Morgunblaðið - 21.02.2013, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 21.02.2013, Qupperneq 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2013 Uppvakningurinn R. ráfarum í leit að fæðu á dag-inn. Á kvöldin styttirhans sér stundir í yfir- gefinni farþegaflugvél þar sem hann hefur búið sér hreiður og hans helsta dægradvöl fyrir utan mannát er að hlusta á vínylplötur og safna smáhlutum. Dag einn kemst hann í kynni við Julie, lifandi stúlku sem vekur eitthvað innra með honum og upp frá því fara hlutir í heimi hinna dauðu að breytast í fyrsta skipti síð- an faraldurinn hófst. Allt frá því að George A. Romero sendi frá sér Night of the Living Dead árið 1968 hefur uppvaknings- kvikmyndin verið einn af máttar- stólpum hrollvekjunnar. Þegar ný mynd eða sjónvarpsþáttaröð kemur út er stór hluti skemmtunarinnar að sjá hvernig höfundarnir ætla að spila út þeim reglum sem samdar hafa verið í fyrri myndum. Hvað þarf til að drepa uppvakningana, hversu smitandi er faraldurinn, hver eru hlutföll dauðra á móti lifandi og svo framvegis. Hin breska Shaun of the Dead (2004) markaði stór spor þegar húmor var kynntur til leiks í verulegu magni (og gæðum) í upp- vakningamynd og hefur sennilega haft töluverð áhrif á Warm Bodies sem fer þá óvenjulegu leið að sjálf aðalpersónan er uppvakningur og jafnframt sögumaður. Við kynnumst veikinni hans sem fötlun, hann á erf- itt með að tjá sig með orðum en hugsanir hans eru skýrar, snöggar og hnyttnar. Þetta gefur myndinni öflugt start og mörg bestu augna- blik hennar fjalla um viðleitni hinna dauðu til að reyna að tengja aftur við leifarnar af sínu gamla mannlega lífi. Myndin er nokkuð fyndin og merkilega ófeimin þegar kemur að bjartsýnum og hlýlegum tón hennar en flestar uppvakningamyndir eru hálfgerðar dystópíur og allt að því bölsýnar þegar kemur að mannlegu eðli. Það má segja að veðmálið gangi upp að hálfu leyti; ágætlega tekst til við að fá mann til að brosa út í annað og kenna í brjósti um hina ódauðu en sjálf aðalsagan sem hefur verið lýst sem Rómeu og Júlíu í uppvakn- ingaformi er frekar átakalaus. John Malkovich leikur strangan föður Ju- lie sem fer fyrir vopnaðri herdeild og hefur það markmið að útrýma hinum ódauðu. Alla myndina er gef- ið í skyn að núningurinn milli hans og nýja tengdasonarins verði um- talsverður en þegar á hólminn er komið ganga hlutirnir bara nokkuð smurt fyrir sig. Hún líður að vissu leyti fyrir hvað „andstæðingar“ hennar eru máttlausir. Hvorki fað- irinn né „beinarnir“ (óviðbjargandi uppvakningar á lokastigi) valda manni tilfinnanlegu hugarangri og blóðbaðið er í lágmarki. Tónlistar- valið er í stíl við Grey’s Anatomy- þættina: listi af indí-smellum sein- ustu ára sem hefði getað verið val- inn af Genius í iTunes en tónlistin talar ekki mikið við mann í gegnum söguna og situr ekkert sérstaklega í manni. Aðalleikararnir gera sitt mjög vel og ná að ljá persónum sem maður veit frekar lítið um merkilega mikinn þokka. Rob Corddry stelur svo senunni sem besti vinur upp- vakningsins R. og nær að gera sitt hlutverk merkilega fyndið. Niðurstaða: Warm Bodies er ný nálgun á ákveðna undirgrein hryll- ingsmyndarinnar þar sem milliveg- urinn er fetaður í væmni, húmor, of- beldi og spennu. Fyrir mína parta hefði hún alveg mátt vera blóðugari en hún er engu að síður ágætasta skemmtun og kærkomin viðbót í uppvakningasafnið. Ástarsaga Uppvakningurinn R og stúlkan sem hann elskar í Warm Bodies. Hlýlegur uppvakningur Sambíóin Warm Bodies bbbnn Leikstjóri: Jonathan Levine. Leikarar: Nicholas Hoult, Teresa Palmer, Analeigh Tipton, John Malkovich, Rob Corddry, Dave Franco. Bandaríkin, 2013. 98 mín. ARI ELDJÁRN KVIKMYNDIR Plata er væntanleg með íslensku hljómsveitinni Morgan Kane og hefur eitt laga hennar verið gefið út, lagið „Nine“, í gegnum ís- lensku vefútgáfuna Synthadelia Records. Lagið hefur verið valið af tónlistarvefnum Rjóminn, rjo- minn.is, sem framlag Íslands á lista Music Alliance Pack sem er samstarfsverkefni tónlist- arbloggsíðna víða um heim og er listinn birtur á vef breska dag- blaðsins The Guardian. Áhuga- samir geta hlaðið niður öllum lög- unum á þeim lista með því að fara á vefsíðu Rjómans. Listamenn Hljómsveitin Morgan Kane sendir frá sér plötu á næstu dögum. „Nine“ á lagalista Music Alliance Pack Rithöfundurinn Óttar M. Norðfjörð er greinilega ekki sáttur við nýj- ustu kvikmynd leikarans Bruce Willis, A Good Day to Die Hard. Óttar birtir opið bréf til Willis á Fa- cebook svohljóðandi: „Kæri Bruce Willis Ég var að koma heim af nýjustu kvikmynd þinni, Die Hard 5: A Go- od Day to Die Hard. Ég las einhvers staðar að þú hefðir í hyggju að gera Die Hard 6. Ég hvet þig hér með eindregið til að hætta við þá mynd sem fyrst og sömuleiðis að eyða öll- um eintökum af Die Hard 5. Ég held raunar að það sé best ef við látum bara eins og Die Hard 5 hafi aldrei verið gerð og að Die Hard- serían samanstandi einungis af fjórum kvikmyndum. Virðingarfyllst, Óttar M. Norðfjörð“. Bréf Óttar er lítt hrifinn af Die Hard 5. Ætli Bruce Willis viti af því? Opið bréf Óttars til Bruce Willis Heimsins öflugasta Hersluvél 1057Nm 20Volt Iðnaðarvélar fyrir fagmenn Síðumúla 11, 108 Reykjavík, sími 568 6899, vfs@vfs.is www.vfs.is W7150 ½ Rafhlöður 2* 3,0 Ah Li-Ion Létt og þægileg aðeins 3,1 kg EMPIRE  EINFRUMLEGASTA GAMANMYND SEM GERÐ HEFUR VERIÐ FÓRBEINT ÁTOPPINN ÍUSA -NY OBSERVER -VARIETY  -HOLLYWOOD REPORTER  STATHAM Í SINNI BESTU HASARMYND TIL ÞESSA -ZOO  ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND MEÐ JEREMY RENNER Í AÐALHLUTVERKI NAOMI WATTS TILNEFND TIL ÓSKARSVERÐLAUNA 700.KR NÝTTÚTLITÁKLASSÍSKUÆVINTÝRI Í VILLTA VESTRINU ÖSKUBUSKA KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM Á TOPPNUM Í ÁR KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á EGILSHÖLLÁLFABAKKA VIP WARM BODIES KL. 5:50 - 8 - 10:20 WARM BODIES VIP KL. 5:50 - 8 - 10:20 ÖSKUBUSKA Í VILLTA VESTRINU ÍSLTAL KL. 6 HANSEL AND GRETEL KL. 6 - 8 (10:10 3DÓTEXTUÐ) BULLET TO THE HEAD KL. 8 - 10:20 PARKER KL. 8 - 10:30 GANGSTER SQUAD KL. 10:20 THE IMPOSSIBLE KL. 5:40 - 8 WRECK-IT RALPH ÍSLTAL KL. 5:50 KRINGLUNNI WARM BODIES KL 5:50 - 8 - 10:20 ÖSKUBUSKAÍVILLTAVESTRINU ÍSLTAL KL. 6 HANSEL AND GRETEL KL. 10:40 BULLET TO THE HEAD KL. 10:30 GANGSTER SQUAD KL. 8 MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 5:50 AGOODDAYTODIEHARD KL. 5:50 - 8 - 10:10 WARM BODIES KL. 5:50 - 8 - 10:10 BULLET TO THE HEAD KL. 5:50 - 10:30 PARKER KL. 8 - 10:30 GANGSTER SQUAD KL. 8 MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 5:50 NÚMERUÐ SÆTI KEFLAVÍK WARM BODIES KL. 8 A GOOD DAY TO DIE HARD KL. 10:10 BULLET TO THE HEAD KL. 10:20 THE IMPOSSIBLE KL. 8 AKUREYRI WARMBODIES KL.8 HANSEL AND GRETEL KL. 10 BULLET TO THE HEAD KL. 8 - 10:10 TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.