Morgunblaðið - 22.03.2013, Blaðsíða 28
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2013
Ég undirritaður
auðmaður í Eyjafirði
fram hef undanfarið
verið að lesa greinar
sem virtir klerkar hafa
skrifað í blöð og lang-
ar mig aðeins að víkja
að grein sr. Halldórs í
Holti, sem nýverið
sagði sig úr Sjálfstæð-
isflokknum á eftirfar-
andi forsendum svo ég
vitni til greinarinnar: „Sjálfstæð-
isflokkurinn, sem ég ungur hreifst
af, er ekki lengur flokkur sam-
hygðar, réttlætis, jafnræðis og
frelsis á jafnréttisgrundvelli. Hann
er orðinn tæki auðmanna og þeirra
sem þeir velja til þjónustu, – í þágu
auðvaldsins.“ Tilvitnun lýkur.
Hér held ég að sr. Halldóri hafi
missést örlítið. Flokkur okkar auð-
manna hefur nefnilega alltaf verið
tæki okkar en við höfum aldrei látið
mikið á því bera. Við höfum auðvit-
að minnst á frelsi, samhygð og rétt-
læti á hátíðisstundum en höfum
aldrei misst sjónar af markmiðum
okkar. Við auðmenn höfum stjórnað
þessum flokki bak við tjöldin síðan
elstu menn muna.Við komum okkur
fyrir í bankakerfinu, lífeyrissjóð-
unum, tryggingafélögunum, Seðla-
bankanum og síðustu árin höfum
við haft töglin og hagldirnar í sjáv-
arútvegi og stöku hjúkrunarheimili
og við munum aldrei sleppa þeim
tökum.
Mig langar að benda sr. Halldóri
vinsamlegast á að inn í þennan und-
arlega en jafnframt yndislega heim
okkar fæðist fólk misjafnt að gerð
og hæfileikum. Sumir fæðast sósíal-
istar, aðrir blámenn, sumir fátækir
svo eitthvað sé nefnt en aðeins örfá-
ir auðmenn. Við auðmenn erum satt
að segja sérdeilis af guði útvaldir
sem byggist á svokallaðri kalvínskri
guðfræði sem segir að guð elski og
blessi auðsæla menn, því hér gildir
sannlega reglan að hinir hæfustu
lifa af. Við fæðumst með þær náð-
argáfur að kunna að skara eld að
kökum, láta greipar sópa og raka
saman fé án þess auðvitað að mikið
beri á. Og hér gildir hið fornkveðna
að sá sem skuldar tíu milljónir er í
eigu bankans með húð og hári en sá
sem skuldar einn og hálfan milljarð
eða meira býr við afskriftir í tíma
og ótíma eða hvað segir ekki í vísu
Hjálmars: „Hafði nesti og nýja skó
og nýja kennitölu.“ Að sjálfsögðu
þykir okkur sumum eilítið sárt að
horfa upp á allt þetta unga fólk sitja
í skuldafangelsum víða um land en
það getur sjálfu sér um kennt þar
sem það var að vasast inn á svið
sem það hafði ekkert vit á.
Nú nálgast kosningar og við mun-
um toga í nauðsynlega spotta svo að
a.m.k. Sjálfstæðisflokkurinn fái
glæsilega kosningu. En við erum
auðvitað með puttana annars staðar
líka. Hin nýja stjórn mun síðan
færa skattakerfið til fyrra horfs
sem ég skýri síðar. Ekki viljum við
ganga í ESB af ýmsum ástæðum og
við höfum heldur þumbast gegn
hinni nýju stjórnarskrá því þar
sveima óbærileg hugtök eins og
þjóðareign og auðlindaákvæði sem
er ekkert fyrir pöpulinn og þjóð-
aratkvæðagreiðsla, sem er skelfileg
tilhugsun og alltof mikið lýðræði
sem gæti orðið að anarkisma ef
þjóðin tæki upp á því að kjósa í tíma
og ótíma. Það gæti til
dæmis hið sama gerst
og í Sviss um daginn
að þjóðin veldi það að
setja launaþak á laun
okkar. Það má aldrei
verða. Annars verð ég
að gæta þess að tala
ekki af mér. Skatta
munum við færa til
fyrra horfs treystandi
því að hin breiðu bök
sjómanna, leikskóla-
kennara, verkakvenna,
aldraðra og sjúklinga, svo eitthvað
sé nefnt, muni sem fyrr standa und-
ir súlum samfélagsins. Þá munum
við snarlega afskaffa veiðileyfa-
gjaldið því ekki sæmir að láta okkur
borga fyrir fiskana í sjónum sem við
eigum hvort eð er. Fólk verður að
gera sér grein fyrir þvílík orka okk-
ar auðmanna hefur farið í það að
plana allar þessar miklu und-
angengnar og framtíðarfjárfest-
ingar. Þar falla sannlega blóð, sviti
og tár í massavís. Þjóðin verður að
gera sér grein fyrir því að við erum
afar þarfir því hverjum öðrum get-
ur dottið í huga að skaffa fé og reisa
óborganlegar skýjaborgir eins og
Hof og Hörpu, Landeyjahöfn, Þor-
láksbúð, Orkuveituhúsið og Vaðla-
heiðargöng? Aldeilis dásamlegar
draumahallir sem aldrei munu
borga sig. Og við munum auðvitað
skaffa áfram brauð og leika til að
hafa pöpulinn góðan. Og stolt okkar
er Kárahnjúkavirkjun sem að vísu
er að eyðileggja lífríkið í Lagarfljóti
en kæru lesendur: fórnir verður að
færa.
Og fleiri virkjunarkostir eru í
augsýn, til að mynda Dettifoss,
Skjálfandafljót og Langisjór sem
hæfir í þann streng sem við plönum
að leggja til Evrópu með þeim af-
leiðingum að rafmagn til bænda og
heimila mun hækka sirka þrjátíu,
fjörutíu prósent. Að auki er lífríki í
kringum þessa staði harla ómerki-
legt. Við hlökkum ákaflega til að
taka þátt í olíuævintýrinu jafnvel þó
að einhver lífríki fari í súginn í
framhaldi. Við stefnum að sjálf-
sögðu að því að láta reisa ofurspít-
alann hvað sem það kostar og þar
erum við að gæla við repúblík-
anamódelið þar sem þeir fari til
læknis sem hafa efni á því. Tækja-
kaup og launamál verða sennilega
að bíða um sinn. Það hefur nefni-
lega aldrei borgað sig að vera sósí-
alisti eða fátækur. En nú ætla ég að
skreppa út í búð til að höndla fjög-
urra milljóna króna safalapels til að
punta hana Svönu mína því svo
óheppilega vildi til að það hljóp möl-
ur og myglusveppur í pelsana henn-
ar þrjá. Hún Svana mín þarf að
vera fín næst nær við sýnum okkur
með hinum auðmönnunum í Hörpu.
Auðmjúklegast, auðsæll.
Ætla auðmenn
í Eyjafirði
að bjóða fram?
Eftir Hannes
Blandon
»Nú nálgast kosn-
ingar og við munum
toga í nauðsynlega
spotta svo að a.m.k.
Sjálfstæðisflokkurinn
fái glæsilega kosningu.
En við erum auðvitað
með puttana annars
staðar líka.
Hannes Blandon
Höfundur er sóknarprestur.
Laugavegi 29 • sími 552 4320
Opið virka daga frá 9-18 og laugardaga frá 10-16
Skógarmannsöxi
Verð 18.185 kr.
• www.brynja.is • brynja@brynja.is
Eldiviðaröxi - Verð 19.745 kr.
Lykilverslun við
Laugaveg
síðan 1919
Áratuga þekking
og reynsla
Útivistaröxi
Verð 13.420 kr.
Lítil öxi
Verð 13.210 kr.
FYRIR KRÖFUHARÐA
Verð 32.785 kr.
Breiðbíla
KORTIÐ GILDIR TIL
31. maí 2013
– MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR
MOGGAKLÚBBURINN
33% AFSLÁTTUR Á TVEGGJA NÁTTA
GISTINGU Á HÓTEL GRÍMSBORGUM
MOGGAKLÚBBURINN
Hótel Grímsborgir er staðsett á glæsi-
legum stað við Sogið í Grímsnesi.
Um 45 mín. akstur er frá Reykjavík.
Tveir gistimöguleikar eru í boði:
• Gisting í 56 fm íbúð með tveimur svefn-
herbergjum, stofu og baðherbergi, með
sturtu. Fjórir geta bókað saman og deilt
íbúð ef óskað er eftir því.
• Tveggja manna hótelherbergi, með
hjónarúmi og baðherbergi, með sturtu.
Fullt verð: 59.200 kr.
Moggaklúbbsverð: 39.800 kr.
fyrir tvo í tvær nætur með
morgunverðarhlaðborði
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT
EÐA Í SÍMA 569 1100
Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á póstlistann.
Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
Hægt er að bóka tilboðið allar gisti-
nætur á tímabilinu 18. mars – 1. júní.
Gefa þarf upp kennitölu áskrifanda og
taka fram að um Moggaklúbbstilboð
sé að ræða.
Bókaðu á info@grimsborgir.com eða
í síma 555 7878.