Morgunblaðið - 25.03.2013, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MARS 2013
www.gengurvel.is
PRO•STAMINUS
ÖFLUGT NÁTTÚRULEGT EFNI FYRIR KARLMENN
Pissar þú oft á
nóttunni?
Er bunan orðin
kraftlítil?
PRO•STAMINUS er spennandi nýjung
sem er fyrst og fremst ætluð karlmönnum
semhafa einkenni góðkynja stækkunar á
blöðruhálskirtli sem getur valdið
vandræðum við þvaglát.
PRO•STAMINUS fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaða
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Í liðinni viku hafa tækniheimar logað af umræðum um mál
konu að nafni Adria Richards.
Richards var rekin úr starfi hjá sprotafyritækinu
SendGrid en hún hafði kvartað yfir klúrum og kynferð-
islegum samræðum tvegja karlkyns gesta á tækniráðstefn-
unni PyCon sem haldin var um miðjan mánuðinn.
Notaði Richards snjallsíma sinn til að taka mynd af
körlunum og setti inn á blogg sitt og Twitter ásamt um-
mælunum sem fóru fyrir brjóstið á henni. Að því er CBS
greinir frá veittu skipuleggjendur ráðstefnunnar málinu
fjótlega athygli og tóku aðila málsins afsíðis þar sem karl-
arnir gengust við ummælunum og báðust afsökunar.
Netið logar og netþrjótar láta að sér kveða
Atvikið rataði fljótlega í fjölmiðla og var annar karlanna
síðar rekinn úr starfi sínu hjá farsímaleikjafyrirtækinu
PlayHaven. Bloggheimar, samfélagsmiðlar og kommenta-
kerfi fuðruðu svo upp í miklu rifrildi þegar Richards var
sjálf rekin úr starfi sínu hjá SendGrid.
Í tilkynningu á vef fyrirtækisins segir framkvæmdastjóri
SendGrid að Richards hafi ekki nálgast málið með réttum
hætti þegar hún birti ummæli karlanna og mynd af þeim,
hún hafi stefnt rekstri fyrirtækisins í voða, valdið klofningi
í hugbúnaðarsamfélaginu og geti ekki lengur gegnt starfi
sínu sem skyldi.
Fljótlega eftir að Richards setti tvítið afdrifaríka á netið
fóru henni að berast ofbeldishótanir og ýmsir í netheimum
hafa lýst óánægju með framkomu hennar. Um leið hefur
fjöldi netverja úthúðað vinnuveitanda Richards og körl-
unum tveimur á ráðstefnunni.
Sumir segja að brottrekstur Richards muni letja fólk til
að láta ekki óásættanlega framkomu viðgangast, en aðrir
benda á að uppákoman á tækniráðstefnunni minni á að
hugbúnaðarheimurinn er ekki vinsamlegur í garð kvenna.
Fyrirtækin sem að málinu koma urðu fljótlega fyrir
barðinu á tölvuþrjótum og þannig varð SendGrid fyrir
DDOS-árásum á miðvikudag, degi áður en Richards var
rekin.
Bloomberg gerir Richards-málinu ítarleg skil í grein sem
birtist um helgina og spyr hvort Sílíkondalur sé enn
strákaklúbbur, þrátt fyrir að stöku konur hafi afrekað að
brjótast í gegnum glerþakið og upp í æðstu stöður fyr-
irtækja eins og Facebook og Yahoo. Um 23% af störfum í
tölvunar- og stærðfræðistéttum vestanhafs eru mönnuð af
konum.
Hefur Bloomberg eftir ungri konu í hugbúnaðargeir-
anum að þrátt fyrir konur eins og Sheryl Sandberg, stjórn-
anda hjá Facebook, minni andrúmsloftið í hugbúnaðar-
heiminum á félagsskap unglingsstráka. ai@mbl.is
Er karlrembu-
vandi í Sílíkondal?
Harðar deilur hafa sprottið upp í upplýsingatækniheim-
inum vestra um stöðu kvenna vegna máls Adriu Richards
AFP
Nútíminn Skiptar skoðanir eru um hversu vel
bandaríski hugbúnaðarheimurinn tekur á móti kon-
um. Myndin var tekin á netkaffihúsi í Manila.
Gosdrykkjaframleiðandinn PepsiCo hefur
endurhannað plastflöskuna utan um kóla-
drykkinn vinsæla, a.m.k. á Bandaríkjamark-
aði. Huffington Post greinir frá að hönnun
flöskunnar hafi síðast verið breytt fyrir 17
árum.
Um er að ræða 20 únsu flöskuna, sem rúm-
ar tæplega 600 ml af gosi. Merkimiðinn hefur
verið styttur og fyrir vikið sést meira af
drykknum í gegnum glært plastið. Neðri
helmingur flöskunar er með „mitti“ eða
„gripi“ sem ætla má að geri auðveldara að
munda ílátið með sleipum höndum. Verður
nýja hönnunin fáanleg í verslunum og sjálf-
sölum vestanhafs frá og með apríl.
PepsiCo hefur að sögn Huffington Post
verið að vinna að því að gæða vörumerið nýju
lífi en á síðustu árum hefur drykkjaúrval
Pepsi verið að tapa markaðshlutdeild til
Coca-Cola. Nýja lögunin verður einnig notuð
fyrir 16 únsu flöskurnar, sem ekki fást jafn-
víða og 20 únsu stærðin.
Mun taka allt að tvö ár að skipta núverandi
flöskuhönnun alfarið út fyrir nýju flöskurnar
en verkfræðingar verða á ferðinni næstu
misserin milli gosdrykkjaverksmiðja til að
breyta framleiðslulínunum. Byrjar innleið-
ingin á austurströndinni en teygir sig fljót-
lega suður og vestur.
ai@mbl.is
Pepsi kynnir
nýja flösku
Hafa verið að tapa markaðshlutdeild
og reyna að hressa upp á merkið
Línur Nýja hönn-
unin er ekki afleit.