Morgunblaðið - 16.02.2013, Blaðsíða 38
38 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013
Á jólaföstu flutti
útvarpið rás 1 tón-
leika alþjóðlegu frið-
arsveitarinnar til
minningar um stofn-
andann, Sir Georg
Solti György (1912-
1997). Styrjaldir og
byltingar 20. aldar
efldu með honum
hugsjón um frið,
hljóðfæraleikarar úr
40 þjóðlöndum léku í friðarsveit
hans. Ósk hans var sú að stjórn-
málamenn heimsins, til vinstri og
hægri, hlýddu þeim hljómi.
Gyðingar og sannir Ungverjar
Hljómsveitarstjórinn György
Solti var af kynkvísl gyðinga í
Búdapest. Upprennandi tónsnill-
ingur þurfti hann að flýja land
undan ákvæðum nýsettra þjóðern-
islaga, þá var komið undir heims-
styrjöld sem Solti þreyði í Sviss.
Eftir stríð tók við einstæður
stjórnandaferill sinfóníuhljóm-
sveita í full fimmtíu ár víða um
heim. En aldrei byrjaði til heima-
landsins. Samt kaus hann sér leg í
ættborg sinni, þar hvílir hann við
hlið tónskáldsins Béla Bartók sem
lést í útlegð á lokaári stríðsins.
Tíminn líður, nú verður æ ólík-
legra að mannvinir og friðarsinnar
af tagi þeirra Soltis og Bartóks
kjósi að snúa dauðir heim til
Búdapestar úr þvingaðri eða sjálf-
valinni útlegð til að hvíla í ung-
verskri mold. Borgin ymur af takt-
föstu fótataki fánum veifandi múgs
sem skanderar: „Gula stjörnu á
gyðinga. Gyðingana í gasið.“ Slíkt
hefir ítrekað gerst, nú síðast í
kjölfar vináttulandsleiks Ung-
verjalands og Ísraels í knatt-
spyrnu sumarið 2012. Lögreglan
aðhefst ekki, stjórnvöld biðjast
ekki afsökunar.
Nóbelshöfundurinn Imre Ker-
tész, gyðingur sem ritaði um hel-
för sína, treystir sér ekki til að
búa í Búdapest lengur heldur kýs
að eyða ellidögunum í Berlín.
Hann hefir ánafnað þýskri stofnun
skjalasafn sitt.
Einn helsti formælandi stjórn-
arandstöðuflokksins Jobbik á
þinginu í Búdapest,
Márton Gyöngyösi,
krafðist þess í nóv-
ember 2012 að stjórn-
völd gerðu lista um
alla gyðinga í op-
inberu starfi. Fólki
hnykkti við, á aftur að
setja gyðingalög? Að
vísu varð Rogán,
þingflokksformaður
stjórnarflokksins Fi-
desz, til að taka undir
mótmæli en forsætis-
ráðherrann Viktor Or-
bán þagði þunnu hljóði.
Eru sígaunar mennskir?
Á nýársnótt síðustu kom til
áfloga milli hópa drukkins roma-
fólks (sígauna) í smábænum Szi-
gethalom skammt suður af Búda-
pest. Hnífar voru á lofti og tveir
náungar þjálfaðir í bardagaíþrótt-
um stungnir en ekki til ólífis.
Þetta varð Gábor Vona, formanni
Jobbik-flokksins, tilefni til gleið-
gosalegra yfirlýsinga um óþverr-
ana sem ekki skirrðust við mann-
dráp og boðaði að hann mundi
efna til fjöldafundar í bænum með
óeirðaliðssveitum sínum.
Þetta var eins og við manninn
mælt. Einn helsti vígamaður orðs-
ins í hópi Fidesz-manna, eins kon-
ar óopinber formælandi stjórn-
arflokksins og náinn vinur
forsætisráðherrans allt frá æsku-
dögum, blaðamaðurinn Zsolt Ba-
yer, brást snarlega við í ungverska
fréttablaðinu og dró hvergi af sér
að komast upp að hægri síðunni á
Vona í því skyni að draga vind úr
seglum hans:
„Umtalsverður hluti sígauna er
ófær um að lifa í samfélagi manna.
Þeir eru skepnur og haga sér sem
skepnur. Þessir sígaunar eru
ófærir um nokkur þau samskipti
sem mannleg geta talist. Í mesta
lagi að sundurlaus hljóð brjótist
fram úr dýrslegum hvoftinum, það
eina sem hann skilur í sinni aumu
tilveru er endurgjaldshöggið. Að
umbera og skilja, það á ekki við
heldur harka og hefndir.“
Það verður að segjast Ungverj-
um til hróss að margir létu til sín
heyra og fordæmdu blaðamanninn.
Meira að segja dómsmálaráðherr-
ann Navracsics kvað svona tal ól-
íðandi og Bayer ætti ekki heima í
flokknum Fidesz. Að vísu er ráð-
herrann sá talinn standa höllum
fæti og blaðafulltrúi Fidesz flýtti
sér að segja að Bayer hefði ritað
grein sína sem prívatpersóna en
ekki sem flokksfélagi og því mundi
flokkurinn ekkert aðhafast. Og
forsætisráðherrann þagði sem
fastast. Hann veit sem er að hann
á í atkvæðakapphlaupi við Jobbik.
Fidesz og ESB
Í vetur var sýnd í þýsku sjón-
varpi heimildamynd um Ungverja-
land og spurt: Er landið lýðræð-
isríki eða á leið til harðstjórnar?
Blaðamaðurinn Sugárka Sielaff frá
Hamborg stóð fyrir myndinni; hún
virðist ungversk að uppruna ef
marka má nafnið. Í kynning-
artexta segir:
„Í apríl 2010 vann þjóðernis-
íhaldssami stjórnmálaflokkurinn
Fidesz þingkosningar með dæma-
lausum tveggja þriðju meirihluta.
Viktor Orbán forsætisráðherra hóf
að umbreyta landshögum á rót-
tækan hátt. Áhrifastöður í menn-
ingarmálum, stjórnsýslu og op-
inberum fjölmiðlum voru
mannaðar ríkisstjórnaráhang-
endum. Ný stjórnarskrá og
íþyngjandi fjölmiðlalög urðu
ádeiluefni um alla Evrópu. Fidesz-
stjórnin kyndir undir völd sín með
þjóðlegum tilfinningum. Nýja
stjórnarskráin skírskotar til Guðs,
kórónu og föðurlands. Útlönd eru
sett í óvina tölu.“
Í myndinni er að hætti ESB-
trúrra Þjóðverja mjög á því hamr-
að að Fidesz og forsætisráð-
herrann fjandskapist út í Evrópu-
sambandið en þar standi menn
vörð um lýðræði þjóðanna. Að
mínu viti eru það innantóm orð,
Ungverjar lúta efnahagsveldi
ESB, reglur þess eru lög í land-
inu. Orbán stýrir flokki sínum á
innlendum valdapólitískum for-
sendum, hann veit að ungverskt
efnahagslíf er að verulegum hluta
í höndum útlendinga og honum
dettur síst í hug að blaka við stöðu
þeirra. Alþjóðasinnar sem svo
nefna sig guma mjög af lýðræð-
iselsku ESB en í reynd lætur Or-
bán ekki truflast af slíku hjali við
að efla sjálfan sig og flokksræði
Fidesz. Gerir gælur á báða bóga.
Illska og gæska
með Ungverjum
Höfundur heimildamyndarinnar
telur að „Evrópa“ láti evrukreppu
trufla sér sýn á hættuna sem álf-
unni stafi af pólitískri einsleitni og
öfgum meðal Ungverja. Fleiri taka
nú í svipaðan streng. Á al-
þjóðaminningardegi helfararinnar,
27. janúar, efndi borgarstjórn
Rómaborgar og samtök gyðinga til
útifundar við hringleikahúsið
forna, Colosseum. Í ávarpi dagsins
var ungverski Jobbik-flokkurinn
fordæmdur vegna ógnandi orða og
gerða gegn gyðingum. „Hví bend-
um við á Ungverjaland? Vegna
þess að þar fara nasistar um
hömlulaust.“ Yfirborgarstjórinn
Gianni Alemanno sagði í ræðu
sinni að sjálfsforræði þjóða mætti
ekki ganga á æðri þjóðfélagsleg
gildi mannkynsins. Að kveldi
minningardagsins var Colosseum
myrkvað til að fylgja eftir alvöru
málsins.
Skáldsaga Eiríks Arnar Norð-
dahls, Illska, hefir að vonum feng-
ið góðar viðtökur og höfundur
verðlaunaður. Hann fjallar meðal
annars um það hvernig mann-
vonska getur grafið um sig í hug-
skoti fólks. Og leitt til skelfilegra
verka. Að ýmsu breyttu mætti
flytja frásögu Eiríks Arnar frá
Eystrasaltinu suður til Ungverja-
lands. Jafnaðarlega er þarflaust í
lýðræðisþjóðfélagi að hengja
vonskuna á tiltekna stjórn-
málaflokka, skiptingin milli gæsku
og illsku fer eftir öðrum brautum
en flokkspólitík. Það er fjarri lagi
að ungverski flokkurinn Fidesz
eigi sér þá hugsjón að koma gyð-
ingum í hel og slátra sígaunum á
almannafæri. Enda flokkurinn
ekki trúfélag. Öðru máli kynni að
gegna um fólk sem ánetjast Job-
bik. Sá flokkur hefir faðmað guð-
spjall þeirra varmenna sem biðu
ósigur í heimsstyrjöldinni síðari.
Og þar er lýðræðið ekki í fyr-
irrúmi né virðing fyrir mannhelgi.
Frjálslyndir, og þar með fjöldi Fi-
desz-liða, snúast öndverðir gegn
rísandi öldu kynþáttahyggju því að
sporin hræða. Þeir óttast hvað af
því getur hlotist að sýna mann-
hatri umburðarlyndi.
Myndir frá Ungverjalandi
Eftir Hjalta Krist-
geirsson » Vaxandi kynþátta-
hyggju gætir í land-
inu og beinist gegn gyð-
ingum og sígaunum,
efnaborgurum og ves-
aldarlýð.
Hjalti Kristgeirsson
Höfundur er eftirlaunamaður,
hann var á ungum aldri við
nám í Ungverjalandi.
AFP
Útifundur var haldinn í Búdapest 13. janúar til að mótmæla kynþátta-
fordómum, aðskilnaði og hatursáróðri. Tilefnið var hatursfull skrif Bayers
Zsolts um sígauna.
–– Meira fyrir lesendur
.
Food and Fun
verður haldin í
Reykjavík
27. febrúar
- 3. mars.
Morgunblaðið gefur út sérblað
tileinkað Food and Fun matarhátíðinni
föstudaginn 22. febrúar.
PÖNTUNARTÍMI
AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn
18. febrúar.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Viðskiptavinir Kjaran
eru lítil og stór
fyrirtæki, stofnanir og
prentsmiðjur sem eiga
það sameiginlegt að
gera kröfur um gæði
og góða þjónustu.
bizhub C35 er sannkallað fjölnotatæki
bizhub C35 er prentlausn sem hentar flestum fyritækjum.
Prentari, ljósritunarvél, faxtæki og skanni í einu nettu tæki sem
prentar 30 blaðsíður á mínútu, hvort sem er í svart-hvítu eða lit.
Kynntu þér rekstrarkostnaðinn því hann kemur á óvart. Þú þarft
ekki annað tæki en bizhub C35.
Verð: 379.900 kr.
Konica Minolta fjölnotatækin eru margverðlaunuð fyrir
hönnun, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is