Morgunblaðið - 22.03.2013, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2013
Þorsteinn Ásgrímsson
thorsteinn@mbl.is
Um 40 þúsund manns vinna í versl-
unargeiranum hérlendis en það er
um 20% íslenskum vinnumarkaði.
Þá stendur greinin undir um helm-
ingi skatttekna ríkisins.
Þetta var með-
al þess sem kom
fram í máli
Ágústs Einars-
sonar hagfræð-
ings á morgun-
fundi Samtaka
verslunar og
þjónustu og
Rannsóknaset-
urs verslunar-
innar í gærmorgun.
Kynnti Ágúst þar nýja rannsókn
en sagði niðurstöður hennar sýna
fram á hversu gjaldeyrishöftin
væru mikið mein á verslun hér-
lendis. Í samtali við mbl.is sagði
Ágúst umfang verslunarinnar
meira en menn gerðu sér grein fyr-
ir.
Mikið umfangs verslunar
„Helstu niðurstöður rannsóknar-
innar eru að umfang verslunar eru
miklu meira en menn hafa almennt
talið. Verslunin er að skila um 20%
til landsframleiðslunnar og rúm-
lega 20% af íslenskum vinnumark-
aði vinnur við verslun, eða um 40
þúsund manns,“ sagði Ágúst.
„Þá stendur verslunin undir
mjög miklum hluta af skatttekjum
ríkisins en það er vegna þess að
verslunin innheimtir mikið af
sköttum fyrir ríkisvaldið.“
Hann sagði skatta frá starfs-
mönnum verslunar vera um 75
milljarða, en það er svipuð upphæð
og fer í samgöngumál og mennta-
mál samanlagt. Þá sé verslunin
ráðandi þáttur í tekjuöflun ríkisins,
bæði í því sem hún ber og þess sem
hún innheimtir. „Þessu hlutverki
verslunar hefur ekki verið gefinn
mikill gaumur,“ segir Ágúst.
Á næstu árum mun sjálfsaf-
greiðsla aukast mikið auk þess sem
netverslun mun verða stærri.
Hann segir að nauðsynlegt sé að
mennta starfsfólk í greininni betur
til að mæta þeim kröfum sem
breytt landslag kalli á, en í nýlegri
skýrslu ráðgjafarfyrirtækisins
McKinsey var meðal annars sagt
að til að ná fram aukinni framlegð á
Íslandi þyrfti að færa um 20% af
vinnuafli þjóðarinnar úr verslun og
þjónustu yfir í aðrar greinar.
40 þúsund vinna við verslun
Um 20% fólks á íslenskum vinnumarkaði vinna í verslunargeiranum Skattar frá starfsmönnum
verslunar nema um 75 milljörðum króna Nauðsynlegt er að mennta starfsfólk í greininni betur
Morgunblaðið/Kristinn
Rannsókn Umfang verslunarinnar á Íslandi er meira en menn gerðu sér grein fyrir að mati Ágústs Einarssonar.
Ágúst Einarsson
„Gjaldeyrishöftin eru að drepa
íslenskt efnahagslíf. Þeim hef-
ur verið líkt við krabbamein og
það er réttmæt lýsing og
krabbamein getur valdið
dauða. Gjaldeyrishöftin end-
urspegla þau höft sem voru á
verslun á árunum áður með
spillingu og verri lífskjörum en
þurfti. Við erum að stefna inn í
það sama,“ segir Ágúst Ein-
arsson.
Hann segir eina helstu
niðurstöðu skýrslunnar, sem
hann kynnti í gærmorgun, vera
nauðsyn þess að afnema gjald-
eyrishöftin. Á þau sannindi
væri aldrei of oft bent í ræðu
og riti.
„Með höftum er ekki hægt
að byggja neitt heilbrigt at-
vinnulíf eða búa mönnum þau
lífskjör sem menn gætu haft.
Gjaldeyrishöftin vekja minn-
ingar um höftin sem voru hér
um miðja síðustu öld og voru
lengur en þau þurftu að vera
og sköpuðu verri lífskjör,“ seg-
ir Ágúst.
Eru að drepa
efnahagslífið
ÁHRIF GJALDEYRISHAFTA
NÝR LAND ROVER DISCOVERY 4
VERÐ FRÁ 10.990.000 KR.
MYNDARLEGUR
Land Rover Discovery 4 er einn glæsilegasti jeppi sem til er. 211 hestafla dísilvél sem eyðir aðeins
8,3 l / 100 km í blönduðum akstri*, ný 8 þrepa sjálfskipting með takkaskiptingu í stýrinu og loftpúðafjöðrun
á öllum hjólum sem tengd er Terrain Response stillanlega fjöðrunarkerfinu.
Þú færð allar nánari upplýsingar um verð og búnað á www.landrover.is
www.landrover.is
OPIÐ LAUGARDAG
FRÁ 12-16
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
9
7
3
*M
ið
að
vi
ð
up
pg
ef
na
r
vi
ðm
ið
un
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
da
um
el
ds
ne
yt
is
no
tk
un
íb
lö
nd
uð
um
ak
st
ri
.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílahúsið
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
421 8808
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070