Morgunblaðið - 16.02.2013, Síða 11

Morgunblaðið - 16.02.2013, Síða 11
Hundaeign Sigríður Halla Stefánsdóttir segir hlýðniþjálfun grunninn að því að njóta þess að eiga góðan hund. Sirrý Halla er eigandi ræktunar- nafnsins Kolgríma og vonast hún til að ná einu, jafnvel tveimur gotum á þessu ári. Hún segir heimilislífið við- burðaríkt þegar tíkurnar gjóta en börnin hennar tvö, 10 og 15 ára, eru orðin mjög meðvituð og dugleg á meðan hvolparnir eru heima og taka þátt í vinnunni sem þessu fylgir. Þau vita til dæmis að þá er ekki skyn- samlegt að bjóða fjörugum gestum heim. „Ég legg mikið upp úr því að fylgja hvolpunum mínum vel eftir og hef verið mjög heppin með mína hvolpakaupendur sem leita óspart til mín ef þeir þurfa á því að halda og þeir eru líka duglegir að sýna hundana. Ég hefði heldur aldrei get- að unnið til verðlauna sem ræktandi ef ég hefði ekki notið aðstoðar þeirra.“ Hundarnir sjá um að hreyfa eigandann Sirrý Halla segir að það sé svo- lítið eins og að kaupa sér lottómiða að kaupa sér hvolp, maður veit ekkert hvað maður fær og það kemur síðan einfaldlega í ljós seinna hvað maður er með margar tölur réttar. Þegar Sirrý Halla er innt eftir því hvernig hundaræktun og bakarís- rekstur fari saman hlær hún og segir: „Maðurinn minn sér nú eiginlega al- veg um bakaríið, hann er nú líka bak- arinn. Ég kem miklu minna nálægt því þannig að þetta fer mjög vel sam- an.“ Hundaræktunin er fyrst og fremst áhugamál Sirrýjar Höllu og segir hún mikilvægt að þeir sem hugi að því að fá sér hund átti sig á því að nauðsynlegt sé að einn fjölskyldu- meðlimur sé ábyrgðaraðilinn í hunda- haldinu. „Ég ætlast aldrei til þess að aðrir fari út með hundana en ég af því að þeir eru á minni ábyrgð en ég þigg það alveg þegar maðurinn minn býðst stundum til þess að fara út með þá fyrir mig og sef þá aðeins lengur. Ég er líka sófadýr en hundarnir ná alltaf að draga mig út. Ég hjóla og geng með þá. Ég myndi aldrei fara út til að hreyfa mig fyrir sjálfa mig.“ Sirrý Halla er með skipulagða hreyf- ingu fyrir hundana á hverjum degi. Ef hún er ekki að hjóla eða ganga með þeim er hún með þá í hlýðniþjálf- un, lætur þá draga sig á sleða, göngu- skíðum eða svokölluðum gullvagni sem er hálfgerður Kleópötruvagn á hjólum. Það er því næsta víst að hundarnir hennar Sirrýjar Höllu fá mjög fjölbreytta hreyfingu. Hundarnir gera vart við óboðna gesti Hlýðniþjálfun eru grunnurinn að því að njóta þess að eiga góðan hund, segir Sirrý Halla. „Eins og til dæmis Schäfer, þetta er stór tegund og það eru margir hræddir við svona hunda og því skiptir máli að vera með hund sem kemur þegar maður kallar á hann. Það er jafn mikil kvöð að eiga hund sem er erfiður eins og það er gaman að eiga vel þjálfaðan hund.“ Sirrý Halla hefur fundið fyrir for- dómum gagnvart þýska fjárhund- inum og segir hún það ekki bæta úr skák að þegar fréttir berast af því að stór hundur hafi bitið mann birtist jafnan mynd af þýskum fjárhundi þó að árásarhundirinn hafi verið af allt annarri tegund. „Þetta eru einstakir hundar. Þeir eru eins manns hundar og mega varla af eiganda sínum sjá og þeir eru miklir vinnuhundar, enda eru þeir mikið notaðir sem her- hundar og í lögreglunni. Þeir eru mjög námfúsir og það er sérstaklega gaman að kenna þeim.“ Sirrý Halla áttaði sig fljótt á því að ekki væri gott að hunsa gelt hunda sinna þá sjaldan þeir láta í sér heyra. Þeir hafa sam- viskusamlega látið hana vita þegar aðkomumenn voru skyndilega komn- ir í garðinn og voru að gera tilraun til að stela grilli, eins létu þeir í sér heyra þegar þjófavarnakerfi ná- grannanna fór í gang í næsta húsi. „Bæði ég og krakkarnir mínir finnum fyrir miklu öryggi að hafa hundana í húsinu. Ég held að ég geti ekki hugs- að mér líf án hunds nú þegar ég er búin að kynnast því.“ Frekari upplýsingar um Kolgrímu- ræktun má finna á kolgrima.is DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013 Seðlabanki Íslands Gjaldeyrisútboð Seðlabanki Íslands mun halda þrjú gjaldeyrisútboð 19. mars 2013. Útboðin þrjú eru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011 (http://sedlabanki.is/afnam) og skilmála Seðlabanka Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta frá 18. nóvember 2011 með síðari breytingum (http://sedlabanki.is/fjarfesting). Útboð í fjárfestingarleið                                 - marksfjárhæð til þátttöku í útboðshluta fjárfestingarleiðarinnar eru EUR 25.000. Fjármálafyrirtæki sem gert hafa samstarfssamning við Seðlabanka Íslands um milligöngu munu annast framlagningu umsókna um fyrirhugaða þátttöku fjárfesta í útboðinu samkvæmt fjárfestingarleiðinni. Það útboð er opið fjárfestum sem hafa fengið samþykkta umsókn um þátttöku í fjárfestingarleið. Frestur til að skila inn umsóknum rennur út í dagslok 27. febrúar n.k. Útboð í ríkisverðbréfaleið                    !  "#$ %% &%'(   )*   +, í ríkisverðbréfaleiðinni eru EUR 10.000. Tilteknir aðalmiðlarar á skuldabréfamarkaði hafa milligöngu um viðskipti í útboðinu gegn greiðslu í ríkisverðbréfum. Útboð um kaup á krónum gegn greiðslu í erlendum gjaldeyri Seðlabanki Íslands kallar eftir tilboðum frá aðilum sem vilja selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Við- skiptabönkum er boðið að hafa milligöngu um viðskiptin um kaup á íslenskum krónum í skiptum fyrir erlendan gjaldeyri. Seðlabankinn áskilur sér rétt til að takmarka heildar viðskiptamagn með hliðsjón af áhrifum útboðanna á lausafjárstöðu fjármálafyrir- tækja. Endanleg útboðsfjárhæð ræðst af þátttöku. Útboðsfyrirkomulag er með þeim hætti að öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á sama verði (e. single price). Uppgjör viðskipta í útboðunum þremur verður 3 dögum eftir að útboði lýkur. Tilboðum skal skilað eigi   (-  '&(% .      * /! +     /!  0!  !       , 1    !       )     ) 233    is/utbod. Stefnt er að næsta útboði 30. apríl 2013. Nánari upplýsingar veita milligönguaðilar, aðalmiðlarar og viðskiptabankar. Nú er aldeilis tilvalið að fá góða útrás og líkamsrækt með því að dansa dug- lega í dag laugardag kl 12.30, en þá ætlar zumbadanskennarinn Kamilla Alfreðsdóttir að standa fyrir zumba- dansfjöri í sal PoleSport, Skipholti 23. Þessi fjörugi zumbatími er liður í fjáröflunarstarfsemi sem hún og nokkrar vinkonur hennar á þriðja ári í hjúkrunarfræði standa fyrir, en þær eru allar á leið til Kambódíu til að sinna þar sjálfboðastörfum á spítala í sumar. Það kostar helling að fara til Asíu til slíkra starfa og því rennur all- ur ágóði af zumbatímanum óskiptur í ferðasjóð. Það kostar 1.000 kr. inn í zumbatímann, húsið opnað kl. 12 en fjörið hefst 12:30. Fyrir þá sem hafa áhuga er þetta kjörið tækifæri til að prófa súlutrikk í sal PoleSport. Endilega … … skellið ykkur í zumbatíma og styrkið í leiðinni hjálparstarf Morgunblaðið/Golli Sjálfboðaliðar Standandi frá vinstri: Kamilla, Telma, Þórunn og Lára. Sitjandi: Melkorka, Sigrún og Hafdís. Allar á þriðja ári í hjúkrun við Háskóla Íslands. Bingó Lions- klúbbsins Týs Til styrktar einhverfum Bingó Lionsklúbbsins Týs verður haldið í dag í Vinabæ (Gamla Tóna- bíó). Húsið verður opnað kl. 14 en bingóið byrjar kl. 15. Spilaðar verða allt að 15 umferðir og margir góðir vinningar verða í boði. Allur ágóði rennur til styrktar einhverfum. Gott er að hafa með penna, mjótt túss eða blýant til að merkja tölurnar sem koma upp. Bingó Alltaf gaman.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.