Morgunblaðið - 21.02.2013, Síða 23

Morgunblaðið - 21.02.2013, Síða 23
Margvísleg gögn » Mandiant segir að hundr- uð manna með góða ensku- kunnáttu stundi netnjósnir fyr- ir „APT1“ í umræddu húsi í Sjanghæ. » Stolið sé m.a. upp- dráttum, viðskiptaáætlunum, verðtillögum, kennitölum og tölvupóstum fjölmiðla. » Ráðamenn í Washington álíta þessa starfsemi ógna bæði öryggi og efnahagslegum hagsmunum þjóðarinnar. Kristján Jónsson kjon@mbl.is Kínverska varnarmálaráðuneytið vísar því eindregið á bug að tölvu- hakkarar í tilteknu, vandlega vörðu, 12 hæða húsi á vegum hersins í Sjanghæ geri árásir á bandarísk fyrirtæki og hafi komist yfir geysi- legt magn gagna. Ásakanir þess efn- is koma fram í nýrri skýrslu öryggis- fyrirtækisins Mandiant vestra en það varði tveim árum í að rekja upp- runa tölvuárása. Mandiant fullyrðir að flestir skæðustu hakkararnir búi í Kína og stjórnvöld í Peking viti vel af tilvist þeirra. Kínverjar hafa á síðustu árum verið grunaðir um að njósna um stórfyrirtæki og mikilvægar stofn- anir í Bandaríkjunum og fleiri lönd- um. Einnig óttast menn að þeir skipuleggi netárásir til að geta lam- að mikilvægar stofnanir komi til átaka við Bandaríkin. Í yfirlýsingu ráðuneytismanna í Peking segir að Mandiant, sem hefur rakið svonefndar IP-tölur (heimilis- föng) í rannsóknum sínum og rakið hundruð árása, setji ekki fram „tæknilegar sannanir“. Oft væru netárásir gerðar með því að nota IP- tölur sem hakkarar hefðu stolið. Erf- itt væri að rekja þessi mál vegna þess að þau spönnuðu svo mörg ríki og þar að auki væri ofur venjuleg upplýsingasöfnun á netinu stundum ranglega kölluð njósnir. Kínverjar segjast ekki stunda netnjósnir  Bandarísk skýrsla staðsetur aðalhreiðrið í Sjanghæ FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2013 Stjórnmálaleiðtogar í Rússlandi fara nú hörðum orðum um Banda- ríkjamenn vegna andláts rússnesks drengs í lok janúar en hann hafði verið ættleiddur til Texas. Enginn hefur verið handtekinn vegna máls- ins sem er í rannsókn en það hefur fengið mikla umfjöllun í rúss- neskum fjölmiðlum sem flestir eru undir beinni eða óbeinni stjórn yfir- valda. Barnaverndarmenn í Texas segja að borist hafi kærur vegna meintrar illrar meðferðar á barninu. Umboðsmaður barna í Rússlandi, Pavel Astakhnov, beið ekki eftir að heyra niðurstöður réttarlæknisins, að sögn norska Aftenposten. „Móðir ættleidds barns hefur drepið þriggja ára gamalt, rússneskt barn í Texas,“ sagði hann á Twitter- vefnum. Bandaríkjamenn hafa ætt- leitt um 60 þúsund börn frá Rúss- landi eftir hrun Sovétríkjanna 1991 og um 20 þeirra hafa dáið vegna illrar meðferðar, ofbeldis eða van- rækslu, að sögn Rússa. Rússneska þingið samþykkti um áramótin að banna ættleiðingar barna til Banda- ríkjanna og hefur Vladímír Pútín forseti staðfest lögin. Samskipti Bandaríkjanna og Rússlands hafa ekki verið jafn kuldaleg í mörg ár. En BBC segir að kannanir í Rússlandi sýni samt að álit almennings á Bandaríkjamönn- um hafi batnað á síðari árum, þrátt fyrir heift Kremlverja. Fréttaskýr- endur segja að bannið við ættleið- ingum sé í reynd hefnd vegna laga sem samþykkt voru vestra í fyrra. Þau meina rússneskum embættis- mönnum sem grunaðir eru um gróf mannréttindabrot um vegabréfs- áritun til Bandaríkjanna. Lögin eru kennd við Sergei Magnítskí, rúss- neskan lögfræðing sem barðist gegn spillingu en var handtekinn. Hann lést í fangelsi. Athygli vakti að mannréttindaráð Moskvu- stjórnarinnar sagði að orsökin hefði verið ill meðferð. kjon@mbl.is Samskipti minna á kalda stríðið  Rússar fordæma Bandaríkjamenn vegna dauða ættleidds drengs í Texas Vladímír Pútín Liðsmaður bandarísku landgönguliðasveitanna sýnir hreysti sína með því að drekka blóð úr kóbraslöngu á árlegri æfingu í flotastöðinni Sattahip í Taílandi í gær. Æfingin, sem nefnist Cobra Gold, er fjölþjóðleg og eru hermennirnir þar þjálfaðir í að komast af við erfiðar aðstæður í frumskógi. Einnig er markmiðið að efla samskiptin milli herja nokkurra ríkja beggja vegna Kyrrahafsins sem eiga samstarf í varnarmálum. Smakkar gómsætt eiturslöngublóð AFP GLUGGAR OG GLERLAUSNIR idex.is - sími: 412 1700 - merkt framleiðsla • tré- eða ál/trégluggar og hurðir • hámarks gæði og ending • límtré úr kjarnaviði af norður skandinavískri furu • betri ending — minna viðhald • lægri kostnaður þegar fram líða stundir • Idex álgluggar eru íslensk framleiðsla • hágæða álprófílakerfi frá Schüco • Schüco tryggir lausnir og gæði • Þekking og þjónusta • Áralöng reynsla Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga Byggðu til framtíðar með gluggum frá Idex

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.