Morgunblaðið - 22.03.2013, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 22.03.2013, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2013 Fjársýsla ríkisins tekur ekki við greiðslukortum og er það tekið fram á skiltum á skrifstofum þar sem opinber gjöld eru innheimt. Innheimtukerfi ríkisins er notað af öllum innheimtumönnum ríkis- sjóðs, þ.e. sýslumönnum og toll- stjóra og hefur Fjársýslan umsjón með kerfinu og þróun þess. Ásta Garðarsdóttir, forstöðumað- ur tekjusviðs Fjársýslu ríkisins, segir að ekki sé hægt að greiða skatta með kreditkorti þar sem á sköttunum sé venjulega gjalddagi og eindagi. „Fyrst kemur gjalddagi og svo er eindagi einhverjum dög- um síðar og ríkið gefur ekki enn meiri frest. Ríkið gefur bara þenn- an frest, að greiðendur geti greitt á eindaga og sleppi þá við dráttar- vexti. Ef við færum líka að taka við kreditkortum þá værum við að gefa enn meiri frest.“ Ásta segir, að einu skiptin þegar leyft sé að nota kreditkort séu þeg- ar sektir eru greiddar á vettvangi, t.d. vegna umferðarlagabrota. Ástæðan sé sú, að þegar útlend- ingar séu staðnir að verki sé betra að þeir greiði strax því erfitt geti reynst að ná til þeirra síðar. Ásta segir að þetta séu reglur ráðuneytisins og að fjármálaráðu- neytið hafi að öðru leyti ekki sam- þykkt notkun kreditkorta vegna opinberra gjalda. sad5@hi.is Ekki tekið við kreditkortum  Fjársýsla ríkisins tekur ekki við kreditkortum við greiðslu opinberra gjalda samkvæmt reglum fjármálaráðuneytisinsNýlega náði Lögmannafélag Íslands þeim merka áfanga að fjöldi fé- lagsmanna náði tölunni 1.000 í fyrsta sinn. Reyndist félagsmaður númer 1.000 vera Gróa Björg Baldvins- dóttir hdl., sem starfar hjá Lands- lögum. Nú eru félagarnir orðnir 1001 og af þeim eru héraðsdómslögmenn 710 og hæstaréttarlögmenn 291. Konur eru 292, þar af 37 hæstaréttar- lögmenn. Karlar í lögmannafélaginu eru 709, þar af 254 hæstarétt- arlögmenn. Lögmenn yfir þúsund Tímamót Gróa Björg Baldvinsdóttir og Jónas Þór Guðmundsson, for- maður Lögmannafélagsins. „Óvissan í samgöngumálum milli lands og Eyja er til skammar, jarð- göng hafa haft forgang í hugum Vestmannaeyinga. Gerð jarðganga er klár viðskipti og ekki eftir neinu að bíða að koma hlutunum á hreint,“ segir í lok greinargerðar með þings- ályktunartillögu sem Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hef- ur lagt fram á Alþingi. Árni vill að lokið verði nú þegar lokaþætti rannsókna á möguleikum og áætluðum kostnaði við gerð jarð- ganga milli Heimaeyjar og Kross í Landeyjum. Fram kemur í þingsályktun- artillögunni að fyrir sex árum, þegar tekið hafi verið af skarið um gerð Landeyjahafnar, hafi verið rétt ólok- ið við rannsóknir á möguleikum við gerð slíkra jarðganga. „Það er fyrirséð að þegar og ef lokið verður við endurbætur á Land- eyjahöfn og smíði nýs skips verður búið að leggja um 20 milljarða kr. í verkefnið, eða sömu upphæð og hefði kostað að grafa jarðgöng milli Eyja og Kross og áætlað var að þau göng afskrifuðust á 25–30 árum. Ef samgönguráðherrar hefðu ekki brugðist væri búið að opna jarðgöng milli lands og Eyja,“ segir m.a. í greinargerð með tillögu Árna. Morgunblaðið/RAX Herjólfur siglir inn í Landeyjahöfn Vill skoða áfram göng til Eyja  „Gerð jarðganga klár viðskipti“ Tveir voru fluttir á slysadeild Land- spítala eftir að eldur kom upp í eld- húsi verkstæðisins Kvikkfix við Vesturvör í Kópavogi í gærmorgun. Talið er að mennirnir, sem slökktu eldinn, hafi fengið reykeitrun. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var eldurinn staðbundinn og tókst starfsmönnum að slökkva hann með handslökkvitækjum. Þeir hafi þó andað að sér töluverðum reyk og því hafi ekki annað verið þorandi en að flytja þá á sjúkrahús til skoðunar. Slökkvilið sá svo um að reykræsta húsið. Töluverðar skemmdir urðu í eldhúsinu af völdum eldsins. Elds- upptök eru ókunn. Fluttir á slysadeild vegna reyks

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.