Morgunblaðið - 25.03.2013, Page 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MARS 2013
Miklar vetrarhörkur herja nú á íbúa Kiev, höf-
uðborgar Úkraínu, en samhliða miklu frosti tók
snjó að kyngja þar niður um helgina. Sökum
þessa hafa stjórnvöld beðið almenning um að
halda sig innandyra. Fannfergið var sums staðar
svo mikið að lýsa þurfti yfir neyðarástandi þar
sem akbrautir urðu á skömmum tíma ófærar
með öllu. Má því víða finna yfirgefnar bifreiðar
grafnar í snjósköflum. Til að bæta gráu ofan á
svart fór víða rafmagn af mannvirkjum en talið
er að yfir 600 borgir og bæir í Úkraínu hafi glímt
við rafmagnsleysi um tíma. khj@mbl.is
AFP
Vetur konungur neitar að sleppa takinu á Úkraínu
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Breska lögreglan leitaði í gær að
hættulegum efnum á heimili rúss-
neska auðkýfingsins Boris Berez-
ovsky í Surrey í Bretlandi en hann
fannst þar látinn síðastliðinn laug-
ardag. Samkvæmt AFP-fréttaveit-
unni fundust engin skaðleg efni á
heimili hins látna sem skýrt geta
andlátið en við leitina var m.a. notast
við aðstoð sérfræðinga í geislavirkni,
efna- og sýklavopnum. Simon Bow-
den, lögregluforingi hjá lögreglunni í
Surrey, staðfesti þetta við AFP-
fréttaveituna í gær.
Dánarorsök hins 67 ára Boris
Berezovskys eru því enn óljós að svo
stöddu.
Hafna orðrómi um sjálfsvíg
Fljótlega eftir að upp komst um
andlátið fór á kreik orðrómur um að
auðkýfingurinn hefði svipt sig lífi
sökum meints þunglyndis. Þessu
hefur Demyan Kudryvtsev, einn af
vinum hins látna, hafnað með öllu en
haft er eftir honum í erlendum fjöl-
miðlum að engin ummerki hafi fund-
ist um sjálfsvíg. Á síðasta ári tapaði
Berezovsky 3 milljarða punda skaða-
bótakröfu á hendur Roman Abramo-
vich, eiganda fótboltafélagsins
Chelsea, og hefur BBC eftir ónefnd-
um heimildum að auðkýfingurinn
hafi í kjölfarið þjáðst af þunglyndi.
Boris Berezovsky, sem auðgaðist
gríðarlega á tíunda áratug síðustu
aldar m.a. við að selja innfluttar
lúxusbifreiðar í Rússlandi, er sagður
hafa lifað af fjölda morðtilrauna. Í
einni slíkri sprakk öflug sprengja í
bifreið hans með þeim afleiðingum
að einkabílstjóri Berezovskys lét
lífið en sjálfur komst hann lífs af.
Átti í deilum við Pútín forseta
Frá árinu 2000 hefur Boris Berez-
ovsky verið í sjálfskipaðri útlegð í
Bretlandi en auðkýfingurinn hefur
um langt árabil verið einn helsti
gagnrýnandi Vladimírs Pútíns
forseta Rússlands.
Skömmu eftir að upp komst um
andlátið var haft eftir talsmanni
Rússlandsforseta að Berezovsky
hefði fyrir nokkrum mánuðum beð-
ist griða. Á hann að hafa sent forset-
anum persónulegt bréf þar sem
hann viðurkennir mikil mistök. Vinir
hins látna segjast hins vegar mjög
efins og telja afar ólíklegt að Berez-
ovsky hafi beðist griða með þessum
hætti.
„Ég trúi þessu alls ekki. Þetta get-
ur hreinlega ekki verið. [...] Ef bréfið
er til, á það skilið að enda inni á
safni,“ segir Alexander Goldfarb,
vinur hins látna.
AFP
Lögreglurannsókn Tæknimenn á vegum bresku lögreglunnar leituðu á
heimili hins látna í gær í von um að varpa ljósi á andlátið.
Dánarorsök látins
auðkýfings óljós
Lögreglan leitaði að efnavopnum
John Kerry,
utan-
ríkisráðherra
Bandaríkjanna,
fór óvænt til
Íraks í gær en
með heimsókn
sinni vill hann
stuðla að bættri
samvinnu í
tengslum við
átökin í Sýr-
landi. Er Kerry sagður ætla að
hvetja írösk stjórnvöld til að koma
í veg fyrir að flugvélar frá Íran
nýti sér lofthelgi Íraks við að
flytja vopn yfir til Sýrlands. Vopn-
in enda svo í höndum stjórnar-
hersins sem beitir þeim gegn upp-
reisnarmönnum. Íranar hafa að
undanförnu neitað þessu og segj-
ast einungis vera að flytja hjálp-
argögn til landsins. Heimsókn
Johns Kerrys til Íraks er fyrsta
heimsókn bandarísks utanrík-
isráðherra til landsins frá árinu
2009. khj@mbl.is
ÍRAK
John Kerry mætti
óvænt til fundar
John Kerry
Vopnaðir vígamenn réðust á fang-
elsi í bænum Ganye í Adamawa-ríki
í norðausturhluta Nígeríu í gær.
Við árásina sluppu 127 fangar út úr
fangelsinu og er þeirra nú ákaft
leitað. Einn starfsmaður fangels-
isins lést í árásinni en hann var
skotinn til bana af vígamönnum.
Fangaverðir reyndu hvað þeir
gátu til að hefta flóttann og var
einn fangi særður er hann var skot-
inn í fótinn af fangavörðum. Var
hann í kjölfarið færður undir lækn-
ishendur. Haft er eftir talsmanni
fangelsisins að vígamennirnir hafi
brotið sér leið inn í fangelsið og því
næst spennt upp fjölmarga fanga-
klefa. Sami vígahópur er einnig
grunaður um að bera ábyrgð á
fleiri árásum á svæðinu en nýverið
var ráðist á lögreglustöð, banka og
tvær knæpur. Telur lögregla að á
þriðja tug borgara hafi fallið í árás-
um vígahópsins að undanförnu.
127 fangar flúðu úr
nígerísku fangelsi
Selskópur varð
óvænt á vegi
manns í skógi í
austurhluta Sví-
þjóðar í gær.
Manninum var
að vonum nokk-
uð brugðið enda
um sex kílómetr-
ar í næstu
strönd og
hringdi hann
þegar í lögreglu til að tilkynna
fundinn. „Það hringdi í okkur
maður, nokkuð undrandi, og tjáði
okkur að hann hefði á göngu sinni
um skóginn fundið selskóp. Ég
hélt að maðurinn væri að grínast,“
hafa erlendir miðlar eftir Henrik
Pederson, lögregluvarðstjóra í
Uppsölum. Talið er að selurinn
hafi skriðið þrjá kílómetra yfir ísi-
lagðan sjó og því næst aðra þrjá
inn í skóginn. Selurinn hefur nú
verið fluttur aftur til síns heima.
khj@mbl.is
SVÍÞJÓÐ
Selur á sundi.
Selur fannst í
sænskum skógi