Morgunblaðið - 22.03.2013, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2013
Snjóflóð féll úr Skollahvilft ofan
Flateyrar að morgni miðvikudags-
ins 20. mars og rann yfir veginn
skammt austan eyrarinnar. Talið er
að flóðið hafi fallið á varnargarðinn
ofan bæjarins og runnið meðfram
honum.
Fram kemur á vef Veðurstof-
unnar að starfsmaður Vegagerð-
arinnar hafi verið á ferðinni klukk-
an 4.55 um morguninn og sé flóð á
veginum sem hann taldi að væri
mjög nýlegt. Flóðið var um 30-40 m
breitt en fremur þunnt og var hægt
að keyra í gegnum það.
Gögn úr ratsjá sýndu að fyrst hafi
komið kóf sem fór á allt að 200 km
hraða niður hlíðina. Á eftir því
fylgdi snjóflóðið sjálft á um 60 km/
klst. en það er fremur lítill hraði af
snjóflóði að vera.
Veðurstofan segir að síðan varn-
argarðarnir ofan Flateyrar voru
reistir 1998 hafi lent á þeim sex snjó-
flóð og garðarnir beint þeim öllum
frá byggðinni án þess að tjón hlytist
af. Ekkert þessara flóða var eins
stórt og hamfaraflóðið sem féll í
október 1995 og kostaði 20 mannslíf.
Snjóflóð
féll á varn-
argarðinn
Sex flóð hafa fallið á
garðana ofan Flateyrar
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Varnargarðarnir ofan Flateyrar.
Endanleg svör íbúa hjúkrunarheim-
ilisins Eirar, sem hafa keypt búsetu-
rétt í öryggisíbúðum heimilisins, við
tillögu stjórnar Eirar að lausn
skuldavanda þeirra munu liggja fyr-
ir í byrjun næstu viku.
Lengri tíma en áætlað var hefur
tekið að fá svör frá öllum íbúum og
standa vonir til að endanleg niður-
staða fáist á mánudag eða þriðjudag.
Jón Sigurðsson, stjórnarformaður
Eirar, og Sigurður Rúnar Sigur-
jónsson, framkvæmdastjóri Eirar,
sögðu við mbl.is í gær að enn ætti
eftir að fá svör frá öllum íbúum.
Frestur til að svara tillögunni rann
út á miðnætti á miðvikudag en íbú-
um hefur verið gefið svigrúm til að
skila endanlegu svari í byrjun næstu
viku.
Stjórn Eirar lagði til hinn 27.
febrúar sl. að gefið yrði út skulda-
bréf til að standa við skuldbindingar
gagnvart þeim sem hefðu keypt bú-
seturétt í öryggisíbúðunum. Um er
að ræða verðtryggð skuldabréf til 25
ára með 3,5% vöxtum.
Til að tillagan teljist samþykkt
þarf hún grænt ljós frá öllum íbúum.
Náist ekki samkomulag um nú-
verandi tillögu blasa nauðasamning-
ar við. Aðspurður segir Jón að það
ferli geti tekið tvo og hálfan til þrjá
mánuði, en þá er málið komið í opin-
bert ferli undir eftirliti umsjónar-
manns. jonpetur@mbl.is
Niðurstaða hjá Eir í næstu viku
Morgunblaðið/Ómar
Eir Niðurstaða í málum hjúkrunarheimilins Eirar kemur í næstu viku.
Tekið hefur lengri tíma að fá svör en áætlað var
Verði tillagan ekki samþykkt blasa nauðasamningar við
Brot 221 öku-
manns var mynd-
að á Nýbýlavegi í
Kópavogi í gær.
Fylgst var með
ökutækjum sem
var ekið Nýbýla-
veg í vesturátt,
vestan Skemmu-
vegar.
Á einni klukkustund, eftir há-
degi, fóru 457 ökutæki þessa akst-
ursleið og því ók tæplega helm-
ingur ökumanna, eða 48%, of hratt
eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði
hinna brotlegu var 66 km/klst en
þarna er 50 km hámarkshraði.
Fjörutíu og sjö óku á 70 km hraða
eða meira en sá sem hraðast ók
mældist á 96.
Vöktun lögreglunnar á Nýbýla-
vegi er liður í umferðareftirliti
hennar á höfuðborgarsvæðinu, en
ábendingar höfðu borist um hrað-
akstur á þessum stað.
Margir óku
of hratt á
Nýbýlavegi
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
ekkert nema ostur
Fullkomnaðu réttinn með góðum hráefnum. Rifnu ostarnir frá MS
innihalda 100% ost. Þú finnur spennandi og girnilegar uppskriftir
á gottimatinn.is.
ÍSLENSKUR
OSTUR