Morgunblaðið - 25.03.2013, Blaðsíða 31
um og kom víða fram, s.s. á Græn-
landi, í Kanada, Bandaríkjunum,
Argentínu, Malasíu, Taílandi og Síle.
Tómas hefur leikið með flestum
helstu djassleikurum hér á landi og
fjölda heimsþekktra djassleikara, s.s.
Chet Baker, Kenny Drew, Ernie
Wilkins, Ted Daniel, John Tchicai,
Doug Raney, Bent Jaedig, Richard
Boone, Jesper Thilo, Tommy Smith,
Mark Levine, Guy Barker og Charles
McPherson.
Plötur með lögum Tómasar
Fyrsta tónverk Tómasar sem var
hljóðritað er að finna á plötunni
Kvölda tekur frá 1982, með Nýja
kompaníinu, hljómsveit ungra djass-
ista sem léku eigin tónlist. Hann
samdi auk þess flest lögin á plötunni
Þessi ófétis jazz frá 1985, og hefur
síðan verið afkastamikið tónskáld við
stöðugt vaxandi vinsældir, hér á landi
og víða um heim. Helstu plötur með
lögum Tómasar eru Þessi ófétis jazz,
1985; Hinsegin blús, 1987; Nýr tónn,
1989; Íslandsför, 1991; Landsýn,
1994; Koss, 1995; Á góðum degi, 1998;
Í draumum var þetta helst, 2000;
Undir 4, 2000; Kúbanska, 2002; Ha-
vana, 2003; Havana, 2004; Dance you
idiot! 2004; Let Jazz be bestowed on
the Huts (Blánótt) 2005; Romm
tomm tomm, 2007; Rommtomm-
techno, 2007; Trúnó, 2008; Live, 2009;
Reykjavík – Havana, 2009; Early
Latin, 2011 (útgefin starfrænt);
Strengur, 2011, og Laxness, 2012.
Breiðskífa Tómasar, Havana, hlaut
tvenn verðlaun á Íslensku tónlist-
arverðlaununum árið 2003. Árið 2004
flutti stórsveitin Jagúar tónlist hans í
útsetningu og undir stjórn Samúels J.
Samúelssonar á tvennum tónleikum á
Listahátíð í Reykjavík. Hljóðritun frá
þeim tónleikum, platan Dansaðu fíflið
þitt, dansaðu!, hlaut öll þrenn verð-
launin í djassflokki Íslensku
tónlistarverðlaunanna árið 2004. Þá
fékk Tómas verðlaun nú um daginn á
ÍTV fyrir djassverk ársins 2012, lagið
Bjart af plötunni Laxness.
Tómas gaf út fyrstu nótnabók ís-
lensks djassmanns, Djassbiblíu Tóm-
asar R., haustið 2005, sem inniheldur
80 laga úrval af tónlist hans.
Tómas hefur samið tónlist fyrir
kvikmyndir og sjónvarpsþætti auk
þess sem hann var stjórnandi og
handritshöfundur að heimildarmynd
um Guðberg Bergsson rithöfund.
Hann gerði einnig tónlist við heimild-
armynd Halldórs Þorgeirssonar um
Halldór Laxness.
Þá hefur Tómas þýtt ýmis bók-
menntaverk, einkum úr spænsku og
þ.á m. eftir suðurameríska höfunda,
s.s. Isabel Allende, Gabriel García
Márquez, Julio Cortázar og Luis Se-
púlveda.
Fjölskylda
Eiginkona Tómasar er Ásta Svav-
arsdóttir, f. 19.1. 1955, orðabókarit-
stjóri. Hún er dóttir Ásu Kristins-
dóttur, f. 7.1. 1932, d. 11.7. 2011,
húsfreyju, og Svavars Björnssonar, f.
20.3. 1932, fyrrv. kaupmanns.
Dætur Tómasar og Ástu eru Krist-
ín Svava, f. 20.11. 1985; Ástríður, f.
6.10. 1989, lést af slysförum 11.7.
2010, og Ása Bergný, f. 28.4. 1997.
Systir Tómasar er Ingibjörg Krist-
rún Einarsdóttir, f. 20.10. 1955.
Foreldrar Tómasar eru Kristín
Bergmann Tómasdóttir, f. 12.8. 1926,
fyrrv. kennari, og Einar Krist-
jánsson, f. 15.8. 1917, fyrrv. skóla-
stjóri.
Úr frændgarði Tómasar R. Einarssonar
Tómas R.
Einarsson
Kristín Jónsdóttir
húsfr. á Bakka, frá Jarðbrú
Vilhjámur Einarsson
b. á Bakka í Svarfaðardal
Ingibjörg Vilhjálmsdóttir
húsfr.
Tómas Ragnar Jónsson
fulltr. hjá Kaupf. Húnvetninga
Kristín Bergmann Tómasdóttir
fyrrv. kennari
Guðný Kristín
Guðmundsdóttir
húsfr. í Króki
Jón B. Tómasson
b. í Króki á Skagaströnd
Guðrún Ormsdóttir
húsfreyja á Þiðriksstöðum,
af Ormsætt
Magnús Guðmundsson
b. á Þiðriksstöðum í Tungusveit
Kristrún Magnúsdóttir
húsfr. á Hríshóli
Kristján Jens Einarsson
b. á Hríshóli í Reykhólasveit
Einar Kristjánsson
fyrrv. skólastj. Laugaskóla í Dölum
Halldóra Þórðardóttir
húsfreyja á Kýrunnarstöðum
Einar Einarsson
b. á Kýrunnarstöðum í Hvammssveit
Tómas R Einarsson Bassaleikari,
tónskáld og rithöfundur.
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MARS 2013
Páll Steingrímsson ritstjórifæddist á Flögu í Vatnsdal25.3. 1879. Hann var sonur
Steingríms Jónatanssonar, bónda á
Njálsstöðum á Skagaströnd og Guð-
rúnar Friðriksdóttur Schram. Meðal
systkina Páls voru Magnús, bóndi á
Bergsstöðum, faðir Páls Valdimars,
bónda að Vindhæli. Steingrímur var
bróðir Þorgríms, afa þeirra systkina,
Önnu Sigurðardóttur, forstöðu-
manns Kvennasögusafnsins, Þor-
gríms, prófasts á Staðastað, Ásbergs
borgarfógeta og Valborgar, skóla-
stjóra Fóstruskólans, móður Stefáns
Snævarr heimspekiprófessors og
Sigríðar Snævarr sendiherra. Annar
bróðir Steingríms var Davíð, afi
Brynleifs Steingrímssonar læknis,
og afi Ingibjargar, móður Davíðs
Oddssonar Morgunblaðsritstjóra.
Móðir Guðrúnar var Margrét Stef-
ánsdóttir, frá Hofi í Vatnsdal, amma
Árna Pálssonar prófessors.
Eiginkona Páls var Guðrún leik-
kona, dóttir Indriða Einarssonar,
rithöfundar og skrifstofustjóra í
Reykjavík, og Mörthu Maríu Guð-
johnsen. Börn Páls og Guðrúnar
voru Hersteinn, ritstjóri Vísis í rúma
tvo áratugi, fréttaritari UPI-
fréttastofunnar og New York Times
og afar afkastamikill þýðandi, og
Katla, eiginkona Harðar Bjarnason-
ar húsameistara.
Páll útskrifaðist frá gagnfræða-
skólanum á Möðruvöllum 1896.
Hann var fulltrúi í póststofunni í
Reykjavík 1902-24 og ritstjóri og
meðeigandi dagblaðsins Vísis 1924-
38. Eftir það lét hann málefni Dýra-
verndunarfélags Íslands mjög til sín
taka og var m.a. ritstjóri Dýravernd-
arans. Þá sat hann í niðurjöfnunar-
nefnd útsvara og í útvarpsráði um
skeið.
Páll samdi smásögur og leikrit en
gaf fæst að því út. Hann þótti afar
ritsnjall, var víðlesinn og vel að sér
um þjóðfélagsmál og gat verið napur
í gagnrýni sinni, var almennt mál-
svari þeirra er minna mega sín og
hafði lítið þolgæði gagnvart snobbi
og öðrum félagslegum hégóma.
Páll var lengi heilsuveill en hann
lést 22.8. 1947.
Merkir Íslendingar
Páll Stein-
grímsson
90 ára
Katrín Elíasdóttir
85 ára
Ása Leósdóttir
Guðrún Egilsdóttir
Kolbrún Bjarnadóttir
Sigurður Kristjánsson
Sigurður Magnússon
80 ára
Bergsveinn Þórður
Árnason
Björn B. Kristjánsson
Elín S. Jónsdóttir
Ingvar Kjartansson
75 ára
Elín Guðnadóttir
Gylfi Jónsson
Jökull Arngeir
Guðmundsson
Kristín Guðbjartsdóttir
Sigfús Björnsson
Skúli Sigurðsson
Svanberg Jóhann
Þórðarson
70 ára
Guðlaug Valdís
Kristjánsdóttir
Róbert Jörgensen
Róbert Þorláksson
60 ára
Agnes Jóhannsdóttir
Bjarni Hákonar Traustason
Einar Friðrik Snæbjörnsson
Guðrún Júlíusdóttir
Guðrún Sæmundsdóttir
Jónína Guðmundsdóttir
Jón Valdimar Aðalsteinsson
Maria Ólason
Sigrún Siggeirsdóttir
Sveinn Ástvaldsson
50 ára
Alma Genutiené
Ágústa Hjartar
Ástráðsdóttir
Davíð Guðmundsson
Ester Fríða Ágústsdóttir
Ewa Tutaj
Haukur Hilmarsson
Herdís Haraldsdóttir
Íris Jónsdóttir
Kristín Ármannsdóttir
Linda Ósk Sigurðardóttir
Rita Sirutiene
Sigurður Sigurðsson
Sævar Sigurðsson
40 ára
Abdellatif Souni
Ásrún Óladóttir
Kristín Ólöf Þorvarðardóttir
Kristján Adolf Marinósson
Krystyna Joanna
Laczynska
30 ára
Barbara Wiktoria Duda
Birgir Örn Sigurðsson
Davíð Kristján
Guðmundsson
Díana Espersen
Hanný Inga Birschbach
Kristín Ólöf Grétarsdóttir
Lydía Ósk Ómarsdóttir
Nzar Rauf Abdullah
Pétur Stephensen
Steinþór Jenni Sigurðsson
Til hamingju með daginn
30 ára Róbert Árni lauk
BS-prófi í íþróttafræði frá
Laugarvatni og rekur
Hlölla uppi á Höfða.
Maki: Fríða Hrund Krist-
insdóttir, f. 1982, íþrótta-
fræðingur.
Synir: Róbert Maron, f.
2009, og Elmar Alexand-
er, f. 2011.
Foreldrar: Róbert Jörg-
ensen, f. 1951, fyrrv. fram-
kvæmdastj., og Erla Dag-
mar Lárusdóttir, f. 1952,
útibússtjóri ÁTVR.
Róbert Árni
Jörgensen
30 ára Anna ólst upp i
Skaftártungu og er nú
húsfreyja í Þorlákshöfn.
Maki: Helgi Gunnarsson,
f. 1983, bifvélavirki.
Synir: Birgir Logi, f. 2001;
Eiríkur Gunnar, f. 2007,
og Helgi Þorsteinn, f.
2011.
Foreldrar: Árni Hilmar
Jóhannesson, f. 1932, og
Hildigunnur Jóhann-
esdóttir, f. 1945, fyrrv.
bændur á Snæbýli í Skaft-
ártungu.
Anna S.
Árnadóttir
30 ára Helena Marta er
skógvistfræðingur frá
Landbúnaðarháskóla Ís-
lands og hefur sinnt þar
rannsóknarstörfum.
Maki: Teitur Birgisson, f.
1985, verkfræðingur.
Dóttir: Brynhildur Björk,
f. 2012.
Foreldrar: Margrét Guð-
brandsdóttir, f. 1957,
grunnskólakennari og
Stefán Bjarnason, f. 1955,
mannauðsstjóri hjá Sel-
tjarnarnesbæ.
Helena Marta
Stefánsdóttir
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Fix Töframassinn
Hreinsar, fægir og verndar samtímis
Húsasmiðjan - Byko - Fjarðarkaup - Melabúðin - Verkfæralagerinn - Pottar og prik Akureyri
Miðstöðin Vestmannaeyjum - Rafsjá Sauðárkróki - Áfangar Keflavík - Skipavík Stykkishólmi
Nesbakki Neskaupsstað - Vélaleiga Húsavíkur - Byggt og búið - SR byggingavörur Siglufirði
Óskaþrif Hólmavík - Heildsöludreifing: Ræstivörur ehf
Hentar vel til þrifa á blöndunartækjum, vöskum, ryðfríu stáli, áli, kopar,
messing, gleri, plasti, lökkuðum flötum, kristal, keramiki, postulíni o.fl.
Svampur
fylgir með
- Fitu- og kýsilleysandi
- Húðvænt
- Náttúrulegt
- Mjög drjúgt