Morgunblaðið - 25.03.2013, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MARS 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Fáðu þér íslenskt gott kex
með chilli- eða hvítlauksbragði.
Bættu við bragðgóðum íslenskum osti,
smá af sultu og njóttu þess.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Þetta er alvarlegt mál. Við getum
ekkert lagt í að gera við girðingar eft-
ir veturinn í vetur. Girðingar eru allt-
af skemmdar eftir snjó, og í giljum
finnast alltaf girðingar sem þarf að
gera við. Þetta býður þeirri hættu
heim að talsverður straumur af fé
geti farið milli hólfa,“ segir Þorsteinn
Ólafsson, sérgreinalæknir hjá Mat-
vælastofnun, um lítið fjármagn til við-
halds varnargirðinga í ár.
Matvælastofnun fékk 20,7 milljónir
til viðhalds slíkra girðinga 2009, 15,1
milljón 2010 og 16,6 milljónir 2011.
Fjárveitingin lækkaði í fyrra niður í
12 milljónir og nú ber svo við að stofn-
unin fær ekkert fé til viðhalds í ár.
Varnarlínur gegn sjúkdómum
Þorsteinn telur stofnunina þurfa 30
milljónir til viðhaldsins í ár, ella takist
ekki að halda í við uppsafnaða við-
haldsþörf frá síðustu árum.
Hann rifjar upp að girðingarnar
hafi gegnt mikilvægu hlutverki við að
hindra útbreiðslu sjúkdóma í fé.
„Þessar girðingar voru upphaflega
settar upp þegar tekist var á við
svokallaða karakúlsjúkdóma,
mæði-visnu, votamæði og garna-
veiki. Það var grundvall-
aratriði í niðurskurði á fé
að geta haldið því að-
skildu með girðingum.
Við losnuðum við
lungnasjúdóma, mæði-
Mennirnir sem létust í fallhlífaslys-
inu á Flórída í Bandaríkjunum á
laugardag hétu Örvar Arnarson og
Andri Már Þórðarson.
Örvar var fæddur 20. nóvember
1972 í Reykjavík og var hann því á
41. aldursári. Andri Már var fædd-
ur 16. apríl 1987 í Reykjavík. Hann
var á 26. aldursári.
Örvar og Andri Már voru báðir
ókvæntir og barnlausir.
Þeir létust í slysinu
Andri Már
Þórðarson
Örvar
Arnarson Rannsókn stendur enn yfir á bana-
slysi tveggja íslenskra karlmanna
sem létu lífið í fallhlífarstökki á Flór-
ída í Bandaríkjunum. Slysið átti sér
stað í Zephyrhills, norðaustur af
borginni Tampa, síðastliðinn laugar-
dag. Hinir látnu hétu Örvar Arnar-
son og Andri Már Þórðarson.
Örvar var þrautþjálfaður fallhlíf-
arstökkskennari og einn reynslu-
mesti fallhlífarstökkvari landsins en
Andri Már var nemandi í sínu sjö-
unda stökki.
Örvar og Andri Már voru báðir
hluti af stærri hópi Íslendinga sem
ferðast höfðu til Flórída til þess að
taka þátt í árlegri kennsluferð fall-
hlífarstökksfélagsins Frjálst fall. Í
yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér í
gær segir m.a. að lítið sé hægt að
segja til um orsakir slyssins, rann-
sókn þess sé í höndum lögreglu og
viðkomandi yfirvalda á Flórída. Hins
vegar er vitað að annað par nemanda
og kennara var um borð í sömu flug-
vél og segir í áðurnefndri tilkynn-
ingu að það par hafi átt „fullkomið
stökk“. Hið sama má segja um aðra
fallhlífarstökkvara sem um borð
voru. Íslenski hópurinn var á vegum
fyrirtækisins Skydive City í Zephyr-
hills og hefur Sky fréttastofan eftir
T.K. Hayes, einum af eigendum
fyrirtækisins, að hinir látnu virðist
ekki hafa ekki virkjað aðalfallhlífar
sínar í stökkinu og þykir ekkert
benda til galla í búnaði. Segir Hayes
að sérstök tölva í búnaði mannanna
hafi virkjað varafallhlífar þeirra og
meðal þess sem verið sé að skoða er
hvort þær hafi mögulega opnast of
seint. Slysið á laugardag er ekki
fyrsta banaslysið á vegum Skydive
City en í janúar á síðasta ári lést van-
ur stökkvari þegar hann lenti í vand-
ræðum með fallhlífina. Annar fall-
hlífarstökkvari lést 2010 og árið 2008
létust tveir stökkvarar.
Orsök banaslyssins óljós
Tveir íslenskir karlmenn létu lífið í fallhlífaslysi á Flórída Svo virðist sem
aðalfallhlífar hafi ekki opnast Fleiri slys hafa orðið hjá sama fyrirtæki á Flórída
Fallhlífarstökk Frá starfsstöð Sky-
dive City í Zephyrhills á Flórída.
„Fjárskorturinn til viðhalds varnargirðinga er ógn við sauðfjárveikivarnir
í landinu. Varnirnar eru þannig byggðar upp að við reynum að verja hrein
svæði með öllum tiltækum ráðum. Þau eru gríðarleg auðlind. Við ferð-
umst ekki með fé milli svæða, nema þegar við tökum líflömb af til-
greindum svæðum, sem eru í líflambasölu, og flytjum þau yfir á önnur
svæði. Þetta getur ógnað því að við náum að halda þessum svæðum
hreinum,“ segir Þórarinn Ingi Pétursson, formaður Landssamtaka
sauðfjárbænda, um fjárhagsvanda Matvælastofnunar. Með líflambi er
átt við ásetningslamb sem er leyft að lifa þangað til það er orðið að
kind.
„Það hefur verið fjárskortur til viðhaldsins undanfarin þrjú ár
en miðað við þær upplýsingar sem ég hef í dag stefnir í algjört
óefni. Ef vel ætti að vera þyrfti 30 milljónir til verksins á ári.“
Ógn við varnarkerfið
LANDSSAMTÖK SAUÐFJÁRBÆNDA ÁHYGGJUFULL
Þórarinn Ingi
Pétursson
visnu og votamæði en garnaveiki var
eftir. Við losnuðum heldur ekki við
riðuveiki,“ segir Þorsteinn en garna-
veiki barst til landsins með innfluttu
karakúlfé árið 1933.
Reglur um flutninga fjár
Þorsteinn segir að án góðra
varnargirðinga hafi takmarkanir á
flutningi fjár lítið að segja.
„Það er grundvallaratriði í baráttu
gegn riðuveiki og garnaveiki að vera
með reglur um flutninga á sauðfé um
landið, milli landshluta. Þannig höfum
við getað dregið úr útbreiðslu fleiri
sjúkdóma. Það er aðeins leyfilegt að
flytja sauðfé frá fjórum svæðum á
landinu, og meira að segja á tveim af
þeim svæðum er ekki leyfilegt að
flytja það hvert sem er. Ef kind með
sjúkdóma eins og garnaveiki eða riðu-
veiki kemur inn í fjárhús og er þar um
tíma er mjög hætt við því að hún smiti
út frá sér, þótt sjúkdómarnir séu ekki
mjög smitandi úti í haga.“
Spurður um svæði þar sem girð-
ingarnar séu mikilvægar nefnir Þor-
steinn girðingu frá Hvammsfirði yfir í
Hrútafjörð og aðra í Gilsfirði. Þær
skilji Vestfirðina að og gegni því
mikilvæga hlutverki að hindra út-
breiðslu sjúkdóma. „Þarna eru engin
vatnsföll sem hjálpa okkur að girða
svæðin af,“ segir Þorsteinn.
Morgunblaðið/Kristján
Lamb í haga í Kræklingahlíð Varnargirðingar hindra útbreiðslu sjúkdóma í fé milli landshluta.
Fjárskortur ógnar
varnarlínum fyrir fé
Matvælastofnun fær ekkert fé til viðhalds girðinga í ár
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Framkvæmdir standa yfir á annarri
hæð Ráðhúss Reykjavíkur. Breyt-
ingar á húsnæðinu eru hluti af flutn-
ingi skrifstofu eigna- og atvinnuþró-
unar í vesturenda annarrar hæðar
hússins. Stigi í miðju rýminu hefur
verið fjarlægður auk þess sem vegg-
ir tveggja herbergja hafa verið tekn-
ir niður. Með framkvæmdunum
verður til opið rými og mögulegum
starfsstöðvum fjölgað. Í svari frá
Reykjavíkurborg kemur fram að
kostnaður við framkvæmdirnar sé
tæpar sex milljónir króna. Fram-
kvæmdir hófust 15. mars og áætlað
er að þeim ljúki 2. apríl nk.
Ennfremur segir að breytingarn-
ar tengist stjórnkerfisbreytingum
innan Reykjavíkurborgar. Skrifstofa
eigna- og atvinnuþróunar flyst í Ráð-
húsið úr Borgartúni en að óbreyttu
hefði önnur hæð Ráðhússins ekki
rúmað hina nýju skrifstofu eins vel.
Innri endurskoðun borgarinnar sem
áður var á annarri hæðinni flyst í
húsnæði að Tjarnargötu 12 sem áður
var nýtt af borgarfulltrúum.
Stigi fjarlægður og
veggir rifnir fyrir
sex milljónir króna
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Ráðhúsið Miklar framkvæmdir standa yfir á annarri hæð Ráðhússins.