Morgunblaðið - 22.03.2013, Síða 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2013
Afmæli Einars Rafns Viðarssonar verður haldið hátíðlegt á vor-fagnaði Boot Camp þjálfunarstöðvarinnar annað kvöld ogverður það í raun afmælisveislan hans þetta árið. „Ég stefni á
að taka daginn snemma, fara á góða æfingu um morguninn og fara
svo í spa eða álíka til að gíra mig upp fyrir kvöldið,“ segir Einar.
Að sögn Einars er hann mikill áhugamaður um hreyfingu og úti-
veru og æfir af kappi í BootCamp til að halda sér í góðu formi enda er
hann með kraftmikil markmið fyrir sumarið. „Fyrir rúmu ári kynntist
ég frábærri stelpu sem heitir María Kristín Gröndal og við búum núna
saman í Norðurbakka í Hafnarfirði ásamt dætrum hennar sem eru al-
veg yndislegar. Við höfum bæði tvö mikinn áhuga á hreyfingu og úti-
veru og erum við að æfa á fullu fyrir maraþon í Berlín sem fer fram
núna í haust. Ef allt gengur upp og ég næ að æfa af fullum krafti þá
stefni ég á að klára hlaupið á undir þremur og hálfum tíma,“ segir
Einar.
Einnig stefnir Einar á að ganga á Hvannadalshnjúk í sumar, fara
hringveginn ásamt því að hlaupa yfir Fimmvörðuháls sem er árlegur
viðburður hjá honum. „Það að fá að ferðast og njóta útiveru í hreinu
og fögru landi eru forréttindi sem margir fá ekki að kynnast og því
læt ég ekkert stoppa mig í þeirri ástríðu. En mestu máli skiptir að
hugsa vel um líkamann og rækta hann vel,“ segir Einar.
Einar er bæði í námi og fullri vinnu. Hann hefur starfað sem verk-
efnastjóri hjá Stjörnublikki seinustu árin og er með meistarabréf í
blikksmíði. Fyrir tveimur árum fór hann aftur í skóla og hóf þá nám í
véla- og orkutæknifræði við Háskólann í Reykjavík. sad5@hi.is
Einar Rafn Viðarsson 31 árs
Útivist Einar Rafn í stórbrotnu landslagi í Þórsmörk eftir að hafa
gengið yfir Fimmvörðuháls með BootCamp.
„Ég læt ekkert
stoppa mig“
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Sigurður Eiríks-
son frá Eyrar-
bakka er áttatíu
og fimm ára í dag,
22. mars.
Árnað heilla
85 ára
Reykjavík Sölvi Kári fæddist 25. júní
kl. 19.45. Hann vó 4.010 g og var 52
cm langur. Foreldrar hans eru Arna
Frímannsdóttir og Guðjón Bjarni
Snæland.
Nýir borgarar
Reykjavík Kristín Inga fæddist 11. júní
kl. 8.58. Hún vó 3.740 g og var 52 cm
löng. Foreldrar hennar eru Ingunn
Anna Ragnarsdóttir og Kristinn Freyr
Kristinsson.
B
jarney Kristín Hlöðvers-
dóttir leikskólastjóri
fæddist í Keflavík 22.3.
1963 en ólst upp í
Grindavík. Hún var í
Grunnskóla Grindavíkur, Héraðs-
skólanum í Reykholti í tvö ár og
stundaði nám við Ringerike Folke-
høgskole í Noregi 1982-83.
Bjarney hóf nám við Fósturskóla
Íslands haust 1986 og útskrifaðist
sem leikskólakennari (fóstra) 1989.
Hún hóf síðar nám í sérkennslu við
KHÍ 2002 og lauk prófum sem sér-
kennari 2004.
Bjarney vann við Landsbankann í
eitt ár að loknu námi í Reykholti.
Hún hóf síðan aftur störf þar er hún
kom frá Noregi og starfaði þar til
1986. Að loknu leikskólanámi var
hún deildarstjóri við leikskóla í Mos-
fellsbæ til 1990, deildarstjóri við leik-
skólann í Grindavík 1990-93 og við
leikskóla í Hafnarfirði frá 1993. Hún
var sérkennslustjóri við leikskóla í
Hafnarfirði 2003-2005, sérkennari á
unglingastigi við Smáraskóla 2005-
Bjarney Kristín Hlöðversdóttir leikskólastjóri – 50 ára
Sigrún Inga fermd Bjarney og Ólafur ásamt dætrunum, foreldrum hans og móður hennar (með hatt).
Heilsan og umhverfið
Heilsuleikskólinn Unnur Stefánsdóttir afhendir Bjarneyju Heilsufánann í
tilefni af vígslu Heilsuskólans Kórs þann 1.desember árið 2008.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem
hefur hafið göngu sína í Morgun-
blaðinu. Þar er meðal annars sagt
frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæð-
ingum eða öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinnimbl.is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjónVeisluþjónusta
Við erum með tilboð
sem koma sér vel við öll
tækifæri, s.s. fermingar,
útskrift, skírnina
eða afmælið.
Snittur, tapas, heitir
ofnréttir og brauðtertur.
Allar nánari upplýsingar
færðu í síma 533-3000
virka daga milli kl. 8-16.
Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver
Tvennutilboð
40 manna
kransakaka og
25 manna
marsipanbók
Verð kr. 19.900