Morgunblaðið - 27.04.2013, Page 55

Morgunblaðið - 27.04.2013, Page 55
MENNING 55 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2013 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Hvað gerist þegar ungur kolbítur finnur tösku fulla af peningum ásamt absint-flösku og illa kveðnu ljóði? Um afleiðingar þess fjallar nýtt íslenskt leikverk, Spilaborgir, sem leikfélagið Hugleikur frum- sýnir í húsnæði sínu að Eyjaslóð 9 á sunnudags- kvöldið klukkan 20. Höfundur verksins er Ásta Gísladóttir. Hún er annar ritstjóra menningar- tímaritsins Spássíunnar og hefur áður tekið þátt í leikritun fyrir Hugleik, en þreytir nú frumraun sína sem leikskáld ein og óstudd. Leikstjórar eru þeir Sig- urður H. Pálsson og Þorgeir Tryggvason, báðir gamalreyndir Hugleiksmenn, en leikhópinn skipar annars blanda nýgræðinga, reynslu- bolta og afreksfólks úr öðrum leik- félögum. Áskorun að skrifa leikrit Í Spilaborgum á ungi maðurinn sem finnur töskuna í talsverðum vandræðum með að reikna út hvern- ig best er að vinna úr stöðunni. Þótt nágrannarnir, stúlkan sem hann er kannski skotinn í og ósýnilegir vinir séu allir af vilja gerðir þá vefst þetta þó nokkuð fyrir honum og tefur hann frá uppáhaldsiðjunni, að byggja spilaborgir. Aðstandendur sýningarinnar segja að fyrir vikið séu ævintýri drengsins kvöldstund- arinnar virði. „Verkið er um þennan unga mann sem býr heima hjá veikri móður sinni og finnur fullt af peningum. Það veldur breytingum og byltir lífi þeirra. Við sögu koma karakterar sem láta sig þetta varða og inn í það fléttast fjölskylduleyndarmál. En ég má ekki segja of mikið,“ segir Ásta og snarþagnar. Fléttuna má ekki gefa upp til að skemma ekki fyrir væntanlegum áhofendum. Ásta segir það hafa verið tals- verða áskorun að setjast niður og skrifa heilt leikrit. Hún byrjaði á verkinu þegar hún hafði skráð sig á leikritunarnámskeið fyrir nokkrum árum. „Þá ákvað ég að byrja á því þar sem það var í raun forsenda þátt- töku í námskeiðinu, að maður væri að vinna að leikriti. Ég vann að því á námskeiðinu og hef skrifað það jafnt og þétt síðan. Ég gekk síðan end- anlega frá því í vetur.“ Þetta er fyrsta leikritið í fullri lengd sem Ásta skrifar ein frá grunni en hún skrifaði ásamt þrem- ur öðrum verkið Rokk sem Hug- leikur setti einnig upp. Hugleikur var stofnaður árið 1984, er elsti starfandi áhugaleikhópurinn í Reykjavík og hefur þá sérstöðu að leikverkin eru ætíð samin innan hópsins. Umfjöllunarefni hópsins eru ætíð sótt í íslenskan veruleika og sagnaarf. Hugleikur stendur einnig fyrir leiklistarnámskeiðum. Týndi sjálf tösku Ásta segist alveg geta hugsað sér að takast á við fleiri leikrit ef Spila- borgir ganga vel. „Ég get alveg hugsað mér að skrifa fleiri verk, þótt ég sé nú ekkert með ákveðnar og mótaðar hugmyndir í skúffunni. Þegar þetta er frá sest ég niður og athuga hvort aðrar hugmyndir komi til mín.“ Hún segir grunnhugmyndina, um tösku sem týnist, hafa kviknað við það að hún týndi sjálf einu sinni tösku. „Ég fór að velta fyrir mér hver gæti hafa fundið hana og datt þá í hug kona sem gæti ekki farið fram úr rúminu; sonur hennar hlyti að hafa fundið hana. Síðan settist ég niður og byrjaði að skrifa samtal á milli þeirrra eftir að hann kom heim með töskuna. Svo spunnust atburðir og samtöl saman.“ Mismunandi hlutverk Ásta hefur starfað með Hugleiki undanfarin ár og tekið þátt í upp- setningu margra sýninga. Smitaðist hún ung af leikhúsbakteríunni? „Ég held nú ekki. Ég tók reyndar þátt í einhverjum skólaleikritum sem krakki en fór annars ekki að gera neitt í þessa veru fyrr en ég byrjaði að starfa með Hugleik upp úr árinu 2000. Það er mjög gaman að koma að öllum þessum mismunandi hlut- verkum sem þarf að takast á við í áhugaleikhúsi. Þegar maður hefur verið lengi í félaginu hefur maður komið að öllum þáttum starfsins – þetta var sá síðasti, að félagið setti upp heilt verk eftir mig!“ Aðeins sex sýningar eru fyrirhug- aðar á Spilaborgum. Sú næsta er á þriðjudag en síðan verða sýningar fjögur kvöld í röð, 9. til 12. maí. Vandamál „Verkið er um þennan unga mann sem býr heima hjá veikri móður sinni og finnur fullt af peningum,“ segir Ásta Gísladóttur um fyrsta leikverk sitt í fullri lengd. Verkið er frumsýnt á sunnudagskvöld. Taska full af peningum kemur í leitirnar  Hugleikur frumsýnir Spilaborgir eftir Ástu Gísladóttur Ásta Gísladóttir Gerry Smyth flytur lög úr verkum írska stórskáldsins James Joyce á tónleikum í Stúd- entakjallaranum annað kvöld kl. 20. Smyth er kennari í írskri sögu og bók- menntum við Liverpool John Moo- res-háskólann í Englandi. Hann hefur stundað rannsóknir á tónlist í verkum Joyce. Tónleikarnir eru stytt útgáfa á dagskránni Irish It- inerary sem flutt hefur verið víða um lönd á vegum Culture Ireland. Aðgangur er ókeypis. Lög úr verkum James Joyce James Joyce Mary Poppins (Stóra sviðið) Lau 27/4 kl. 19:00 Fös 17/5 kl. 19:00 Lau 8/6 kl. 19:00 Sun 28/4 kl. 13:00 Lau 18/5 kl. 19:00 Sun 9/6 kl. 13:00 Þri 30/4 kl. 19:00 aukas Mán 20/5 kl. 13:00 aukas Fös 6/9 kl. 19:00 ný sýn. Fim 2/5 kl. 19:00 aukas Fim 23/5 kl. 19:00 Lau 7/9 kl. 19:00 ný sýn. Fös 3/5 kl. 19:00 Lau 25/5 kl. 19:00 aukas Sun 8/9 kl. 15:00 ný sýn. Lau 4/5 kl. 19:00 Sun 26/5 kl. 13:00 Fim 12/9 kl. 19:00 ný sýn. Sun 5/5 kl. 13:00 Mið 29/5 kl. 19:00 aukas Fös 13/9 kl. 19:00 ný sýn. Mið 8/5 kl. 19:00 aukas Fim 30/5 kl. 19:00 aukas Lau 14/9 kl. 19:00 ný sýn. Fim 9/5 kl. 14:00 Fös 31/5 kl. 19:00 Sun 15/9 kl. 15:00 ný sýn. Fös 10/5 kl. 19:00 Lau 1/6 kl. 13:00 Fim 19/9 kl. 19:00 ný sýn. Lau 11/5 kl. 19:00 Sun 2/6 kl. 13:00 aukas Fös 20/9 kl. 19:00 ný sýn. Sun 12/5 kl. 13:00 Mið 5/6 kl. 19:00 aukas Lau 21/9 kl. 19:00 ný sýn. Mið 15/5 kl. 19:00 aukas Fim 6/6 kl. 19:00 Fim 16/5 kl. 19:00 Fös 7/6 kl. 19:00 Einn vinsælasti söngleikur heims, loks á Íslandi. Nýjar sýningar komnar í sölu! Gullregn (Stóra sviðið) Þri 11/6 kl. 20:00 aukas. Fim 13/6 kl. 20:00 Lau 15/6 kl. 20:00 lokas Mið 12/6 kl. 20:00 Fös 14/6 kl. 20:00 Frumraun Ragnars Bragasonar í leikhúsi. Nýjar aukasýningar. Síðustu sýningar. Mýs og menn (Stóra sviðið) Fös 24/5 kl. 20:00 aukas Lau 1/6 kl. 20:00 aukas Sun 9/6 kl. 20:00 lokas Sun 26/5 kl. 20:00 aukas Sun 2/6 kl. 20:00 aukas Meistaraverkið eftir John Steinbeck. Nýjar aukasýningar. Síðustu sýningar. Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið) Lau 27/4 kl. 20:00 Sun 5/5 kl. 20:00 Fös 17/5 kl. 20:00 Þri 30/4 kl. 20:00 Fös 10/5 kl. 20:00 Fim 23/5 kl. 20:00 Fös 3/5 kl. 20:00 Lau 11/5 kl. 20:00 Lau 4/5 kl. 20:00 Fim 16/5 kl. 20:00 Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Snýr aftur í takmarkaðan tíma. Núna! (Litla sviðið) Sun 28/4 kl. 20:00 5.k Þri 14/5 kl. 20:00 Mið 22/5 kl. 20:00 Þri 7/5 kl. 20:00 Mán 20/5 kl. 20:00 Þri 28/5 kl. 20:00 Sun 12/5 kl. 20:00 Þri 21/5 kl. 20:00 Þri 4/6 kl. 20:00 lokas Þrjú ný íslensk verk eftir ung og öflug leikskáld í einni sýningu Tengdó (Litla sviðið) Lau 27/4 kl. 20:00 23.k Fös 10/5 kl. 20:00 Lau 25/5 kl. 20:00 Fim 2/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 Sun 26/5 kl. 20:00 Fös 3/5 kl. 20:00 24.k Fim 16/5 kl. 20:00 Fös 31/5 kl. 20:00 Lau 4/5 kl. 20:00 25.k Fös 17/5 kl. 20:00 Lau 1/6 kl. 20:00 Sun 5/5 kl. 20:00 Lau 18/5 kl. 20:00 Sun 2/6 kl. 20:00 lokas Fim 9/5 kl. 20:00 aukas Fim 23/5 kl. 20:00 Grímusýning síðasta leikárs snýr aftur! Íslenski Dansflokkurinn: Walking Mad (Stóra sviðið) Sun 28/4 kl. 20:00 4.k Fim 9/5 kl. 20:00 Mán 20/5 kl. 20:00 Sun 5/5 kl. 20:00 5.k Sun 12/5 kl. 20:00 Þri 28/5 kl. 20:00 Tvö verk á einu kvöldi: Walking Mad og Ótta - húmor, galsi og geðveiki Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Mýs og Menn –HHHHH– SGV. Mbl Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is VIÐ SÝNUM TILFINNINGAR Englar alheimsins (Stóra sviðið) Lau 27/4 kl. 19:30 3.sýn Lau 11/5 kl. 19:30 Aukas. Fös 31/5 kl. 19:30 Sun 28/4 kl. 19:30 Aukas. Fim 16/5 kl. 19:30 8.sýn Lau 1/6 kl. 19:30 Fim 2/5 kl. 19:30 Aukas. Fös 17/5 kl. 19:30 9.sýn Fös 7/6 kl. 19:30 Fös 3/5 kl. 19:30 4.sýn Fim 23/5 kl. 19:30 10.sýn Lau 8/6 kl. 19:30 Lau 4/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 24/5 kl. 19:30 11.sýn Fös 14/6 kl. 19:30 Mið 8/5 kl. 19:30 6.sýn Lau 25/5 kl. 19:30 12.sýn Lau 15/6 kl. 19:30 Fös 10/5 kl. 19:30 7.sýn Fim 30/5 kl. 19:30 13.sýn Ein vinsælasta íslenska skáldsaga síðari ára í nýrri leikgerð Kvennafræðarinn (Kassinn) Lau 27/4 kl. 19:30 6.sýn Lau 11/5 kl. 19:30 Lau 25/5 kl. 19:30 Fös 3/5 kl. 19:30 7.sýn Fim 16/5 kl. 19:30 Fös 31/5 kl. 19:30 Lau 4/5 kl. 19:30 8.sýn Fös 17/5 kl. 19:30 Lau 1/6 kl. 19:30 Fös 10/5 kl. 19:30 9.sýn Fös 24/5 kl. 19:30 Hver er ekki upptekin af kvenlíkamanum? Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið) Sun 28/4 kl. 13:00 Sun 12/5 kl. 14:00 Sun 2/6 kl. 14:00 Lokas. Sun 5/5 kl. 14:00 Sun 26/5 kl. 14:00 Síðustu sýningar! Karíus og Baktus (Kúlan) Lau 27/4 kl. 13:30 Lau 4/5 kl. 15:00 Lau 25/5 kl. 13:30 Lau 27/4 kl. 15:00 Lau 11/5 kl. 13:30 Lau 25/5 kl. 15:00 Lau 4/5 kl. 13:30 Lau 11/5 kl. 15:00 Frábært leikrit sem á erindi við alla krakka! Hvörf (Kúlan) Fös 3/5 kl. 19:00 Aðalæf Mið 8/5 kl. 19:00 Sun 12/5 kl. 19:00 Lau 4/5 kl. 19:00 Frums. Fös 10/5 kl. 19:00 Sun 5/5 kl. 19:00 Lau 11/5 kl. 19:00 Lab Loki í samstarfi við Þjóðleikhúsið Karma fyrir fugla (Kassinn) Lau 8/6 kl. 19:30 aukas. Sun 9/6 kl. 19:30 aukas. Aukasýningar í júní Gilitrutt (Brúðuloftið) Lau 27/4 kl. 13:30 Lau 4/5 kl. 13:30 Lau 11/5 kl. 13:30 30.04 - Þriðjudagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – UPPSELT Silfurberg 03.05 - Föstudagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – UPPSELT Kaldalón 04.05 - Laugardagur kl. 21:30 Laddi lengir lífið – UPPSELT Kaldalón 08.05 - Miðvikudagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – UPPSELT Silfurberg 10.05 - Föstudagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – UPPSELT Silfurberg 11.05 - Laugardagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – UPPSELT Silfurberg 12.05 - Sunnudagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – UPPSELT Silfurberg 17.05 - Föstudagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – Örfá laus sæti Silfurberg 24.05 - Föstudagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – Örfá laus sæti Silfurberg 25.05 - Laugardagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – UPPSELT Silfurberg 31.05 - Föstudagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – Ný sýning Silfurberg 01.06 - Laugardagur kl. 20:00 Laddi lengir lífið – Ný sýning Silfurberg ...alveg með’etta Fylgir Morgunblaðinu alla fimmtudaga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.