Morgunblaðið - 27.04.2013, Side 1
Stofnað 1913 97. tölublað 101. árgangur
L A U G A R D A G U R 2 7. A P R Í L 2 0 1 3
SIGRUÐU Í
SAMKEPPNI Í
ÞÝSKALANDI
ALLTAF
Á LEIÐINNI
HEIM
STÁLIÐ HEFUR
BETUR Á MÓTI
SPÁNVERJUM
SUNNUDAGUR ÞÝSKUR IÐNAÐUR 30LANGUR BORÐI 54
Á 10 ára tímabili eru um 500 íslensk
heimili blessuð vegna þess að íbúar
telja sig upplifa óþægileg og óút-
skýranleg atvik heima fyrir. Má þar
nefna einkennileg hljóð, tilfinningu
fyrir nærveru einhvers sem ekki sést
og jafnvel hreyfingu húsgagna.
Svokölluð húsblessun er hluti af
þjónustu presta og er veitt við ýmiss
konar hefðbundin tækifæri en er
þess utan veitt um einu sinni í viku
þegar fólki finnst einhvers konar
óværa sækja að heimili sínu.
Þeir 90 prestar sem Sunnudags-
blað Morgunblaðsins hafði samband
við voru á einu máli um að það væri
ekki þeirra að dæma og langflestir
höfðu þá reynslu að eftir einfalda
bænastund heima fyrir liði fólki bet-
ur. Prestar segja að mjög oft sé alls
ekki hægt að finna neitt í sálarlífi eða
aðstæðum fólks sem geti orðið til
þess að það upplifi ógnir í vöku, sof-
andi og oft milli svefns og vöku.
Óttaslegnir
íbúar leita
blessunar
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
„Þetta er svosem ekkert einsdæmi – en þetta
er með meira móti þessi síðari ár,“ segir
Trausti Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu
Íslands, um snjóalög á norðanverðu landinu.
Mikill snjór er víða á Norðurlandi þessi dægr-
in og fátt sem bendir til þess að hann taki upp
á næstu dögum miðað við veðurspá.
Bændur á svæðinu hafa allvíða þurft að gefa
búfé sínu hey síðan í október þannig að hey-
leysi blasir víða við. Þótt húspláss sé víða rúmt
gætu margir lent í vandræðum ef ekki verður
hægt að setja lambfé út í byrjun maí og enn
meiri vandræðum með hey ef gefa þarf fénu
langt fram í maí.
„Fram til síðustu mánaðamóta þurfti maður
að fara nokkurn veginn aftur til 1999 og
kannski aftur til 1995. Það var mjög slæmt og
mjög mikill snjór þá og miklu víðar um landið
en núna. Hins vegar hafa á síðustu árum kom-
ið mjög leiðinleg hret á vorin – en það hefur þá
verið betra áður,“ segir Trausti og bætir við
að á sunnanverðu landinu muni hann vart eftir
minni sköflum en voru fyrir um tíu dögum og
nýfallinn snjóinn taki fljótt upp sunnantil.
„Það er annað um norðanvert landið og þá
eru norðanverðir Vestfirðir undir líka. Það
hefur verið töluverður snjór þar og eins aust-
an Skagafjarðar,“ segir hann.
Það má segja að gæðunum sé misskipt á
milli svæða á Norðurlandi því í Eyjafjarð-
arsveit er lítill snjór og frost að verða farið úr
jörðu á meðan snjórinn í Skíðadal inn af
Svarfaðardal er frá einum og upp í þrjá metra
í túnum og upp undir fimm metra við hús. Í
Aðaldal er mikill snjór og óvíst að hægt verði
að bíða eftir snjóleysi áður en lambfé er sett
út. »20
Svipaður snjór og var árið 1995
Mikill snjór víða um norðanvert landið Bændur gætu lent í vandræðum með húspláss á sauðburði
Heyleysi blasir við á nokkrum bæjum Fátt bendir til að snjó fari að taka upp miðað við veðurspána
Ljósmynd/Jón Þórarinsson
Snjór Bændur í Skíðadal og víðar norðantil
búa við mikinn snjó nú í upphafi sauðburðar.
Kosningabaráttunni er nú lokið og ganga lands-
menn að kjörborðinu í dag til þess að velja þá
flokka sem þeir treysta til að stjórna landinu
næstu fjögur árin. Framsóknarflokkurinn mæld-
ist lengi vel stærstur í skoðanakönnunum en síð-
ustu rúmu vikuna hafa komið fram vísbendingar
um að Sjálfstæðisflokkurinn sé kominn með
naumt forskot. Allt stefnir í afhroð hjá stjórn-
arflokkunum en fylgi Vinstri grænna hefur þó
þokast upp á við á lokasprettinum.
Útlit er fyrir að veður geri kjósendum erfitt
fyrir sums staðar en Vegagerðin hvetur kjós-
endur á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi til
að kjósa með fyrra fallinu þar sem óvíst sé með
færð og veður seint í kvöld. Á Vestfjörðum hefur
umdæmiskjörstjórn verið skipuð til þess að telja
atkvæði ef ófært verður frá Vestfjörðum til
Borgarness þar sem atkvæði fyrir Norðvest-
urkjördæmi eru annars talin.
Á myndinni má sjá fulltrúa kjörstjórnar sækja
kjörkassa með síðustu utankjörfundaratkvæð-
unum í Laugardalshöll seint í gærkvöldi. Rúm-
lega þrjátíu þúsund manns hafa þegar greitt at-
kvæði með þeim hætti. »2, 4, 6, 24 og 30.
Morgunblaðið/Kristinn
Landsmenn ganga að kjörborðinu
Kosið til Alþingis í 21. skipti frá stofnun lýðveldisins í dag
Kjósendur á Vestfjörðum og fyrir norðan og austan hvattir til að kjósa
snemma vegna veðurs Mikill fjöldi hefur greitt atkvæði utan kjörfundar
Talsverð hætta
er á að hagvöxtur
á árinu verði undir
1%. Þetta sýnir
leiðandi hagvísir
Analytica sem veit-
ir sýn á hagþróun
næstu sex til níu
mánuði og er nú í
fyrsta sinn birtur
fyrir Ísland.
Yngvi Harðarson, hagfræðingur
og framkvæmdastjóri Analytica,
segir að vísitalan styðji við vísbend-
ingar á umliðnum mánuðum um að
farið sé að draga verulega úr efna-
hagsumsvifum – ekki síst einka-
neyslu. Án fjölgunar ferðamanna
myndi samdráttur blasa við. »26
Hagvöxtur verði
undir 1%
Yngvi Harðarson
Spáð er vonskuveðri á sunnudag á Norður-
og Austurlandi, samkvæmt upplýsingum
frá Veðurstofunni. Veðrið byrjar að ganga
niður á sunnudagskvöld en hvasst verður
áfram fyrir austan til þriðjudags.
Talsvert frost verður á nóttunni um allt
land í vikunni. Kaldast verður á Norðaust-
urlandi aðfaranætur þriðjudags, miðviku-
dags og fimmtudags og fer niður í 15
gráðu frost við Mývatn aðfaranótt mið-
vikudags en algengt að frostið verði um
10 gráður. Um næstu helgi á að hlýna á ný
með úrkomu, rigningu eða slyddu.
Kuldi í kortunum
VEÐURSPÁIN NÆSTU DAGA