Morgunblaðið - 25.03.2013, Síða 17
FRÉTTIR 17Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MARS 2013
UPPLIFÐU NÝJA TÍMA MEÐ HYUNDAI
Hyundai / BL ehf.
Kauptúni 1– 210 Garðabæ – Sími: 575 1200
www.hyundai.is – www.facebook.com/hyundai.is
Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070
NEW THINKING.
NEW POSSIBILITIES. ÓTAKMARKAÐUR AKSTUR
ÁBYRGÐ
VEGAAÐSTOÐ
GÆÐASKOÐUN
NÝR HYUNDAI i20 DÍSIL
Eyðsla aðeins 3,8 l/100 km
miðað við blandaðan akstur
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
3
8
2
VERÐ: 2.790.000 kr.
Co2 aðeins 99 g/km – Frítt í bílastæðin í miðborginni
Nýr Hyundai i20 með 1,1l dísilvél er einn sparneytnasti millistærðarbíll sem völ er á.
Öllum nýjum Hyundai bílum fylgir 5 ára ábyrgð og ótakmarkaður akstur auk árlegra öryggis- og viðhaldsskoðana sem
eru viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Við bjóðum ykkur velkomin í hóp ánægðra Hyundai eigenda.
Hyundai í Kauptúni 1 er opið frá kl. 07.45–18.00 alla virka daga og 10.00–16.00 á laugardögum.
Rannsóknarmiðstöð í stjórnarhátt-
um við Háskóla Íslands og NASDAQ
OMX á Íslandi hafa hleypt af stokk-
unum átaki í end-
urmati stjórna
fyrirtækja hér á
landi. Í tilkynn-
ingu kemur fram
að þetta sé að öll-
um líkindum í
fyrsta skipti í
heiminum sem
endurmat stjórna
með sjálfsmati
stjórnenda er
gert með rafræn-
um hætti fyrir fjölda fyrirtækja á
sama tíma.
Endurmatið fer þannig fram að
könnun er send á stjórnarmenn með
samþykki stjórnarformanns. Svara
þátttakendur spurningum um skipu-
lag stjórnar, starfshætti, verkefni og
hlutverk stjórnarinnar og um árang-
ur af starfinu.
Tæki til að gera betur
Dr. Eyþór Ívar Jónsson er einn
umsjónarmanna verkefnisins. „Með
niðurstöður mælingarinnar í hönd-
unum geta stjórnir lagt betur mat á
eigin frammistöðu og komið auga á
bæði veikleika og styrkleika. Þar
sem um er að ræða víðtæka rann-
sókn gefa mælingarnar einnig mögu-
leika fyrir stjórnir að bera sig saman
við heildareinkunnir stjórna annarra
fyrirtækja hér á landi.“
Segir Eyþór að vonir standi til að
hundruð fyrirtækja muni taka þátt í
átakinu. „Markmiðið er að ná svör-
um frá a.m.k. 60-80% stjórnenda og
vonandi ná fram úr Norðmönnum
sem hafa verið leiðandi á þessu sviði
en þar er áætlað að um 70% stjórna
hafi gengist undir sjálfsmat af ein-
hverjum toga.
Rannsóknin er gerð þátttakend-
um að kostnaðarlausu en verið er að
nota í fyrsta skipti kerfi sem verið
hefur í þróun í á þriðja ár og á að
veita stjórnum aðgang að einföldu
endurmatskerfi sem byggist á rann-
sóknum á góðum stjórnunarháttum.
„Endurmat með þessum hætti er
fyrst mögulegt núna þegar hægt er
að tryggja öryggi gagna og aðgengi
stjórnarmanna. Við byggjum þessa
útgáfu á fimmtán ára rannsóknar-
starfi helstu fræðimanna á þessu
sviði,“ útskýrir Eyþór.
Átakið hófst um miðjan mánuðinn
og hefur þegar fjöldi stjórna farið í
gegnum endurmatið. Standa vonir til
að framkvæma samskonar rannsókn
í Noregi og Danmörku með haust-
inu. ai@mbl.is
Meta stjórnir fjölda
íslenskra fyrirtækja
Hafa þróað kerfi sem auðveldar sjálfsmat stjórna
Öruggt kerfi sem tryggir verndun gagna Stjórnir geta
komið auga á veikleika og borið sig saman við aðra
Morgunblaðið/Ernir
Kortlagning Íslenskar stjórnir hafa lítið gert af því að meta eigin frammi-
stöðu. Gluggaþvottamenn að störfum við skrifstofuturn í Reykjavík.
Dr. Eyþór Ívar
Jónsson
Mælingar Bloomberg-fréttastof-
unnar benda til að í febrúar hafi
kippur komið í neyslu vestanhafs og
gefið bandaríska hagkerfinu ágætis
stuð. Bloomberg segir aukninguna í
neyslu í febrúar hafa verið þá mestu
í fimm mánuði. Kaup neytenda á
vöru og þjónustu jukust um 0,6% í
febrúar borið saman við 0,2% aukn-
ingu í janúar. Eiga mælingar einnig
að sýna mestu aukningu í fimm mán-
uði í kaupum á varanlegri neyt-
endavöru en undir þann flokk falla
m.a. raftæki og bílar.
Bloomberg hefur eftir hagfræð-
ingi hjá IHS Global Insight að einnig
eigi sér stað aukning í kaupum á
fjárfestingarvörum (e. capital go-
ods) sem sé líka vísbending um að
efnahagslífið sé að taka við sér.
Er reiknað með að mælingarnar á
helstu hagstærðum verði í svipuðum
dúr í skýrslu sem efnahagsráðuneyti
Bandaríkjanna mun leggja fram í
lok vikunnar. Áætlar Bloomberg því
einnig að laun hafi hækkað um 0,9%
í febrúar eftir 3,6% lækun í janúar
en tveggja prósentustiga hækkun á
launatengdum gjöldum tók gildi um
áramótin. Meðallaun á klukkustund
hækkuðu um 2,1% miðað við febrúar
í fyrra.
Rannsókn MarketWatch tekur í
sama streng og spáir viðskiptamið-
illinn 0,5% aukningu í neyslu í febr-
úar. Hefur MW eftir greinanda hjá
Moody‘s Analytics að minnkandi
skuldabyrði heimilanna kunni að
vera skýringin en útistandandi
skuldir bandarískra heimila hafa
ekki verið lægri síðan 1980.
ai@mbl.is
AFP
Pokar Viðskiptavinir á vappi í New York. Neysla tók kipp í febrúar.
Bandarískir neyt-
endur taka við sér
Batamerki í bandaríska hagkerfinu í
febrúar Neysla að aukast, m.a.
vegna betri skuldastöðu heimilanna