Morgunblaðið - 25.03.2013, Síða 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MARS 2013
Ætlar þú virkilega að minna fólk á hvað ég er gömul? Nei,þetta er svo sem ekkert leyndarmál. En það verður ekkerttilstand. Ég hef ekki haldið upp á afmælið mitt síðan ég var
tíu ára og stundum hef ég hreinlega gleymt því,“ segir Þórhildur Þor-
leifsdóttir leikstjóri sem er 68 ára í dag. „Annars er hefð fyrir því að
fjölskyldan; við Arnar Jónsson maðurinn minn, börn, tengdabörn og
barnabörn, hittumst á mánudagskvöldum og hópurinn telur vel á ann-
an tuginn. Erum þá með eitthvað einfalt á borðum, eins og grjóna-
graut. Ef til vill verð ég ósínkari á rúsínurnar í tilefni dagsins.“
Leiklistin gengur eins og rauður þráður í gegnum líf og starf Þór-
hildar, sem hefur sjálf verið á sviðinu, leikstýrt og starfað sem leik-
hússtjóri. Þá sat hún á Alþingi frá 1987 til 1991 sem þingmaður Sam-
taka um kvennalista. Og nú hefur hún stigið aftur inn á hið pólitíska
svið og skipar efsta sætið á lista Lýðræðisvaktarinnar í Reykjavík-
urkjördæmi suður í komandi alþingiskosningum.
„Ég bý í norðurkjördæminu eins og allt mitt fólk og get því ekki
kosið sjálfa mig,“ segir Þórhildur. „Mér finnst hins vegar ómögulegt
annað en svara kalli samviskunnar, gefa kost á mér í þetta verkefni
og fylgja þar með starfi okkar í stjórnlagaráði. Þjóðin sjálf hlýtur að
mega ráða örlögum sínum og vera í aðalhlutverki, en ekki bara leik-
soppur sterkari afla.“ sbs@mbl.is
Þórhildur Þorleifsdóttir er 68 ára í dag
Morgunblaðið/Eggert
Leikstjórinn „Verð ósínkari á rúsínurnar í grjónagrautinn í tilefni
afmælisins,“ segir Þórhildur Þorleifsdóttir, nú frambjóðandi.
Þjóðin verði sjálf í
aðalhlutverkinu
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Akureyri Berglind Ylfa fæddist á FSA
19. júní kl 16.27. Hún vó 4.380 g og var
55 cm löng. Foreldrar hennar eru Ingi-
björg Ósk Víkingsdóttir og og Árni
Snær Brynjólfsson.
Nýir borgarar
Hafnarfjörður Jens Sævar fæddist
22. júní kl. 4.03. Hann vó 4.960 g og
var 54 cm langur. Foreldrar hans eru
Sveinborg Petrína Jensdóttir og Ólaf-
ur Ómarsson.
T
ómas Ragnar fæddist á
Blönduósi 25.3. 1953 og
ólst þar upp. Hann lauk
stúdentsprófi frá MH
1974, var í spænskunámi
við Háskólann í Barcelona 1975-76 og
í ítölskunámi víð Útlendingaháskól-
ann í Perugia 1978, lauk BA-prófi í
sagnfræði og spænsku frá HÍ 1980,
stundaði nám í bassaleik hjá Jóni Sig-
urðssyni við Tónlistarskóla FÍH
1980-83 og hjá Johan Poulsen í Kaup-
mannahöfn 1983-84.
Tómas hefur verið meðlimur í
Jazzkvartett Reykjavíkur sem kom
víða fram á fyrri helmingi tíunda ára-
tugarins, á Norðurlöndunum, í
Þýskalandi, Skotlandi og Englandi
þar sem sveitin lék m.a. í viku á Ron-
nie Scott-klúbbnum í London.
Tómas var auk þess bassaleikari í
Tríói Ólafs Stephensen sem sendi frá
sér þrjá geisladiska á tíunda áratugn-
Tómas R. Einarsson, tónskáld og bassaleikari – 60 ára
Morgunblaðið/Golli
Gleðistemming Tómas R., Mugison og Ragnheiður Gröndal á tónleikum í Iðnó í tilefni af útkomu plötunnar Trúnó.
Bassaleikari, tónskáld
og meistari í latíndjassi
Tveir góðir Tómas og Ómar Guðjónsson í einni af sínum mörgum sveiflum.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
TRAUS
T
OG GÓ
Ð
ÞJÓNU
STA
Í 16 ÁR
HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA: 9:30-18, LAUGARDAGA: 11-14
Verið velkomin
MIKIÐ ÚRVAL.
SJÓNMÆLINGAR
Á STAÐNUM.
FRÁBÆRT TILBOÐ Á
LES-,TÖLVU- OG FJAR-
LÆGÐARGLERAUGUM.
VERÐ FRÁ 18.900,
UMGJÖRÐ OG GLER.