Morgunblaðið - 25.03.2013, Síða 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MARS 2013
✝ Inga LillýBjarnadóttir
fæddist í Reykjavík
11. júlí 1924. Hún
lést 7. mars 2013.
Foreldrar henn-
ar voru Jón Bjarni
Pétursson, forstjóri
í Reykjavík, f. 25.
apríl 1885, d. 28.
feb. 1956, og kona
hans Ingibjörg
Steinsgrímsdóttir,
f. 2. apríl 1885, d. 8. des.1965.
Systkini Ingu Lillýjar voru
fimm: Pétur, f. 8. okt. 1907, d.
22. okt. 1918, Steingrímur, f. 9.
mars 1909, d. 16. júlí 1930, Ant-
on, f. 24. jan. 1912, d. 19. ágúst
1934, Margrét, 10. mars 1917, d.
21. mars 1939 og Anna, f. 17.
apríl 1920, d. 24. jan. 1995.
Inga Lillý giftist 16. maí 1947
Þorsteini Sigurðssyni forstjóra,
f. 9. mars 1920, d. 2. nóv. 1998.
Þau bjuggu í Reykjavík, fyrst á
Guðrúnargötu 10 og síðan á
Sporðagrunni 9. Eftir andlát
Þorsteins flutti hún á Skúlagötu
40a, en síðustu tvö æviárin
dvaldi hún á Hjúkrunarheim-
ilinu Eir, þar sem hún hlaut
góða umönnun.
dóttur skrifstofumanni, f. 28.
júlí 1950. Börn Ingibjargar: Ei-
ríkur Jónsson lögreglumaður, f.
13. ágúst 1972, kvæntur Sig-
rúnu Jónasdóttur lögreglukonu,
f. 21. okt. 1977. Börn þeirra:
Halldór Óskar Eiríksson, f. 15.
maí 2002, Hermann Ingi Eiríks-
son, f. 31. maí 2005, Jónas Sig-
urður Eiríksson, f. 27. ágúst
2008 og Magnús Óli Eiríksson,
f. 14. mars 2012. Magnús Jóns-
son háskólanemi, f. 10. des.
1979. 5) óskírður sonur, f. 20.
ágúst 1956, d. 22. ágúst 1956, 6)
Anton Pétur læknir, f. 14. apríl
1962, kvæntur Sigríði Hauks-
dóttur tölvufræðingi, f. 1. sept.
1963. Börn þeirra: Inga Mar-
grét læknanemi, f. 28. apríl
1992 og Orri Þór verk-
fræðinemi, f. 9. maí 1994.
Inga Lillý ólst upp í foreldra-
húsum á Vesturgötu 46 í
Reykjavík og stundaði nám í
Kvennaskólanum í Reykjavík.
Hún starfaði við fjölskyldufyr-
irtækið J.B. Pétursson, þar til
hún giftist, en eftir það helgaði
hún líf sitt fjölskyldunni og upp-
eldi barna sinna. Inga Lilly var
virk í Foreldrafélagi Tjaldanes-
heimilisins, þar sem sonur
hennar Steingrímur dvaldi til
margra ára. Hún var félagi í
Sam-Frímúrarareglunni, í stúk-
unni Emblu.
Útför Ingu Lillýjar fer fram
frá Fríkirkjunni í Reykjavík í
dag, 25. mars 2013, kl. 15.
Inga Lillý og
Þorsteinn eign-
uðust sex börn, þau
eru: 1) Jón Bjarni
Þorsteinsson lækn-
ir, f. 30. sept. 1948,
kvæntur Guðrúnu
Björt Yngvadóttur
lífeindafræðingi, f.
13. maí 1948. Börn
þeirra: Þorsteinn
Yngvi verkfræð-
ingur, f. 4. júní
1975, kvæntur Gerði Guð-
mundsdóttur, leikskólakennara
og flugfreyju, f. 6. apríl 1971.
Dóttir þeirra er Telma Guðrún,
f. 11. des. 2008. Dætur Gerðar;
Aðalheiður Ósk Magnúsdóttir,
f. 2. maí 1990, og Viktoría Ósk
Arnardóttir, f. 28. sept. 1994.
Ingibjörg Hanna hönnuður, f. 3.
des. 1976, gift Emil Þór Vigfús-
syni viðskiptafræðingi, f. 14.
feb. 1974. Synir þeirra: Tómas
Nói, f. 21. jan. 2003, og Jón
Bjarni, f. 18. des. 2006. 2) Ingi-
björg, f. 31. júlí 1950, d. 24.
mars 1951. 3) Steingrímur Þor-
steinsson, f. 27. des. 1951, d. 1.
júlí 2007. 4) Sigurður veð-
urfræðingur, f. 18. sept. 1953,
kvæntur Ingibjörgu Eiríks-
Móðir mín hefur nú kvatt
þennan heim. Það verður mikil
eftirsjá og eftir sitja endalausar
dýrmætar minningar. Uppvaxt-
arárin á stóru heimili og um-
hyggjan sem hún sýndi okkur
bræðrunum. Hún upplifði mikinn
missi en átti einnig margar
skemmtilegar stundir. Ung
missti hún þrjá bræður og eina
systur. Aðeins hún og Anna systir
hennar voru eftir. Þungbært fyrir
þær og foreldra þeirra. Þar að
auki missti hún nýfæddan son og
einkadóttur sína sem varð aðeins
níu mánaða gömul. Þetta skildi
djúp spor eftir í sálinni en hún
bugaðist aldrei. Róleg, tignarleg,
vel klædd og ól okkur upp á sinn
einstaka hátt. Þau pabbi voru ein-
stakir vinir og samvinna þeirra
mikil. Hún annaðist pabba af
sinni einstöku ósérhlífni þegar
hann veiktist. Aldrei mun ég
gleyma umhyggju þeirra og ein-
stakri umönnun sem þau sýndu
Bía bróður okkar sem féll frá
langt fyrir aldur fram.
Þau sameinuðu krafta sína í að
mennta Bía, kenna honum að lesa
og skrifa. Þá var ekki mikla hjálp
að fá en þau lögðu allt í sölurnar
til að hann fengi að njóta sín eins
og við hinir bræðurnir. Afmælis-
veisla Bía var stór partur af lífi
mömmu og hans. Margir gestir
komu og fram voru bornar stórar
kökur eða smáar, súkkulaði með
rjóma, gos og brauðtertur. Sól-
skinsbros var hjá þeim og allir
nutu samverunnar og nutu veit-
inganna í botn. Það var gefandi að
sjá ánægju beggja og ræður Bía
eru okkur minnisstæðar þegar
hann þakkaði mömmu fyrir sig.
Ást þeirra hvors til annars var hlý
og einstök. Bía tók hún heim til
sín flestar helgar meðan heilsa
entist. Þegar Bíi féll frá voru þau
ein saman í sumarhúsinu á Þing-
völlum. Þá fyrst sá ég mömmu
bogna en áfram hélt hún reisn
sinni.
Mamma naut þess að vinna við
hannyrðir og eftir hana liggur
einstök handavinna. Heimili
þeirra var glæsilegt, innan-
stokksmunir vel valdir og heim-
ilinu vel við haldið. Mamma var
félagi í Kófrím og naut samver-
unnar við félagana þar. Þangað
sótti hún fundi, fann vináttu og
sótti kraft og gleði. Margar
ánægjustundir voru með kófrím-
félögunum, ég þakka þeim vin-
áttu við hana.
Hún átti sinn sælureit í sum-
arhúsi þeirra í Grafningi í Þing-
vallasveit. Flestar helgar nutu
þau veðurblíðunnar og verunnar
þar. Ef frí var fóru þau þangað.
Foreldrar mínir höfðu einstaka
ánægju af að fara í leikhús, m.a.
Þjóðleikhúsið, og voru frumsýn-
ingargestir þar í rúm 30 ár.
Fjölskyldan var henni allt.
Mamma átti einstakan vinahóp
sem voru skólasystur úr Kvenna-
skólanum í Reykjavík. Rúm 50 ár
mættu þær saman mánaðarlega í
saumaklúbbinn og vinátta þeirra
einstök. Margt gerðist þar og
gleðin sem kom fram í andliti
mömmu er hún minnist á fundi
þeirra sagði allt sem segja þarf
um ánægjuna og vináttuna sem
þar ríkti. Þeim sem eftir lifa
þakka ég vináttu við móður okk-
ar. Börnin mín og barnabörn
minnast hennar og margar sögur
eru til um vináttu hennar og um-
hyggju við þau. Sælgæti var
ávallt vel falið heima en það
fannst strax og barnabörnin
komu.
Nú er þinni vist hér lokið og við
þökkum.
Hvíldu í friði elsku mamma.
Jón Bjarni Þorsteinsson.
Þegar ég sá Ingu Lillý, tengda-
móður mína, fyrst kom hún mér
fyrir sjónir sem fáguð kona, há og
grannvaxin. Ég minnist menning-
arferðar til Berlínar með Ingu
Lillý. Það var yndisleg ferð, farið
í óperuna að sjá Töfraflautuna og
á tónleika í fílharmoníuna og í
skoðunarferðir bæði akandi og
gangandi um borgina. Inga Lillý
notaði tímann í Berlín til að versla
smávegis, hún hafði fengið kon-
fekt, tösku og penna fyrir góð við-
skipti í einni versluninni og er við
komum klyfjaðar á hótelið sátu
nokkrar kerlur úr ferðahópnum
okkar í lobbíinu og gáfu okkur
tóninn. „Nú það var bara verið að
versla.“ Inga Lillý brást illa við
þessari athugasemd kvennanna
og gekk snúðug framhjá þeim og
sagðist ekki hafa verið að versla á
sjálfa sig.
Útlendingur einn sem var með
Ingu Lillý í matarboði hafði á orði
við mig að hún væri eins og
„aristocrat“, hann var með öðrum
orðum að hæla henni fyrir virðu-
legt útlit og framkomu, en hún
var mjög virðuleg í allri fram-
göngu og átti auðvelt með að
halda uppi samræðum á erlend-
um tungumálum.
Við fórum saman í leikhús, en
hún var með fasta miða í leikhús-
unum og bauð ættingja eða
venslamanni með sér. Við fengum
okkur þá smörrebröd og kaffi í
hléinu og höfðum það huggulegt.
Eitt sinn er ég keyrði Ingu Lillý
heim eftir leikhúsferð fór hún að
leita að einhverju í handtösku,
tekur upp gleraugu sem henni
fannst hún ekki kannast við og
spyr mig hneyksluð, kannast þú
við þessi gleraugu, já segi ég,
þetta eru mín gleraugu og þetta
er líka mitt veski sem þú hefur
verið að gramsa í. Guð minn góð-
ur segir hún þá, ég hélt að þetta
væri mitt veski, en þau voru eins
á litinn, síðan finnur hún sitt veski
og fer að leita í því, miklu sáttari á
svipinn. Við fengum svo mikið
hláturskast af þessu að það entist
alla leiðina heim til hennar á
Skúlagötuna. Hún minntist aftur
og aftur á vitleysuna í sér og við
hlógum aftur og aftur. Þetta atvik
sýnir manni svona eftir á að hún
hefur verið komin með alzheim-
ersjúkdóminn á byrjunarstigi.
Inga Lillý kom vikulega til
okkar í mat, en við fjölskyldan
höfum þann sið að borða saman
kvöldmat einu sinni í viku. Hún
var alltaf kát og skrafhreifin,
spurði langömmustrákana út í
námið þeirra og spjallaði við
gesti, en hún hafði gaman af að
spjalla. Hún hafði yndi af lang-
ömmubörnunum og hló þegar þau
gáfu henni knús og sagði þá í
gríni, hvað eruð þið að vilja með
gamalmenni eins og mig. En und-
anfarin tæp tvö ár hefur hún ekki
treyst sér í heimsóknir.
Út um gluggana á bjartri setu-
stofunni á Eir, þar sem Inga Lillý
dvaldi síðustu æviárin í góðu yf-
irlæti, sér til vesturs og norðurs,
Esjan, Akrafjallið, Skarðsheiðin
og Faxaflóinn. Inga Lillý mundi
ekki lengur hvað fjöllin hétu en
þekkti þau og hafði yndi af að
horfa á þau.
En undir það síðasta átti hún
ekki lengur minningar að ylja sér
við, aðeins minningabrot sem
komu og fóru jafnharðan aftur.
Minnir mig á vísu sem ég heyrði
einu sinni og hljóðar svo:
Það er að síga mók á mig,
mölur í lífsins sjóði,
heldurðu að þýddi að hnippa í þig,
himnafaðirinn góði.
Ingibjörg Eiríksdóttir.
Mig langar með nokkrum orð-
um að minnast tengdamóður
minnar.
Fyrstu kynni mín af Ingu Lillý
voru þegar þau hjónin buðu mér,
vinkonu elsta sonarins, til kvöld-
verðar. Ég lagði mig fram við að
falla þeim í geð og að vera kær-
astanum til sóma. Inga Lillý var
mjög formleg og við gáfum hvor
annarri hornauga, jafnvel smá
tortryggnar, á meðan Þorsteinn
reyndi að halda uppi fjörinu. Það
tók okkur nokkra kvöldverði og
nokkrar leikhúsferðir að kynnast,
en svo kom í ljós að við Inga Lillý
áttum ýmis sameiginleg áhuga-
mál og við tókum oft svipaða af-
stöðu til mála, hvort sem það voru
siðferðileg álitamál eða stefnur
og straumar í tísku og hönnun.
Inga Lillý var glæsileg kona,
með fágaða framkomu. Þorsteinn
maður hennar hafði gaman af að
gleðja hana og gaf henni skart-
gripi og falleg föt. Þau Þorsteinn
voru samtaka um að gera heimili
sitt fallegt, með vönduðum hús-
gögnum og listaverkum. Inga
Lillý hélt glæsileg matarboð fyrir
fjölskyldu og vini. Hún var fag-
urkeri og valdi aðeins það besta,
hvort sem það var til persónu-
legra nota, til heimilisins, fjöl-
skyldunnar eða gjafir handa öðr-
um.
Við Bjarni bjuggum erlendis í
nokkur ár, þá heimsóttu þau okk-
ur oft. Í slíkum heimsóknum og á
ferðalögum með þeim erlendis
var gjarnan farið að skoða antik
eða listmuni og þá duttum við oft
niður á spennandi hluti. Inga
Lillý og Þorsteinn ferðuðust allt-
af mikið, einkum um Evrópu og
seinna til að heimsækja syni sína í
Noregi, Svíþjóð og Bandaríkjun-
um. Henni fannst þó ferðirnar
orðnar heldur einhæfar og var
spenntari fyrir ferðum okkar
Bjarna á framanadi slóðir, en það
heillaði ekki Þorstein.
Málin þróuðust þannig að Inga
Lillý slóst stundum í hópinn með
okkur Bjarna og mömmu minni.
Við ferðuðumst fjögur saman og
sögðum að þetta væru ungu hjón-
in og tengdamæðurnar. Eftir-
minnilegust er ferð okkar til
Egyptalands fyrir 35 árum. Það
var mikil menningarveisla og
upplifun og mikið keypt af falleg-
um bómullarefnum og leðurvöru.
Egypsku kaupmennirnir töluðu
um unga ríka manninn sem átti
konurnar þrjár. Það fannst
„tengdamæðrunum“ mjög fyndið,
en Bjarna fannst það ömurlegt.
Á löngum kynnum mínum af
Ingu Lillý sá ég miklar breyting-
ar. Hún varð opnari, glaðari og af-
slappaðri með hverju árinu. Hver
hefði trúað því að Inga Lillý færi
að skellihlæja þegar litli hvolpur-
inn okkar pissaði á stofugólfið
hennar. Eða að hún hjálpaði
barnabörnunum að setja hurðar-
sprengjur um allt hús. Inga Lillý
átti að mörgu leyti erfiða ævi.
Hún mátti horfa á eftir systkinum
sínum falla í valinn hvert af öðru á
unga aldri. Sjálf missti hún tvö
ung börn og háði hetjulega bar-
áttu við að leita syni sínum lækn-
inga og veita honum lífshamingju.
Ég dáðist að hugprýði Ingu Lil-
lýjar í þessum erfiðleikum og
styrk hennar í veikindum Þor-
steins. Hún óx af hverri raun. En
Inga Lillý átti líka skemmtilega
og hamingjuríka ævi, yndislega
fjölskyldu, góða vini og fallegt líf.
Nú er komið að leiðarlokum
hjá Ingu Lillý. Ég þakka henni
samfylgdina og lærdómsrík
kynni. Ég votta fjölskyldu Ingu
Lillýjar innilega samúð mína.
Guðrún Björt Yngvadóttir.
Inga Lillý amma mín var af-
skaplega tignarleg kona og allt í
kringum hana var fallegt og vand-
að. Hún var dama fram í fingur-
góma og fannst mér alltaf eins og
hún væri aðalborin.
Þótt það væru mörg ár á milli
okkar og við að mörgu leyti mjög
ólíkar þá áttum við sameiginleg
áhugamál sem við sinntum sam-
an. Við fórum mikið saman í leik-
hús og til útlanda þar sem við
skoðuðum listasöfn og tískubúð-
ir. Við höfðum mjög ólíkan fata-
stíl sem er eðlilegt þegar fólk er
sitt af hvorri kynslóðinni en mér
fannst ég finna fallegustu fötin
þegar við amma fórum saman í
búðir. Hún var smekkleg kona og
kunni að hvetja mann á réttum
augnablikum. Í einni ferð okkar
þegar ég var um tvítugt og amma
um sjötugt gerðist nokkuð sem
ég hefði aldrei trúað, við féllum
fyrir sömu dragtinni. Amma fann
hana fyrst og var stórglæsileg í
henni. Þar sem dragtin var svo
falleg ákvað ég að máta hana líka
og viti menn, ég var stórfín líka.
Við ákváðum báðar að kaupa
dragtina en pössuðum að vera
aldrei í henni báðar á sama tíma.
Þrátt fyrir að ég hafi fengið mikið
hrós þegar ég klæddist dragtinni
þá segi ég satt að amma var enn
glæsilegri í henni. Þessi litla
minning fær mig alltaf til að
brosa.
Það er sárt þegar nákomnir
deyja en mér verður hlýtt í hjart-
anu við þá tilhugsun að nú sé
amma loksins komin til barna
sinna sem hún missti og til afa
sem hún elskaði svo mikið.
Ingibjörg Hanna
Bjarnadóttir.
Söknuður fortíðar, öryggi og
góðar minningar með afa og
ömmu í Sporðagrunni er það
fyrsta sem fer um huga minn
þegar ég kveð ömmu Ingu Lillý.
Það er ekki margt sem ég man
skýrt frá barnæsku. Amma var
þó dugleg að minna mig á tímann
sem hún passaði mig sem ung-
barn í Sporðagrunni. Mér þykir
vænt um þann tíma, þó að ég
muni ekki eftir honum því þá
myndaðist sterk tenging sem
okkur þótti afar vænt um. Á
grunnskólaaldri sótti ég mikið í
að heimsækja ömmu og afa
ásamt systur minni. Okkur þótti
sérstaklega mikið til þess koma
að fá að gista, enn betra að fara í
sumarhúsið með þeim.
Í heimsóknum okkar voru
nokkrir fastir liðir. Einn þeirra
var að semja við ömmu um að fá
sælgæti á kvöldin yfir sjónvarp-
inu. Hún tók alltaf vel í bón okkar
en passaði jafnframt að sykur-
skammturinn væri innan marka.
Sem unglingur fór minna fyrir
því að við gistum, en það tengdist
víst fyrst og fremst unglingsár-
unum. Afmæli Steingríms
frænda, boð á jóladag og áramót-
um, og önnur boð voru þá í sér-
legu uppáhaldi.
Í lok menntaskólans og byrjun
háskólanámsins fór ég að sækja í
ömmu í próflestri, kom fyrir að
ég gisti. Á þeim tíma sótti ég í ör-
yggi og ró sem hún hafði að
bjóða, og gómsætar kræsingar
öllum stundum sólarhringsins.
Eftir að dóttir mín fæddist áttaði
ég mig á því hversu mikill hafsjór
af fróðleik hún var varðandi börn
og hversu mikið hún fékk út úr
samveru með þeim. Það var því
afskaplega gaman að heimsækja
hana með þá stuttu, því báðar
voru þær himinlifandi hvor með
aðra.
Nú þegar ég kveð ömmu Ingu
Lillý verður mér hugsað til
hvernig samband okkar þróaðist,
sem spannar alla mína ævi en
bara brot úr hennar. Ég hugsa
einnig til þess hversu einlæg og
innileg hún var við mig, hversu
mikla hlýju hún veitti mér.
Hversu sterk hún var og óbuguð
eftir allar þær krefjandi aðstæð-
ur hún hafði tekist á við. Hversu
vel henni tókst til við að horfa
fram á við og njóta gleðistund-
anna. Þetta eru eiginleikar sem
mig langar til að gera að mínum.
Ég vil enda kveðju mína til
ömmu með hluta af fallegum
sálmi sem amma og afi sendu
okkur með inn í draumalandið í
æsku:
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Þorsteinn Yngvi Bjarnason.
Látin er í Reykjavík á 89. ald-
ursári kær systir okkar í Sam-
frímúrarareglunni – stúkunni
Emblu – Inga Lillý Bjarnadóttir.
Hún gekk inn í regluna 1. nóv-
ember 1966 og starfaði þar óslitið
þar til hún hætti fundarsókn
vegna aldurs og hrakandi heilsu
fyrir allmörgum árum.
Inga Lillý starfaði ötullega
fyrir regluna og gegndi fjölmörg-
um embættum á göngu sinni
meðal okkar. Hún sýndi mikla
þjónustulund í störfum sínum og
gekk glaðlynd og hjálpfús til allra
sinna verka. Mér er það minnis-
stætt hve hún fagnaði mér þegar
ég gekk til liðs við regluna í des-
ember 1985.
Inga Lillý þekkti foreldra
mína frá fornu fari og sýndi mér
einstakan hlýhug og traust í
störfum mínum á meðan hún
sótti fundi hjá okkur. Fyrir það
hef ég ætíð verið henni þakklát.
Mér hefur oft orðið hugsað til
þess, sérstaklega síðastliðin ár,
hversu aðstæður voru ólíkar í
þjóðfélaginu þegar Inga Lillý
gekk til liðs við Sam-frímúrara-
regluna. Mikil leynd hvíldi yfir
starfseminni og fáir vissu um til-
urð okkar. Leyndin var jafnvel
svo mikil að nánasta fjölskylda
vissi nær ekkert um starfið og
reglusystkin voru þögul um þátt-
töku sína þar. Slíkt hlýtur að hafa
kostað jafnvel enn meiri fórnir
fyrir systkinin en á þeim tímum
sem við nú lifum. Ég fann glöggt
að það var Ingu Lillý mikilvægt
að vera frímúrari og starfið var
henni það mikilvægt að hún var
reiðubúin að færa þá fórn að gefa
af tíma sínum, fjarri fjölskyldu,
til þess eins að fegra byggingar-
efni sitt í byggingu hins heilaga
musteris til dýrðar hinum hæsta
og fullkomnunar mannkyni.
Inga Lillý var sú síðasta af
kynslóðinni sem fædd var fyrir
1925 og starfaði í stúkunni
Emblu. Þær voru þrjár systur
sem höfðu starfað saman til
margra ára sem komu yfirleitt
saman á fundi og hættu reglu-
legri fundarsókn næstum á síma
tíma. Þegar þær komu í heim-
sókn til okkar var þeim fagnað
innilega og við hylltum „göml-
urnar okkar“. Nærvera þeirra
var okkur dýrmæt og við nutum
þess að hitta þær um stundar-
sakir. Nú eru þær allar horfnar
úr þessari jarðvist og við erum
þakklát fyrir að hafa starfað við
hlið þeirra og fengið að kynnast
þeim viðhorfum og aðstæðum
sem ríktu þegar þær gengu til
liðs við Sam-frímúrararegluna
fyrir margt löngu.
Þótt Inga Lillý hafi ekki getað
starfað með okkur um þónokkra
hríð er hennar saknað í reglunni
og við lútum höfði í virðingu og
þökk fyrir þjónustu hennar. Nú
þegar hún er horfin til hins eilífa
austurs, þangað sem við munum
öll hverfa að lokum, biðjum við
henni blessunar á nýrri vegferð í
ljóssins heimi. Aðstandendum
sendum við samúðarkveðjur og
biðjum hinn hæsta að blessa
minningu Ingu Lillýjar Bjarna-
dóttur.
F.h. St. Emblu,
Jóhanna E. Sveinsdóttir.
Inga Lillý
Bjarnadóttir
HINSTA KVEÐJA
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson.)
Jón Bjarni Emilsson
og Tómas Nói Emilsson.
Lokað
Lokað í dag mánudaginn 25. mars frá kl. 12.00 vegna
jarðarfarar MAGNÚSAR S. MAGNÚSSONAR.
Skúlason & Jónsson ehf.,
Skútuvogi 6, Reykjavík.