Morgunblaðið - 27.04.2013, Síða 26

Morgunblaðið - 27.04.2013, Síða 26
26 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2013 Leiðtogi Churchill var mikill leiðtogi. ● Winston Churchill, fyrrverandi for- sætisráðherra Breta, mun prýða nýjan fimm punda seðil sem gefinn verður út árið 2016. Hann er fyrsti stjórn- málamaðurinn sem uppi hefur verið á nútíma til að fá andlit sitt á seðil. Bankastjóri Englandsbanka, Mervyn King, segir að peningaseðlarnir heiðri líf og starf mikilfenglegra Breta. „Winston Churchill var svo sannarlega mikill leið- togi.“ King segir að þar fyrir utan sé Churchill hetja hins frjálsa heims. Winston Churchill á fimm punda seðil Hörður Ægisson hordur@mbl.is Það er talsverð hætta á því að hag- vöxtur á þessu ári verði minni en 1%. Þrátt fyrir að vísbendingar séu uppi um að umsvif í íslenska hag- kerfinu muni aukast næstkomandi haust þá eru engu að síður líkur á því að hagvöxturinn verði afar dræmur. Þetta segir Yngvi Harðarson, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Analytica, en fyrirtækið hefur birt svonefndan leiðandi hagvísi (e. composite leading indicator) sem á að veita skýra sýn á efnahagshorfur að sex mánuðum liðnum og vara tímanlega við umskiptum í efna- hagsumsvifum. Þetta er í fyrsta sinn sem vísitalan er birt en ekki er vitað til þess að sams konar vísitala hafi áður verið gerð fyrir Ísland. Trúverðugt tæki til að spá Yngvi segir að slíkur hagvísir sé mjög trúverðugt tæki til að spá um hagvaxtarþróun til næstu 6-9 mán- aða. Ljóst sé að hann styðji sterk- lega við þær vísbendingar sem greinendur hafa séð á umliðnum mánuðum um að það sé farið að draga verulega úr umsvifum í efna- hagslífinu – ekki síst í einkaneyslu almennings. Debetkortavelta minnkaði til að mynda talsvert í marsmánuði og telur Greining Ís- landsbanka því líklegt að einka- neyslan hafi dregist saman um 1-2% á fyrsta fjórðungi ársins borið sam- an við árið 2012. Leiðandi hagvísir Analytica, sem er óháð ráðgjafafyrirtæki á sviði fjármála, er samsettur úr sex undir- þáttum af mismunandi toga. Um er að ræða aflamagn, debetkortaveltu, ferðamannafjölda, heimsvísitölu hlutabréfa, innflutning og væntinga- vísitölu Gallup. Helmingur þessara þátta fer nú lækkandi en hinn helm- ingurinn hækkandi. Mikil fjölgun erlendra ferðamanna er það sem ræður úrslitum um skánandi horfur með haustinu en næstu mánuði eru það minni umsvif í verslun og sam- dráttur í aflamagni sem eru ráðandi. „Ljósið í myrkrinu er hinn mikli straumur erlendra ferðamanna til landsins,“ útskýrir Yngvi, en spár gera ráð fyrir því að ferðamönnum muni fjölga um 10-15% á þessu ári frá árinu 2012. „Það er einfaldlega þannig að ef þessi aukning væri ekki að eiga sér stað þá værum við klár- lega að horfa fram á samdrátt í efna- hagslífinu.“ Hætta á enn frekari lækkun Reynist mat Analytica rétt um horfur í íslenska hagkerfinu þá verður hagvöxtur ársins umtalsvert minni en nýjustu spár Seðlabankans (2,1%) og Hagstofunnar (1,9%) gera ráð fyrir. Á síðustu misserum hafa hagvaxtarspár ítrekað verið færðar niður sökum versnandi efnahags- horfa. Yngvi telur að það sé hætta á því – ef tekið sé mið af hinum leið- andi hagvísi – að það þurfi að endur- skoða þær spár enn frekar til lækk- unar. Hann bendir hins vegar á að stjórnvöld geti hugsanlega gripið í taumana og reynt að sporna við slæmum efnahagshorfum. „Það er einn tilgangur útreikninga á slíkum vísitölum að veita stjórnvöldum vís- bendingar þannig að þau geti brugð- ist við.“ Hætt við að vöxtur verði undir 1%  Leiðandi hagvísir Analytica gefur til kynna að hagvöxtur verði talsvert minni en spár Seðlabankans og Hagstofunnar gera ráð fyrir  Ef ekki væri fyrir fjölgun ferðamanna væru horfur um samdrátt Ekki að vænta mikils hagvaxtar á árinu Leiðandi hagvísir Analytica og verg landsframleiðsla (frávik frá leitni) 108 106 104 102 100 98 96 94 92 20 01 20 02 20 03 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 11 20 12 20 13 20 10 Myndin sýnir að reynslan er sú að leiðandi hagvísir er um 6mánuðum á undan þróun landsframleiðslu. Þetta er augljóst í kjölfar toppsins í júlí 2007 en viðsnúningur í landsframleiðslu varð ekki fyrr en í árslok 2007. Einnig er þetta mjög skýrt í nóvember 2009 en botn landsframleiðslu varð síðan í maí 2010. Leiðandi hagvísir VLF ● Spænska ríkisstjórnin gerir ráð fyrir áframhaldandi samdrætti upp á 1,3% á þessu ári, en að hagvöxtur verði 0,5% á næsta ári. Í nýrri efnahagsspá sem birt var í gær er gert ráð fyrir að atvinnuleysi verði 26,7% á næsta ári og 25% árið 2015. Atvinnuleysi mældist 27,2% á fyrsta fjórðungi þessa árs. Þá er búist við að fjárlagahalli þessa árs verði 6,3 prósent af vergri lands- framleiðslu og fari ekki niður fyrir 3%, sem er markmið Evrópusambandsins, fyrr en 2016. Enn samdráttur á Spáni ● Klakki ehf. er áfram stærsti eigandi VÍS en listi yfir stærstu eigendurna var birtur á vef Kauphallarinnar í gær. Klakki er eignarhaldsfélag í eigu íslenskra og erlendra fjármálastofnana og lífeyrissjóða. Klakki á 31% hlutafjár, Hagamelur ehf. sem er í eigu þeirra Árna Haukssonar og Hallbjörns Karlssonar, á 9,9% hlut og ARIO Hedge á 8,1%. Þá koma Lands- bankinn hf. 3,4%, Lífeyrissjóður verslunarmanna 3%, Straumur fjárfesting- arbanki hf. 2,8%, Arion banki hf. 2,2%. Tíu stærstu fara með 66% hlutafjár. Klakki ehf. áfram stærsti eigandi VÍS ● Alls bárust um 7 þúsund áskriftir að heildarandvirði 357 milljarðar króna í almennu hlutafjárútboði í Tryggingamiðstöðinni hf. sem lauk í fyrradag. Í útboðinu buðu Stoðir 28,7% hlut í TM til sölu á verðbilinu 17,75 – 20,10 krónur á hlut og hefur stjórn Stoða ákveðið útboðsgengið í efstu mörkum, 20,10 krónur á hlut. Söluandvirðið nemur 4,4 milljörðum króna á útboðsgengi. Enginn hlut- hafa TM mun eiga yfir 10% eign- arhlut. Í áskriftarhluta útboðsins, þar sem tekið var við áskriftum frá 100.000 krónum til 49.999.999 króna, bárust áskriftir fyrir 22 milljarða króna. Í ljósi mikillar þátttöku hefur há- marksfjárhæð útboðsins verið ákveð- in 452.250 krónur. Áskriftir upp að þeirri fjárhæð verða ekki skertar. Umfram eftirspurn í TM STUTTAR FRÉTTIR                                          !"# $% " &'( )* '$* ++,-.. +/0-/1 ++2-,2 30-4. +.-.42 +5-52, +34-/1 +-+/24 +51-// +13-0, ++5-35 +/+-3. ++2-./ 30-21 +.-..4 +5-5./ +32-3 +-+/5/ +5,-2 +13-2. 305-,./, ++5-11 +/+-54 ++1-43 30-1+ 30-013 +5-/1 +32-11 +-+.+4 +5,-.3 +13-.3 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Helsti styrkur leiðandi hagvísis er að hann getur gefið til kynna að framundan séu mjög snörp um- skipti. „Það hefði verið gott að vera með slíkan hagvísi árið 2007,“ segir Yngvi. Hugmyndin að baki vísitölu Analytica er sú að framleiðsla hef- ur aðdraganda. Leiðandi hagvísir er reiknaður á grundvelli þátta sem mælast í upphafi fram- leiðsluferilsins og veita vísbend- ingar um eftirspurn eftir vörum og þjónustu. Svo unnt sé að auka landsframleiðslu þarf til að mynda að afla aðfanga og stofna til fjár- festinga. Vísitölur leiðandi hagvísa hafa verið reiknaðar fyrir helstu iðnríki um áratugaskeið. Hérlendis hefur hins vegar skort nauðsynlegar upplýsingar til að útbúa slíka vísi- tölu. Að sögn Yngva þá gerðu breytingar í aðferðafræði OECD í mars 2012 það að verkum að nú er unnt að nota upplýsingar um landsframleiðslu til að hanna leið- andi hagvísi á mánaðargrunni. Hefði komið að gagni 2007 LEIÐANDI HAGVÍSAR REIKNAÐIR FYRIR HELSTU RÍKI Í ÁRATUGI Norska hugbúnaðarfyrirtækið Opera Software hefur undirritað nýjan samning við Advania vegna umsvifa fyrirtækisins í gagnaveri Advania í Hafnarfirði. Samningurinn felur í sér liðlega 60% aukningu á umsvifum Opera Software í gagnaverinu Advania Thor, sem þjónar meðal annars 300 milljónum notenda Opera Mini- vafrans í tölvum, snjallsímum, sjón- vörpum og öðrum nettengdum tækjum, segir í tilkynningu. Í gagnamagni er internetumferð viðskiptavina Opera Software í gagnaverinu Advania Thor áþekk allri annarri internetumferð á Ís- landi. Með þessum nýja samningi eykst þessi umferð til mikilla muna. Opera Software var stofnað árið 1994 og var fyrirtækið einn af fyrstu viðskiptavinum gagnavers- ins Advania Thor þegar það var tekið í notkun árið 2010. Opera stóreykur viðskiptin við Advania

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.