Morgunblaðið - 11.05.2013, Side 11

Morgunblaðið - 11.05.2013, Side 11
Morgunblaðið/Ómar Tónlist Bangoura Band mun leika lög í Hafnarhúsinu um kvöldið en með þeim tónleikum lýkur hátíðinni. Kólumbískur Íslendingur Juan Camilo Roman Estrada, talsmaður fjölmenningarráðs Reykjavíkur, er einn þeirra sem taka þátt í hátíðinni. Hann er í Fjöl- menningarráði Reykjavíkur og hef- ur búið hér í sex ár og á íslenska eig- inkonu. Hann kynntist henni í Kólumbíu þar sem hún bjó um tíma og hún var þá íslenskur Kólumb- íumaður á þeim tíma, eins og hann orðar það. Þau bjuggu saman þar í tvö ár áður en þau fluttu til Íslands og hafa verið hér síðan. Hann byrjaði fyrir þremur ár- um í fjölmenningarráðinu en í því eru sjö manns frá ýms- um löndum; Kenía, Fil- ippseyjum, Kólumbíu, Hollandi, Þýskalandi, Víetnam og Bandaríkj- unum. „Við erum öll Reykvíkingar,“ segir Juan. Aðspurður hvaða augum hann horfi hátíð- ina segir hann að mark- miðið sé að efla samhljóm milli menningarheima á Íslandi. „Dagurinn hef- ur tvöfalt markmið; bæði þetta með sam- hljóminn en hitt mark- miðið er að innflytjendur geti verið stoltir af uppruna sínum og fengið að styrkja sjálfsmynd sína á Íslandi,“ segir Juan. „Sjálfsmynd fólks er misjafnlega sterk þegar það er í öðru landi og í annarri menningu, þar sem það talar ekki tungumál fólksins sem býr þar fyrir. Þessi há- tíð er fyrir allt samfélagið, því við er- um öll saman í þessu landi. Sem fjöl- menningarsamfélag erum við sterkari saman þegar við lærum hvert af öðru. Við höldum fjölmenn- ingarþing annað hvert ár á haustin þar sem innflytjendur frá ýmsum löndum hittast og spjalla saman og þar er fjölmenningarráðið kosið. Fjölmenningarráðið er kosið á þess- um þingum til tveggja ára. Ráðið er tengt Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar og markmiðið með því er að vera rödd innflytjenda á Íslandi. Þetta er fimmta skiptið sem það er haldinn svona fjölmenning- ardagur. Þetta hefur alltaf heppnast vel og ég hvet sem flesta til að mæta. Í ráðhúsinu verðum við með yfir fjöru- tíu bása þar sem menning margra annarra landa verður kynnt með ýmsum hætti. Svo verður gaman að dansa saman um kvöldið innan um aðra stolta Íslendinga,“ segir Juan. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2013 Með vorkomunni fara söngfuglarnir á kreik og undanfarið hefur verið heil- mikið í boði um allt land í tónlistarlíf- inu, þar sem alls konar kórar hafa boð- ið til vorsöngs og afrakstur vetrar verið kynntur. Flaggskipið Karlakór Reykjavíkur hefur haldið þrenna vortónleika í Langholtskirkju undanfarið og þeir fjórðu og síðustu verða í þeirri sömu kirkju og frábæra sönghúsi kl. 16 í dag, laugardag. Á tónleikunum fá áheyrendur að hlýða á margar af þekktustu íslensku karlakórsperlunum sem kórinn hefur oft sungið á langri starfsævi. Má þar nefna lög eftir Sveinbjörn Svein- björnsson, Bjarna Þorsteinsson, Helga Helgason og fleiri auk úrvals erlendra laga. Einsöngvari verður Sigrún (Diddú) Hjálmtýsdóttir, með alla þá gleði og útgeislun sem hún er kunn fyrir, en hún mun koma víða við í flutn- ingi sínum í dag. Stjórnandi kórsins er Friðrik S. Kristinsson sem hefur verið við stjórn- völinn í rúma tvo áratugi og við flygil- inn er Anna Guðný Guðmundsdóttir. Karlakór Reykjavíkur og Sigrún Hjálmtýsdóttir Morgunblaðið/Eggert Kát Hin geislandi Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, er elskuð og dáð söngkona. Hér er hún með körlunum í Karlakór Reykjavíkur á æfingu fyrir nokkrum árum. Ekki missa af Diddú og körlunum að syngja í dag Morgunblaðið/Kristinn Samhljóma Þeir syngja sem ein rödd, karlarnir í Karlakór Reykjavíkur. Fjölmenningardagur Reykjavík- urborgar verður haldinn hátíð- legur í dag og er markmiðið með hátíðahöldunum að fagna fjölbreyttri menningu borgar- samfélagsins. Hátíðin er nú haldin í fimmta sinn og má með sanni segja að hún hafi öðlast sess í huga borgarbúa enda set- ur hún skemmti- legan blæ á borg- arlífið. Fjölbreytt skemmtidagskrá verð- ur í boði sem hefst með setningarathöfn kl. 13 við Hallgrímskirkju. Hátíðinni lýkur síðan með tónleikum í Hafn- arhúsinu sem hefjast klukkan 20 í kvöld. Borg dans og gleði FJÖLMENNINGARHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR Í tilefni af alþjóðlega farfugladeg- inum verður Fuglavernd með fugla- skoðun á Álftanesi sunnudaginn 12. maí. Allflestir farfuglanna eru komn- ir og því má búast við miklu fugla- lífi. Ólafur Torfason, fuglamerkingar- maður með meiru, mun leiða hópinn en lagt verður af stað frá Kasthús- tjörn klukkan 13:00 stundvíslega. Mikið er nú af margæs á Álftanesi en þær eru þar fargestir vor og haust. Margæsin er minnsta gæsin hér á landi, aðeins lítið eitt stærri en stokkönd, með sótsvart höfuð, háls og bringu og grábrúnt bak og vængi. Fargestirnir á Álftanesi eru af undirtegund sem er ljósari á kvið- inn og verpa á kanadísku Íshafseyj- unum en hafa vetursetu á Írlandi. Aðalfæða þeirra er marhálmur, og draga þær nafn sitt af því, en þær sækja oft í tún á vorin og éta sjáv- arfitjung og grænþörunga. Allir eru velkomnir í gönguna en gaman er að taka sjónaukann með og klæða sig vel. Frekari upplýsingar um alþjóðlega farfugladaginn má finna á vefsíð- unni www.worldmigratorybird- day.org. Fuglaskoðun á Álftanesi Fargestur Margæsin dregur nafn sitt af marhálmi sem er aðalfæða hennar. Margæsin mætt í heimsókn Skátafélagið Héraðsbúar standa fyr- ir strandhreinsunarátaki á göngu- leiðinni milli Unaóss og Stapavíkur í dag, laugardaginn 11. maí. Óskað er eftir að sem allra flestir leggi mál- efninu lið enda vinna margar hend- ur létt verk. Hist verður klukkan 11 við Unaós þar sem gönguleiðin í Stapavík byrjar en þegar líða tekur á daginn verður þáttakendum boðið í grillveislu. Þáttakendur eru hvattir til að klæða sig eftir veðri, vera vel skóaðir og koma með aukabita og vatnsflösku. Ruslapokar og annað sem þarf til verksins verður á staðnum. Skátafélagið Héraðsbúar Hressir Skátar eru ávallt viðbúnir og láta til sína taka þar sem þarf. Hreinsa ströndina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.