Morgunblaðið - 25.03.2013, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MARS 2013
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þ
etta er samtímasaga um
fólk en hún þykist vera
krimmi. Höfuðvigtin er
á manneskjunum,“ segir
Hermann Jóhannesson
um nýútkomna bók sína sem heitir
Olnbogavík, skáldsaga um glæpi,
skapandi bókhald og óhefðbundna
matargerðarlist. „Eins og gengur í
skáldsögum þá er þetta ímyndun og
uppspuni sem í bókinni stendur, en
þetta gæti þó allt verið satt. Ein af
aðalsögupersónunum sem segir sög-
una, er stráklingur um þrítugt, dálít-
ið ráðvilltur endurskoðandi og svo-
lítið hlédrægur. Hann tekur að sér
fyrir frænda sinn að fara í gegnum
rekstur kaupfélagsins í Olnbogavík,
en þar er allt í kaldakoli. Samt hefur
enginn fundið neitt athugavert við
reksturinn og menn standa því og
gapa. Strákurinn gengur í verkið og
situr yfir því lengi vel án þess að
finna nokkuð stórathugavert. En
hlutirnir fara að taka nokkuð óvænt-
ar stefnur þegar kaupfélagsstjórinn
kemur heim úr veikindafríi og skellir
í lás. Strákurinn stendur þá uppi
verkefnalaus í bili og tekur að sér
kennslu við grunnskólann
staðarins. Síðan fara mál-
in að flækjast og ýmislegt
kemur upp á yfirborðið
sem áður var falið. Allt
fer öðru vísi en nokkur
gat látið sér detta í hug,“
segir Hermann sem eðli
málsins samkvæmt vill
ekki upplýsa meira um
gang mála í örlagasög-
unni frá Olnbogavík.
Þegar Hermann er
spurður að því hvort hann
hafi sérstakan áhuga á
matargerð, í ljósi und-
irtitils sögunnar, en þar
segir að sagan sé m.a. um
óhefðbundna matargerð-
arlist, þá svarar Hermann því til að
hann hafi fremur lítinn áhuga á eld-
húslistum. „En ein sögupersónan,
séra Gunnar, hann aftur á móti er
leitandi persóna og stöðugt að prófa
nýjar og kannski dálítið sérstæðar
uppskriftir.“
Umsaltaði og pússaði
Olnbogavík er fyrsta skáldsaga
Hermanns og hann segir ástæðuna
fyrir því að hann lagðist í bókarskrif,
fyrst og fremst vera þá að hann fór á
eftirlaun og fannst
hann þurfa að hafa
eitthvað að gera. „Mig
hafði lengi langað til
að vita hvort ég gæti
skrifað fullorðna sögu.
Ég hef reyndar skrif-
að heilmikið í gegnum
árin, mest fyrir rusla-
körfuna en líka eitt-
hvað fyrir skúffuna,“
segir Hermann og
bætir við að sagan frá
Olnbogavík sé búin að
liggja í salti í nokkur
ár. „Ég skrifaði hana
frekar hratt á sínum
tíma, en tók hana svo
upp úr söltun nú
löngu síðar og umsaltaði hana, púss-
aði hana til og lagaði og fékk gott
fólk til að lesa yfir handritið.“
Nóg af hugmyndum í kolli
Hermann hefur fengist mikið
við að setja saman limrur um dag-
ana, sumir segja að hann sé einn
fremsti limrusnillingur landsins og
víst er að í nýjustu limrubókinni er
að finna ófáar limrur úr hans smiðju.
„Ég hef alla tíð fengist við ýmis form
lausavísna. Það er afar góð æfing í
Glæpir og örlög
í Olnbogavík
Hann er einn af limrusnillingum landsins en skrifaði líka skáldsögu fyrir margt
löngu sem hann lagði í salt. Nú hefur hann umsaltað hana og gefið út. Hermann
Jóhannesson skrifaði þorpssögu af fólki og glæpum í Olnbogavík.
Skáldsaga Olnbogavík.
Margir eiga eflaust minningar úr
æsku um hversu gaman var að klæða
dúkkulísur í föt og setja á þær auka-
hluti. Nú er öldin önnur og gömlu
pappírsdúkkulísurnar horfnar, en í
staðinn geta krakkar farið í dúkku-
lísuleik á netinu. Vefsíðan www.star-
doll.com er ein sú stærsta í heimi
með yfir 100 milljónir meðlima. Á síð-
unni á notandinn að búa til sína eigin
dúkkulísu og ræður hann sjálfur útliti
hennar. Það er engin dúkkulísa eins,
eða „Medoll“ eins og það kallast, en
um 60 milljarðar möguleika á útliti
eru í boði. Hægt er að velja marg-
víslega hárgreiðslu og andlitsfarða.
Síðan verður auðvitað að kaupa föt á
dúkkulísuna en hægt er að velja úr
þúsundum flíka. Fylgihlutir eru líka
fáanlegir. Einnig getur notandinn
eignast vini um allan heim. Til að ger-
ast meðlimur þarf að borga mán-
aðargjald. Góða skemmtun!
Vefsíðan www.stardoll.com
Í gamla daga Þá voru dúkkulísur úr pappír. Í dag fara krakkar á netið.
Dúkkulísur nútímans
Elsa Waage messósópran syngur á
hádegistónleikum Íslensku óper-
unnar í Norðurljósasal Hörpu á morg-
un, þriðjudag, kl. 12.15.
Elsa og Antonía Hevesi píanóleikari
flytja þá Wesendonck-söngva Wagn-
ers en þessi söngvaflokkur er eitt
þekktasta tónverk Wagners fyrir utan
óperurnar. Tónlistina samdi Wagner
við ljóð Mathilde Wesendonck, eigin-
konu velgjörðarmanns síns, og þykir
hún einkar rómantísk og tilfinninga-
þrungin.
Elsa Waage hefur sungið víða um
lönd á undanförnum árum en hún var
lengi búsett á Ítalíu. Hún flutti nýver-
ið heim og vakti í haust mikla athygli
í einu aðalhlutverkanna, Azucenu, í
sýningu Íslensku óperunnar á Il
Trovatore eftir Verdi. Var hún m.a. til-
nefnd til Íslensku tónlistarverð-
launanna fyrir frammistöðu sína.
Allir eru velkomnir og aðgangur er
ókeypis á hádegistónleika Íslensku
óperunnar.
Endilega…
…heyrið og sjá-
ið Elsu Waage
Söngkona Elsa Wagge messósópran.
Bókaútgáfa hefur blessunarlega
færst nokkuð frá því að vera ein-
göngu í mánuðunum rétt fyrir jól og
nú koma út bækur allan ársins hring.
Mál og menning hefur gefið út ljóða-
bókina Bjarg eftir Sigurlín Bjarneyju
Gísladóttur. Í tilefni af því er boðið til
útgáfuhófs í Eymundssyni við Skóla-
vörðustíg á morgun, þriðjudag,
klukkan 17-19. Höfundur mun lesa úr
bókinni og hljómsveitin Klassart ætl-
ar að leika nokkur lög.
Útgáfuhóf Bjargs
Klassart leikur
nokkur lög
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Fríða Dís Hún er í Klassart.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Á morgun, þriðjudag, verður ellefti
fyrirlestur vetrarins í hádegisfyrir-
lestraröð Sagnfræðingafélags Ís-
lands, en á vormisseri er yfirskrift
fyrirlestraraðarinnar: Hvað er sögu-
legur skáldskapur?
Að þessu sinni flytur Hjalti Snær
Ægisson bókmenntafræðingur er-
indið „Sögulega skáldsagan á Ítalíu
eftir 1980“.
Fyrirlesturinn er haldinn í fyrir-
lestrarsal Þjóðminjasafns Íslands og
hefst klukkan 12:05
Árið 1980 kom út skáldsagan
Nafn rósarinnar eftir Umberto Eco
sem er talin marka nýtt skeið sögu-
legu skáldsögunnar á Ítalíu. Í fyrir-
lestrinum verður fjallað um megin-
straumana í ritun sögulegra
skáldsagna á Ítalíu síðustu þrjá ára-
tugina. Margar þeirra einkennast af
samfélagsgagnrýni og efasemdum
um framfarahyggju. Ítalskir rithöf-
undar hafa lengi verið uppteknir af
því að draga fram algild söguleg
lögmál í verkum sínum, sýna hvernig
valdajafnvægið í landinu helst
óbreytt þótt samfélagið breytist.
Sögulega skáldsagan er rótgróin á
Ítalíu, en eitt af höfuðritum ítalskra
bókmennta á 19. öld er söguleg
skáldsaga, I promessi sposi eftir
Alessandro Manzoni (útgefin í
fyrstu gerð 1827). Rætt verður um
það hvernig rithöfundar síðustu ára-
tuga hafa unnið úr þjóðlegum skáld-
skaparhefðum og leitað svara við
því hvort sögulega skáldsagan eigi
enn erindi sem framlag til þjóð-
félagslegrar umræðu á Ítalíu.
Hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands
Hvað er sögulegur skáldskapur?
Dalvegi 10-14 ▪ 201 Kópavogur ▪ Sími: 595 0570 ▪ parki.is
Plankaparket
í miklu úrvali
Bjóðum einnig upp á sérframleitt parket
eftir óskum hvers og eins.
Burstað, lakkað, olíuborið, handheflað,
reykt, fasað, hvíttað, eða hverning vilt þú
hafa þitt parket ?
Láttu drauminn rætast hjá okkur.