Morgunblaðið - 11.05.2013, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2013
Gunnar Dofri Ólafsson
gunnardofri@mbl.is
Ísland er í þriðja sæti með ein-
kunnina 9,65 af 10 á lista stofnunar-
innar Economist Intelligence Unit
(EIU), sem gaf nýverið út skýrslu
um stöðu lýðræðis í heiminum fyrir
árið 2012. Einungis Noregur og
Svíþjóð fá hærri meðaleinkunn en
Ísland. EIU er hluti samsteypunn-
ar sem gefur út vikuritið The
Economist.
Þeir þættir sem mældir voru í út-
tekt stofnunarinnar eru kosningar
og lýðræðisþátttaka, virkni ríkis-
stjórnar, stjórnmálaþátttaka borg-
aranna, stjórnmálamenning og
staða borgaralegra réttinda.
Meðal þess sem fram kemur í
skýrslunni er að lýðræðisþróun í
heiminum stendur nokkurn veginn í
stað. Þrátt fyrir þessa stöðnun hafa
orðið nokkrar breytingar milli
landa. Þannig hafa byltingar í
Arabalöndum, þar sem almenning-
ur krafðist lýðræðisumbóta, fært
þeim löndum hærri einkunn. Hins
vegar er gerður fyrirvari við að
staðan í þeim löndum sé hvort
tveggja óljós og viðkvæm.
Á hinn bóginn hefur sú þróun,
sem varð í nokkrum Evrópuríkjum
árið 2011, þegar lýðræðislega
kjörnum leiðtogum var gert að
víkja fyrir skipuðum embættis-
mönnum, ekki haldið áfram. Höf-
undar vekja athygli á því að þær
aðhaldsaðgerðir sem til standa í
Evrópu muni verða prófsteinn á
stöðu lýðræðis í álfunni.
Helmingur heimsbyggðarinnar
búsettur í lýðræðisríkjum
Samkvæmt mælingum EIU býr
aðeins helmingur mannkyns í ein-
hvers konar lýðræðisríkjum, en að-
eins 11% jarðarbúa búa við það sem
skýrsluhöfundar kalla „algjört lýð-
ræðisríki“. Aðrir flokkar ríkja eru
gölluð lýðræðisríki, ríki með bland-
að stjórnarfar og loks alræðisríki.
Síðustu ár hefur hægt á
lýðræðisþróun og sú þróun sem
orðið hafi að nokkru gengið til baka
sökum efnahagsþrenginganna sem
hafa orðið frá árinu 2008.
Versnandi staða fjölmiðla
Í skýrslunni er bent á að staða
frjálsra fjölmiðla í heiminum fari
versnandi og að hraði þeirrar þró-
unar hafi aukist mjög frá 2008.
Ástæður þessa eru sagðar flókn-
ar og margbreytilegar. Fjármála-
kreppan ýtti að nokkru leyti undir
þá þróun sem hafði verið árin fyrir
hrun. Þar að auki virðist sem marg-
ar ríkisstjórnir óttist í auknum
mæli gagnrýni fjölmiðla, og hafa
þess vegna reynt að stjórna fjöl-
miðlum og takmarka tjáningarfrels-
ið með ýmsu móti. Þar að auki hef-
ur aukið atvinnuleysi og minna
atvinnuöryggi kynt undir ótta og
sjálfsritskoðun fjölmiðlafólks í
mörgum löndum.
Samþjöppun eignarhalds á fjöl-
miðlum hefur einnig haft neikvæð
áhrif, en skýrsluhöfundar telja slíka
þróun hafa neikvæð áhrif á fjöl-
breytni og fjölda þeirra sjónarmiða
sem komast í fjölmiðla.
Ennfremur hafa fjölmiðlar í efn-
aðri ríkjum orðið innhverfari og
fjalla í minna mæli um málefni
heimsbyggðarinnar. Afleiðingar
þessar eru að efnaðri þjóðir veita
þróunarríkjum minni athygli og ýta
síður á lýðræðisumbætur í þeim
löndum.
Engin lýðræðisþróun á heimsvísu
Staða lýðræðis í heiminum batnaði hvorki né versnaði árið 2012 samkvæmt nýútgefinni skýrslu
Ísland þriðja lýðræðislegasta ríkið á eftir Noregi og Svíþjóð „Algjör lýðræðisríki“ aðeins 25 talsins
Skýrsla Economist um stöðu lýðræðis
FLOKKAR
Land Sæti Meðaltal Kosningar og Virkni Stjórnmála- Stjórnmála- Borgaraleg
lýðræðisþátttaka ríkisstjórnar þátttaka menning réttindi
Noregur 1 9,93 10,00 9,64 10,00 10,00 10,00
Svíþjóð 2 9,73 9,58 9,64 9,44 10,00 10,00
Ísland 3 9,65 10,00 9,64 8,89 10,00 9,71
Danmörk 4 9,52 10,00 9,64 8,89 9,38 9,71
Nýja-Sjáland 5 9,26 10,00 9,29 8,89 8,13 10,00
Ástralía 6 9,22 10,00 8,93 7,78 9,38 10,00
Sviss 7 9,09 9,58 9,29 7,78 9,38 9,41
Kanada 8 9,08 9,58 9,29 7,78 8,75 10,00
Finnland 9 9,06 10,00 9,64 7,22 8,75 9,71
Holland 10 8,99 9,58 8,93 8,89 8,13 9,41
Luxemborg 11 8,88 10,00 9,29 6,67 8,75 9,71
Austurríki 12 8,62 9,58 8,21 7,78 8,13 9,41
Írland 13 8,56 9,58 7,86 7,22 8,13 10,00
Þýskaland 14 8,34 9,58 8,21 6,67 8,13 9,12
Malta 15 8,28 9,17 8,21 5,56 8,75 9,71
Stóra-Bretland 16 8,21 9,58 7,50 6,11 8,75 9,12
Tékkland 17 8,19 9,58 7,14 6,67 8,13 9,41
Úrugvæ 18 8,17 10,00 8,93 4,44 7,50 10,00
Márítus 19 8,17 9,17 8,21 5,00 8,75 9,71
Suður-Kórea 20 8,13 9,17 8,21 7,22 7,50 8,53
Bandaríkin 21 8,11 9,17 7,50 7,22 8,13 8,53
Kostaríka 22 8,10 9,58 8,21 6,11 6,88 9,71
Japan 23 8,08 9,17 8,21 6,11 7,50 9,41
Belgía 24 8,05 9,58 8,21 5,56 7,50 9,41
Spánn 25 8,02 9,58 7,50 6,11 7,50 9,41
Yfirlit yfir þau 25 ríki sem hafa hæstu lýðræðiseinkunn að mati Economist Intelligence Unit Heimild: The Economist
Í skýrslu Economist Intelligence
Unit (EIU) kemur fram að aðeins
25 af þeim 167 ríkjum sem
skýrslan tók til ná því að vera
það sem EIU kallar „algjör lýð-
ræðisríki“, en skýrslan tók ekki
til örríkja.
Til að hljóta þá viðurkenningu
þarf ríki að hafa meðaleinkunn
hærri en 8,00. Aðeins 11%
mannkyns búa í þeim 25 ríkjum
sem EIU flokkar sem „algjör lýð-
ræðisríki“. Meðal þessara ríkja
eru öll Norðurlöndin, Noregur
hæstur, í fyrsta sæti með 9,93,
en Finnland í níunda sæti með
einkunnina 9,06.
Athygli vekur að fjölmörg
Vestur-Evrópuríki ná ekki lág-
markseinkunn til að teljast með-
al þessara ríka, en meðal þeirra
má nefna Frakkland, Portúgal og
Ítalíu.
Fáum til mikillar undrunar
vermir Norður-Kórea botnsætið
á lista EIU með einkunnina 1,08,
en ríkið fær einkunnina 0 í flokk-
um kosninga og borgaralegra
réttinda, en sömu sögu er að
segja af Sýrlandi, sem vermir
fjórða neðsta sæti listans.
Meðal annarra ríkja á neðri
enda listans má nefna Kína, Íran,
Afganistan og Sameinuðu arab-
ísku furstadæmin
25 „algjör
lýðræðisríki“
LÝÐRÆÐI Á HEIMSVÍSU
Ármúli 13a / Borgartún 26 / 540 3200 / www.mp.is
Við bjóðum ölbreytt úrval innlánsreikninga með föstum vöxtum.
Hafðu samband og kynntu þér málið.
M
ið
að
vi
ð
út
ge
fn
a
va
xt
at
ö
flu
M
P
ba
nk
a
1
1
.a
pr
íl
2
0
1
3
.
Fastir vextir á innlánsreikningum
innlánsvextir m.v.
36 mánaða bindingu
Verðtryggðir
innlánsvextir m.v.
36 mánaða bindingu
Óverðtryggðir2,5 6,3
Óverðtryggðir innlánsreikningar með föstum vöxtumVerðtryggðir innlánsreikningar með föstum vöxtum
3 mánuðir 4,8%
6 mánuðir 5,0%
12 mánuðir 5,2%36 mánuðir 2,5% 60 mánuðir 2,75%
24 mánuðir 5,4%
36 mánuðir 6,3%
60 mánuðir 6,4%
NÝJUNG Í
LANDSLAGINU