Morgunblaðið - 27.04.2013, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 27.04.2013, Blaðsíða 25
FRÉTTIR 25Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2013 Tilboðsvörur á frábæru verði 70%afsláttur allt að af völdum vörum og sýningareintökum Borðstofustólar frá 7.900 kr Heilsukoddar 2.900 kr Borðstofuborð frá 40.000 Höfðagaflar frá 5.000 Sjónvarpsskápar frá 25.000 Rúm 153cm frá 157.000 Speglar frá 5.000 Fjarstýringavasar frá 2.500 Hægindastólar frá 99.000 Tungusófar frá75.400 Hornsófar frá 139.900 Sófasett frá 99.900 AquaClean áklæði kynningarafslátturAquaClean áklæði er sérstaklegaauðvelt að hreinsa aðeins með vatni! H Ú S G Ö G N Hornsófar - Tungusófar - Sófasett Sófasett - Hornsófar - Tungusófar Tungusófar - Sófasett - Hornsófar Tungusófar - Sófasett - Hornsófar Verslun okkar er opin: Virka daga kl.9-18 Laugardaga kl.11-16 Sunnudaga lokað Patti verslun I Dugguvogi 2 I Sími: 557 9510 I vefsíðawww.patti.is Nýtt Torino Mósel Milano Basel Paris ÚR BÆJARLÍFINU Guðrún Vala Elísdóttir Borgarnes Sumardagurinn fyrsti rann upp, hvorki bjartur né fagur en síð- degis fór sólin að skína. Við sem er- um aðdáendur Hafnarfjallsins bíð- um eftir því að snjórinn þar bráðni svo hægt verði að feta upp hlíðar þess án þess að eiga á hættu að renna til í krapi og slabbi. Fjallið fagra er ennþá hvítt niður í miðjar hlíðar en hækkandi sól lofar góðu.    Vorsýning Dansskóla Evu Karenar var haldin um liðna helgi í Hjálmakletti fyrir fullu húsi. Þar sýndu nemendur á öllum aldri ým- iss konar dansa og var gaman að sjá allt þetta hæfileikafólk. Dans- inn er farinn að festa sig í sessi sem ein af ímyndum héraðsins og marg- ir nemendur hafa náð góðum ár- angri á mótum hér heima sem er- lendis. Sem dæmi voru tvö pör út skólanum valin til að keppa í lands- liðakeppi í Blackpool sem fór fram um páskana.    Því miður er það svo að núver- andi rekstur skólans nær ekki að standa undir sér og ræður þar mestu um há húsaleiga fyrir aðstöðuna í Hjálmakletti til Borgarbyggðar. Eva Karen hefur því ákveðið að leggja niður dansskólann frá og með 1. júlí n.k. en þar sem skólinn hefur verið rekinn sem einkafyrirtæki þá nýtur hann ekki sömu aðstöðu og önnur íþróttafélög í Borgarfirði, t.d. eins og þau sem nýta sér aðstöðuna í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi.    Við vonum það besta og kannski skapast grundvöllur til að halda áfram dansstarfi innan vé- banda Dansíþróttafélags Borg- arfjarðar í framtíðinni. Það yrði alla vega þungbært ef dansinn legðist af, enda góð viðbót við hið blómlega íþróttalíf hér en eins og lands- mönnnum mun kunnugt vera er Borgarnes fyrirmyndin að Latabæ.    Rekstur Borgarbyggðar gekk betur á síðasta ári en gert hafði ver- ið ráð fyrir. Skatttekjur voru meiri og fjármagnskostnaður minni en þar mun skipta mestu endurútreikn- ingar á vöxtum á láni í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli Borgarbyggðar gegn Arionbanka. Samantekin rekstrarniðurstaða á árinu 2012 var jákvæð um 94 milljónir sem er tæp- lega 59 milljónum króna betri út- koma en endurskoðuð fjárhags- áætlun gerði ráð fyrir.    Það er margt fleira að gerast í Borgarbyggð og nýlega voru tvö ný fyrirtæki opnuð. Annars vegar „Ship o hoj“ sem er verslun og hádeg- isverðarstaður við Brúartorg en þar er boðið upp á fisk- og kjötborð og mikið úrval af spennandi réttum á pönnuna, í ofninn eða á grillið. Hins vegar „Edduveröld“ sem er veit- ingastaður í Englendingavík þar sem áður voru Brúðuheimar. Þar er sýning um „níu heima goðafræð- innar“, gallerý og opnar vinnustofur. Á veitingastaðnum er leitast við að hafa heimagerðan mat og nýta hrá- efni úr héraði.    Það er því full ástæða til að heimsækja Borgarnes, og þeir sem hafa saknað Hyrnunnar geta glaðst því nú fer endurbótum að ljúka og stefnan sett á að opna þar N1 stöð um mánaðamótin. Dansinn er góð viðbót Morgunblaðið/Guðrún Vala Flottir dansarar Dansinn er farinn að festa sig í sessi sem ein af ímyndum Borgarfjarðarhéraðs. Sæluvika Skagfirðinga, ein elsta lista- og menningarhátíð landsins, verður sett á morgun, sunnudag, kl. 14 í Safnahúsi Skagfirðinga og stendur hún til 5. maí nk. Dagskráin er bæði metnaðarfull og glæsileg, segir í tilkynningu frá Sveitarfélaginu Skagafirði. Meðal þeirra viðburða sem fara fram á Sæluviku eru ljósmyndasýningar, myndlistarsýningar, leiksýningar, kvikmyndasýningar, dansleikir og að sjálfsögðu mun söngurinn skipa veglegan sess. Leikfélag Sauðárkróks sýnir að þessu sinni „Tifar tímans hjól“ sem er nýtt leikverk eftir Guðbrand Ægi Ásbjörnsson og Árna Gunnarsson og byggist á lögum eftir Geirmund Valtýsson sveiflukóng. Sönglög í Sæluviku, stórtónleikar með fjölda skagfirskra listamanna, voru flutt í Miðgarði í gærkvöldi en þar fer einnig fram árlegt kóramót Rökkur- kórsins og Karlakórsins Heimis laugardagskvöldið 4. maí. Að þessu sinni verða með þeim Skólakór Ár- skóla og Sellóhljómsveit St. Péturs- borgar frá Rússlandi. Kirkjukvöldið verður á sínum stað í Sauðárkróks- kirkju nk. mánudagskvöld. Af öðrum viðburðum má nefna frumsýningu nýrrar sjónvarps- myndar eftir Árna Gunnarsson, stuttmyndasýningu og lifandi tónlist í Aðalgötu 26, stórsýninguna Tekið til kostanna í reiðhöllinni Svaðastöð- um um helgina og opið hús í Madd- ömukoti. Þá verður í Safnahúsinu yfirlit ljósmynda Kristjáns C. Magn- ússonar verslunarmanns af mannlíf- inu á Sauðárkróki frá um 1930-1965. Nánari uppl. á www.skagafjordur.is. Vegleg dagskrá á Sæluvikunni Morgunblaðið/Björn Björnsson Skagafjörður Mikið verður um dýrðir á Sæluviku framundan. ...alveg með’etta Fylgir Morgunblaðinu alla fimmtudaga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.