Morgunblaðið - 16.02.2013, Page 41
MINNINGAR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013
✝ Magnús Hall-dór Gíslason
fæddist á Frosta-
stöðum í Blöndu-
hlíð 23. mars 1918.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnuninni
á Sauðárkróki 3.
febrúar 2013.
Magnús var elst-
ur ellefu systkina
sem upp komust,
níu bræðra og
tveggja systra. Foreldrar hans
voru Gísli Magnússon og Guð-
rún Þ. Sveinsdóttir. Fimm ára
gamall fluttist Magnús með for-
eldrum sínum að Eyhildarholti í
Hegranesi og átti þar heima uns
hann hóf sjálfur búskap. Magn-
ús stundaði nám við Bændaskól-
ann á Hólum, Héraðsskólann á
Laugarvatni og Garðyrkjuskóla
ríkisins á Reykjum í Ölfusi og
þaðan útskrifaðist hann í fyrsta
árgangi skólans 1941.
Magnús kvæntist árið 1946
Jóhönnu Þórarinsdóttur frá Ríp
í Hegranesi. Foreldrar hennar
voru Þórarinn Jóhannsson og
Ólöf Guðmundsdóttir, búendur
á Ríp. Sama ár hóf hann búskap
á Frostastöðum og bjó þar fé-
lagsbúi með þremur bræðrum
gift Gísla Salómonssyni bygg-
ingameistara og eiga þau tvö
börn. Búa á Húsavík.
Magnús gekk ungur í Fram-
sóknarflokkinn og starfaði þar í
áratugi. Hann sat í miðstjórn
SUF og síðar í miðstjórn Fram-
sóknarflokksins. Hann var for-
maður FUF í Skagafirði og síð-
ar formaður Framsóknarfélags
Skagafjarðar. Blaðamaður á
Tímanum 1958-61 og sinnti þar
pólitískum skrifum ekki síður
en almennum fréttum. Hann
var varaþingmaður fyrir Fram-
sóknarflokkinn 1967-71 og sat á
þingi um skeið. Magnús sinnti
líka fræðslustörfum og erind-
rekstri á hennar vegum bæði
utan héraðs og innan. Hernáms-
andstæðingur var hann alla tíð
og virkur í þeirri sveit. Hann
sat í hreppsnefnd Akrahrepps í
átta ár, í stjórn Ungmenna-
sambands Skagafjarðar, Karla-
kórsins Heimis, Hestamanna-
félagsins Stíganda og fleiri
félögum utan héraðs og innan.
Magnús var félagi í Karlakórn-
um Heimi í áratugi og þegar
Karlakórinn Feykir starfaði á
sjöunda áratugnum söng hann
með báðum kórum ásamt því að
hann stjórnaði Feyki í rúmt ár
þegar kórinn vantaði söng-
stjóra.
Magnús verður kvaddur frá
Sauðárkrókskirkju laugardag-
inn 16. febrúar 2013 og hefst at-
höfnin kl. 13.00. Jarðsett verður
á Flugumýri.
sínum þar til sonur
hans tók við 1977.
Þá fluttust þau
hjón til Reykjavík-
ur þar sem Magnús
hóf blaðamanns-
starf hjá Þjóðvilj-
anum og því starfi
gegndi hann til
1988 er hann varð
sjötugur. Sex árum
síðar fluttust þau
hjón norður í
Frostastaði og þar er Jóhanna
enn til heimilis.
Magnús og Jóhanna eign-
uðust fjögur börn. Þau eru: 1)
Gísli, f. 1946, kennari við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti, sam-
býliskona hans er Ólöf S. Arn-
grímsdóttir kennari og eiga þau
einn son. Búa í Reykjavík. 2)
Þórarinn, bóndi á Frostastöð-
um, f. 1949, kvæntur Söru Reg-
ínu Valdimarsdóttur kennara
og eiga þau fimm dætur en
Sara á auk þess son. 3) Ólafur,
f. 1951, vélvirki, starfsmaður
hjá Ístex í Mosfellsbæ, kvæntur
Sigurlínu Snjólaugu Alexand-
ersdóttur, hún starfar hjá dag-
vistun barna, og eiga þau þrjá
syni. Búsett í Kópavogi. 4) Guð-
rún Kristín, f. 1953, læknaritari,
Elsku afi minn. Alveg síðan að
ég man eftir mér hef ég búið í
næsta húsi við þig. Þú og amma
hafið alltaf verið einn af föstu
punktunum í tilverunni, sem mað-
ur man ekki alltaf eftir að meta að
verðleikum, en erfitt er að vera án.
Þú skiptir mig svo miklu máli, þið
amma hafið alltaf skipt mig máli.
Við höfum eytt svo miklum tíma
saman og þú varst alltaf þarna. En
þrátt fyrir það finnst mér ég ekki
þekkja þig neitt sérstaklega vel.
Við skildum hvort annað frekar
takmarkað. Við höfðum ekki sama
húmorinn og við vorum alls ekki
alltaf sammála um hlutina. En
svona er lífið, fólk er ólíkt. Ég veit
að okkur þótti samt vænt hvoru
um annað. Núna vildi ég að ég
vissi meira um þig. Ég vildi að ég
hefði spjallað oftar við þig. Að ég
hefði spurt þig fleiri spurninga,
um þig og lífið. Spurt þig hvað þér
fyndist um hlutina.
Það er svo létt að vera vitur eft-
ir á.
En elsku afi minn, þú varst svo
mikið. Svo stór hluti af lífinu. Við
spjölluðum kannski ekkert mikið
en í staðinn sátum við tímunum
saman við eldhúsborðið. Ég las í
bók og þú last blöðin eða páraðir
niður í dagbókina. Ég teiknaði
dúkkulísur við hljóðið frá ritvél-
inni þinni sem ómaði allan liðlang-
an daginn í litlu íbúðinni ykkar
ömmu. Ég hef alltaf getað knúsað
þig gleðileg jól því við höfum alltaf
haldið upp á jólin með ykkur. Og
nú eftir að ég flutti að heiman og
kom heim í heimsókn heilsaðir þú
og kvaddir mig alltaf með því að
grípa fast í hönd mína, brosa og
segja „við sjáumst bráðum aftur“.
Það er það sem ég mun sakna
mest; að sjá þig brosa og segja að
við sjáumst bráðum aftur. Það
gerðir þú líka þegar ég kvaddi þig
um jólin. Við sjáumst bráðum aft-
ur, afi minn. Mér þykir vænt um
þig.
Þín
Brynhildur.
Magnús á Frostastöðum er lát-
inn. Hann var einn 12 systkina frá
Eyhildarholti, barna Guðrúnar
Sveinsdóttur og Gísla Magnús-
sonar. Þetta var myndarlegur
systkinahópur og tóku þau sér öll
búsetu í Skagafirði, ber það vott
um óvenjulega átthagatryggð.
Gísli var héraðshöfðingi á sinni tíð,
forystumaður í samtökum bænda
og samvinnumanna. Hann var
einn helsti foringi framsóknar-
manna í Skagafirði og víðkunnur
fyrir málafylgju og ritsnilld.
Magnús valdist ungur til trún-
aðarstarfa eins og faðir hans, enda
ötull félagsmálamaður eins og
hann átti kyn til. Föðurleifð Gísla í
Eyhildarholti voru Frostastaðir í
Blönduhlíð. Fjórir synir þeirra
Eyhildarholtshjóna og fjölskyldur
þeirra hófu búskap á Frostastöð-
um, byggðu þar fjögurra íbúða
hús og hófu stórfellda ræktun.
Magnús átti stórmyndarlega og
mikilhæfa konu, Jóhönnu Þórar-
insdóttur frá Ríp í Hegranesi.
Gestrisni var einstök á heimili
þeirra og þangað var gott að
koma. Margvísleg félagsmálastörf
hlóðust á Magnús svo sem áður
sagði og valdist hann í forystu-
sveit framsóknarmanna í Norður-
landskjördæmi vestra. Hann var
maður samhjálpar og samvinnu af
einlægri hugsjón og mjög ein-
dreginn hernámsandstæðingur.
Magnús tók sæti á framboðslista
flokksins að undangengnu próf-
kjöri og sat á Alþingi sem vara-
þingmaður um skeið. Í kosningun-
um 1974 gekk hann í Samtök
frjálslyndra og vinstrimanna og
tók sæti á framboðslista þeirra.
Okkur framsóknarmönnum
mörgum var mjög mikil eftirsjón
að honum enda var Magnús ein-
stakur ágætismaður og vildi alls
staðar láta gott af sér leiða. Jó-
hanna og Magnús hættu búskap
og fluttu til Reykjavíkur, en sonur
þeirra, Þórarinn, og Sara kona
hans tóku við búi þeirra á Frosta-
stöðum. Magnús stundaði blaða-
mennsku í Reykjavík um árabil.
Vann hann aðallega hjá Þjóðvilj-
anum. Hann var prýðilega ritfær
og bráðgreindur og var blaðinu
mikill fengur að skrifum hans. Síð-
ar sneru þau hjón aftur heim í
Skagafjörð. Nú er Magnús fallinn
frá í hárri elli. Ég sendi Jóhönnu
og afkomendum þeirra hluttekn-
ingarkveðjur. Í huga mér er þakk-
læti fyrir þau ár er við vorum sam-
herjar á hinum pólitíska vettvangi
og söknuður vegna þess að þau ár
urðu ekki fleiri. Blessuð sé minn-
ing Magnúsar á Frostastöðum.
Páll Pétursson.
Magnús á Frostastöðum var
sögumaður góður, ritsnjall, mikill
íslenskumaður og starfaði sem
blaðamaður í Reykjavík um ára-
bil. Á heimili þeirra hjóna ríkti
mikil elskusemi og gestrisni og
hvergi var betra að koma. Hann
var stálminnugur, skrifaði dagbók
um sína daga og þaðan spretta
skráðar minningar hans um
Húnavökuferð til Blönduóss 1944,
sem teygðist fram í Blöndudal og
Svartárdal áður en þeir Magnús
og Steini félagi hans fóru aftur
norður yfir fjall. Í þeirri grein
minnist hann á heimiliskennslu
Guðrúnar ömmu minnar í Finn-
stungu og hún kenndi Gísla föður
hans á orgel þar heima á Frosta-
stöðum. Margvísleg urðu tengslin
milli fjölskyldna okkar en að leið-
arlokum er ljúft að minnast góðra
stunda hjá þeim Jóhönnu bæði
syðra og heima á Frostastöðum
þangað sem þau fluttu aftur á efri
árum sínum. Margir af kynslóð
Magnúsar og Tungubræðra áttu
sín vé í söngnum og kveðja skal
Magnús með versi Jónasar
Tryggvasonar söngstjóra sem
hann orti fyrir Heklu, karlakóra-
samband Norðlendinga:
Látum drengir hljóma hátt
Heklusöng á miðju vori.
Tökum hverja sorg í sátt.
Sjáum aðeins heiðið blátt.
Svo við getum saman átt
söng í hjarta, blóm í spori.
…
(JT)
Ingi Heiðmar Jónsson.
Magnús Halldór
Gíslason
✝ Kristbjörn Jó-hannsson fædd-
ist í Hvammi í Þist-
ilfirði hinn 18.
október 1926. Hann
lést á Dvalarheim-
ilinu Nausti 6. febr-
úar.
Foreldrar hans
voru hjónin Jóhann
Lúther Grímsson, f.
25.10. 1894, d.
22.11. 1978, og Ólöf
Arngrímsdótir, f. 3.10. 1909, d.
5.10. 1989. Kristbjörn var elstur
sjö systkina; María f. 18.7. 1928,
d. 3.3. 2002, Arngrímur, f. 20.5.
1930, d. 7.3. 2010; Guðrún f. 10.6.
1932, d. 9.9. 1980; Grímur Guð-
björn f. 2.6. 1932, d.
21.7. 1996; Gunn-
laugur Marinó f.
10.12. 1938, og
Hólmfríður Kristín,
f. 20.7. 1944, d. 20.8
2012.
Kristbjörn starf-
aði sem bóndi við
bústörf í Tunguseli
nær óslitið meðan
starfsþrek entist og
hann varð að fara á
Dvalarheimilið Naust árið 2005.
Kristbjörn var ógiftur og barn-
laus.
Útför Kristbjörns fer fram frá
Þórshafnarkirkju í dag, 16. febr-
úar 2013, og hefst athöfnin kl. 14.
Kristbjörn Jóhannsson frá
Tunguseli, frændi minn og vinur,
lést miðvikudaginn 6. febrúar á
dvalarheimilinu Nausti á Þórs-
höfn. Kristbjörn var á áttugasta
og sjöunda aldursári. Ég heim-
sótti Kristbjörn á Naustið þegar
ég var fyrir norðan og ég man
sumarið 2010 en þá þakkaði hann
mér mikið fyrir minningargrein-
ina sem ég skrifaði um Arngrím
bróður hans, en hann lést 6. mars
það ár. Í lok þakkarorðanna sagði
Kristbjörn: Þú kannski skrifar svo
um mig þegar ég fer? Ég lofaði
honum því og þar með kvöddumst
við það sumarið. Ég heimsótti
hann síðastliðið haust eins og ég
var vanur að gera og spjölluðum
við og drukkum kaffi, þegar við
kvöddumst þá tók hann þétt í
höndina á mér og sagði: Ég þakka
þér Jóhann svo fyrir allt okkar.
Kristbjörn var bóndi allt sitt líf í
Tunguseli og bóndi góður. Mínar
fyrstu minningar um Kristbjörn
eru frá árinu 1967, fyrsta veturinn
sem foreldrar mínir bjuggu á Hall-
gilsstöðum, en þá keyptu þau í
Tunguseli mjólk á Hallgilsstöðum
hluta af þeim vetri. Kom þá Krist-
björn oftast eftir mjólkinni gang-
andi með sleða í eftirdragi og brúsa
bundinn á sleðanum. Kristbjörn
var bóndi sem kunni á gömlu verk-
færin, amboðin og að binda uppá
hest. Það var gaman að hlusta á
frásagnir hans frá engjaheyskapn-
um með þessum frumstæðu verk-
færum og einnig stóð hann yfir
fénu á vetrarbeitinni. Sem ég man
best eftir bjó Kristbjörn félagsbúi
með Marinó bróður sínum og
Bjarneyju konu hans. Kristbjörn
var vinnumaður hjá Jóhannesi á
Gunnarsstöðum veturinn 1946, vet-
urna 1947 til 1949 er Kristbjörn á
Laugaskóla. Kristbjörn fór einnig
á vertíðir ásamt fleirum til Sand-
gerðis 1970 til 1973 og vann mest í
saltfiski. Kristbjörn tók að sér ýmis
embætti fyrir sveit sína, hann var
t.d. kjörinn hreppsnefndarmaður í
mörg ár, forðagæslumaður í 25-30
ár og gegndi formennsku í Bún-
aðarfélaginu til margra ára. Krist-
björn vann líka alltaf á sláturhús-
inu á Þórshöfn þar til það var
aflagt 1989. Eftir að togarar fóru
að landa á Þórshöfn sáu bændurn-
ir um að landa úr togurunum og
var Kristbjörn einn af löndunar-
hópnum. Það var alltaf gaman að
koma í Tungusel og á veturna fór
ég oft inneftir með Arngrím í
Hvammi eða Þórarin Björnsson
að spila brids, en Kristbjörn var
bæði góður og skemmtilegur
spilamaður. Oft í þessum ferðum
var rætt um pólitík og sérstaklega
ef það var kosningaár. Stundum
varð hávaði og hnefinn í borðið hjá
Kristbirni, en hann varði sinn
flokk og sína menn. Hann var allt-
af framsóknarmaður og beygði
aldrei útaf brautinni, hann fór oft
á kjördæmisþing og aðrar sam-
komur fyrir flokkinn. Kristbjörn
var ekki víðförull, hann undi sér
best heima við bústörfin, las bæk-
ur og horfði mikið á sjónvarp.
Hann skrifaði dagbók frá því hann
kom heim af Laugaskóla vorið
1949 og til þess dags sem hann
fluttist á dvalarheimilið Naust á
Þórshöfn 2005, eða í 56 ár.
Samúðarkveðjur til aðstand-
enda, minningin lifir.
Með kærri kveðju,
Jóhann Lárusson.
Kristbjörn
Jóhannsson
✝
Elskuleg móðir okkar og amma,
VIGDÍS SVERRISDÓTTIR
frá Hvammi,
Norðurárdal,
lést fimmtudaginn 14. febrúar á dvalar-
heimilinu Grund við Hringbraut.
Útförin fer fram í Neskirkju föstudaginn
22. febrúar kl. 13.00.
Anna Vigdís Jónsdóttir, Jörundur Svavar Guðmundsson,
Sigurlaug Jónsdóttir, Hallgrímur Þorsteinn Magnússon,
Sverrir Jónsson, Erla Danfríður Kristjónsdóttir,
Sigbjörn Jónsson, Valgerður Hildibrandsdóttir
og ömmubörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
KNÚTUR OTTERSTEDT,
Brekkugötu 36,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð þriðjudaginn
12. febrúar.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
19. febrúar kl. 13.30.
Harriet Otterstedt,
Lena Otterstedt,
Kristján Otterstedt, Ólöf Margrét Eiríksdóttir,
Ása Karen Otterstedt, Karl Eckner,
Knútur Otterstedt, Silja Rán Andradóttir,
Margrét Sesselja Otterstedt,
Una Lind Otterstedt.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langa-
langafi,
SIGURÐUR ÞÓRARINN ODDSSON,
áður til heimilis að Norðurbrún 1,
lést laugardaginn 9. febrúar á hjúkrunar-
heimilinu Mörk.
Verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn
19. febrúar kl. 13.00.
Brynhildur Sigurðardóttir,
Kristín G. Sigurðardóttir,
Kolbrún M. Sigurðardóttir, Gísli Hafsteinn Einarsson,
Sigþrúður Sigurðardóttir,
Elsa Á. Sigurðardóttir,
Oddur Sigurðsson,
Guðbjartur J. Sigurðsson,
Sigurður Þ. Sigurðsson, Kristín H. Friðriksdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamamma,
amma og langamma,
ÁSTA BJARNADÓTTIR
frá Stað í Steingrímsfirði,
til heimilis að Hólagötu 25,
Njarðvík,
lést að morgni miðvikudagsins 13. febrúar
á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Hún verður jarðsungin frá Ytri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn
20. febrúar kl. 13.00.
Margeir B. Steinþórsson,
Magnús Steingrímsson, Marta Sigvaldadóttir,
Bjarni Steingrímsson, Irena Maria Motyl,
Kristín Steingrímsdóttir, Árni Magnús Björnsson,
Loftur Hilmar Steingrímsson,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
INGIBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR
hjúkrunarkona og kennari,
Lækjarsmára 8,
Kópavogi,
lést á Holtsbúð, Vífilsstöðum, þriðjudaginn
12. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju þriðjudaginn
19. febrúar kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Félag aðstandenda
alzheimerssjúklinga (FAAS).
Fyrir hönd aðstandenda,
Hinrik Lárusson,
Lárus Hinriksson, Freygerður Anna Baldursdóttir,
Sigurður Hinriksson, Elsa Jenný Halldórsdóttir,
Guðbjörg Hinriksdóttir,
Bryndís Hinriksdóttir, Konráð Konráðsson,
Sigrún Hinriksdóttir, Þórir Gíslason,
Ingibjörg Hinriksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.