Morgunblaðið - 19.03.2013, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 19.03.2013, Qupperneq 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2013 Elsku yndislegi afi minn, þá er komið að kveðjustundinni. Ég sit og hugsa til þín, það eru svo margar fallegar og skemmtilegar minningar sem ég á um þig og margt sem ég vil segja við þig, ég var svo hrædd um að þú myndir fara frá okkur og ég myndi ekki ná að kveðja þig en þetta fór ná- kvæmlega eins og það átti að fara, við komum öll saman til þín kvöld- ið áður, sátum yfir þér og horfð- um á þig sofa, mamma sagði að þér fyndist notalegt að hafa okk- ur hjá þér þó þú heyrðir ekki hvað við værum að segja en þú vissir af okkur. Svo knúsuðum við þig öll og kysstum, fórum fram og mamma var að segja hjúkrunar- konunni til, þá stóð ég og horfði á Jóhann Vilhjálmur Oddsson ✝ Jóhann Vil-hjálmur Odds- son fæddist í Minni- Dölum í Mjóafirði, Suður-Múlasýslu, 22. janúar 1918. Hann lést á hjúkr- unarheimili Hrafn- istu í Hafnarfirði 11. mars 2013. Útför Vilhjálms Oddssonar var gerð frá Fríkirkju Reykjavíkur 18. mars 2013. þig, ég hugsaði: ætli þetta verði síðasta sinn sem ég sé afa minn og já, það reyndist vera rétt. Mamma hringdi í mig næsta morgun og þú varst farinn. Það er sárt að missa þig, afi minn, þú varst svo mikill vinur minn, en ég veit að þú varst löngu tilbúinn að fara og núna ertu kominn á góðan stað með ömmu. Þegar ég hugsa til baka þá varst þú alltaf til staðar, mikið var ég heppin að eiga afa eins og þig, ég man þegar ég var 6 ára þá var ekkert skemmtilegra en að vera í mömmó, þú smíðaðir líka þennan fallega kofa fyrir mig. Þetta var reyndar enginn kofi heldur lítið hús með palli, húsgögnum og eld- húsi, þú settir upp snúrustaura fyrir utan, þetta var fullkomið. Ég elskaði litla húsið sem þú gerðir fyrir mig, þar var ég húsmóðirin, ég hengdi upp þvottinn af dúkk- unum, eldaði mat handa þeim og þreif litla húsið mitt, mikið held ég að þú hafir haft gaman af því að fylgjast með mér. Þegar við systurnar vorum litl- ar skildu foreldrar okkar og það var erfiður tími hjá okkur, þá varstu alltaf til staðar að tékka hvort við hefðum það ekki gott, þú hafðir svo miklar áhyggjur af okkur. Þú varst kærleiksríkur og þér var annt um alla, vildir að öll- um liði vel. Ef mamma sagði þér sögur af einhverjum sem liði illa þá man ég að það láku alltaf tár niður kinnarnar þínar, þú varst svo hlýr og góður en oft var erfitt fyrir þig að sýna það af því þú átt- ir ekki auðvelt með að tala og það þurfti þolinmæði til að skilja þig, elsku afi minn, en mikið er ég þakklát fyrir að ég gaf mér tíma til þess. Alltaf þegar við fórum í heim- sókn til þín með mömmu var alltaf siður að kyssa afa okkar bless og svo beiðstu við gluggann til að sjá okkur þegar við vorum komnar út á bílastæði, þá horfðum við upp til þín á áttundu hæð, veifuðum þangað til við vorum komnar inn í bíl, svona var þetta alltaf, það var ekki búið að kveðja almennilega nema veifa líka til þín. Ég man þegar þú fluttir svo á Hrafnistu í Hafnarfirði, fyrstu ár- in varstu með glugga þar sem þú sást út á bílastæði og við gátum haldið áfram siðnum okkar, svo fluttir þú þar sem glugginn snéri í aðra átt, þá hætti þetta og mér fannst alltaf skrítið og fannst það alveg til seinasta dags þegar ég labbaði inn í bíl að geta ekki horft upp í gluggann og séð afa veifa með stóru sterku höndunum sín- um. Þetta er ein af mínum fallegu og sætu minningum sem ég á um þig og lýsir þér svo vel, þú áttir erfitt með að tjá þig en gast gert það akkúrat með svona augna- blikum eins og þessum og sýndir þá svo vel hvað þú elskaðir okkur mikið. Núna kveð ég þig og veifa bless, ég elska þig, minningu um besta afa í heimi geymi ég í hjarta mínu. Þín stelpa, Maggý. HINSTA KVEÐJA Nú kveðjum við þig, elsku afi okkar. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Megi Guð geyma þig, elsku afi okkar. Vilhjálmur, Kristján, Ingunn og Hulda. Elsku langafi, Guð geymi þig alltaf. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Þín Sóldögg. Nú er Stefán „Stebbi“ Her- manns vinur minn farinn á vit æv- intýranna í aðra vídd, þar mun hann halda áfram að láta sitt ynd- islega ljós skína. Það voru mikil forréttindi að fá að kynnast Stebba í þessum heimi og fá að njóta þess að ferðast með honum. Ég veit að Stebbi hefur það gott í dag og er sáttur, hann gerði það sem að hann óskaði sér, hann naut lífsins til fulls á sinn einlæga og fallega hátt eins og honum var ein- um lagið. Fögnum minningu Stebba og höldum áfram með bjartsýni og gleði að leiðarljósi að frumkvæði hans. Atli Georg Árnason. Fallinn er frá á besta aldri kær vinur okkar, lífskúnstnerinn Stef- án Hermanns. Hans er sárt sakn- að. Um leið hrannast upp góðar minningar um gæðastundir sem Stefán Hermanns ✝ Stefán Her-manns fæddist 28. júní 1952 á fæð- ingarheimili Guð- rúnar Halldórs- dóttur í Skerjafirði. Hann lést á gjör- gæsludeild Land- spítalans 19. febr- úar 2013 eftir stutta legu. Stefán var jarð- sunginn frá Hafn- arfjarðarkirkju 1. mars 2013. við áttum með hon- um. Við kynntumst Stefáni fyrir rúmum tuttugu árum, þegar hann fór að koma í endurhæfingu á Reykjalund. Með okkur tókst kær vin- átta sem hefur hald- ist æ síðan og var það ekki síst honum að þakka. Stefán hafði einstaka hæfileika í mann- legum samskiptum, var góður hlustandi, náði sérstökum tengslum við fólk og átti breiðan vinahóp. Ef hægt er að tala um meðferðaraðila á setustofum Reykjalundar þá var Stefán þar fremstur í flokki. Með sitt góða skap og næmi fyrir öðrum náði hann að létta margra lund. Stefán var leikhúsherrann okk- ar. Reglulega yfir veturinn var farið í leikhús, út að borða, hist á kaffihúsum eða farið á pöbbarölt. Góður matur, hvítvín og Grand var aðalsmerki hans, sem við kunnum svo sannarlega að njóta í hans félagsskap. Stefán kunni þá list að lifa lífinu lifandi, njóta lysti- semda þess og hrífa aðra með sér. Hann hugsaði vel um vini sína og sýndi það á sinn sérstaka hátt. Við kveðjum með söknuði ein- stakan vin, „prinsinn okkar“. Fyrir hönd stelpnanna á Reykjalundi, Guðrún Sigurlína Jónsdóttir. Mig langar að skrifa nokkur orð um Ingimund eða Munda eins og við kölluðum hann allt- Ingimundur Jónsson ✝ IngimundurJónsson fædd- ist á Seyðisfirði 14. nóv. 1929. Hann lést 22. febrúar síð- astliðinn á Land- spítalanum. Útför Ingimund- ar fór fram frá Hafnarfjarð- arkirkju 5. mars 2013. af. Mundi og Sjöfn erum búin að vera í kringum okkur frá því að ég man eftir mér, það hefur ekki verið haldin veisla hjá okkur systrunum nema Mundi og Sjöfn mættu til að sam- gleðjast okkur. Þegar við Einar komum í heimsókn til ykkar var Mundi alltaf til í að spjalla við hann og Einar tal- aði alltaf um hvað Mundi væri góður. Ég held að ég hafi ekki kynnst eins hraustum og dug- legum manni og þér. Þegar ég var að vinna í fisk- verkun með Munda og pabba gekk á ýmsu og alltaf var nóg að gera. Ég man eftir því að þegar það var aðgerð og bát- urinn hafði fiskað vel varstu í essinu þínu og ef sá sem var á lyftaranum var ekki nógu snöggur þegar mikið var að gera reyndi Mundi að færa til fiskikörin með handafli eða það sem fyrir var. Mundi kenndi mér ýmis handtök í fiskverk- uninni og leyfði mér að gera það sem hann taldi mig geta. Ég man eftir því þegar ég fékk að meta saltfisk og skreið með þér og þér fannst það nú ekkert mál að leyfa mér það, það var aldrei neitt mál hjá Munda; meðan við krakkarnir unnum var allt í lagi. Mundi og pabbi voru alltaf bestu vinir og þegar þeir seldu Hafnfirðing hf. voru þeir eins og tvíburar, saman alla daga. Það var tekinn rúntur á bryggjuna, athugað hverjir væru að fiska og hvað væri að frétta. Það var spilaður brids vikulega með spilaköllunum eins og við kölluðum þá og ýms- ar skemmtilegar ferðir farnar með þeim hópi. Síðustu ár hrak- aði heilsunni hjá þér, Mundi minn, en aldrei var kvartað, bara brosað. Kæri Mundi, takk fyrir allar ánægjulegu stundirn- ar sem við áttum með ykkur Sjöfn á Lindarhvamminum. Með virðingu og þakklæti fyrir allt, Matthildur Helgadóttir og Einar Sigurður Helgason. Stundum tekur lífið u-beygju og það gerðist einmitt sunnudag- inn 24. feb. sl. þegar hringt var í mig og mér sagt að Lóa dóttir mín lægi svo mikið veik að henni væri vart hugað líf. Það er mér mjög dýrmætt að hafa getað verið hjá henni síðustu stundirnar. Hún lést svo að morgni 25. feb. sl. Lóa var elst sex barna okkar Áslaugar Torfa, auk þess á hún tvö hálfsystkin. Lóa var mikið fiðrildi sem krakki og unglingur, en vissi hvað hún vildi, enda vart orðin full- orðin þegar hún var komin með mann og búin að eignast tvö börn, þau Áslaugu Báru og Ingimund. En lífið tók líka u-beygju hjá Lóu 17. des. 1977 þegar Loftur maður hennar drukknaði frá henni og börnunum tveim. Þetta var alls ekki auðvelt. Sem betur fer eignaðist Lóa annan lífsförunaut, hann Varða, og ekki verra að hann var Gaflari. Hann tók börnum hennar tveim Stefanía Jónsdóttir ✝ Stefanía (Lóa)Jónsdóttir fæddist á Rauf- arhöfn 15. desem- ber 1957. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 25. febrúar 2013. Útför Lóu fór fram frá Fríkirkj- unni í Reykjavík 8. mars 2013. sem sínum eigin og hefur alla tíð reynst Lóu minni vel. Þau voru gott teymi. Lóa og Varði eiga tvö börn saman, þau Eystein Má og Hall- dóru Sigríði, auk þess tóku þau að sér tvö bræðrabörn Varða, þau Dísu Leu og Björgvin Fannar. Lóa var forkur til vinnu og mikil húsmóðir. Ef eitt- hvað þurfti að skipuleggja var best að hringja í Lóu. Hún vissi hvað þyrfti margar tertur eða hve mörg kg af kjöti, enda búin að halda margar stórveislur í gegnum tíð- ina. Hjá Lóu kom enginn að tóm- um kofunum, alltaf fullt á borðum og fengu margir notið gestrisni hennar og Varða. Lóa var lím fyrir fjölskylduna, hún límdi saman brotin og hélt henni saman. Ég sakna dóttur minnar og á erfitt með að trúa að þessa u-beygju þurfi að taka, en svona er víst lífið þótt það sé erfitt að kyngja því. Kæru ættingjar og vinir, megi Guð styrkja okkur og styðja gegn- um þessar erfiðu stundir. Megi minning Lóu lifa með okkur um ókomin ár. Elsku Lóa, takk fyrir að vera dóttir mín. Sjáumst síðar. Þinn pabbi. Með sorg í hjarta kveð ég Lóu mágkonu sem jafnframt var góð vinkona. Lóa kom kom ung stúlka á Drangsnes reynslumik- il, orðheppin, skemmtileg og dugleg. Mér varð fljótlega ljóst hversu mikil sveitastelpa ég var þegar ég fór að umgangast hana en hún hafði búið á Akranesi þar sem hún hafði umgengist mun fleiri krakka en ég var vön. Hún tók því til við kennslu, reyndi að kenna mér að vera skvísa og klæða mig og reyndi að kenna mér samskipti við fólk og hvern- ig ég ætti að tala við stráka. Margt gat ég lært hjá henni en þetta með strákana varð ég aldr- ei flink við, sama hvernig hún reyndi að leiðbeina mér. Við áttum margar skemmti- legar stundir saman þar sem mikið var hlegið og gert grín. Lóa felldi hug til Lofts bróður míns og ekki leið langur tími þar til þau voru gift með tvö yndis- leg, falleg börn. Loftur og Lóa, eins og þau voru alltaf kölluð, stóðu sig afburðavel sem ungir foreldrar. Bjuggu sér fallegt heimili sem gaman var að koma á. Alltaf allt hreint og snyrtilegt því Lóa var afburðagóð húsmóð- ir. Af alúð hlúði hún að heimili og börnum. Þegar Lóa var 20 ára varð hún fyrir mikilli sorg en Loftur drukknaði aðeins 23 ára. Þetta var erfiður tími fyrir hana en hún vissi að hún þurfti að halda áfram og það gerði hún. Hlúði að börnum sínum og vann utan heimilis, vel studd af móður sinni og öðrum fjölskyldumeðlimum. Þrátt fyrir sorg er hamingjan ekki langt undan því Lóa hitti hann Varða sinn. Varði gekk ungu börnunum í föðurstað og einhvern veginn varð hann alltaf eins og einn af stórfjölskyldunni. Þó svo Lóa væri gift aftur og eitthvert okkar systkinanna spyrði um Lóu var alltaf talað um Lóu mágkonu og svo í stað- inn fyrir að tala um Loft og Lóu var nú talað um Lóu og Varða. Ekki þarf að orðlengja það en þau voru samhent og áttu gott líf saman, tvö börn bættust við og það sem lýsir Lóu svo vel að þau Varði tóku að sér tvö fósturbörn. Stór fjölskylda sem sinnt var af alúð og hlýju. Kletturinn hún Lóa sem hélt svo vel utan um börnin sín og síðar barnabörnin. Hún var alltaf í miklu sambandi við móður sína og var einstak- lega hlýtt þeirra á milli. Hún var dugleg að halda sambandi við okkur fjölskyldu Lofts og alltaf var sama væntumþykjan og var það á báða bóga. Elsku Varði, börn, barnabörn, foreldrar og systkini. Það er leitt að Lóa skyldi fara svona snemma en hún var búin gefa öll- um færi á að safna minningum, fullt, fullt af minningum, og þeg- ar erfiðir tímar koma er gott að ylja sér við minningar og muna fallegu, skemmtilegu og orð- heppnu konuna sem fór alltof ung frá okkur. Blessuð sé minning Lóu. Hafi hún þökk fyrir allt og allt. Hafdís H. Ingimundardóttir. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Minningargreinar ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður okkar, stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR SIGURVINS HANNIBALSSONAR frá Hanhóli, Bolungarvík. Arnþrúður Margrét Jónasdóttir, Svala Sigurvinsdóttir, Jón Hjálmar Jónsson, Hannibal Sigurvinsson, Arnór Sigurvinsson, Aina Iren Aarsheim, Harpa Sif Sigurvinsdóttir, Pálmar Halldórsson, stjúpbörn, barnabörn og langafabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför eigin- konu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu, systur og mágkonu, ODDFRÍÐAR LILJU HARÐARDÓTTUR hjúkrunarkonu. Sérstakar þakkir fá hollsystur Lilju fyrir alúð og fallega vináttu. Þórður Guðmannsson, Hörður J. Oddfríðarson, Guðrún Björk Birgisdóttir, Arnar Oddfríðarson, Berglind Rós Davíðsdóttir, barnabörn, bræður og mágkonur hinnar látnu. ✝ Hjartans þakkir fyrir hlýhug og vináttu við andlát okkar kæru frænku, ÁSGERÐAR JÓNSDÓTTUR frá Gautlöndum. Systkinabörn og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.