Morgunblaðið - 16.02.2013, Qupperneq 6
„Þetta snýst fyrst og fremst
um það að okkur gafst ekki
færi á að tilkynna öll hugs-
anleg tjón með þessum auka-
fresti sem við óskuðum eftir,“
sagði Páll Eiríksson, lögmaður í
slitastjórn Glitnis, um dóms-
málið gegn Tryggingamiðstöð-
inni.
„Þetta var erfið staða. Ef þú
endurnýjar tryggingu hjá svona
tryggingafélagi á þessum skil-
málum þá þarftu jafnframt að
staðfesta það að engin tjón
hafi orðið á tímabili trygging-
arinnar þar á undan. Það gát-
um við að sjálfsögðu ekki gert.
Þess vegna vorum við í þeirri
stöðu að við hefðum viljað fá
lengri tilkynningarfrest en skil-
málar tryggingarinnar voru,“
sagði Páll. Hann segir nýju
stjórnendatrygginguna frá því
sumarið 2009 vera á öðrum
forsendum en þá sem féll úr
gildi frá TM.
„Það var bara fyrir starfsem-
ina eftir að skilanefnd tók við,“
segir Páll.
Hann segir þau hafa metið
það svo að ekki hafi verið hægt
að veita umbeðnar fjárhags-
upplýsingar þar sem kröfulýs-
ingafrestur var ekki liðinn
og eignirnar í miklu upp-
námi á þessum tíma.
„Það hefði verið full-
komnlega óábyrgt að
veita þær upplýsingar
vitandi að þær væru
ekki nákvæm-
ar,“ sagði
Páll.
„Þetta var
erfið staða“
SLITASTJÓRN GLITNIS
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013
BAKSVIÐ
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
Hæstiréttur staðfesti á fimmtudag
sýknudóm héraðsdóms Reykjavíkur
frá 28. mars 2012 í máli Glitnis hf.
gegn Tryggingamiðstöðinni hf.
Málið á sér aðdraganda frá vorinu
2009 þegar ábyrgðartrygging
stjórnar- og yfirmanna hjá Glitni
rann út þann 1. maí.
Daginn áður sendi Páll Eiríksson,
hjá skilanefnd Glitnis, bréf til TM
þar sem óskað var framlengingar á
tryggingunni um 12 mánuði eða 36
mánaða tilkynningarfrests sem sam-
kvæmt skilmálum tryggingarinnar
var hægt að fá ef TM hefði neitað
um framlengingu.
Bréfaskipti í rúma tvo mánuði
Í gang fóru bréfaskipti milli skila-
nefndar Glitnis og TM þar sem kall-
að var eftir ýmsum upplýsingum frá
Glitni, meðal annars um fjárhag.
Ítrekað sendi TM bréf til Glitnis
vegna málsins þar sem spurt var
hvort til stæði að senda umbeðnar
upplýsingar inn. Lítið var um svör
en þó var því svarað til 21. maí að
unnið væri að því ná utan um um-
beðnar upplýsingar. Engar upplýs-
ingar voru þó veittar. TM bauðst í
einu bréfanna til þess að aðstoða
bankann við að fylla út
umsóknareyðublað. Í lok júní sendi
TM loks bréf til bankans þar sem
spurt var hvort bankinn hefði ákveð-
ið að taka tilboði erlends vátrygg-
ingamiðlara í ábyrgðartryggingu
fyrir stjórnendur. Rúmri viku síðar
sendi Glitnir bréf til TM og tilkynnti
að bankinn myndi taka því tilboði.
Sendu áfram tjónatilkynningar
Síðan þá hefur Glitnir sent TM til-
kynningar um tjón sem talin voru
falla undir ákvæði ábyrgðartrygg-
ingarinnar en TM hafnaði bóta-
skyldu í þeim málum. Vísað var til
þess að um hefði verið að ræða svo-
kallaða kröfugerðartryggingu, en í
henni felst að tilkynna verður um
tjón á meðan vátryggingin er í gildi
eða innan umrædds tilkynningar-
frests. Það var sá frestur sem Glitn-
ir krafði TM um fyrir dómstólum.
Héraðsdómur og Hæstiréttur
komast báðir að þeirri niðurstöðu að
tryggingin hefði fallið úr gildi 2009.
Þá er þess getið í dómnum að TM
hafi ekki neitað Glitni um framleng-
ingu og því hefði ákvæði um tilkynn-
ingarfrest ekki átt við.
Þá er í dómnum bent á að fjár-
hagsstaða Glitnis hafi verið mun lak-
ari vorið 2009 en þegar tryggingin
var upphaflega tekin. TM hefði átt
rétt á upplýsingum um fjárhags-
stöðu til að geta metið áhættuna af
því að framlengja trygginguna til 12
mánaða. Ekki var fallist á rök Glitn-
is um að erfitt hafi verið að veita
þær upplýsingar þrátt fyrir að upp-
gjöri 2008 hafi verið ólokið og meðal
annars vísað til þess að hægt hefði
verið að veita aðgang og upplýs-
ingar úr bókhaldsgögnum Glitnis.
Gróft brot á tillitsskyldu
Dómurinn segir að TM hafi verið
gert ókleift að gera tilboð til fram-
lengingar vegna tómlætis Glitnis við
að afla svara. Þá segir að sú hátt-
semi að tilkynna stefnda ítrekað að
unnið væri að gagnaöflun en af-
henda síðan engin gögn eða upplýs-
ingar hafi falið í sér gróft brot á til-
litsskyldu Glitnis við TM. Loks er
bent á að Glitni hafi borið að bjóða
fram greiðslu iðgjalds hafi bankinn
viljað framlengja trygginguna.
Þær upplýsingar fengust frá slita-
stjórnum Kaupþings og Gamla
Landsbankans (LBI) að Kaupþing
væri með mál í gangi gegn vátryggj-
endum fyrir íslenskum dómstólum
þar sem dómkröfur væru að mestu
sambærilegar dómkröfum í máli
Glitnis en þó væru málsástæður
og málsatvik frábrugðin. Sam-
kvæmt upplýsingum frá
slitastjórn LBI rekur bank-
inn engin sambærileg mál í
dag fyrir dómstólum. Í
svarinu kom þó fram að í
þeim bótamálum sem slita-
stjórnin væri með í farvegi
fyrir dómstólum myndi í
einhverjum tilvikum
reyna á vátrygg-
inguna.
TM sýknuð af kröfum Glitnis
Glitnir veitti hvorki umbeðnar upplýsingar né greiddi iðgjöld Dómurinn talar um gróft brot á
tillitsskyldu af hálfu skilanefndar Glitnis Kaupþing er með sambærilegt mál í gangi en ekki LBI
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Trygging Hæstiréttur sýknaði Tryggingamiðstöðina af kröfum Glitnis um að veita bankanum tilkynningarfrest
vegna ábyrgðartryggingar stjórnenda bankans sem rann úr gildi 2009. Ein ástæðan er tómlæti skilanefndar.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Bjargráðasjóður mun bæta bændum
um 8 þúsund ær og lömb sem fórust í
september sl. þegar óveður gekk yfir
Norðurland. Er þetta heldur færra fé
en sjóðurinn áætlaði þegar upplýs-
ingum var safnað eftir óveðrið.
Frestur til að sækja um bætur
vegna búfjártjóns í óveðrinu rann út
um síðustu mánaðamót. Stjórn
Bjargráðasjóðs gekk frá bráða-
birgðauppgjöri á fundi sínum í fyrra-
dag en eftir er að úrskurða um ein-
staka vafaatriði.
Árni Snæbjörnsson segir að sjóð-
urinn bæti rúmlega 3000 ær og tæp-
lega 5000 lömb. Er þá búið að draga
frá það sem sjóðurinn áætlar eðlileg
vanhöld að sumri, það er eigin áhætta
bændanna.
Eigendur fjárins fá 11 þúsund
krónur bætur fyrir hverja á sem fórst
og 8600 fyrir lambið. Svarar þetta til
um 75 milljóna kr. Verið er að ganga
frá greiðslu samkvæmt síðustu um-
sóknunum en bætur hafa annars ver-
ið greiddar út jafnóðum og borist
hafa umsóknir staðfestar af trún-
aðarmönnum Bjargráðasjóðs.
Einnig hafa verið greiddar bætur
vegna 40 stórgripa, það er að segja
nautgripa og trippa. Samkvæmt
reglum um greiðslu bóta vegna óveð-
ursins bætir sjóðurinn, auk búfjár-
tjóna, viðgerðir á girðingum og fóður-
kaup vegna óveðursins.
Bjargráðasjóður áætlaði í október
að 9400 fjár hefðu farist í óveðrinu.
Árni segir að eitthvað hafi heimst eft-
ir að þessi áætlun var gerð. Þá var
áætlað að heildartjón hefði orðið um
142 milljónir kr. og ákvað rík-
isstjórnin að tryggja þá fjárhæð. Árni
segir að niðurstaðan sé ekki ljós en ef
tjónið reynist minna muni mismun-
urinn renna aftur í ríkissjóð.
75 milljónir greiddar í
bætur fyrir 8.000 kindur
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Smalað Töluvert af fé heimtist eftir óveðrið í september, meðal annars á Þeistareykjasvæðinu.
Páll Eiríksson
Upplifðu vorið í Frakklandi
Sjáðu hallirnar og drekktu í þig menningu
Frakklands. Sjáðu náttúruna vakna til
lífsins. Njóttu fararstjórnar Laufeyjar
Helgadóttur leiðsögumanns og
listfræðings. Tryggðu þér pláss.
Hringdu núna í síma 570-2790
eða bókaðu á bændaferðir.is
Páskaferð - Loire dalurinn og París
Skoðaðu ferðirnar á bændaferðir.is
Sími 570-2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Opið kl. 8:30-16:00, virka daga
Ferðaskrifstofa allra landsmanna
26. mars - 2. apríl 2013
Fáðu þér ókeypis eintak
af nýja ferðabæklingnum