Morgunblaðið - 21.02.2013, Side 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2013
Í svari Stefáns Konráðssonar,
bæjarfulltrúa og formanns skipu-
lagsnefndar Garðabæjar, sem birtist
í Morgunblaðinu laugardaginn 16.
feb. sl, virðist það koma honum á
óvart að formaður GKG vilji fá útrás
fyrir óþreyju sína varðandi deili-
skipulagsbreytingu á golfvall-
arsvæði GKG. Það sem honum
finnst greinilega verst af öllu er að
slíkt sé sett fram á vettvangi fjöl-
miðla. Það kann vel að vera að Stef-
áni finnist hafa verið góður gangur í
þessari vinnu, en hann á ekkert með
að fullyrða neitt um hvað okkur fé-
lögum í GKG finnst um einurðina í
þessu máli. Ég get sagt það sem
mína skoðun, að mér finnst hafa ver-
ið hraði snigilsins á öllu þessu máli.
Gott samstarf – góð samvinna?
Það er vissulega rétt hjá bæj-
arfulltrúanum að fundir hafa verið
haldnir um málið og hefur aldrei
staðið á fulltrúum
GKG að mæta á þá
fundi. Þegar meirihluti
bæjarráðs Garðabæjar
ákvað hvar golfskálinn
yrði staðsettur, hlýtur
hann að hafa gert sér
grein fyrir því, að
Garðabær hafði ekki
yfirráðarétt yfir því
landi, þar sem hann
vildi að skálinn yrði
staðsettur. Mér finnst
það ekki bera vott um
þá góðu samvinnu við
landeigendur sem bæjarfulltrúinn
talar um. Ég get upplýst formann
skipulagsnefndar Garðabæjar um að
hinn 13. febrúar sl. barst fram-
kvæmdastjóra GKG tölvupóstur frá
Landspítalanum, þar sem segir að
þeir geti samþykkt fyrir hönd Land-
spítala að deiliskipulaginu sé breytt
eins og óskað hafi verið eftir. Hins
vegar þarf að koma til sérstök heim-
ild Landspítala eða samningar áður
en bygging golfskálans
er hafin. Í óformlegum
viðræðum við stjórn-
endur Landspítala eru
gerðir fyrirvarar á því
að þarna verði byggður
skáli úr varanlegu efni.
Hvað það þýðir er ekki
gott að segja, en ef það
þýðir að ekki megi t.d.
steypa hús á lóðinni, þá
sé ég ekki tilganginn í
að breyta deiliskipulag-
inu.
Forgangsröðun GKG
Bæjarfulltrúinn talar um að þegar
deiliskipulagið liggur fyrir þurfi
GKG að forgangsraða óskum sínum
um heildaruppbyggingu á svæðinu
og kanna hug bæjarstjórna Garða-
bæjar og Kópavogs þar að lútandi.
Stjórn GKG hefur marglýst þeirri
skoðun sinni að fyrst af öllu verði að
byggja upp félagsaðstöðu og síðar
komi æfingasvæði og nýtt áhalda-
hús. Þessar óskir liggja allar fyrir og
hafa hugmyndir GKG verið sendar
til bæjaryfirvalda beggja sveitarfé-
laganna. Í viljayfirlýsingu sem skrif-
að var undir fyrir bæjarstjórn-
arkosningarnar 2006, lýstu
bæjarstjórar beggja sveitarfélag-
anna því yfir að þau myndu hér eftir
sem hingað til standa þétt saman um
uppbyggingu á félagssvæði GKG. Er
þessi viljayfirlýsing ekki ennþá í
fullu gildi?
Er formanninum treystandi?
Þau orð mín, að þetta mál sé alfar-
ið í höndum bæjaryfirvalda í Garða-
bæ, gefa Stefáni Konráðssyni
ástæðu til að velta því fyrir sér hvort
mér sé treystandi til að eiga eðlileg
samskipti við bæjaryfirvöld. Hann
verður auðvitað að meta það sjálfur,
en ef það er skoðun bæjaryfirvalda í
Garðabæ að formaður GKG hverju
sinni megi ekki setja fram sínar
skoðanir um hagsmunamál klúbbs-
ins, nema spyrja bæjaryfirvöld fyrst
hvort þær skoðanir séu þeim þókn-
anlegar, þá er illa fyrir GKG komið.
Að skjóta sendiboða hefur aldrei
þótt stórmannlegt. Ég var kosinn
formaður GKG á síðasta aðalfundi í
8. sinn, en ef það verður til þess að
mál GKG fái skjótari framgang en
verið hefur, þá skal ekki standa á
mér að víkja úr formannsstólnum.
Fyrir mér eru málefni GKG miklu
meira virði en hvort ég verði deg-
inum lengur sem formaður. Ég ætla
rétt að vona að formennska í GKG
ráðist aldrei af duttlungum ein-
stakra bæjarfulltrúa í Garðabæ.
Eftir Guðmund Oddsson »Alger samstaða innan
GKG um heildarupp-
byggingu á golfvallar-
svæðinu. Félagsaðstað-
an er þar í fyrsta sæti.
Guðmundur Oddsson
Höf. er formaður GKG.
Að skjóta sendiboða hefur aldrei þótt stórmannlegt
„Þegar ég settist
fyrst á þing, hélt ég í
bjartsýni minni, að ég
gæti gert eitthvert
gagn með því að vera á
móti því, sem vitlaust
var. En eftir að hafa
gegnt þingmennsku í
sextán ár, var mér orðið
ljóst, að ekki er hægt að ráða við vit-
leysuna, það hefur enginn getað og
mun enginn geta.“ Svo sagði Björn
Pálsson bóndi á Löngumýri.
Við Íslendingar, 320 þúsund manns,
hvorki kunnum, viljum né getum for-
gangsraðað þegar fjármunir eru ann-
ars vegar. Með öðrum orðum: Við
kunnum ekkert með peninga að fara.
Það sýnir sig glöggt og sárlega þessa
dagana þegar við erum að glopra úr
höndum okkar besta heilbrigðiskerfi í
heimi. Unga myndarlega húsfreyjan,
sem passar landsins kassa, sagði í
fréttum fyrir nokkrum dögum að það
væru engir peningar í kassanum til að
bjarga málum á Landspítalanum. Ef
það ætti að gerast yrði að taka lán.
Þetta er laukrétt hjá fjármála-
ráðherranum. Það eru ekki meiri pen-
ingar til hjá henni í bili því Alþingi og
ríkisstjórn hafa ráðstafað þeim í ann-
að, þar á meðal í alls konar vitleysu.
En í rauninni eru alla jafna til nógir
peningar í umræddri fjárhirslu, en ef
menn kunna ekki að forgangsraða er
ekki von á góðu. Þá tekur vitleysan
völdin.
Dæmi af handahófi úr fjárlögum
2013:
Fyrsta vitleysa: Áætlað er að rekst-
ur utanríkisráðuneytisins á þessu ári
kosti 11,3 milljarða króna. Þar af er al-
mennur rekstur sendiráða 2,8 millj-
arðar kr.
Önnur vitleysa: Rekstur Þjóðmenn-
ingarhúss í Reykjavík er áætlaður
89,5 milljónir kr.
Þriðja vitleysa: Harpa, tónlistar- og
ráðstefnuhús í Rvk. Almennur rekst-
ur 564 milljónir kr.
Fjórða vitleysa: Ríkisútvarpið, al-
mennur rekstur 3,2 milljarðar kr.
Fimmta vitleysa: Þjóðleikhúsið, al-
mennur rekstur 725 milljónir kr.
Sjötta vitleysa: Sinfóníuhljómsveit,
almennur rekstur 900 milljónir kr.
Nú má vel fallast á að sumt af þessu
séu þörf og góð mál ef út í það væri
farið. En það er þessi eilífa spurning
um forgangsröðunina.
Má ekki fækka utanlandsferðum,
kokkteilpartíum og slíku þótt það sé
gaman? Má ekki fækka sinfóníutón-
leikum þótt þeir séu skemmtilegir?
Má ekki virkja einstaklingsframtakið
til að reka Hörpu og Þjóðmenning-
arhús? Þarf Ríkisútvarpið að reka
myndbandaleigu með heimsending-
arþjónustu? Og má ekki sýna aðeins
færri leikrit þegar þrengir að?
Þeir sem þannig spyrja eru nátt-
úrlega ekki réttum megin við strikið.
Við því er víst lítið að gera. En skyldi
afdalabóndinn Björn Pálsson hafa
haft rétt fyrir sér? Getum við Íslend-
ingar aldrei lært að forgangsraða?
Þegar vitleysan
tekur völdin
Eftir Hallgrím
Sveinsson og
Bjarna Georg
Einarsson
»Má ekki fækka utan-
landsferðum og
kokkteilpartíum þótt það
sé gaman? Má ekki fækka
sinfóníutónleikum þótt
þeir séu skemmtilegir?
Svona spyr maður ekki.
Hallgrímur Sveinsson
Hallgrímur er bókaútgefandi og létta-
drengur á Brekku í Dýrafirði og Bjarni
er fyrrverandi útgerðarstjóri og núver-
andi ellilífeyrisþegi á Þingeyri.
Bjarni Georg Einarsson
Mjög léttir, hljóðlátir, litríkir og kröftugir hárblásarar. Aðeins 350 gr. og 14 cm. Ársábyrgð.
HÁRSNYRTING: RÁÐGJÖF, KLIPPING OG MÓTUN, HÁRLITUN, HÁRÞVOTTUR MEÐ NUDDI EÐA DJÚPNÆRINGU
VÖRUR Í VERSLUN: ALLT Í HÁRIÐ, HÁRLENGINGAR OG -KOLLUR, GREIÐUR, BURSTAR, BLÁSARAR
REDKEN ONLY SALON
SALONVEH
HÚSI VERSLUNARINNAR, KRINGLUNNI
s. 568 7305 • salonveh.is
ÞÚ FÆRÐ PERSÓNULEGA OG FAGLEGA RÁÐGJÖF HJÁ OKKUR
VELECTA HÁRBLÁSARAR
NOTAÐIR AF FAGMÖNNUM
Losaðu þig við byrðina - aðeins 350 grömm
2000W
hárblásarar
komnir
Vatnagörðum 12 - 104 Reykjavík - Sími: 588 5151 - Fax: 588 5152 - glerslipun.is
Glerslípun & Speglagerð ehf.
Speglar Flotgler Öryggisgler Hert gler Bílspeglar Sandblástur
Álprófílar Máltöku- og uppsetningaþjónusta
Sjáðu sjálfan þig
í nýju ljósi
Við leggjum metnað okkar
í að bjóða sérhæfðar og
vandaðar lausnir á
baðherbergi. Við bjóðum
upp á sérsmíðaða spegla,
sturtuklefa og sturtuskilrúm.
Þá erum við komnir með
nýja útgáfu af ljósaspeglunum
okkar vinsælu.
Á nýrri heimasíðu okkar
glerslipun.is er gott yfirlit yfir
það sem er í boði. Auk þess
bjóðum við alla velkomna
í Vatnagarða 12 þar sem
fagfólk veitir góða þjónustu
og allar þær upplýsingar sem
þarf.