Morgunblaðið - 27.04.2013, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2013
við elskum skó
VELKOMINN Í BATA SMÁRALIND
Skoðið úrvalið á bata.is
Vertu vinur á
Skór
21.490,-
þrír litir
Skór
13.490,-
þrír litir
Töskur 7.990,- stk.
Skór
7.990,-
þrír litir
Skór
15.990,-
tveir litir
Skór
10.990,-
Um tugur íslenskra skipa var í gær
að kolmunnaveiðum suður af Fær-
eyjum, ásamt færeyskum og rúss-
neskum skipum. Ágætur afli hefur
fengist eftir bræluna sem gerði á
miðunum fyrr í vikunni, gjarnan
200 og upp í 500 tonn í hali.
Íslensku skipin mega alls veiða
rúmlega 100 þúsund tonn af kol-
munna í ár og er það veruleg aukn-
ing frá síðasta ári. aij@mbl.is
Ágætur kolmunna-
afli við Færeyjar
Kolmunni Beitir var meðal skipa á mið-
unum suður af Færeyjum í gær.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Humarvertíðin hefur farið ágæt-
lega af stað, en veiðar máttu byrja
15. mars. Verð fyrir heilan humar
hefur hins vegar lækkað talsvert
frá því í fyrra eða um 15-20%, að
sögn Jóns Páls Kristóferssonar,
rekstrarstjóra Ramma í Þorláks-
höfn. „Vonandi er þetta einhver
botn, sem okkur tekst að byggja
ofan á þegar líður á sumarið,“
segir Jón Páll.
Rammi er með Jón á Hofi ÁR
og Fróða ÁR á humarveiðum og
hefur afli verið ágætur í aprílmán-
uði, en skipin byrjuðu eftir páska.
Jón Páll segir að til þessa hafi
vertíðin verið í ágætu meðallagi
og oft fáist góður afli fyrstu vik-
urnar, en veður hafi þó aðeins sett
strik í reikninginn.
Fólki fjölgað á humarvertíð
Fastur kjarni í fiskvinnslunni
hjá Ramma í Þorlákshöfn er um
35 manns, en með humarvertíð-
inni fór fjöldinn yfir 40. Enn verð-
ur fjölgað í sumar um rúmlega tíu
manns þegar framhaldsskólunum
lýkur.
„Áherslan í vinnslunni er á
heila humarinn og hann hefur
mest verið fluttur til Spánar,“
segir Jón Páll. „Efnhagasástandið
þar hefur ekki komið mikið við
okkur þar til nú í ár að verðið hef-
ur farið talsvert niður. Það er
reyndar oft þannig í upphafi ver-
tíðar að það tekur tíma að finna
rétta verðið og vonandi á það eftir
að hækka. Það flækir líka stöðuna
að stóri humarinn er mest seldur
fyrir jólin og erlendu fyrirtækin
hafa ekki tök á því lengur að
kaupa inn í maí og selja síðan
seint á haustin.“
Rammi hefur leitað fyrir sér
með sölu á heilum humri víðar og
hafa þær tilraunir gengið ágæt-
lega. Meðal annars hefur heill
humar verið sendur ferskur með
flugi til Frakklands, Hollands og
Belgíu.
Aukin eftirspurn eftir
humarhölum
Meðan heili humarinn hefur gef-
ið eftir hefur eftirspurn aukist eft-
ir humarhölum eða slitnum humri
á öllum mörkuðum og segist Jón
Páll gera sér vonir um verðhækk-
anir. Rammi selur humarhala
einkum til Kanada og á heima-
markað, en einnig í nokkrum mæli
inn á Evrópumarkað.
Góð byrjun á humarvertíð
en 15-20% verðlækkun
Efnahagsástandið á Spáni hefur áhrif á verðið Markaða leitað víðar
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Mörg handtök í humrinum Fólki í vinnslunni hjá Ramma í Þorlákshöfn er fjölgað þegar humarvertíðin hefst og
verða yfir 50 manns þar í vinnu í sumar við vinnslu á bolfiski, humri og makríl.
Veturinn er orðinn langur að mati
margra og miðað við veðurspár
virðist ekkert lát á þó komið sé
sumar á almanakinu. Sigurður
Guðjónsson veðursagnfræðingur
benti þó á í bloggi sínu á þriðjudag
að aprílhitinn í Reykjavík væri að-
eins 0,5 stig undir meðallagi og frá
1949 hafi tuttugu sinnum verið
kaldara í apríl í Reykjavík fyrstu 23
dagana, síðast árið 2006.
Á Akureyri er meðalahitinn nú
-0,2 stig eða 1,3 stig undir með-
allagi. „Það er samt ekkert óskap-
legt miðað við það sem alloft ger-
ist,“ skrifar Sigurður.
Og ennfremur: „Eins og menn
ættu að vita var veturinn af-
skaplega mildur, einkum þó sunn-
anlands en hann var líka mildur
annars staðar. Líka fyrir norðan.
Hins vegar hefur sú öfugþróun orð-
ið að kaldara hefur verið í mars og
það sem af er apríl en í janúar og
febrúar en þeir mánuðir voru sjald-
gæflega hlýir.“
Sigurður bendir á að sums staðar
fyrir norðan hafi snjór komið
snemma og hafi ekki náð að leysa,
en bætt hafi í hann. „Ekki geri ég
lítið úr erfiðleikum bænda á þeim
svæðum þar sem snjóþyngsli eru
mest. En það er varla hægt að segja
almennt að harðindi ríki eða hafi
ríkt á landinu eða að vorið sé eitt-
hvað verulega afbrigðilega á eftir
tímanum,“ skrifar Sigurður.
aij@mbl.is
Morgunblaðið/Rósa Braga
Snjór Aðeins tveir dagar í apríl hafa verið alhvítir í Reykjavík.
Vorið ekki afbrigði-
lega á eftir tímanum
Eftirlitsmenn Fiskistofu hafa
fylgst með grásleppuveiðum frá
því vertíðin hófst og róið með bát-
um víðsvegar á landinu. Nokkuð
var um að hlutfall meðafla væri
hærra í þeim veiðiferðum þar sem
eftirlitsmaður var með í för en í
veiðiferðum án eftirlitsmanns,
segir á vef Fiskistofu.
Hjá nokkrum bátum gætti mik-
ils misræmis þar sem óverulegum
eða jafnvel engum meðafla var
landað úr fjölda veiðiferða áður
en eftirlitsmaður fór með í róður.
Meðafli reyndist nema hundr-
uðum kílóa þegar eftirlitsmaður
var um borð. Einkum munaði þar
miklu um þorsk. Hjá einum bát
var engum meðafla landað í alls
fjórtán veiðiferðum sem farnar
voru án eftirlitsmanns en tæpu
einu og hálfu tonni af meðafla
landað, mest þorski, úr þremur
veiðiferðum þar sem eftirlits-
maður var með í för.
Fiskistofa minnir skipstjóra á
að koma með allan afla að landi
og ítrekar að alvarleg viðurlög og
refsingar eru við brottkasti.
aij@mbl.is
Meiri meðafli á grá-
sleppu þegar eftir-
litsmaður var með
Þrjú fyrirtæki eru með mestan
kvóta í humrinum; Skinney-
Þinganes á Hornafirði, Rammi og
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum.
Veiðitímabilið hefur lengst á síð-
ustu árum og í stað þess að veiða
humar aðeins yfir hásumarið, eða
frá 15. maí til ágústloka, má nú
veiða humar frá miðjum marz og
út nóvember. Lónsdýpi er austasta
veiðisvæðið og Jökuldýpi það vest-
asta, en nefna má að síðustu ár
hefur frést af stöku humri í Ísa-
fjarðardjúpi.
Þrjú fyrirtæki stærst
VEIÐITÍMABILIÐ HEFUR LENGST Á SÍÐUSTU ÁRUM