Morgunblaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013 ✝ Jóhann BragiFreymóðsson fæddist á Ytra- Kálfsskinni, Ár- skógsströnd, 27. febrúar 1920. Hann lést á heim- ili sínu í Santa Barbara í Kali- forníu 12. janúar 2013. Foreldrar hans voru Freymóður J. Jóhannsson, f. 12. september 1895 í Stærra- Árskógi, Árskógsströnd, d. 6. mars 1973 og Steinunn M. Jónsdóttir, f. 31. janúar 1894 á Stóru- Hámundarstöðum, Ár- skógsströnd, d. 9. september 1982. Systkini Braga eru Árdís Jóna Freymóðsdóttir, f. 25. júlí 1922, Fríða Freymóðs- dóttir, f. 23. janúar 1925, d. 1. október 2010, og Stefán Heim- ir Freymóðsson, f. 30. nóv- ember 1928, d. 25. nóvember 1930, og samfeðra Heimir Freymóðsson, f. 1. mars 1948, d. 31. ágúst 1968, og Berglind Freymóðsdóttir, f. 17. október 1951. Hinn 31. desember 1955 Mixen, f. 8. september 1987, og Sarah Sigrid, f. 26. október 1989. Bragi ólst upp á Ak- ureyri, lauk þar barnaskóla- prófi og varð stúdent frá MA 1940. Á sumrin stundaði Bragi m.a. sjóinn og var túlkur hjá breska setuliðinu á Siglufirði. Árið 1940 fór Bragi til náms í Manitoba-háskóla í Winnepeg þar sem hann lagði stund á rafeindaverkfræði. Hann færði sig svo yfir til Berkley, en þaðan brautskráðist hann með BS-prófi. Að lokum tók hann svo MS-próf í rafeindafræði frá IIT í Chicago árið 1947. Árið 1948 kom Bragi aftur til Íslands og í fjögur ár gegndi hann stöðu forstöðumanns raf- magnsdeildar SÍS. Aftur fór Bragi til Bandaríkjanna, fyrst til Chicago og vann þar hjá fyrirtæki Árna Helgasonar. Fór svo til starfa hjá Magna- vox Research Laboraties í Kaliforníu, og gegndi þar stöðum framkvæmdastjóra og aðstoðarforstjóra. Þar stýrði Bragi m.a. vinnu við þróun á GPS-staðsetningartækni og er því einn af frumkvöðlum þeirrar tækni. Minningarathöfn um Braga fer fram frá The Good Shep- herd Lutheran Church, í Santa Barbara í Kaliforníu laugardaginn 16. febrúar 2013 og hefst athöfnin kl. 13 að staðartíma. giftist Bragi Sig- ríði Gunnarsdóttur Bílddal, f. 27. febr- úar 1930, d. 3. mars 2002. For- eldrar hennar voru Gunnar Bíld- dal, f. 4. ágúst 1902, d. 20. apríl 1980 og Eugenía Guðmundsdóttir Bílddal, f. 16. mars 1904, d. 6. apríl 1967. Systkini Sig- ríðar eru Jóna Ríkey Bílddal, f. 11. ágúst 1926, d. 11. mars 1994, Valgerður G. Bílddal, f. 21. júní 1928, Guðmundur, f. 9. júlí 1931, d. sama ár, Lovísa B. Ruesch, f. 15. desember 1935, d. 12. september 2003 og Katrín Bílddal f. 21. febr- úar 1938, d. 7. desember 2007. Börn Braga og Sigríðar eru Baldur Arnar Freymóðsson, f. 28. júlí 1956, d. 9. júní 1979, og Steinunn Freyja Freymóðs- son, f. 15. janúar 1958, gift Howard E. Green, f. 30. jan- úar 1954. Börn Steinunnar með fyrrverandi manni sínum, Michael Danley, eru Stephen Bragi, f. 27. júlí 1985, James Faðir minn, Jóhann Bragi Freymóðsson, eða Bragi eins hann var alltaf kallaður lést á heimili sínu í 12. janúar sl. í faðmi sinna nánustu. Pabbi var með sterka réttlæt- iskennd, mikill fjölskyldumaður og mjög greindur og hæfileika- ríkur rafmagnsverkfræðingur. Á 47 ára ferli pabba var hann í 35 ár að vinna við ýmiskonar verkefni tengd radíó- og sam- skiptakerfum fyrir bandaríska herinn í þjónustu Varnarmála- ráðneytis Bandaríkjanna. Frá 1966-1972 gegndi hann stöðu rekstrarstjóra yfir framleiðslu og innkaupum á rafeindabúnaði tengdum flugi hjá Magnavox Research Laboratories í Torr- ance, Kaliforníu. Frá 1972-1977 starfaði hann sem aðstoðarfor- stjóri og framkvæmdastjóri hjá Magnavox í Fort Wayne, In- diana, þar sem hann bar ábyrgð á framleiðslu ýmiskonar sam- skiptabúnaðar og sérfram- leiðslu. Hann þróaði og fram- leiddi samskiptabúnað, eins og AN/ARC-164, fyrir bæði flug- og landher Bandaríkjanna, sem ollu kaflaskiptum í mikilvægum þáttum í rekstri Bandaríkja- hers. Frá 1977-1981 var hann aðstoðarforstjóri og fram- kvæmdastjóri hjá Magnavox yf- ir þeirri deild sem þróaði stað- setningartæknina „Global Positioning system“ (GPS). Sem ábyrgðarmaður Magnavox-fyr- irtækisins í þróun á GPS- tækninni, var pabbi einn af frumkvöðlum þess að þú getir séð staðsetninguna þína hvenær sem er og hvar sem er í stað- setningartækjum eða í símanum þínum. Er það ekki frábært! En hógværðin var eitt af hans aðal- einkennum, svo hann var ekki að hreykja sér af þessu afreki. Leynileg verkefni fyrir ríkis- stjórnina og eiður um leynd hélt mér frá því að vita um aðra hluti sem ég hefði viljað að hann deildi með mér, en hann var maður orða sinna og tók slíka eiða mjög alvarlega. Pabbi var elskaður af mörg- um og margir munu sakna hans, en einkum þó ég dóttir hans. Bróðir minn, Baldur Arnar Freymodsson, og mamma mín, Sigríður Bílddal Freymodsson eru farin á undan honum en við sem eftir lifum munum sakna hans mikið, hin ótrúlega sterka og umhyggjusama systir hans Árdís Jóna Freymóðsdóttir, minn elskulegi eiginmaður Howard E. Green, og yndislegu barnabörnin, Stephen Bragi Danley, James Mixen Danley og Sarah Sigrid Danley. Þeir sem þekktu pabba vita að hann var snillingur í ensku sem var hans annað tungumál, elskaði að vera innan um fólk og rökræða um heima og geima. Hann var hinn fullkomni heiðursmaður, elskaði skák en þó ekki eins mikið og djass. Artie Shaw var maðurinn! Pabbi hafði greinst nýlega með heilabilunarsjúkdóminn Lewy Body Dementia, sem hann hafði þjáðst af í töluverðan tíma án réttrar sjúkdómsgreiningar. Þeim sem vilja minnast pabba er bent á að styrkja rannsóknir á sjúkdómnum Lewy Body Dementia sem hægt er að gera á netinu,www.lbda- .org eða á heimilisfangið Lewy Body Dementia Association, 912 Killian Hill Road, S.W., Liburn, GA 30047, USA. Þín dóttir, Steinunn Freyja. Elsku bróðir minn, það er margs að minnast á langri ævi og vil ég þakka þér samfylgd þína. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þín systir Árdís Jóna (Jonna). Látinn er í Santa Barbara kær vinur minn Bragi Frey- móðsson. Ég kynntist Braga þegar hann kvæntist bestu vin- konu Ásdísar konu minnar fyrir tæpum 60 árum, en kona Braga, Sigríður Bílddal, fór til Chicago til framhaldsnáms í hjúkrunarfræðum árið 1950. Sigríður lést 3. mars árið 2002. Þegar Sigríður kom til Chicago starfaði Bragi þar sem raf- magnsverkfræðingur hjá fyrir- tæki Árna Helgasonar þar í borg en Bragi fór eftir stúd- entspróf frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1940 til náms í Chicago. Bragi starfaði um tíma hjá Véladeild Sambands ís- lenskra samvinnufélaga í Reykjavík en hvarf frá því starfi aftur til Chicago. Hann hóf störf hjá fyrirtækinu Magnavox Government and Industrial Electronics Company sem annar Íslendingur hafði tekið þátt í að stofna en sá var Ragnar Thorarensen frá Siglu- firði. Fyrirtækið Magnavox var í Los Angeles. Bragi starfaði einnig hjá fyr- irtækinu í Fort Wayne Indiana í nokkur ár. Í Los Angeles bjuggu Bragi og Sigga í fallegu húsi í Palos Verdes-hverfinu og þangað komum við Ásdís til þeirra hjóna. Bragi var strax settur í ábyrgðarstöðu hjá fyr- irtækinu og var alla tíð einn af æðstu mönnum þess, fyrrver- andi varaforseti, enda með alla hæfileika til þeirra starfa. Eftir 1993 settust Sigga og Bragi að í Santa Barbara í Kaliforníu þar sem dóttir þeirra Steinunn býr ásamt fjölskyldu sinni. Bragi var alla tíð verðugur fulltrúi Ís- lands í Bandaríkjunum, greiddi götu fjölmargra Íslendinga sem sóttu þangað nám. Sigga tók þátt í félagsstarfi Íslendinga og til þeirra Siggu og Braga var leitað í mörgum málum, sem þau leystu úr af miklum dugn- aði og ánægju. Ég minnist ferðalaga með Braga og Siggu um Bandaríkin, meðal annars í Flórída, Las Vegas, Indiana og Kaliforníu. Bragi var eins og margir muna ekki ólíkur John F. Kennedy í útliti og man ég að stundum þegar við komum á dvalarstaði var tekið á móti honum sem þjóðhöfðingja. Heimili Braga og Siggu stóð ætíð opið fyrir landann og var stundum eins og hálfgert sendi- ráð. Ég færi Steinunni og fjöl- skyldu hennar og Jonnu systur hans mínar alúðarfyllstu sam- úðarkveðjur og þakka fyrir ein- staka vináttu. Birgir Jóh. Jóhannsson. Nú er gamli góði vinurinn minn, Bragi Freymóðsson, stig- inn niður af leik- og starfssviði hins jarðneska lífs. Hann er þar með sá næstsíðasti til þess af þeim stúdentum sem braut- skráðust frá MA 1940. Ef mig brestur ekki minni, þá hófust fyrstu kynni okkar, þeg- ar við stráklingarnir vorum að breiða saltfisk fyrir neðan Berl- ín, æskuheimili Braga. Vináttu- böndin styrktust enn meir seinna, einkum eftir að við fór- um að æfa saman í fimleika- flokki Hermanns Stefánssonar, íþróttakennara í MA. Til þess að sýna á hversu góðum og traustum merg vin- átta okkar stóð á unglingsárun- um langar mig til að segja frá því hvernig við höguðum okkur oftast eftir kvöldmat. Bragi kom flautandi innan úr bæ til að til- kynna komu sína í miðbæinn, beint fyrir framan París þar sem ég bjó og í sömu andrá kom annar félagi okkar jafn glaðlega flautandi úr gagn- stæðri átt. Þar var mættur Jón- as Einarsson, síðar flugvallar- stjóri á Akureyri. Það var álitamál hvor þeirra flautaði betur. Ég var líka liðtækur á þessum tónlistarvettvangi. Eftir stuttan labbitúr um „bótina“ lá leiðin beint á póst- húsið. Þegar inn var komið tók- um við okkur jafnan stöðu fyrir framan póstkassana. Pósthúsið var okkar samkomustaður. Þessar kvöldstundir inni á póst- húsinu gamla voru ómetanleg og ógleymanleg tilbreyting á æskuárunum í okkar yndislega bæ, Akureyri. Þar sem Bragi hafði lokið stúdentsprófinu með ágætisein- kunn fékk hann svokallaðan menntamálaráðsstyrk og fór ut- an til náms, fyrst til Kanada og síðan til Bandaríkjanna. Hann sneri heim 1948 og vann hjá SÍS sem forstjóri rafmagnsdeildar- innar til ársins 1952. Annálaður fyrir heiðarleika og samvisku- semi. Á þessu fjögurra ára tímabili bjuggum við saman, fyrst í Tún- unum og síðan á Flókagötu gegnt Kjarvalsstöðum. Sambúð okkar var einkar farsæl. Hvað afþreyingar okkar varðaði þá voru þær vitanlega langtum fjölbreytilegri, fjölskrúðugri og ekki síst miklu djarfari en á gamla pósthúsinu á Akureyri. Þegar ég varð sjötugur, 1991, ákváðum við hjónin að halda upp á afmælið og heimsækja Braga og fjölskyldu til Banda- ríkjanna. Við komu þangað lét vinurinn okkar væni sig ekki muna um það að aka alla leið frá Fort Wayne í Indíana til Pompano Beach í Flórída til að sækja okkur. Í hans augum var þetta aðeins smágreiði. Á baka- leiðinni tók hann að sér hlut- verk leiðsögumanns og leysti það af hendi með mestu prýði. Fimm árum síðar, 1996, heimsóttum við þau öðru sinni, en þá voru þau flutt til Santa Barbara í Kaliforníu. Bragi lét ekki deigan síga í leiðsögu- mannshlutverki sínu og ók með okkur út um allar trissur, meira að segja alla leið til Mexíkó. Brátt kom í ljós að konan hans gekk ekki heil til skógar. Umhyggja Braga fyrir líðan konu sinnar var engum tak- mörkum sett. Annarri eins nær- gætni, kærleika og ást höfum við Andrea aldrei fyrr orðið vitni að. Undir lokin vil ég aðeins segja eitt: Ég get aldrei verið örlögum nógsamlega þakklátur fyrir það mikla lán mitt að hafa átt jafn góðan og hjartahlýjan vin sem Braga Freymóðsson. Veri vinur minn ljósinu fal- inn. Halldór Þorsteinsson. Þegar ég flutti til Santa Bar- bara í Kaliforníu haustið 2005 vissi ég að framundan væru spennandi en algjörlega ófyr- Bragi Freymóðsson HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KARÓLÍNU FRIÐRIKU HALLGRÍMSDÓTTUR, Laugarvegi 33, Siglufirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Fjalla- byggðar fyrir einstaka alúð og elskusemi. Guð blessi ykkur öll. Ólöf Þórey Haraldsdóttir, Ásgeir Sigurðsson, Helga Haraldsdóttir, Erlingur Björnsson, Ragnheiður Haraldsdóttir, Árni Haraldsson, Ragnheiður Árnadóttir, Eyþór Haraldsson, Árni Þór Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, UNNAR GUÐBJARGAR ÞORKELSDÓTTUR hárgreiðslumeistara, Álftanesi. Þorkell Snorri Gylfason, Freyja Gylfadóttir, Unnur Kristbjörg Gylfadóttir, Kristín Edda Gylfadóttir, Margrét Þóra Gylfadóttir. ✝ Elskuleg systir mín, ANNA JÓNSDÓTTIR KRASON, Lóa, til heimilis í Virginíu, Bandaríkjunum, er látin. Fyrir hönd aðstandenda, Ragna Jónsdóttir. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN ELÍSSON, Laxárdal, síðast til heimilis í Glósölum 7, Kópavogi, lést á Landakotsspítala 14. febrúar. Guðný Sigríður Þorsteinsdóttir, Sveinn Karlsson, Guðrún Þorsteinsdóttir, Jón Einarsson, Karólína Dóra Þorsteinsdóttir, Böðvar Stefánsson, Elínborg Þorsteinsdóttir, Bergvin Sævar Guðmundsson, Ólöf Þorsteinsdóttir, Böðvar Sigvaldi Böðvarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, STEINÞÓR INGEBRIGT NYGAARD, sem lést fimmtudaginn 14. febrúar, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju miðviku- daginn 20. febrúar kl. 15.00. Ásta H. Haraldsdóttir, Erlendur Steinþórsson, Shou-Ping Wendy Chen, Andrés R. Ingólfsson, Guðlaug Helga Konráðsdóttir, Ása Andrésdóttir, Auður Ásta Andrésdóttir, Benjamin Beier, Margrét Erlendsdóttir. ✝ Okkar elskulegi ÓTTAR EINARSSON kennari, Klausturhvammi 13, Hafnarfirði, sem lést fimmtudaginn 7. febrúar, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju mánu- daginn 18. febrúar kl. 11.00. Steinunn Inga Óttarsdóttir, Brynjar Ágústsson, Guðrún Arnbjörg Óttarsdóttir, Haraldur Eiríksson, Þuríður Óttarsdóttir, Hannes Steinar Guðmundsson og barnabörn, Guðrún Kristjánsdóttir, Jóhanna Þuríður Þorsteinsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.