Morgunblaðið - 19.03.2013, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 19.03.2013, Qupperneq 44
ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 78. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. Nafn stúlkunnar sem lést 2. Ódýrara að borða á Alþingi en … 3. Íslensk norðurljós á CNN 4. Ráðist á tólf ára dreng »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Samhliða því að flestar þjóðir velja myndlistarmenn til að sýna í skálum sínum á Feneyjatvíæringnum, sem sagður er mikilvægasta myndlistar- sýning sem til er, þá er valinn sýning- arstjóri sem setur saman aðalsýn- ingu hátíðarinnar. Massimiliano Gioni er að þessu sinni alráður á 55. tvíær- ingnum sem hefst 1. júní næstkom- andi og hefur hann greint frá nöfnum um 150 listamanna sem hann hefur valið að sýna verk eftir. Á listanum er nafn Ragnars Kjartanssonar, og er hann með þeim yngstu í hópnum en sumir listamannanna eru látnir. Með- al annars verða á sýningunni verk eftir heimskunna listamenn á borð við Dieter Roth, Cindy Sherman, Bruce Nauman, Sarah Lucas, Hilma af Klint og Richard Serra. Katrín Sigurðardóttir verður fulltrúi Íslands á tvíæringnum. Verk Ragnars valin á Feneyjatvíæringinn  Svala Björgvinsdóttir og félagar hennar í Steed Lord eiga heiðurinn af nýjasta myndbandi áströlsku popp- stjörnunnar Havana Brown, við lagið „Big Banana“. Fyrirtækin Universal og AMVI Australia fengu Steed Lord til verksins og sá Einar Egilsson um leikstjórn og klipp- ingu en þau Svala skrif- uðu handritið og sáu um listræna stjórnun. Bróðir Einars og einn liðsmanna Steed Lord, Eðvarð, fer með hlutverk í myndband- inu. Gerðu myndband við lag Havana Brown Á miðvikudag Hvöss norðaustanátt og snjókoma í fyrstu á Vest- fjörðum. Annars talsvert hægari vindur og stöku él, en bjartviðri SV-lands. Frost 0 til 8 stig, kaldast í innsveitum norðanlands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan og norðaustan 5-13 m/s. Léttskýjað á S- og SV-landi en lítilsháttar él N - og A-lands. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum en frostlaust sunnan heiða yfir hádaginn. VEÐUR Eftir fimm ára dvöl í fyrstu deildinni tryggðu Eyjamenn sér sæti í úrvalsdeild karla í handknattleik í gærkvöld þegar þeir lögðu Stjörnu- menn í næstsíðustu umferð fyrstu deildarinnar. Mikil gleði braust út hjá leik- mönnum ÍBV eftir sigurinn en þeir hafa aðeins tapað einum leik í deildinni í vet- ur undir stjórn Arnars Pét- urssonar og Erlings Rich- ardssonar. »2 Eyjamenn upp í úrvalsdeildina Fyrsti úrslitaleikur SA og Bjarnarins um Íslandsmeistaratitil karla í ís- hokkíi fer fram á Akureyri í kvöld. Ævar Þór Björnsson, markvörður SR, telur Akureyringa sigurstranglegri í einvíginu þar sem þeir séu reyndari og með heimaleikja- réttinn. Björninn sé þó með meiri breidd í sínum leikmannahópi. »4 Telur Akureyringana vera sigurstranglegri Florentina Stanciu er afar ánægð með að vera orðin Íslendingur og kveðst vera í skýjunum eftir að hún var valin í landslið Íslands í hand- knattleik í gær. „Ég hef átt yndis- legan tíma hér á Íslandi og nú vil ég gefa landinu til baka eitthvað af því sem það hefur gefið mér,“ segir Flor- entina sem kom fyrst til Íslands árið 2004. »1 Florentina vill gefa Íslandi eitthvað til baka ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Guðni Einarsson gudni@mbl.is Naglar af öllum stærðum og gerð- um streyma úr vélunum sem Agn- ar Ólafsson vélamaður hefur stýrt í saumdeild Límtrés Vírnets í Borgarnesi í meira en hálfa öld. „Ég byrjaði í galvaníseringunni en fór fljótlega yfir í naglafram- leiðsluna,“ sagði Agnar. Hann hóf störf hjá Vírneti í ársbyrjun 1962 og starfar enn í saumdeild Lím- trés Vírnets. Starfsævin hjá fyr- irtækinu er því orðin rúmlega hálf öld. Agnar hefur ýmist starfað einn eða með öðrum við að búa til nagla, girðingarlykkjur og hrífu- tinda. „Þessi framleiðsla er svolítið eins og barómet (loftvog) á hvern- ig þjóðfélagið gengur hverju sinni,“ sagði Agnar. „Í dag er ekki eins mikið neglt og á árum áður. Því valda meðal annars breytingar í húsbyggingum. Áður var slegið upp fyrir heilu húsunum úr 1 x 6 borðum en nú er það ekki lengur.“ Byggingariðnaðurinn er einnig viðkvæmur fyrir sveiflum í þjóð- arbúskapnum og það endurspegl- ast í spurn eftir nöglum. En hefur eftirspurnin breyst í áranna rás eftir stærðum og gerðum nagla? „Það má kannski segja að svart- ur saumur, óhúðaður, sem var not- aður í mótauppslátt og annað sem smíðað var til skamms tíma, seljist minna en áður,“ sagði Agnar. Nú- tíminn vill því heldur húðaða eða galvaníseraða nagla. Mest er framleitt af þriggja tommu nögl- um. Vélarnar ráða við að smíða frá 3⁄4 tommu saum og upp í sex tommu gaura. Stundum hefur Agnar sérsmíðað saum og nagla eftir pöntun. Það átti t.d. við um pappasaum úr kopar sem notaður var við að negla tjörupappa á hús Hæstaréttar. Yfir pappann var lögð veðurkápa úr kopar og ekki mátti verða spennutæring á milli efnanna. Í annað skipti voru sérsmíðaðir 51⁄2 tommu naglar í fyrstu Skeið- arárbrúna, eins og greint var frá í samtali við Agnar sem birtist í Skessuhorni í febrúar sl. Nagl- arnir voru reknir í gegnum tré og járn var undir. Sex tommu naglar voru of langir og fimm tommu þóttu of stuttir. Svo tók brúna af í miklu hlaupi árið 1996. Dularfullt brak rak á Snæfellsnesi nokkru síðar og töldu bændur það geta verið úr brúnni. Agnar hringdi vestur og bað um að fá sendan nagla úr brakinu. Við skoðun þekkti hann sérsmíðuðu naglana og gat staðfest hvaðan brakið var ættað. Hefur smíðað nagla í hálfa öld  Spurn eftir nöglum er eins og þjóðfélagsloftvog Ljósmynd/Skessuhorn/hlh Nagli Agnar Ólafsson, vélamaður hjá Límtré Vírneti í Borgarnesi, hefur smíðað nagla í meira en hálfa öld. Sjö naglagerðarvélar eru hjá Límtré Vírneti og smíða ýmsa stærðarflokka nagla. Hráefnið kemur í tveggja tonna vírrúllum frá Tékklandi. Vírinn er ýmist 5,5 mm eða 8 mm sver. Hann fer fyrst í vírdráttarvél sem dregur vírinn í hæfilegan sverleika og mótar hann ýmist ferkantaðan eða sívalan. Þaðan fer vírinn í vélar sem klippa hann í réttar lengdir, gera odd og þrykkja haus á naglana. Naglarnir eru svo hreinsaðir í götóttri tromlu með trésagi. Þar síast frá afklippur og óhreinindi. Sumir fara í galvaníseringu sem ver þá fyrir ryði. Gróft áætlað gæti Agnar hafa framleitt alls í kringum 2,4 milljarða nagla á 50 árum, miðað við 200 tonna framleiðslu á ári. LÍMTRÉ VÍRNET FRAMLEIÐIR 150-200 TONN AF NÖGLUM Á ÁRI 2.400.000.000 naglar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.