Morgunblaðið - 11.05.2013, Síða 27

Morgunblaðið - 11.05.2013, Síða 27
FRÉTTIR 27Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2013 Ögurhvarfi 2 • 203 Kópavogi • Sími 567 1770 • Opið alla daga kl. 10 -23 Gamli ísinn - þessi ískaldi Greining Íslandsbanka, greiningar- þjónusta IFS og greiningardeild Arion banka spá því allar að Seðla- bankinn muni halda stýrivöxtum sínum óbreyttum á næsta vaxta- ákvörðunarfundi, sem verður 15. maí næstkomandi. Gangi spárnar eftir verða dag- lánavextir bankans því áfram 7%, vextir af lánum gegn veði til sjö daga 6%, hámarksvextir á 28 daga innistæðubréfum 5,75% og innláns- vextir 5%. „Meginforsenda spárinnar er að krónan hefur styrkst talsvert frá vaxtaákvörðuninni 20. mars og hag- tölur benda til þess að hagvöxtur undanfarið hafi verið öllu hægari en Seðlabankinn reiknaði með í sinni síðustu spá. Verðbólguhorfur hafa því batnað nokkuð frá síðustu vaxtaákvörðun. Verðbólguvænting- ar hafa einnig lækkað, verðbólgan hjaðnað frá vaxtaákvörðuninni 20. mars og hefur verðbólguþróunin verið nokkuð í takti við síðustu verðbólguspá Seðlabankans,“ segir m.a. Morgunkornum greiningar Ís- landsbanka. Hækkun gengis krónunnar á álandsmarkaði kom í kjölfar þess að Seðlabankinn hóf inngrip á gjald- eyrismarkaði, en frá lokum desem- ber á síðastliðnu ári til 8. mars í ár seldi bankinn 77 milljónir evra fyrir krónur. Einnig hætti hann reglu- legum kaupum á gjaldeyri undir lok síðastliðins árs. Framvirkur samningur Seðla- bankans sem tilkynnt var um 19. febrúar síðastliðinn, þar sem bank- inn selur Landsbankanum 35 millj- ónir evra í skiptum fyrir u.þ.b. sex milljarða króna á næstu mánuðum, er hluti af inngripunum. „Má segja að samningurinn hafi leyst gjaldeyrisinngrip viknanna á undan af hólmi, a.m.k. að hluta,“ segir ennfremur í Morgunkornum greiningar Íslandsbanka. Spár gera ráð fyrir óbreyttum stýrivöxtum  Greiningardeildir bankanna og IFS samhljóða í spám Morgunblaðið/Eggert Seðlabankinn Næsti vaxtaákvörðunardagur peningastefnunefndar er 15. maí. Spár gera ráð fyrir því að Seðlabankinn haldi stýrivöxtum óbreyttum. Spá allar óbreyttum vöxtum » Greining Íslandsbanka, greiningardeild Arion banka og greiningarþjónusta IFS spá all- ar óbreyttum stýrivöxtum á miðvikudag. » Gangi spárnar eftir verða daglánavextir bankans því áfram 7%. Ölgerðin Egill Skallagrímsson hefur skrifað undir Global Compact – sátt- mála Sameinuðu þjóðanna um samfélags- ábyrgð. Í því felst skuldbind- ing til að fram- fylgja tíu við- miðum um samfélagsábyrgð. Þau viðmið snúa að mannréttindum, starfsmannamálum, umhverfi og aðgerðum gegn spillingu, sam- kvæmt frétt á heimasíðu Samtaka atvinnulífsins. Að sögn Svanhildar Sigurðar- dóttur hjá Ölgerðinni hefur verið unnið að því undanfarin ár að marka félaginu skýra stefnu í sam- félagsábyrgð. „Í þeirri vinnu varð fljótt ljóst að helstu snertifletir yrðu umhverfið, samfélagið, mark- aðurinn og fyrirtækið. Breiður hóp- ur starfsfólks Ölgerðarinnar hefur með endurtekinni hópavinnu tekið saman þau atriði sem samfélags- ábyrgð fyrirtækisins tekur til,“ er m.a. haft eftir Svanhildi á vefsíðu SA. Í tilefni af eitt hundrað ára af- mæli Ölgerðarinnar var ákveðið að ráðast í 100 verkefni. Undirritar SÞ-sátt- mála  Tengist sam- félagsábyrgð Svanhildur Sigurðardóttir Japanska jenið hefur ekki verið veikara í fjögur ár. Gengið gagn- vart dollar er nú u.þ.b. 101 jen fyrir hvern dollar, samkvæmt því sem fram kemur í Morgunpósti IFS í gær. Hlutabréfaverð hækkaði í landinu en TPX-vísitalan hækkaði um 2,4%. Jenið hefur gefið eftir um 23% síðan í september og er útlit fyrir að árleg veiking gjaldmiðils- ins muni vera sú mesta frá árinu 1979. Japanska jenið veikst um 23% Vátryggingafélag Íslands mun birta uppgjör fyrsta ársfjórðungs föstu- daginn 17. maí. Þetta er fyrsta upp- gjör félagsins frá skráningu þess á hlutabréfamarkað. Í morgunpósti IFS í gær kemur fram að VÍS hafi hingað til ekki birt afkomu eftir árs- fjórðungum, sem auki nokkuð óvissu í spá IFS. Búast má við að tjón sé al- mennt meira á 4F og 1F en yfir sum- artímann en hversu miklu munar er erfitt að segja til um. IFS reiknar með að tekjur félags- ins hafi aukist nokkurn veginn í takt við verðbólgu. Í takt við verðbólgu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.