Morgunblaðið

Date
  • previous monthFebruary 2013next month
    MoTuWeThFrSaSu
    28293031123
    45678910
    11121314151617
    18192021222324
    25262728123
    45678910

Morgunblaðið - 21.02.2013, Page 20

Morgunblaðið - 21.02.2013, Page 20
Berglind Gréta Kristjánsdóttir Fjörtíu ár eru liðin frá þeimatburði þegar föðursystirmín Gréta Þórarinsdóttirlést aðeins 27 ára gömul ásamt eiginmanni sínum Engilberti Kolbeinssyni og átta öðrum þegar Sjöstjarnan KE-8 fórst á leið sinni frá Færeyjum til Íslands. Með því að rifja upp atburði þessa hörmulega slyss vil ég minnast þeirra tíu sem létu þar lífið langt fyrir aldur fram. Ferðin til Færeyja Það var þann 5. janúar 1973 sem skipstjórinn Engilbert Kolbeinsson hélt af stað til Færeyja á bátnum Sjö- stjörnunni KE-8 ásamt stýrimann- inum Þór Kjartanssyni og vélstjór- anum Guðmundi J. Magnússyni. Sjöstjarnan KE-8 var 100 tonna eik- arbátur frá Keflavík en eldur hafði komið upp í lúkar bátsins þegar það lá við bryggju í Njarðvíkurhöfn og ástæða ferðarinnar sú að koma hon- um í viðgerð. Heim var svo haldið að viðgerð lokinni þann 9. febrúar. Áhöfninni hafði þá fjölgað úr þremur í tíu manns. Bæst höfðu við fimm Færeyingar sem ráðnir höfðu verið á Sjöstjörnuna á vertíð um veturinn. Einnig bættust við tveir Íslendingar, Alexsander Gjörveraa sem var að snúa heim til Íslands eftir tveggja ára dvöl í Færeyjum og eiginkona skip- stjórans, Gréta Þórarinsdóttir, sem hafði flogið til Færeyja til þess að fylgja eiginmanni sínum yfir hafið. Sú ferð átti eftir að verða örlagarík og hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Mikill leki kom að bátnum Þegar leið á ferðina fór veðrið versnandi og sunnudaginn 11. febr- úar var komið hið versta veður á þeim slóðum sem Sjöstjarnan var á sigl- ingu, eða 8 – 10 vindstig af vestri og þungur sjór. Um hádegi þennan dag hafði báturinn látið tilkynningar- skyldu íslenskra fiskiskipa vita af sér og var þá allt eðlilegt um borð. Um klukkan 14:40 barst neyðarkall til Hornarfjarðarradíó frá skipstjóra Sjöstjörnunnar um að mikill leki væri kominn að bátnum og að lúkarinn væri orðinn hálffullur af sjó. Boð- unum var strax komið til skila til Slysavarnarfélags Íslands og send út sú tilkynning til skipa að veita Sjö- stjörnunni alla þá aðstoð sem mögu- leg var. Hófst þá ein umfangsmesta leit sem farið hefur fram hérlendis á sjó. Ástandið orðið mjög alvarlegt Þegar neyðarkallið barst var bát- urinn staddur um 100 sjómílur aust- suðaustur af Dyrhólaey. Þau skip sem næst voru slysstaðnum voru Dettifoss, Írafoss og rannsóknar- skipið Bjarni Sæmundsson, héldu þau strax á stað í áttina að Sjöstjörn- unni ásamt varðskipinu Ægi. Stað- arákvörðun Sjöstjörnunnar var mjög ónákvæm og staðsetningartækin sem voru um borð af lakara taginu. Það fyrsta sem skipin gerðu var því að reyna að staðsetja bátinn eins ná- Ein umfangsmesta leit Íslandssögunnar á sjó Eikarbáturinn Sjöstjarnan KE-8 fórst í febrúar 1973 suðaustur af Íslandi á leið frá Færeyjum til Íslands. Tíu voru um borð í bátnum og létu allir lífið. Mikil leit var gerð í kjölfarið bæði á sjó og úr lofti og fannst lík eins úr áhöfninni bundið við björgunarbát. Fórst við Ísland Sjöstjarnan KE-8 var 100 tonna eikarbátur frá Keflavík. Verið var að sigla bátnum til Íslands frá Færeyjum þar sem gert hafði verið við hann. 20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2013 Sjöstjörnuslysið 11. febrúar 1973 Tri ehf. Suðurlandsbraut 32 104 Reykjavík www.tri.is 25-50% afsláttur fæst nú af KENDA og Hutchinson dekkjum sem bætast í hóp útsöluvara 25% afsláttur af öllum 2012 hjólum á meðan birgðir endast 2013 árgerðin af CUBE hjólum er væntanleg í verslun okkar í byrjun mars Verslunin er opin: Alla virka daga kl. 09:00-18:00 Laugardaga kl. 10:00-16:00 Útsalan framlengd til laugardags! 35-50% afsláttur af öllum hlaupaskóm, hlaupa- og hjólafatnaði í verslun fram til laugardagsins 23. febrúar. SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á TRI.IS

x

Morgunblaðið

Slag av riti:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
1021-7266
Mál:
Árgangir:
111
Útgávur:
55740
Registered Articles:
3
Útgivið:
1913-í løtuni
Tøk inntil:
30.09.2024
Skv. samningi við Árvakur útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki hægt að sýna efni frá síðustu þremur árum Morgunblaðsins í almennum aðgangi á Tímarit.is.
Útgávustøð:
Ritstjóri:
Vilhjálmur Finsen (1913-1921)
Þorsteinn Gíslason (1921-1924)
Jón Kjartansson (1924-1947)
Valtýr Stefánsson (1924-1963)
Sigurður Bjarnason frá Vigur (1963-1970)
Matthías Johannessen (1959-2000)
Eyjólfur Konráð Jónsson (1960-1974)
Styrmir Gunnarsson (1972-2008)
Ólafur Þ. Stephensen (2008-2009)
Davíð Oddsson (2009-í løtuni)
Haraldur Johannessen (2009-í løtuni)
Útgevari:
Félag í Reykjavík (1924-1947)
Árvakur (1947-í løtuni)
Keyword:
Lýsing:
Dagblað. Fréttir og greinar um innlend sem erlend málefni.
Stuðul:
Supplements:

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue: 43. tölublað (21.02.2013)
https://timarit.is/issue/370922

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

43. tölublað (21.02.2013)

Actions: