Morgunblaðið - 25.03.2013, Síða 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MARS 2013
rauðlauk og chili, kórónaður með kókós-
eftir hátíðarmatinn.
gottimatinn.is. Uppskriftavefurinn er jafn
aðgengilegur í tölvunni, spjaldtölvunni og
snjallsímanum.
Hollustan hefst á gottimatinn.is
ferskur
fiskréttur
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Forseti Kýpur, Nicos Anastas-
iades, flaug síðdegis í gær til
Brussel í von um að ná fram mikil-
vægu samkomulagi vegna neyðar-
láns handa Kýpur. Ljóst er að
vandi ríkisins er mikill og alvar-
legur en óttast er að þjóðargjald-
þrot blasi við takist ekki að semja
um nauðsynlegar lánagreiðslur.
Stjórnvöld á Kýpur höfðu áður
fengið frest frá Seðlabanka Evr-
ópu til að reiða fram 5,8 milljarða
evra tryggingu fyrir neyðarláni frá
Evrópusambandinu (ESB) og Al-
þjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS).
Tryggingin er sögð vera forsenda
fyrir neyðarláni ESB og AGS sem
hljóðar upp á 10 milljarða evra.
Stutt er síðan áform um skatt-
lagningu á innistæður landsmanna
voru felld af stjórnvöldum en
landsmenn tóku fyrirhugaðri
skattlagningu afar illa. Skattlagn-
ingin átti að vera liður í að fjár-
magna hluta Kýpverja í samn-
ingnum sem forða myndi ríki
þeirra frá þroti.
Fundi fjármálaráðherra evru-
ríkjanna var í gærkvöldi ítrekað
frestað vegna þess að fundur
Anastasiades og fulltrúa ESB og
AGS dróst verulega á langinn.
Þann fund sátu m.a. Mario Draghi,
seðlabankastjóri Evrópu, Christine
Lagarde, forstjóri Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins, Herman Van
Rompuy, forseti leiðtogaráðs Evr-
ópusambandsins, og José Manuel
Barroso, forseti framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins.
Bankar lokaðir í viku
Mikil óvissa hefur verið ríkjandi
meðal Kýpverja en vika er nú liðin
frá því að bankar þar í landi lok-
uðu dyrum sínum til að forðast
fyrirséð áhlaup. Frá því að bankar
lokuðu hefur ásókn í hraðbanka
hins vegar stóraukist og til að
bregðast við þeirri stöðu greindu í
gærkvöldi tveir stærstu bankar
landsins frá ákvörðun sinni um að
lækka úttektarheimild sparifjár-
eigenda niður í 100 evrur á sólar-
hring. Er Morgunblaðið fór í
prentun höfðu engar nýjar fregnir
borist af stöðu mála.
Karpað fram á nótt um líflínu Kýpur
Óttast að þjóðargjaldþrot blasi við
náist ekki samkomulag um neyðarlán
AFP
Brussel Nicos Anastasiades, forseti Kýpur, mætir til fundar í höfuðstöðvum Evrópusambandsins í Brussel í gær.
Fundur forsetans og fulltrúa Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins dróst verulega á langinn.
Hræ af ein-
hyrndum nas-
hyrningi
fannst á Kaz-
iranga-
verndarsvæð-
inu í norðaust-
urhluta
Indlands um
helgina en tal-
ið er að veiði-
þjófar hafi
fellt dýrið. Ólöglegt er með öllu
að fella þessi dýr en veiðiþjófar
virða hins vegar bannið að vett-
ugi og hafa þeir fellt minnst 15
nashyrninga það sem af er
þessu ári.
AFP-fréttaveitan hefur það
eftir þjóðgarðsverði á svæðinu
að tveir nashyrningar hafi verið
felldir á jafn mörgum dögum.
Til að fella dýrin segir hann
veiðiþjófana gjarnan notast við
öflug vopn á borð við AK-47
riffla. Eftir að dýrin hafa verið
drepin fjarlægja veiðiþjófarnir
horn þeirra en þau eru eftirsótt
víða í Asíu. Skrokkurinn er hins
vegar skilinn eftir.
Á síðasta ári féll alls 21 nas-
hyrningur á Kaziranga-
verndarsvæðinu á Indlandi.
Stofn einhyrndra nashyrninga
hefur verið á nokkurri uppleið
að undanförnu og í honum eru
nú um 3.300 dýr. khj@mbl.is
INDLAND
Veiðiþjófar herja á
nashyrninga á
verndarsvæði
Nashyrningur
Minnst átta sjómenn drukknuðu
þegar bátum þeirra hvolfdi úti
fyrir ströndum Senegal í gær. Ótt-
ast er um afdrif fimmtán sjó-
manna til viðbótar og er þeirra nú
ákaft leitað.
AFP-fréttaveitan hefur eftir eig-
anda útgerðarinnar að mikilli
ölduhæð sé um að kenna að bát-
unum hvolfdi. Eftir að upp komst
um slysið voru björgunarmenn
sendir á vettvang og tókst þeim að
bjarga alls átta manns úr sjónum.
Þeir voru allir fluttir undir lækn-
ishendur en ekki er vitað nánar
um líðan mannanna. Fiskveiðar
eru ein helsta útflutningsgrein
Senegal en þær hafa að und-
anförnu dregist nokkuð saman.
khj@mbl.is
SENEGAL
Sjómenn týndu lífi
er bátum hvolfdi
AFP
Sjóskaði 15 sjómanna er enn saknað
eftir að bátum þeirra hvolfdi.