skólastjóri, gekk inn í þennan sal sem kjörinn alþingis- maður. 35. löggjafarþing var sett fimmtudaginn 15. febrúar 1923. Fjórum dögum síðar var kjörbréf Ingibjargar samþykkt og hún vann eið að stjórnarskránni. Ingibjörg H. Bjarnason var kjörin á Alþingi í landskjöri sumarið áður, 8. júlí 1922. Í framsöguræðu sinni fyrir áliti kjörbréfanefndar sagði Jóhannes Jóhannesson m.a.: „Þetta verður í fyrsta sinn sem kona tekur sæti á Alþingi, og ég vil láta í ljós gleði mína fyrir þeim atburði. Ég óska háttv. 6. landskjörnum þingmanni, Ingibjörgu H. Bjarnason, farsældar og ánægju í starfi sínu og þess að hluttaka kvenna í löggjafarstarfinu megi verða landi og lýð til bless- unar.“ Tímamóta minnst á Alþingi Ljósmynd/Alþingi Úr þingsal Í tilefni dagsins var málverk eftir Gunnlaug Blöndal í eigu Alþingis af Ingibjörgu H. Bjarnason hengt upp í þingsalnum í gær. Polarolje Meiri virkni Hátt hlutfall Omega 3 fitusýrur Minn læknir mælir með Polarolíunni, en þinn ? Selolía, einstök olía Gott fyrir: Maga- og þarmastarfsemi Hjarta og æðar Ónæmiskerfið Kolesterol Liðina Polarolían fæst í: apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni og Melabúð Nú líka í hylkjum Nýtt!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.