Morgunblaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 23
öllu og sá trausti fylgdarmaður sem honum var fenginn til leiðsagnar, og báru þessa ógnarfregn um bæinn. Í dyrum mættu honum spyrjandi augu full ótta og áhyggju. Æðruleysið og stillingin kom ungum prestinum reyndar á óvart. Svona fregnir höfðu áður borist um þetta þorp sem önnur við ströndina. Þær eyddu óvissunni, settu viðfang fyrir tilfinningalífið. Komst enginn af? Nei, enginn komst úr þessum háska. Það var hægt að fara að syrgja, takast á við óbærilegan missinn. Það lagðist dimmur skuggi yfir Bíldudal. Allir höfðu misst. Kona skipstjórans missti hann frá tveimur ungum sonum og foreldra sína að auki. Systir hennar þau líka og einnig tengdamóður sína, annan mág og svilkonu. Þau sem fórust áttu 56 börn. Í kjölfarið kom slæm umgangspest og við henni var mótstöðuaflið skert. Svo komu líkin heim, þrjú saman fyrst og svo eitt og eitt. Jarðarfarir fram á sumar. Sárin ýfðust upp. – Það þurfti að ráða nýja menn til forystu. Það vantaði prest, kaupfélagsstjóra, tvo kaupmenn, framkvæmdastjóra, mömmur og pabba og ömmur og afa, eiginmenn og unnusta. Það var reyndar ekki hægt að ráða í allar stöðurnar! Það átti þó eftir að verða hjálp í prestinum og eftir árin hans sautján á Bíldudal var hann ekki lengur ókunnugur né heldur að nær- vera hans vekti annað en öryggi og elsku. Séra Jón Kr. Ísfeld hét hann. Eftirleikurinn Miklar umræður urðu í þjóðfélag- inu um Þormóðsslysið. Blöð allt í kringum landið birtu fréttina um það og nöfn hinna látnu. Þeirra var minnst í sameinuðu Alþingi og í Dóm- kirkjunni var minningarathöfn 5. mars með biskup landsins í ræðustól að stórmenni og fulltrúum annarra þjóða viðstöddum. Hluttekning ríkis og þjóðar var ákaflega virðuleg og vottur um að þjóðarsorg ríkti. Það voru líka fleiri sem höfðu horfið í vota gröf. Sjómenn drukknuðu á næstum dögum og stríðið sá í raun fyrir fleir- um hér að tiltölu en í sumum stríðs- löndunum. Hildarleikurinn í Evrópu setti svo sinn dökka skugga sem bak- grunn fyrir hörmungum þjóðarinnar. Umræður urðu um öryggismál sjó- manna og dómsrannsókn fór fram á ástæðum slyssins. Hún leiddi í ljós að leki hafði verið vandamál á siglingum skipsins hér við land og þrátt fyrir gagngerar endurbætur varð ekki komist fyrir hann. En um sitthvað annað var ekki fjallað og verður ekki heldur gert hér. Aldrei var talað um að það hefði verið ábyrgðarhlutur að hafa svo margt fólk um borð. Því réð þörfin og ástandið í stríðinu. Engar voru veð- urfregnirnar af stríðshagsmunum og heldur engar skipaáætlanir af örygg- isástæðum. Allt þetta fólk þurfti nauðsynlega að komast suður og óvíst um næstu ferð sem félli. Hún reynd- ist svo verða sex dögum síðar, en það var alls óvíst þá og viðkoman þó ekki án eftirgangsmuna. Fjórir menn sem áttu annað far víst tóku þá ákvörðun að fara heldur með Þormóði. Menn létu ekki óttann stjórna sér heldur nauðsynina. Enginn virðist hafa hætt við för af því að skipið væri svo mann- margt. Í þessum anda var hleypt um borð þeim sem með vildu fara. Eng- inn fór í land á Patreksfirði, þar bætt- ust við tveir farþegar, reyndur skip- stjóri og prestur. Árin liðu Hjónabönd urðu til. Börn fæddust og við fengum nöfn hinna látnu að bera á vit ókominnar framtíðar sem núna er orðin okkar dagur. Lífið hélt áfram, en ekki sinn vanagang. Svo margt var breytt. Sorgarsárin blæddu og sársaukinn blindaði sýn. Missirinn skerpti hins vegar skilninginn á dýr- mæti lífsins. Það var litið eftir okkur og hlúð að lífinu eftir föngum. Þormóðsslysið gleymdist þó aldrei svo lítið sem um það var nú talað í raun. Það voru því kalblettir á mann- lífinu hér og hvar, en víða blómstraði þó umhyggjan, og áhuginn á því að Bíldudalur efldist var brennandi. Það varð eiginlega ófært að rífast mikið um hreppspólitík. Það var ekki boð- inn fram nema einn listi í sextán ár. Þegar svo að því kom töldu menn það móðgun við sig og margir fluttu burtu þegar gamli listinn missti meirihlut- ann 1970. Kannski var það útsog þeirrar heljaröldu sem braut Þormóð á Garðskagaflösinni kl. 3:13 18. febr- úar 1943. Tileinkun Þormóður var að uppruna ekki sterkt skip. Á árinu 1942 var sett í hann ný vél, yfirbygging, hvalbakur og spil. Hann var allur styrktur og því orðinn mun öflugri þegar hann svo fór sína fyrstu ferð. Þó var hann enn lekari „en til þrifa mátti telja“. Því var haldið fram að slæmt ástand hans hefði ráðið örlögum hans. Fárviðrið hefði þó fyrir löngu átt að gera út af við hann ef hann hefði verið svo vanbúinn sem orð var á haft. Dugnaður skipverjanna og sjómennska á hæsta stigi dugði vel og dugði lengi. Við sem ekki höfum komist í slíka raun getum ekki gert okkur í hug- arlund hvílík ósköp ganga á í svona veðri og hvílíka árvekni þarf til þess að halda skipi upp í ölduna og snúa því við brotsjóum. Þetta 100 tonna skip hélt út í sólarhring í fárviðri sem enginn lagði út í honum til bjargar, og voru hamfarir þess af því tagi sem fyr- irkomið hefur miklu stærri skipum. Við tileinkum því þessi skrif hetju- legri baráttu áhafnarinnar sem og minningu þeirra sem með þeim fór- ust. PS Efni blaða um Þormóðsslysið frá þessum tíma og síðar hefur verið tekið saman og birt á vefslóðinni arn- firðingur.is. ------- Höfundur er frá Bíldudal. Ljósmynd/Guðmundur Bjarnason Bíldudalur Af þeim 31 sem fórust með Þormóði voru 22 úr Arnarfirði þar sem Bíldudalur er eini þéttbýliskjarninn. Ljósmynd/Jakob Hjálmarsson Minnisvarði um fólkið sem fórst með Þormóði var reistur 1987. 23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013 DÍSIL 2,0D - 184 HESTÖFL 5,6 L/100 KM* Í BLÖNDUÐUM AKSTRI. WWW.BMW.IS Þú ert í leit að ævintýrum, við erum í leit að tæknilegri fullkomnun. Allar aðstæður eru kjöraðstæður fyrir BMW XDrive fjórhjóladrifskerfið. Þótt veðrið sé óútreiknanlegt er akstursánægjan í X línunni eitthvað sem þú getur treyst á. *Miðað við uppgefnar viðmiðunartölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri. Verð frá 7.890.000**         X LÍNAN Í TAKT VIÐ TÍMANN. BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000 E N N E M M / S ÍA / N M 5 6 4 3 0 ** A u ka b ú n a ð u r á m yn d ,M sp o rt p a kk i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.