Morgunblaðið - 16.02.2013, Page 51
hljóðsins í starfi hans. Að lokum
stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki, árið
2003, sem ber nú nafnið Trivium. „Ég
var kominn nær alfarið út í hljóðverk-
fræði og langaði að reyna fyrir mér á
eigin spýtur og fór þá frá Línuhönn-
un þar sem ég hafði verið að vinna.“
Af verkefnum sem Ólafur hefur
unnið við má nefna menningarhúsið
Berg á Dalvík, Guðríðarkirkju í Graf-
arholti og Ingunnarskóla einnig í
Grafarholti. „Ingunnarskóli er opinn
skóli þar sem margar bekkjardeildir
eru kenndar saman og þá þarf gott
temprað rými til að kennslan geti
gengið upp og ekki verði ærandi há-
vaði.“ Ólafur sá einnig um hljóð-
hönnun í höfuðstöðvum Orkuveitu
Reykjavíkur og höfuðstöðvum Ís-
lenskrar erfðagreiningar.
„Nú er ég að glíma við nýja bygg-
ingu við háskólann, sem er Stofnun
Vigdísar Finnbogadóttur þar sem
verður kennsla í erlendum tungu-
málum. Þetta er hefðbundin skóla-
bygging með opnu miðrými þar sem
lagt er upp úr góðri hljóðhönnun. Nú
eru gerðar almennar kröfur um
hljóðhönnun í íbúðum í fjölbýli og til
skrifstofuhúsnæðis, skólahúsnæðis
og sjúkrastofnana. Í raun hafa verið
ákvæði um hljóðmál í bygginga-
reglugerðum frá áttunda áratugnum
en þeim var einfaldlega ekki fylgt
nægilega eftir en síðan þá hafa kröf-
urnar orðið ítarlegri og markvissari.
Þetta hefur verið hægfara þróun
fram á við en um nokkurt skeið hafa
stóru verkfræðistofurnar tekið
hljóðráðgjöf inn í starfsemi sína sem
er ánægjulegt og smám saman er
hljóðhönnun að öðlast þann sess sem
henni ber.“
Syngur með Dómkórnum
Áhugi Ólafs á hljóðfræðum kvikn-
aði þegar hann byrjaði í Dómkórnum
árið 1985. Hefur hann verið í kórnum
síðan þá með hléum. „Við vorum t.d.
fimm ár í Berlín, 1996-2001, þar sem
konan mín var í söngnámi og söng ég
þá bara með kórnum um jól og ára-
mót.“ Önnur áhugamál Ólafs eru
fjallamennska og langhlaup. Hann
hefur hlaupið eitt maraþon og nokkur
hálfmaraþon.
Fjölskylda
Sambýliskona til 25 ára er Sesselja
Kristjánsdóttir söngkona, f. 4.6. 1970.
Foreldrar hennar eru Kristján Frið-
riksson, sem vinnur hjá Kornaxi, og
Borghildur Stefánsdóttir, sem er
komin á eftirlaun en starfaði sem
matráðskona í Reykjavík..
Börn Ólafs og Sesselju eru Kol-
beinn, f. 4.11. 2001, og Nanna Rut, f.
27.9. 2007.
Foreldrar Ólafs eru Hjálmar
Ólafsson, kennari og konrektor í MH,
formaður Norræna félagsins, og bæj-
arstjóri í Kópavogi 1962-1970, og
Nanna Björnsdóttir meinatæknir.
Þau eru bæði látin,.
Ólafur á tvær hálfsystur en for-
eldrar hans áttu eina dóttur hvort áð-
ur en þau tóku saman. Þær eru Vig-
dís Esradóttir, f. 22.2. 1955,
hótelhaldari í Bjarnarfirði á Strönd-
um, og Dóra Hjálmarsdóttir, f. 11.10.
1957, rafmagnsverkfræðingur hjá
Verkís.
Ólafur á þrjá albræður, tvíbura-
bróðurinn Björn, sem er barnalækn-
ir, Eirík, f. 9.11. 1964, sem er
upplýsingafulltrúi Orkuveitu Reykja-
víkur, og Helga, f. 17.8. 1966, sem er
vélaverkfræðingur og fram-
kvæmdastjóri Völku.
Úr frændgarði Ólafs Hjálmarssonar
Ólafur
Hjálmarsson
Andrína Guðrún Einarsdóttir
húsfreyja á Stóra-Kroppi
Kristleifur Þorsteinsson
bóndi á Stóra-Kroppi í Borgarfirði
Andrína Guðrún Kristleifsdóttir
húsfreyja í Sveinatungu
Björn Gíslason
bóndi í Sveinatungu í Norðurárdal, Borgarf.
Nanna Björnsdóttir
meinatæknir í Kópavogi
Vigdís Pálsdóttir
húsfreyja í Stafholti
Gísli Einarsson
prestur í Stafholti í Borgarfirði
Sigrún Ólafsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Árni Sæmundsson
trésmiður í Reykjavík
Dórótea Árnadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Ólafur Einarsson
sjómaður í Reykjavík
Hjálmar Ólafsson
bæjarstjóri í Kópavogi
Þuríður Ólafsdóttir
húsfreyja í Hallgeirsey
Einar Sigurðsson
bóndi í Hallgeirsey í Landeyjum
Eiríkur Hjálmarsson
upplýsingafulltrúi OR
Afmælisbarn Ólafur Hjálmarsson.
ÍSLENDINGAR 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013
Páll Heiðar Jónsson fæddist 16.febrúar 1934 í Vík í Mýrdal.Páll Heiðar var sonur Jóns
Pálssonar mælingafulltrúa og Jón-
ínu Magnúsdóttur húsmóður.
Páll lauk verslunarprófi frá Verzl-
unarskóla Íslands árið 1952 og end-
urskoðunarnámskeiði frá Háskóla
Íslands 1958. Páll stundaði jafn-
framt félagsvísindi við sama skóla
árið 1976. Hann var löggiltur þýð-
andi og dómtúlkur á ensku.
Páll Heiðar starfaði við endur-
skoðun hjá N. Manscher 1953-57 og
hjá SÍS 1958-62. Hann var skrif-
stofumaður hjá Flugfélagi Íslands í
London 1963-71 og árið 1971 hóf
hann störf sem dagskrárgerð-
armaður hjá RÚV. Síðustu tíu ár
ævi sinnar starfaði hann sem löggilt-
ur skjalaþýðandi.
Páll Heiðar var brautryðjandi í
dagskrárgerð hér á landi og þótti lit-
ríkur dagskrárgerðarmaður.
Þegar hann hóf störf fyrir Rík-
isútvarpið innleiddi hann nýjar að-
ferðir við dagskrárgerð sem ekki
höfðu áður verið notaðar hér á landi
en tíðkuðust í Bretlandi. Um Pál
Heiðar er sagt að hann hafi orðið
þjóðþekktur maður um leið og rödd
hans tók að hljóma í útvarpi þegar
hann hóf að flytja fréttir og pistla frá
Lundúnum þar sem hann starfaði
fyrir Flugfélag Íslands.
Páll var sagður greindur maður
sem fylgdist með þjóðfélagsmálum
og átti auðvelt með að greina þar að-
alatriðin frá aukaatriðunum.
Á ferli sínum haslaði Páll sér völl
sem einn helsti fjölmiðlamaður
landsins. Hann var upphafsmaður
þáttarins í Vikulokin sem enn er á
dagskrá Rásar 1, „rás hins hugsandi
manns“ eins og hann kallaði hana
gjarnan. Eftir hann liggja minn-
isstæðar þáttaraðir um sjávarútveg
þar sem hann fylgdist með sjómönn-
um, fiskvinnslufólki og útflutningi.
Páll Heiðar eignaðist sjö börn:
Jón Heiðar, Erlu Óladóttur, Jó-
hönnu Gunnheiðardóttur, Maria
Christie Pálsdóttur, Pál Pálsson
(lést 1987), Egil Heiðar Anton Páls-
son og Viktoriu Jónu Pröll.
Páll Heiðar lést 12.11. 2011.
Merkir Íslendingar
Páll Heiðar
Jónsson
Laugardagur
102 ára
Guðrún Þorsteinsdóttir
95 ára
Árni Jóhannesson
90 ára
Hörður Þorgilsson
Maggý Valdimarsdóttir
85 ára
Guðni Þorvaldur Jónsson
Magnús Gissurarson
Pálhanna Magnúsdóttir
80 ára
Elín Halldórsdóttir
Þorsteinn S Steingrímsson
75 ára
Áslaug A. Jóhannsdóttir
Erla Margrét Jónsdóttir
Helgi Sigfússon
Snjólaug J. Jóhannsdóttir
70 ára
Birgir Arnar
Freyja P. Sigurvinsdóttir
Guðrún Helgadóttir
Gunnar Jónatansson
Magnea G. Sigurðardóttir
Sigurður S. Guðmundsson
Þrándur Ingvarsson
60 ára
Ari Heiðberg Jónsson
Guðleif Bender
Hróbjartur Ægir Ósk-
arsson
Ingibjörg Guðjónsdóttir
Jón Carlsson
Rebekka Guðnadóttir
Snorri S. Guðvarðsson
50 ára
Árni Björn Kristbjörnsson
Björn Hjálmarsson
Björn Þorvaldsson
Eric Eymard
Hildur Pétursdóttir
Hilmar Ólafsson
Hrafn Valgarðsson
Ólafur Hjálmarsson
Ólafur Ólafsson
Sigurður Héðinn Harð-
arson
40 ára
Anna Marta Ásgeirsdóttir
Aseneth Luna Martinez
Baldur Sæmundsson
Berglind Kristinsdóttir
Bryndís Gísladóttir
Elísabet Hermundardóttir
Jón Sigþór Jónsson
Jökull Hrannar Björnsson
Lovísa Björk Júlíusdóttir
Lovísa G. Ásgeirsdóttir
Marzena Dziduch
Sigrún Gísladóttir
Skúli Brynjólfsson
Vala Valsdóttir
30 ára
Ágúst Líndal Ágústsson
Birna Dögg Magnúsdóttir
Gísli Ármannsson
Guðmundur Ö. Jóhanns-
son
Gunnar Sigurðsson
Kristján Örn Þrastarson
Róbert Aron Pálmason
Sunnudagur
90 ára
Guðríður Ársælsdóttir
Jón Ólafsson
85 ára
Símon Símonarson
Valdís Blöndal
75 ára
Áskell Jónasson
Gunnar Gunnarsson
Haraldur Henrysson
Jón Rafn Sigurjónsson
70 ára
Anna Lilja Kjartansdóttir
Ásmundur Kjartansson
Benth U. Behrend
Hjörleifur Herbertsson
Ingólfur Örn Herbertsson
Júlíus Ingvarsson
60 ára
Alda Svanhildur Gísladótt-
ir
Edda Kristjánsdóttir
Guðjón Bjarki Sverrisson
Haraldur Magnússon
Hlöðver Ólafur Ólafsson
Ingibjörg Ólafsdóttir
Kristrún Þóra Clausen
Nora Valdís Mangubat
Ruben Fannar de Sousa
Skúli Eggert Þórðarson
50 ára
Bogi Hjálmtýsson
Gunnar Vagnsson
Hildur Kristjánsdóttir
Jónas Yngvi Ásgrímsson
Jósteinn Þorgrímsson
Lyubov Kurstak
Nína María Reynisdóttir
Shirin Erla Naimy
Sigríður Kr.
Valdemarsdóttir
Sigrún M. Gunnarsdóttir
Sigurbjörg Haraldsdóttir
Steinunn Hjálmtýsdóttir
Svava Kristín Ingólfsdóttir
Tómas Valdimarsson
Trung Van Ngo
Vera Roth
Þórný Guðnadóttir
40 ára
Agnieszka A. Raczkiewicz
Dariusz Kaminski
María Sif Sævarsdóttir
Rósmarý D.
Sólmundardóttir
Sigurður Jónas Eggerts-
son
Þorsteinn Hoffritz
30 ára
Andri Jóhannesson
Anna Szmitko
Anna Tómasdóttir
Ásgerður D. Stefánsdóttir
Bryndís Sighvatsdóttir
Christopher Michael Lo-
wen
Davíð Ingi Sigurðsson
Elísabet Brynhildardóttir
Guðrún I. Ragnarsdóttir
Helgi Jónsson
Iwona Swietek
Jóel Ingi Sæmundsson
Lukasz Kupis
Margrét H. Kristjánsdóttir
Margrét Ósk Magnúsdóttir
Marta M. Hafsteinsdóttir
Pawel Marcin Krajewski
Sara Dögg Alfreðsdóttir
Til hamingju með daginn
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Kolabrautin er á 4. hæð Hörpu
info@kolabrautin.is
www.kolabrautin.is
ELDBAKAÐIR
VETRARRÉTTIR
Borðapantanir í síma 519 9700