Morgunblaðið - 27.04.2013, Síða 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2013
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is
Fáir samtíma dægurtónlist-armenn eiga jafn skraut-legan feril að baki ograpplistamaðurinn Snoop
Dogg, upphaflega Snoop Doggy
Dogg (og þannig kynntumst við hon-
um flest, í gegnum hina ótrúlegu
Doggystyle sem út kom 1993). Þær
eru fáar rappplöturnar sem ég hef
hlustað jafn mikið á; rennslið í henni
er fullkomið og G-fönk Dr. Dre og
vesturstrandarrappið flæddi sem
aldrei fyrr um útvarpsbylgjur
heimsins. Snoop hefur í raun réttri
aldrei náð að toppa þessa tímamóta-
plötu en stórstjarna varð hann í kjöl-
farið.
Smákrimmi
Og ferill hans, eins og segir, er
ótrúlegur. Um og eftir Doggystyle
Alveg ljón-
harður …
Endurfæddur Snoop Dogg, nú Snoop Lion, varð heillaður af menningu
Jamaíka eins og sjá má. Ekki eru allir rastafarar ánægðir með það.
var hann t.a.m. með morðákæru á
herðunum enda smákrimmi að upp-
lagi og hefur hann gert mikið úr
þeim þætti í gegnum tónlist sína. Ár-
ið 2000 stóð hann að gerð klám-
myndar og starfaði um hríð sem
melludólgur samhliða tónlistarferli.
Engu að síður er hann giftur æsku-
ástinni og á með henni þrjú börn.
Einn sonur hans er íþróttamaður
mikill og Snoop hefur réttindi sem
fótboltaþjálfari (í fótbolta af amer-
íska taginu). Hinn reykir gras af
miklum móð að sögn föðurins sem
jafnhattar sjálfur um 30 vefjur dag-
lega (5-10 ef hann þarf að sinna mik-
ilvægum erindum hins vegar).
Ég gæti haldið áfram endalaust á
þessum nótum. Snoop hefur áru í
kringum sig, ekki ólíka þeirri sem
hangir yfir Homer Simpson. Algjör
vitleysingur og jólasveinn, samt með
ráð undir rifi hverju og þannig gerð-
ur að það er ekki hægt annað en dást
að honum og þykja vænt um hann.
Femínistinn Julie Bindel hefur
meira að segja sagt opinberlega frá
því að þrátt fyrir allt það sem Snoop
stendur fyrir þá dýrki hún hann.
Maðurinn er gangandi þversögn.
Alltaf rastafari
En nóg um það, við erum hingað
komin til að rýna aðeins í nýjasta út-
spil Snoop sem er í fullkomnu sam-
ræmi við munstur það sem ég hef
verið að rekja hér að ofan. Hann kall-
ar sig nú Snoop Lion og segist vera
búinn að taka upp rastafari-trú
þeirra Jamaíkubúa. Þetta hvolfdist
yfir hann eftir heimsókn þangað á
síðasta ári. Hvort það sé vegna hins
reykmettaða heila hans eður ei þá
segist hann og vera Bob Marley end-
urholdgaður og hafa þær yfirlýsingar
ekki beint hitt í mark hjá regg-
ísamfélaginu og hefur Bunny Wailer
t.a.m., ein af goðsögnum stefnunnar,
gagnrýnt Snoop opinberlega fyrir
þetta. Synir Marley eru aftur á móti
mun slakari gagnvart þessu öllu sam-
an og hafa veitt Snoop blessun sína.
Plata fylgir þessu standi öllu líka,
kom hún út í vikunni og kallast
Reincarnated en ekki hvað. Kvik-
mynd með sama heiti kom líka út síð-
asta haust og var frumsýnd á kvik-
myndahátíðinni í Toronto. Nú
streymir ekkert nema ást frá Snoop,
dóttir hans syngur t.a.m. með honum
í laginu „No Guns Allowed“. Snoop
Lion segist ætla að gera tónlist fyrir
alla fjölskylduna, hann sé enda kom-
inn á þann aldur að ofbeldisdýrkun
og slíkt sem stundum hefur fylgt tón-
list hans sé bara ekkert sniðugt leng-
ur. „Mér finnst ég alltaf hafa verið
rastafari,“ hefur hann látið hafa eftir
sér. „Rapp er ekki að gera neitt fyrir
mig lengur. Reggíið kallaði … það er
sem ferskur andblær.“
»Ég gæti haldiðáfram endalaust á
þessum nótum. Snoop
hefur áru í kringum sig,
ekki ólíka þeirri sem
hangir yfir Homer
Simpson.
Rapparinn silkimjúki Snopp Dogg
heitir nú Snoop Lion
Tók upp rastafari-trú og segist end-
urholdgaður … sem Bob Marley!
Aðalsteinn Stef-
ánsson, Hjörtur
Hjartarson og Þór-
oddur Bjarnason
opna sýningu á inn-
setningum og mál-
verki í Stúdíó Stafni,
Ingólfsstræti 6, í dag
kl. 15. Listamenn-
irnir sýndu saman
strax eftir að þeir út-
skrifuðust úr fjöl-
tæknideild Myndlista-
og handíðaskóla Íslands árið 1996 og endurtaka nú leikinn með sýningu
sinni í Stúdíó Stafni.
Verk Aðalsteins á sýningunni er innsetning sem unnin er út frá lög-
málum leikmyndahönnunar þar sem leikið er með rýmið. Verk Hjartar á
sýningunni eru málverkin Blátt 1, 2, 3, 4 og 5 en þau eru unnin undir áhrif-
um vatnslitaverka Turners frá Feneyjum og Faxaflóanum. Verk Þórodds á
sýningunni heitir Ísland skuldar 1.016 milljarða. Klöppum fyrir Íslandi.
Endurfundir listamanna í Stúdíó Stafni
Þremenningar Þóroddur Bjarnason, Aðalsteinn Stef-
ánsson og Hjörtur Hjartarson sýna í Stúdíó Stafni.
Stórkostleg
ævintýramynd fyrir
alla fjölskylduna
14
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
MISSIÐ EKKI AF FYNDNUSTU
OG BESTU MYNDINNI Í
SERÍUNNI
ÍSL TAL
KEMUR FYRSTA STÓRMYND SUMARSINS
ROBERT DOWNEY JR.
BEN KINGSLEY
GWYNETH PALTROW
GUY PEARCE
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR
EIN FLOTTASTA
SPENNUMYND ÁRSINS!
Stór og yfirdrifinn
teiknimyndahasar af betri gerðinni.
T.V. - Bíóvefurinn
VJV
Svarthöfði
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
- T.K.
kvikmyndir.is
H.V.A
-Fréttablaðið
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
L
L
12
12
12
IRON MAN 3 3D Sýnd kl. 2-5:20 -8 -10:10 -10:40
LATIBÆR - BÍÓUPPLIFUN Sýnd kl. 2 - 4 - 6
OBLIVION Sýnd kl. 5:30 - 8
SCARY MOVIE 5 Sýnd kl. 10:30
THE CROODS 3D Sýnd kl. 2
G.I. JOE 2 RETALIATION 3D Sýnd kl. 8
Stórmyndin sem tekin var upp á Íslandi
-Empire
-Hollywood
Reporter
FRÁBÆR SPENNUMYND MEÐ HALLE
BERRY Í AÐALHLUTVERKI
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
- T.K., KVIKMYNDIR.IS - H.V.A. FRÉTTABLAÐIÐ
NÝ ÍSLENSK SPENNUMYND
BYGGÐ Á SAMNEFNDRI
METSÖLUBÓK. MYND SEM
ENGIN MÁ MISSA AF! - H.S.S., MBL
FALSKUR FUGL KL. 6 14 / SCARY MOVIE 5 KL. 8 14
OBLIVION KL. 10 12 / THE CALL KL. 8 - 10 16
LATIBÆR KL. 2 (TILB) - 4 - 6 L
THE CROODS 3D KL. 4 / FLÓTTINN FRÁ 3D KL. 2 (TILB)
PASSION KL. 3.30 (TILBOÐ) - 5.45 - 8 - 10.15 16
THE CALL KL. 8 - 10.10 16 / OBLIVION KL. 9 12
LATIBÆR KL. 4 (TILBOÐ) - 6 / KAPRINGEN KL. 5.45
FALSKUR FUGL KL. 4 - 6 - 8 - 10 14
THE CROODS 2D ÍSL.TAL KL. 3.20 (TILBOÐ) L
THE CALL KL. 5.45 - 8 - 10.15 16
THE CALL LÚXUS KL. 5.45 - 8 - 10.15 16
LATIBÆR KL. 1 (TILBOÐ) - 3 L
FALSKUR FUGL KL. 6 - 8 14
SCARY MOVIE KL. 6 - 8 - 10 14
OBLIVION KL. 8 - 10.40 12
OBLIVION LÚXUS KL. 1 12
G.I JOE RETALATION 3D KL. 10 12
THE CROODS 3D ÍSL. TAL KL. 1 (TILB.) - 3.10 - 5.45 L
THE CROODS 2D ÍSL.TAL KL. 1 (TILB.) - 3.10 L
FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 2D KL. 1 (TILB.) - 3.40 L
-H.S., MBL
G.H.J., RÚV
-H.V.A., FBL
“FÍNASTI FUGL”