Morgunblaðið - 19.03.2013, Síða 12

Morgunblaðið - 19.03.2013, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2013 Þú blómstrar meðALTA nýja vatnshelda heyrnartækinu... Alta eru ný heyrnartæki í hæsta gæðaflokki frá Oticon. Hljóðvinnslan í Alta er sú þróaðasta fram til þessa og skilar þér meiri skýrleika og framúrskarandi hljómgæðum. Alta heyrnartækin eru vatnsheld! G l æ s i b æ | Á l f h e i m um 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | www . h e y r n a r t æ k n i . i s Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „Almennt séð er verðmyndun óskráðra bréfa óskilvirk og verðmat þeirra ógagnsætt,“ segir í umsögn Fjármálaeftirlitsins (FME) við frumvarp fjármála- og efnahagsráð- herra, þar sem m.a. er lagt til að heimild lífeyrissjóða til að fjárfesta í óskráðum verðbréfum verði tíma- bundið hækkuð úr 20% af hreinni eign sjóðanna í 25%. FME varar við þessari rýmkun á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða og minnir á að heimild sjóðanna til að fjárfesta í óskráðum bréfum var hækkuð úr 10% í 20% með lögum ár- ið 2008. Snýst um 120 milljarða „Verði frumvarpið samþykkt hef- ur heimild lífeyrissjóða til fjárfest- inga í óskráðum eignum hækkað um 150% frá árinu 2008, en slíkar fjárfestingar geta verið áhættu- samari en í skráðum verðbréfum,“ segir í nýlegri umsögn FME til efnahags- og viðskiptanefndar Al- þingis. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, benti á það við 1. umræðu um frumvarpið að hér væri verið að auka fjárfestingarheimildir lífeyrissjóðanna sem geti varðað um 120 milljarða kr. miðað við að eignir þeirra séu metnar á um 2.400 millj- arða. Í frumvarpinu er lagt til að þessi rýmkun á heimild sjóðanna til fjár- festinga í óskráðum bréfum renni út í árslok 2014. Meginrökin fyrir þessari rýmkun eru sögð þau að ekki sé útlit fyrir mikla útgáfu nýrra skráðra skulda- bréfa næstu misserin, m.a. vegna minni lánsfjárþarfar ríkissjóðs. Því sé fyrirsjáanlegt að erfitt verði fyrir lífeyrissjóði að festa mikið af því fé sem streymir inn í sjóðina í skráðum verðbréfum á næstunni. Í umsögn Samtaka atvinnulífsins, sem styðja að þessi heimild verði aukin í 25%, segir að skorturinn á fjárfestingarkostum lýsi sér best í því að bankainnistæður lífeyrissjóð- anna námu 65 milljörðum króna í árslok 2011 en ávöxtun þess fjár sé fjarri því að geta staðið undir lífeyr- isloforðum sem byggjast á 3,5% ár- legri raunávöxtun. Erfitt að vinda ofan af eignum Fjármálaeftirlitið varar hins vegar við að seljanleiki óskráðra bréfa sé al- mennt minni en seljanleiki skráðra bréfa. „Fyrirsjáanlegt er að erfitt verður að vinda ofan af sumum eign- um þegar lífeyrissjóðum verður ekki lengur heimilt að fjárfesta 25% af hreinni eign í óskráðum verðbréfum. Þá bendir Fjármálaeftirlitið á að tímabundin ákvæði eiga það til að ílengjast sem getur í þessu tilfelli ver- ið varhugavert,“ segir í umsögn FME. Auk þessa lýsir FME áhyggjum af því hversu hátt hlutfall verðbréf með ríkisábyrgð eru orðin í eignasafni líf- eyrissjóðanna auk þess sem lífeyr- issjóðirnir eiga orðið stóra hluti í skráðum félögum sem leitt gæti til þess að mati FME að þeir verði leið- andi hluthafar eða beinir þátttak- endur í rekstri þessara félaga. Telur FME að slíkt samræmist illa hlut- verki lífeyrissjóða um móttöku, varðveislu og ávöxtun iðgjalda og greiðslu lífeyris. ASÍ hvetur til varfærni við veitingu heimilda til fjárfestinga í óskráðum bréfum en leggst ekki gegn frum- varpinu. Samtök iðnaðarins og Sam- tök sprotafyrirtækja taka heilshugar undir þá viðleitni sem felist í frum- varpinu. Fjárfestingakostum í skráð- um bréfum fyrir lífeyrissjóði og aðra fjárfesta hafi fækkað stórlega og „at- vinnulaust“ fjármagn hlaðist upp hjá lífeyrissjóðum og fjármálastofnunum á sama tíma og þörfin fyrir nýtt fjár- magn til nýsköpunar í atvinnulífinu hafi sjaldan verið meiri. Margir vilja ganga lengra Frumvarpið byggist á áliti nefnd- ar sem fjármálaráðherra skipaði og er ætlað að fjalla um fjárfestingar- heimildir lífeyrissjóða. Við umræður á Alþingi benti Katrín Júlíusdóttir fjármála- og efnahagsráðherra á að bæði FME og Seðlabankinn ættu fulltrúa í nefndinni. Kom fram í máli hennar að fyrir lægi að fjárfesting- arþörf lífeyrissjóðanna næmi 100- 130 milljörðum króna árlega. Í umsögn Landssamtaka lífeyris- sjóða segir að í ljósi takmarkaðra fjárfestingarkosta sem sjóðimir búa nú við sé mikil þörf fyrir tímabundn- ar rýmkanir á heimildum þeirra til fjárfestinga. „Margir innan lífeyris- sjóðakerfisins myndu óska að gengið yrði lengra í þessum efnum […]“ FME varar við rýmkun heimilda  FME bendir á að fjárfestingar í óskráðum bréfum geta verið áhættusamar  Verði frumvarp um líf- eyrissjóði samþykkt hafa heimildir þeirra til fjárfestinga í óskráðum eignum hækkað um 150% frá 2008 Morgunblaðið/Sigurgeir S. FME Fjármálaeftirlitið hefur áhyggj- ur af eignasafni lífeyrissjóðanna. Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Vörukarfa ASÍ hækkaði í tíu versl- unum af fimmtán frá janúar/ febrúar til mars, mest í Hag- kaupum, þar sem hækkunin nam 4,2%, og í Nettó, þar sem hún nam 3,0%. Karfan lækkaði mest í Kaup- félagi Steingrímsfjarðar, eða um 1,8%, í Nóatúni, um 1,7%, og í Ice- land, um 1,6%. Hreinlætis- og snyrtivörur hækkuðu í verði í öllum versl- ununum, mest í Bónus, eða um 6,7%, og í Nóatúni, um 6,1%. Brauð- og kornvörur hækkuðu í öllum verslunum nema þremur, sætindi í tíu verslunum af fimmtán og mjólkurvörur, ostar og egg hækkuðu í verði í öllum verslunum utan fjórum. Verð á grænmeti og ávöxtum lækkaði hins vegar um 0,5%-10,6% í þrettán verslunum. Athygli vekur að í könnuninni eru verslanir sem hafa sagt sig úr verðlagsmælingum ASÍ, s.s. Hag- kaup og Nóatún. Kristjana Birg- isdóttir, verkefnastjóri verðlagseft- irlits ASÍ, segir að þar sem starfsmönnum könnunarinnar hafi ítrekað verið vísað út úr þessum verslunum hafi þeirri aðferð verið beitt að vera minna áberandi í verslununum og athuga færri vörur í hverri heimsókn. „Stóra vörukarfan tekur heila viku, þannig að þótt þeir vísi okk- ur út á mánudegi mætum við bara aftur á þriðjudegi,“ segir hún en yfirleitt líði einhver tími þar til tekið sé eftir starfsfólki eftirlitsins og því vísað út. Tilboð skekkja myndina „Þetta er ekki í takt við raun- veruleikann, við könnumst ekki við þessar tölur,“ segir Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaupa, um niðurstöður könn- unarinnar. Hann segir fráleitt að kjötvörur hafi hækkað um 12,6% í versluninni líkt og fram kemur í könnuninni og gagnrýnir fram- kvæmd hennar. „Þetta geta verið kjúklinga- bringur eða lambalæri sem voru á tilboði áður en ekki núna og hjá öðrum getur eitthvað verið á til- boði núna sem var ekki þá,“ segir hann. Gunnar Ingi segir að sátt verði að ríkja um kannanirnar til þess að þær verði trúverðugar og hvet- ur til þess að ASÍ upplýsi t.d. hvort vörur voru á tilboði eða ekki. „Við skorum á þá að birta for- sendur og framkvæmd á þessari könnun í stað þess að gera þetta í skjóli nætur, því þá er ennþá meiri vafi á þetta sé unnið almennilega.“ Vörukarfan hækkað í 10 verslunum af 15 Vörukarfa ASÍ - verðbreytingar milli janúar/febrúar og mars 2013 Heimild: ASÍ 5% 4% 3% 2% 1% 0% -1% -2% Bó nu s Kr ón an Ne ttó Ice lan d Ha gk au p Nó atú n Sa mk au p- Úr va l Tíu -el lef u Sa mk au p- St rax Víð ir Ka up fél ag Sk ag fir ð. Ka up f. S tei n- gr ím sfj . Ka sk ó Kja rva l Ka up fél ag V-H ún ve tn . 0,3% 1,3% 3,0% -1,6% 4,2% -1,7% 2,6% -0,1% 0,2% 1,0% 2,1% -1,8% 2,8% 0,4% -1,1%  „Ekki í takt við raunveruleikann,“ segir framkvæmdastjóri Hagkaupa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.