Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Page 30
Guðmundur Ingi Hauksson
Morgunblaðið/Eggert
Þ
egar Guðmundur Ingi Hauksson
fékk erlendan gest í heimsókn á
dögunum notaði hann tækifærið og
kynnti þá fyrir alíslensku hráefni.
„Ég ákvað að bjóða honum upp á hrefnu-
sashimi með söxuðum hvítlauk, engifer, smá
chili og wasabi og hafa í forrétt. Til að
kynna honum almennilega kjötið grillaði ég
einnig úrvalshrefnusteik í aðalrétt sem er
ekkert síðra en nautakjötið okkar. Mér
finnst að við Íslendingar eigum fylgja okkar
eigin sannfæringu og hafa trú á okkur sjálf-
um eins og við gerðum eftir hrunið þegar
ríkisstjórnin bugaðist við að aðrar þjóðir
reyndu að pressa upp á okkur skuldbind-
ingum sem við áttum aldrei að taka. Þá stóð
þjóðin ein í lappirnar og kom í veg fyrir
stórslys. Það sama á við um hvalinn okkar
sem hefur verið umdeildur á alþjóðavísu. Ef
við þorum ekki að bjóða erlendum gestum
okkar upp á úrvalshvalkjöt, hvers vegna
ættu þá aðrir að gera það? Við eigum að
vera stolt af því að nýta auðlindir okkar
með hófsömum hætti og vera ófeimin við að
bjóða útlendingum upp á úrvalshrefnukjöt
eða annað hvalkjöt.“
Kjötið sé ekki of lengi
í sambandi við súrefni
Guðmundur segir auðvelt að meðhöndla
hrefnukjötið en þó þurfi að gæta að því að
kjötið sé ekki lengi í óheftu sambandi við
súrefni. „Þá er hætta á að smá lýsisbragð
komi af því og það viljum við ekki. Annars
er ég ekki duglegur að elda dagsdaglega,
eiginkonan sér alveg um það en á hátíð-
arstundum í eldhúsinu stend ég alveg löð-
ursveittur, sérstaklega við kjötið en ég verð
að viðurkenna að ég er ekki laginn við
grænmetið,“ segir Guðmundur Ingi og hlær.
Morgunblaðið/Eggert
ALÍSLENKT SASHIMI
Óhræddur við að bjóða
upp á hrefnukjöt
HREFNUKJÖT ER KANNSKI EKKI ALLRA EN GUÐMUNDUR INGI HAUKSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI
LÖÐURS ER EKKI Í VANDA MEÐ AÐ REIÐA FRAM HREFNUSASHIMI FYRIR LESENDUR.
Unnur H. Jóhannsdóttir uhj@simnet.is
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.5. 2013
Matur og drykkir
U.þ.b. 400 g hrefnukjöt
Marinering
2-3 hvítlauksrif
2-3 tsk. engifer
2 tsk. chili
Smávegis wasabi bætt í kikkoman-sojasósu.
Kjötið saxað í u.þ.b. 2 x 2 cm bita og látið
liggja í leginum í 1-2 klst.
Borið fram hrátt með engifer og wasabi.
HREFNUSASHIMI