Morgunblaðið - 25.03.2013, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MARS 2013
Reiðhjólahanskar og grifflur
Verð frá kr. 4.490.-
Reiðhjólajakkar
Verð frá kr. 12.990.-
Reiðhjólabuxur síðar
Verð frá kr. 12.990.-
Úrval af reiðhjólaskóm
Verð frá kr. 15.990.-
Handgerðir
á Ítalíu
Á GÖTUNNI Í 25 ÁR
Meiri
hreyfing
Meiri
útivera
Meiri
ánægja
Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is | stilling@stilling.is
20%
afslá
ttur á
öllum
öðru
m
verk
færu
m í m
ars
40% afsláttur
á Jonnesway verkfærum í mars
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Því miður hefur ekki orðið neinn
áþreifanlegur árangur af þessum
fundum. Það má þó segja að við höfum
farið mjög vel yfir sjónarmið sem
varða stjórnarskrána. Það er mikil-
vægt að svona fundir séu haldnir, þótt
það náist ekki alltaf ásættanlegur ár-
angur,“ sagði Illugi Gunnarsson, þing-
flokksformaður Sjálfstæðisflokksins,
um fund formanna stóru flokkanna
fjögurra á þingi og staðgengla þeirra í
gær.
Illugi sat fundinn í fjarveru Bjarna
Benediktssonar, formanns Sjálfstæð-
isflokksins, ásamt Katrínu Júlíusdótt-
ur, staðgengli Árna Páls Árnasonar,
formanns Samfylkingar, Katrínu Jak-
obsdóttur, formanni VG, og Sigmundi
Davíð Gunnlaugssyni, formanni
Framsóknarflokks.
Ekki náðist í Sigmund Davíð, Árna
Pál eða Katrínu þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir í allan gærdag.
Krafa um Bakka sett til hliðar
Fundarefnið síðdegis í gær var að
finna leiðir til að semja um þinglok og
segir Illugi fulltrúa ríkisstjórnarinnar
hafa m.a. hafnað þeirri kröfu sjálf-
stæðismanna og framsóknarmanna að
frumvarp um uppbyggingu á Bakka
komist á dagskrá.
Fyrr um daginn funduðu Álfheiður
Ingadóttir, þingflokksformaður VG,
Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks, Magnús Orri Schram,
Samfylkingu, og Vigdís Hauksdóttir,
Framsóknarflokki, um stjórnarskrár-
málið.
Vigdís segir fulltrúa ríkisstjórnar-
flokkanna hafa fallist á að setja breyt-
ingartillögu um auðlindaákvæði til
hliðar. Það sama hafi verið gert með
breytingartillögu Margrétar
Tryggvadóttur um að kjósa um tillög-
ur stjórnlagaráðs í heild.
Eftir standi breytingartillaga Árna
Páls, Katrínar Jakobsdóttur og Guð-
mundar Steingrímssonar sem feli í sér
að hægt verði að breyta stjórnar-
skránni á næsta kjörtímabili án þess
að rjúfa þing.
„Magnús Orri staðfesti að það væri
búið að henda hinum tveim tillögunum
út af borðinu. Það á að knýja okkur til
að fallast á breytingarákvæði þre-
menninganna. Ég get hins vegar ekki
gert það. Það stríðir gegn minni sann-
færingu að hafa tvö breytingarákvæði
í gildi í íslensku stjórnarskránni,“
sagði Vigdís og vísaði til 79. greinar
núverandi stjórnarskrár Íslands.
„Ég met stöðuna svo að úr því að
það er búið að taka út auðlindaákvæð-
ið, þá leggi Vinstri grænir áherslu á að
koma náttúruverndarlögunum og
breytingum á vatnalögunum einhvern
veginn í gegn.“
Fulltrúar stóru flokkanna fjögurra
á þingi áttu fleiri fundi um helgina.
Ólga var innan Samfylkingar vegna
frumvarpa um uppbyggingu á Bakka
og gerðu sumir þingmenn afgreiðslu
náttúruverndarfrumvarps að skilyrði
fyrir stuðningi sínum við þau frum-
vörp.
Þrátefli í viðræðum
um lyktir þingstarfa
Flokkunum tókst ekki að semja um þinglok um helgina
Morgunblaðið/Ómar
Alþingi Stjórn og stjórnarandstaða takast hart á um stjórnarskrármálið.
„Það er lítill samningsvilji hjá
stjórnarandstöðunni þannig að
það hlýtur að koma að því að
stjórnarflokkarnir geri upp við
sig hvenær tímabært er að
segja að nú sé nóg komið og
fara sína leið í málinu,“ segir Ól-
ína Þorvarðardóttir, þingmaður
Samfylkingar, sem telur að
stjórnarflokkarnir eigi að
„ganga til þeirrar dagskrár sem
þeir hafa sjálfir lagt fram“. „Það
eru leiðir í þingsköpum til þess
að stöðva málþóf. Í þingsköpum
er að finna 71. greinina. Hún er
enginn helgidómur og hefur
aldrei verið,“ segir Ólína.
Nóg komið af
viðræðum
AFSTAÐA ÞINGMANNS
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/