Morgunblaðið - 27.04.2013, Qupperneq 48
48 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2013
✝ Hjörtur Sig-urðsson fædd-
ist á Sjúkrahúsi
Vestmannaeyja 12.
mars 1980. Hann
lést á heimili sínu
21. apríl 2013.
Hjörtur ólst upp
í Vestmannaeyjum
á Hásteinsvegi 60
ásamt foreldrum
sínum og bræðr-
um. Foreldrar
hans eru hjónin Sigurður A.
Sigurbjörnsson, f. 4. apríl.
1954, Baadermaður hjá Ísfélagi
Vestmannaeyja og Ármey Ósk-
arsdóttir, f. 19. ágúst 1960,
mannaeyjum.
Börn Hjartar eru a) Ásrún
Emma Hjartardóttir, f. 30.
október 2002, móðir hennar er
Margrét Guðbjörg Ás-
rúnardóttir, fyrrum sambýlis-
kona Hjartar. b) Adam Elí
Hjartarson, f. 19. apríl 2009,
móðir hans er Aldís Gríms-
dóttir, fyrrum sambýliskona
Hjartar.
Hjörtur var mjög listrænn
persónuleiki. Hann hefur alla
ævi haft mikinn áhuga á teikn-
ingum og list og hann vann við
að húðflúra í mörg ár. Hann
hafði einnig mikinn áhuga á
náttúrunni og dýrum. Hjörtur
vann lengst af hjá Ísfélagi Vest-
mannaeyja, allt fram að dán-
ardegi.
Útför Hjartar fer fram frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum
í dag, 27. apríl 2013, og hefst
athöfnin kl. 11.
fiskvinnslukona
hjá Ísfélagi Vest-
mannaeyja. Hann
var næstelstur
fjögurra bræðra:
Sigurbjörn Sig-
urðsson, f. 11.
desember 1975. d.
5. september
1993. Hannes
Kristinn Sigurðs-
son, f. 29. nóv-
ember 1984, um-
boðsmaður hjá flugfélaginu
Erni í Vestmannaeyjum og
Óskar Elías Sigurðsson, f. 25.
október 1989, starfsmaður hjá
flugfélaginu Erni í Vest-
Elskulegi gullfallegi frændi
minn Hjörtur Sigurðsson er lát-
inn aðeins 32 ára gamall. Hvílíkt
högg að fá þessa frétt.
Það er ótrúlegt þetta líf, allt
var svo venjulegt og eðlilegt, ég
var að fara í kirkju í fermingu
barnabarns míns þennan fallega
sunnudag, þá fæ ég símtal, hann
Hjörtur hans Didda hefur kvatt
þetta líf án nokkurs fyrirvara.
Smátt og smátt áttar maður
sig á að allt er breytt og ekkert
verður eins og áður hjá fjölskyld-
unni.
Mér fannst alltaf þessir þrír
frændur mínir í Vestmannaeyj-
um vera svo flottir strákar, en nú
er stórt skarð komið í fjölskyld-
una hans Didda bróður. Það er
ótrúlega sárt að svona ungur og
hraustur tveggja barna faðir
skuli vera hrifinn burt frá þessu
jarðlífi svona fljótt, hann átti eftir
að gera svo margt. Ég vona að
bróðir þinn, frændur og frænkur
hjálpi þér að komast í englahjörð-
ina sem við eigum hinum megin.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Elsku Diddi bróðir, Emma,
Hannes, Óskar, og fallegu börnin
hans, Ásrún Emma og Adam Elí,
og aðrir ástvinir, guð gefi ykkur
styrk til að takast á við þessa
djúpu sorg.
Þín frænka,
Erna Sigurbjörnsdóttir.
Elskulegi frændi, við trúum
ekki enn að þú sért farinn frá
okkur. Við eigum svo margar
góðar minningar, munum þegar
þú komst til okkar því afi og
amma höfðu gefið þér pening. Þú
vildir kaupa rauðar buxur og ég
spurði þig: „Af hverju biður þú
ekki mömmu þína?“ Þá sagðir þú
að þú fengir þá ekki að kaupa
þær og fór ég með þér að kaupa
þær. Þegar við komu heim var
mamma ekki glöð með litinn á
buxunum og ég minnti hana á að
hún var líka unglingur með sinn
fatasmekk og var þá málið látið
niður falla. Við getum endalaust
sagt skemmtilegar sögur af góð-
um stundum, á jólum, páskum, að
ógleymdri Þjóðhátíðinni og í
fjöruferðunum sem við fórum.
Við Ármey geymum allar þessar
fallegu minningar um þig og eig-
um allar myndirnar sem við höf-
um tekið af þér. Það var svo gam-
an að taka myndir af þér, þú
myndaðist svo vel. Við vitum að
þú ert kominn til ömmu og afa,
bróður þíns og frænda þinna. Þau
passa vel upp á þig því þau elsk-
uðu þig svo mikið. Við Ármey
geymum allar fallegu minning-
arnar um þig, við elskuðum þig
eins og son og bróður. Og við
pössum upp á Ásrúnu Emmu og
Adam Elí, foreldra þína og bræð-
ur.
Fjársjóður falinn varst þú mér
gleði og gull í hjarta þér
örvandi hlýja um mig fer
hjartað þitt kveikt hefur í mér.
Seiðandi augun englabros
örlitlir vængir Pétursspor
leiðir mig áfram sýnir mér
svífandi skal ég fylgja þér.
Dagar og nætur segja mér
ég mun aldrei gleyma þér
mynd þín mun ávallt vera hér
geymd í huga mér.
(Birgitta Haukdal)
Elsku Emma og Diddi, Hann-
es Kristinn, Óskar Elías, Elín,
Ásrún Emma og Adam Elí. Vott-
um ykkur innilega samúð á erf-
iðum tíma.
Heimiliskettirnir ykkar,
Guðný Óskarsdóttir og
Ármey Valdimarsdóttir.
Kveðja frá
árgangssystkinum
Hvað er það í hjarta manns
er kallar fram þá æsku hans,
vinarbrag og fyrri fund,
farinn veg og skólastund?
Strembinn lestur stúdentsvor,
skál og gleði, hliðarspor,
eða bara hversdags hjal,
hugardæmi er leysa skal.
Við þekkjum vel þann sterka streng
og syrgjum okkar góða dreng.
Örlög vísa veg um slóð,
vak þú minning kyrr og hljóð.
(Stefán Finnsson)
Lífið er hverfult og valt. Þau
eru þung skrefin sem við tökum í
dag er við kveðjum kæran ár-
gangsbróður. Litla samfélagið í
kringum hann syrgir með að-
standendum og við erum hrygg í
hjarta okkar. Það er sárt að horfa
á eftir ungum manni sem lífið
blasti við. En skilningur okkar á
tilverunni er takmörkum háður
og við kveðjum Hjört okkar í
öruggri trú og vissu um að hans
bíði góðar móttökur.
Það er við hæfi að nota alla liti
litrófsins er við minnumst Hjart-
ar. Allt frá aflituðu hári yfir í
svartasta blek. Og allt þar á milli.
Hjörtur var líflegur persónuleiki
og eftirminnilegur öllum þeim
sem honum kynntust.
Við minnumst birtunnar sem
hann færði okkur.
Við minnumst ótakmarkaðra
hæfileika á sviði listsköpunar.
Við minnumst lipurðar og
styrkleika í hreyfileikjum hvers
konar.
Við minnumst fallega og stíl-
færða yfirbragðsins.
Við minnumst brossins og
hlátursins sem var svo hvellur.
Við minnumst drengs í appels-
ínugulri úlpu að kaupa ananas-
hlunk með tvöfaldri lúxusdýfu.
Við þökkum fyrir samfylgdina
sem var svo litrík og björt. Við
þökkum fyrir hverja einustu
stund sem við áttum með Hirti.
Við heiðrum líf hans og yljum
okkur við minningarnar.
Börnum hans tveimur og nán-
ustu aðstandendum sendum við
innilegar samúðarkveðjur.
Fyrir hönd árgangs 1980,
Ester Helga Líneyjardóttir
og Skapti Örn Ólafsson.
Hjörtur
Sigurðsson
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Bollagata 1, 201-2205, Reykjavík, þingl. eig. Halldóra Konráðsdóttir og
Þorvaldur Sigurbjörnsson, gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, fimmtu-
daginn 2. maí 2013 kl. 11:30.
Leifsgata 4b, 200-8778, Reykjavík, þingl. eig. Úr einu í annað ehf.,
gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf., Orkuveita Reykjavíkur, Reykjavíkur-
borg og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., fimmtudaginn 2. maí 2013
kl. 10:30.
Ljósvallagata 24, 200-4184, Reykjavík, þingl. eig. Einar Óskarsson,
gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., fimmtudaginn 2. maí
2013 kl. 13:30.
Tómasarhagi 19, 202-8753, Reykjavík, þingl. eig. Sigurbjörg
Sæmundsdóttir, gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg og Sýslumaðurinn
á Blönduósi, fimmtudaginn 2. maí 2013 kl. 14:00.
Vífilsgata 15, 221-7871, Reykjavík, þingl. eig. Hans Jakob S. Jónsson,
gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, fimmtudaginn 2. maí 2013 kl. 11:00.
Öldugata 18, 200-1590, Reykjavík, þingl. eig. Sveinn Andri Sveinsson
og Kristín Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, fimmtu-
daginn 2. maí 2013 kl. 14:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
26. apríl 2013.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug vegna andláts og útfarar eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
JÓNS RAFNS JÓNSSONAR,
Höfðaholti 2,
Borgarnesi.
Þórunn Árnadóttir,
Jón Einar Rafnsson, Jónína Ísleifsdóttir,
Sigríður Kristín Rafnsdóttir, Einar Hannesson,
Anna Eygló Rafnsdóttir, Sveinn Gunnar Eðvarðsson,
Kári Þór Rafnsson, Guðbjörg D. Þórðardóttir,
Erlingur Smári Rafnsson, Unnur Margrét Karlsdóttir,
Kolbrún Alma Rafnsdóttir, Hafliði Ólafur Gunnarsson,
Júlíus Árni Rafnsson, Helle Larsen,
afa-, langafabörn og langalangafabarn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýju vegna andláts
og útfarar eiginmanns míns, föður okkar,
fósturföður og afa,
GUNNARS JÓHANNESSONAR
fv. bónda á Hömrum
í Grímsnesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss og heimaþjónustu
heilsugæslustöðvar Selfoss fyrir einstaka umönnun og hlýtt
viðmót.
Kristín Carol Chadwick,
Gunnar Kr. Gunnarsson,
Auður Gunnarsdóttir, Sigurður Halldórsson,
Hlynur Ch. Guðmundsson, Hafdís Óskarsdóttir,
Hilmir Ch. Guðmundsson, Íris Harðardóttir
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
STEFÁNS GUÐMUNDSSONAR,
Túni,
Flóa.
Jóhann Stefánsson, Þórunn Sigurðardóttir,
Ragnheiður Stefánsdóttir, Guðjón Á. Luther,
Guðmundur Stefánsson, Guðrún H. Jónsdóttir,
Hafsteinn Stefánsson, Guðfinna S. Kristjánsdóttir,
Vernharður Stefánsson, Auður Atladóttir,
Jónína Þ. Stefánsdóttir, Halldór Sigurðsson,
Bjarni Stefánsson, Veronika Narfadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vináttu við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
JÓNS RAFNS GUÐMUNDSSONAR,
Hraunvangi 3,
Hafnarfirði.
Sérstakir þakkir færum við starfsfólki Drafnarhúss og
Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir alúð og góða umönnun.
Kristín Jóhannsdóttir,
Guðrún Jónsdóttir, Ludwig H. Gunnarsson,
Rannveig Jónsdóttir, Þórður Óskarsson,
Ragnar Jóhann Jónsson, Anna María Þórðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
KRISTÍNAR LILJU ÞÓRARINSDÓTTUR,
Grund,
Reyhólahreppi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Barmahlíðar, Reykhólum fyrir
góða umönnun og hlýju.
Unnsteinn Hjálmar Ólafsson,
Guðmundur Ólafsson, Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir,
Hekla Karen, Tindur Ólafur,
Ketill Ingi og Kristján Steinn.
Ferjan hefur festar losað,
farþegi er einn um borð,
mér er ljúft af mætti veikum
mæla nokkur kveðjuorð.
Þakkir fyrir hlýjan huga,
handtak þétt og gleðibrag.
Óskar Jóhann
Björnsson
✝ Óskar JóhannBjörnsson
fæddist í Reykjavík
11. september
1955. Hann lést á
heimili sínu 5. apríl
2013.
Óskar Jóhann
var jarðsunginn frá
Selfosskirkju 19.
apríl 2013.
Þakkir fyrir þúsund
hlátra
þakkir fyrir liðinn dag.
(J. Har.)
Símtal að morgni
5. apríl: Ég er með
erfiða frétt. Hann
Óskar hennar Siggu
varð bráðkvaddur í
nótt. Enn eitt ótíma-
bæra dauðsfallið á
góðum vini. Hugsa
til elsku Siggu. Mik-
ið er hægt að leggja á fólk. Tæp
fjögur ár síðan hún missti son
sinn hann Hjalta. Ég kynntist
Óskari fyrir níu árum og er ég
búin að eiga margar góðar og eft-
irminnilegar stundir með þeim
Siggu: Heima, ferðalögum á
„Dodda“ og á Kanarí. Það var
ekki lognmollan í kringum Óskar,
hress, kátur og orðaforðinn mikill
og sögurnar skemmtilegar. Hann
ávarpaði mig alltaf: Sæl Gunna
frænka! Var ég nú ekki alveg sátt
við þetta í fyrstu en svo varð
þetta hluti af samskiptum okkar.
Þetta sýnir hvað honum þótti
vænt um mig og var það gagn-
kvæmt. Þegar ég kynntist Auð-
uni mínum fannst Óskari nú ekki
verra að hann væri úr Keflavík.
Rifjuðu þeir oft upp prakkara-
strikin úr æsku á „Berginu“. Nú
eru skemmtilegu orðatiltækin
hljóðnuð og ekkert spreð framar.
Í minningu Óskars eigum við eft-
ir að rifja upp margt sem var
brallað og sagt og eigum eftir að
brosa að því. Nú er Óskar farinn,
fór snöggt, alveg í hans anda,
ekkert hangs og slór. Söknuður-
inn er sár.
Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með
tárum, hugsið ekki um dauðann með
harmi eða ótta.
Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar
snertir mig og kvelur, þótt látinn mig
haldið.
En þegar þið hlæið og syngið með
glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót
til ljóssins.
Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið
gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í
gleði ykkar yfir lífinu.
(Höf. óþekktur.)
Kæri vinur, takk fyrir allar
góðu stundirnar. Elsku Sigga og
börn, dætur Óskars og fjölskyld-
ur, systkini og fjölskyldur, Guð
gefi ykkur styrk.
Þínir vinir,
Guðrún (Gunna frænka)
og Auðunn.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur
senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fædd-
ist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer
fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini,
maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í
formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum.
Minningargreinar