Morgunblaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 33
UMRÆÐAN 33Bréf til blaðsins MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013 Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is Komið og upplifið nýja Natuzzi gallerýið okkar Við bjóðum velkomna ítalska hönnun Natuzzi endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna Ítalskrar hönnunar. Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í Natuzzi umhverfi. Staður þar sem fólki líður vel. Tilboð 3. sæta L. 217cm199.000,- 2. sæta L.177cm189.000,- Kollur 42.000,- Grein sem ég ritaði í þetta blað 15. jan. sl. undir fyrirsögninni Einstæð- ingar hefur vakið eftirtekt og hafa margir sýnt þessu máli áhuga og lát- ið í sér heyra. Nokkrir hafa spurt mig hvern- ig ég hugsi mér framkvæmd hug- myndar minnar varðandi vanda- mál þessa gamla fólks. Svar mitt er einfalt, og það er að stjórnvöld skipi umboðs- mann ellilífeyr- isþega nú þegar. Það er til skammar og vítavert fyrir stjórnvöld að hafa ekki fyrir löngu séð sóma sinn í því að skipa slíkan mann. Það er til umboðsmaður barna, umboðsmaður öryrkja, umboðs- maður skuldara og jafnvel er til um- boðsmaður Alþingis, en það er eng- inn umboðsmaður aldraðra. Ég held að fáir ef nokkrir séu meira þurfandi fyrir slíkan aðila. Barneignum fækkar en öldruðum fjölgar og foreldrar eru lögskipaðir umboðsmenn barna, en gamalt fólk hefur enga lögskipaða „foreldra“, eins og gefur að skilja, þó allir viti að tvisvar verður gamall maður barn. Ég ætla ekki að tíunda skyldur umboðsmanns aldraða umfram það, sem liggur í augum uppi, þ.e. gæta hags þeirra og réttinda í hvívetna. Að gæta hags einhverra er meira en að fylgjast með lögbundnum rétt- indum þeirra og þar kem ég að þeim hluta hugmyndar minnar er snertir ótta, einmanakennd og öryggisleysi eldra fólks. Ég veit um atvik þar sem sambúð tveggja einstaklinga, karls og konu bæði vel yfir sjötugt, gjörbreytti lífi þeirra beggja. Þau ráku eitt heimili í stað tveggja með þeirri hagræðingu sem því fylgir, og það sem mest er um vert, öryggisleysi, hræðsla og einmanakennd hvarf í stöðugri ná- vist annarrar mannveru. Önnur athygliverð hlið á þessari hugmynd snýr að opinberri þjón- ustu. Þar má nefna margskonar sparn- að. Það er helmingi dýrara að þjón- usta tvo staði en einn. Það fækkar um tvo á biðlistum um dvöl á op- inberum stofnunum og margt fleira mætti nefna, sem ég nenni ekki að tí- unda frekar. Það er staðreynd að fjöldi eldri einstæðinga hefur ákveðið að yf- irgefa heimili sitt af fyrrgreindum ástæðum, ef þeir komast í sambýli á dvalarheimili fyrir gamalt fólk. Þetta sanna langir biðlistar þessa fólks um allt land sem lengist með fjölgun eldra fólks og vandamálið leysist ekki í bráð eins og ástandið er í þjóðfélaginu í dag. Mitt mat er það, og ég tel það til- raunarinnar virði, að kannað verði meðal fólks á þessum biðlistum, hvort einhverjir í þeim hópi væru til- búnir að reyna að finna félaga í ein- hverskonar sambúð. Ein af þeim skyldum sem umboðs- maður ellilífeyrisþega ætti að hafa væri að kanna og aðstoða það fólk sem hefur ákveðið að yfirgefa heim- ili sín og komast í einhverja sambúð með öðru eldra fólki. Því er það réttmæt og skýlaus krafa að stjórnvöld skipi nú þegar umboðsmann fyrir ellilífeyrisþega. HAFSTEINN SIGURBJÖRNSSON, Akranesi. Aldraðir einstæðingar Frá Hafsteini Sigurbjörnssyni Hafsteinn Sigurbjörnsson Aukablað um bíla fylgir Morgunblaðinu alla þriðjudaga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.