Morgunblaðið - 22.03.2013, Síða 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2013
Heimilin hafa verið
talin griðastaður fjöl-
skyldunnar og börn
þurfa að geta reitt sig
á sína nánustu. For-
eldrar þurfa að geta
sýnt myndugleik því
það skiptir sköpum
um velferð barna
hvernig foreldra þau
eiga, hvernig aðbún-
aður foreldranna er og
hvernig samfélagið sinnir sínum
skyldum. Uppeldi og menntun er
lögum samkvæmt sameiginlegt
verkefni heimila og skóla.
Því miður færist í vöxt að for-
eldrar geti ekki séð börnum sínum
farborða eða séu ekki í stakk búnir
að annast börn sín af ýmsum ástæð-
um. Vanheilsa foreldra getur þar
komið til og þau börn sem eiga for-
eldra sem eru veikir
fyrir af einhverjum
ástæðum eiga oft erfitt.
Í slíkum tilvikum reyn-
ir á samhjálp og sam-
félagsþjónustu en því
miður er það oft þannig
að kerfið bregst ekki
við eða of seint ef for-
eldrar bugast, eru van-
búnir eða leita sér ekki
aðstoðar. Börn hafa
takmarkaða möguleika
á að bera sig eftir
björginni eða berjast
fyrir réttindum sínum.
Ef foreldrar gera það ekki, eða
börnin eiga foreldra sem ekki ráða
við hlutverk sitt, standa börnin oft
ein og án stuðnings. Það er sá hópur
sem verður verst úti í samfélaginu.
Nöturleg staðreynd kom fram í
svari Guðbjarts Hannessonar vel-
ferðarráðherra á hinu háa Alþingi
nýlega um að 1.294 mál væru skráð
sem heimilisófriður hjá lögreglu á sl.
ári og þar af 327 mál sem heimilis-
ofbeldi. Nærri lætur að lögreglan sé
kölluð út einu sinni á dag vegna
heimilisofbeldis. Afleiðingar heim-
ilisofbeldis eru margvíslegar og birt-
ast m.a. í því að nær helmingi ung-
lingsstúlkna, mæðrum
framtíðarinnar, sem orðið hafa fyrir
slíku ofbeldi finnst framtíðin oft og
nær alltaf vonlaus.
„Skýr tengsl eru á milli andlegrar
vanlíðanar og þess að hafa orðið
fyrir ofbeldi – hvort sem það er
heimilisofbeldi, einelti, kynferð-
islegt ofbeldi eða annað. Börn sem
orðið hafa fyrir þessu ofbeldi eru
meira einmana en hin, sýna frekar
áhættuhegðun, líður verr í skól-
anum og finnst framtíðin dekkri.
Þetta er grafalvarlegt mál“ – segir
Stefán Ingi Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Unicef á Íslandi, og
kallar eftir viðbrögðum samfélags-
ins. Niðurstaða nýlegrar skýrslu
Unicef um réttindi barna er skýr en
þar segir að ein helsta ógn sem
steðjar að börnum á Íslandi sé of-
beldi. Ógnin sé mikil en forvarn-
irnar takmarkaðar. Þar kemur
einnig fram að það samfélagslega
samþykki sem viðhaldi ofbeldi eigi
sér þrjár birtingarmyndir, þ.e. lög
sem samþykki ofbeldi gegn börn-
um, ófullnægjandi barnavernd-
arkerfi og refsileysi gagnvart of-
beldismönnum. Það er því verðug
spurning til frambjóðenda í kom-
andi alþingiskosningum hvað þeir
setja í forgang til að búa börnum á
Íslandi betra líf og öruggari heimili.
Björn Þorláksson rithöfundur
segir í grein sinni á Pressunni 14.
feb. 2010: „Fólk um allan heim spyr
sig nú þeirrar spurningar hvernig
það gat gerst að íslenskir alþýðu-
menn töpuðu sjálfum sér, fjöl-
skyldum sínum og þjóðarhagnum
gervöllum í einhverju mesta fjár-
hagsbulli allra tíma. Fólk spyr
hvernig venjulegir íslenskir for-
eldrar, komnir af venjulegum
bændum, húsmæðrum og sjómönn-
um, gátu villst jafnilla af leið og
raunin varð. Var það vonin um
gullmedalíu, vonin um sögulegan
minnisvarða sem brjálaði bisness-
mennina okkar, stjórnmálamennina
okkar og embættismennina okkar?
Var þeim ekki nóg að gleðjast yfir
vexti eigin fjölskyldna, var þeim
ekki nóg að njóta þess að sjá ung-
viði sitt dafna, þroskast og springa
út?“
Nú eru fjögur og hálft ár frá
hruninu og spurning hvort við höf-
um náð áttum? Hvað getum við
gert? Þurfum við að rannsaka
meira og skoða? Getum við horfst í
augu við afleiðingar niðurskurðar í
skólum, í löggæslu og í heilbrigð-
iskerfinu? Getum við viðurkennt
vandann og hafist handa strax við
úrbætur? Hvað þarf til?
Það var mikið framfaraspor að
lögfesta Barnasáttmálann og Unicef
hefur gengið fram fyrir skjöldu og
haldið uppi öflugri upplýsinga-
miðlun um stöðu barna og er vert
að þakka það. Samtökin líta svo á
að mælistikan á gæði hvers sam-
félags sé hversu vel er hlúð að
börnum, hversu vel er gætt að
heilsu þeirra og öryggi, efnahags-
legum þörfum og menntun. Það er
kominn tími til að þeir sem enn eru
uppistandandi haldi umræðunni lif-
andi um uppvaxtarskilyrði barna og
velferð þeirra í þessu landi. Að við
byggjum upp til framtíðar og gefum
þeirri kynslóð sem mun fá afleið-
ingar hrunsins í veganesti, framtíð-
armæðrum og feðrum þessa lands,
von um betra líf og uppbyggilegri
grunn út í lífið. Er hægt að finna
það í stefnuskrám hinna mörgu
framboða fyrir næstu alþingiskosn-
ingar?
Í þágu barna
Eftir Helgu
Margréti
Guðmundsdóttur
» Getum við horfst í
augu við afleiðingar
niðurskurðar í skólum, í
löggæslu og í heilbrigð-
iskerfinu? Getum við
viðurkennt vandann og
hafist handa strax?
Helga Margrét
Guðmundsdóttir
Höfundur er tómstunda- og
félagsmálafræðingur og starfaði
um árabil hjá Heimili og skóla –
landssamtökum foreldra.
Meistaratvímenningurinn
á Suðurnesjum
Gunnar Guðbjörnsson og Lárus
Óskarsson leiða enn meistaratví-
menninginn en nú er hart að þeim
sótt.
Feðgarnir, Guðjón Einarsson og
Ingvar Guðjónsson skoruðu grimmt
sl. miðvikudag eða 61,6% og eru
komnir með tærnar þar sem forystu-
menn eru með hælana. Arnór Ragn-
arsson, Karl G. Karlsson og Gunn-
laugur Sævarsson spila sem par og
voma í skugga trjánna og bíða tæki-
færis.
Staða efstu para:
Gunnar – Lárus 44
Ingvar – Guðjón 39
Arnór – Karl – Gunnlaugur 22
Sigurjón Ingibjörns.
– Guðni Sigurðss. 12
Oddur Hanness. – Árni Hanness. 9
Hlé verður nú gert á meistara-
mótinu og spilaður eins kvölds
páskatvímenningur nk. miðvikudag.
Spilað er í félagsheimilinu kl. 19.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
V i n n i n g a s k r á
47. útdráttur 21. mars 2013
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
7 0 4 9
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
3 0 6 4 7 4 4 7 7 1 4 7 3 0 6 7 0 7 0 6
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
11409 19268 35920 46747 60028 69896
11873 34814 44092 47023 63567 70580
V i n n i n g u r
Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur)
1 4 1 1 0 2 0 5 1 6 0 2 7 2 7 2 9 2 4 3 6 5 5 5 1 7 0 1 6 3 3 1 7 6 9 5 4 8
2 2 1 1 0 5 7 4 1 7 6 7 7 2 7 8 2 4 4 4 3 0 9 5 7 0 3 7 6 3 8 4 5 7 0 3 0 5
2 7 2 1 3 9 1 1 1 8 5 0 2 2 9 3 6 4 4 4 8 7 4 5 9 6 7 6 6 4 6 9 6 7 0 3 9 6
3 1 7 3 1 4 4 4 7 1 9 6 9 0 3 1 8 4 4 4 6 9 8 9 5 9 9 5 2 6 5 5 2 4 7 1 6 3 9
3 9 0 0 1 4 6 6 1 2 0 0 1 7 3 3 4 5 8 4 7 2 2 8 6 0 8 5 5 6 6 0 5 6 7 4 2 1 2
4 5 2 5 1 4 7 2 1 2 0 7 4 0 3 5 6 4 8 4 7 3 0 2 6 1 1 1 5 6 8 3 6 2 7 4 7 6 7
4 7 6 4 1 5 2 0 7 2 1 3 9 9 3 6 5 6 0 4 7 4 9 7 6 1 3 8 8 6 8 5 9 7 7 6 7 8 6
6 6 9 6 1 5 2 9 6 2 1 7 1 5 3 7 1 0 3 4 7 9 9 9 6 1 4 2 4 6 8 9 7 7 7 7 2 4 7
7 0 2 4 1 5 4 1 3 2 3 4 9 9 3 8 3 6 2 4 9 0 6 5 6 2 2 0 5 6 9 2 2 9 7 9 1 6 6
9 9 4 4 1 5 4 4 9 2 6 8 8 6 4 2 7 1 5 5 1 0 8 0 6 2 2 2 9 6 9 3 4 6 7 9 2 7 5
V i n n i n g u r
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
8 2 9 9 8 6 7 2 0 2 5 5 2 8 7 1 8 3 8 9 2 2 5 1 2 4 9 5 8 7 2 8 6 9 3 9 8
1 0 6 1 9 9 4 2 2 0 4 2 2 2 8 8 7 7 3 9 2 2 2 5 1 5 8 2 5 9 1 2 8 6 9 7 6 1
1 3 9 5 1 0 8 4 5 2 1 5 9 0 2 9 1 5 6 3 9 6 4 8 5 1 9 6 4 5 9 1 8 5 7 0 4 4 0
1 4 3 0 1 1 0 3 1 2 1 7 4 2 3 0 2 1 2 3 9 7 8 9 5 2 5 5 4 6 0 0 1 6 7 0 5 4 0
1 6 4 7 1 2 0 8 7 2 1 7 7 8 3 0 5 6 3 4 0 0 6 3 5 2 8 3 2 6 0 8 0 2 7 0 5 6 1
2 0 8 9 1 2 1 7 0 2 2 1 0 4 3 1 0 9 4 4 0 4 8 6 5 2 9 4 2 6 1 1 6 4 7 0 6 7 0
2 2 5 4 1 2 2 8 2 2 2 2 4 0 3 1 1 9 1 4 0 8 5 0 5 3 0 2 6 6 1 7 4 8 7 1 5 9 5
2 2 7 6 1 2 2 9 4 2 2 2 6 5 3 1 9 9 2 4 1 6 7 0 5 3 1 8 3 6 2 0 5 1 7 1 8 1 7
2 8 3 7 1 2 3 4 2 2 3 2 4 0 3 2 2 6 7 4 2 0 8 4 5 3 2 7 2 6 3 1 5 1 7 2 2 0 6
3 2 8 0 1 2 4 4 7 2 3 4 0 8 3 2 4 7 7 4 4 0 3 9 5 3 4 3 0 6 3 4 6 5 7 2 2 8 0
3 5 9 2 1 2 4 8 9 2 3 7 5 7 3 2 8 2 7 4 4 3 0 6 5 3 7 1 7 6 3 6 7 3 7 2 5 7 2
3 7 1 0 1 2 6 0 3 2 3 7 7 9 3 3 3 2 2 4 4 5 2 7 5 3 8 0 0 6 3 8 7 5 7 2 5 8 8
3 7 2 5 1 2 9 1 4 2 3 9 9 9 3 3 6 6 2 4 4 7 4 6 5 4 1 7 9 6 4 3 6 5 7 2 8 4 5
3 9 0 3 1 3 1 0 7 2 4 1 6 5 3 3 6 7 7 4 5 0 6 6 5 4 2 0 1 6 4 4 8 1 7 3 2 8 5
5 1 2 8 1 3 5 0 2 2 4 2 9 8 3 3 8 1 5 4 5 1 4 1 5 4 5 2 3 6 4 6 1 8 7 3 4 4 9
5 3 3 6 1 3 5 9 4 2 4 3 0 0 3 3 9 7 6 4 5 2 8 9 5 4 7 0 8 6 4 7 1 6 7 3 7 5 5
5 4 1 5 1 3 6 7 7 2 4 3 0 5 3 4 2 7 3 4 5 5 6 7 5 4 7 4 5 6 4 9 0 1 7 3 9 3 1
5 6 2 9 1 4 0 8 9 2 4 3 5 9 3 5 2 9 0 4 5 8 2 4 5 5 0 1 6 6 5 0 4 6 7 4 6 4 7
5 6 7 9 1 4 1 9 8 2 4 4 7 8 3 6 1 2 7 4 5 9 4 8 5 5 2 5 0 6 5 2 9 9 7 5 0 8 0
6 1 2 2 1 4 8 0 2 2 4 5 0 3 3 6 2 4 6 4 6 2 1 2 5 5 2 9 8 6 5 6 7 5 7 5 2 0 4
6 2 9 2 1 4 9 7 4 2 4 7 4 2 3 6 4 8 6 4 6 2 9 5 5 5 5 6 2 6 5 8 7 3 7 5 3 3 1
6 3 0 3 1 5 4 7 3 2 4 9 7 4 3 7 3 2 3 4 6 6 4 4 5 5 7 1 7 6 5 9 0 8 7 6 2 8 1
7 1 0 6 1 6 4 7 0 2 5 0 1 6 3 7 8 4 8 4 6 7 7 8 5 6 1 2 6 6 6 2 9 7 7 7 8 6 1
7 1 3 7 1 6 4 8 0 2 5 2 6 4 3 7 8 5 6 4 7 0 5 8 5 7 2 6 3 6 6 7 0 2 7 8 7 2 2
7 7 8 4 1 6 5 7 5 2 5 3 1 1 3 7 9 2 1 4 7 2 3 8 5 7 6 7 5 6 7 2 6 5 7 8 8 1 4
8 2 8 3 1 6 9 4 9 2 5 3 1 4 3 7 9 2 8 4 7 4 4 8 5 7 6 8 8 6 7 6 5 5 7 9 0 9 0
8 2 9 5 1 7 9 7 1 2 5 5 8 0 3 7 9 9 9 4 8 7 9 5 5 7 8 3 9 6 7 6 6 7
8 3 3 3 1 7 9 9 7 2 5 9 6 2 3 8 3 2 0 4 9 1 0 8 5 8 0 0 2 6 7 8 3 0
8 9 0 4 1 8 5 2 9 2 6 3 3 2 3 8 4 6 2 4 9 7 3 4 5 8 0 2 5 6 8 6 1 5
9 0 5 4 1 9 6 3 2 2 6 4 4 5 3 8 6 2 3 4 9 9 9 1 5 8 0 3 3 6 8 6 5 2
9 3 7 2 1 9 6 7 9 2 7 6 4 8 3 8 7 5 2 5 0 2 8 5 5 8 0 5 7 6 8 7 2 1
9 4 3 3 1 9 7 1 6 2 8 0 3 8 3 8 9 1 5 5 0 4 9 6 5 8 0 6 0 6 9 3 2 4
Næsti útdráttur fer fram 28. mars 2013
Heimasíða á Interneti: www.das.is
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn
grein" er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu not-
anda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.
HVERNÆTLAR ÞÚAÐ GLEÐJA Í DAG?
PÁSKABLÓMIN