Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.5. 2013
Í blaði dagsins birtum við svör
maka nýrra ráðherra við nokkrum
vel völdum spurningum sem við
lögðum fyrir þá. Fáir fara einir í
gegnum lífið, sem betur fer, og það
getur verið áhugavert að heyra
hvað betri helmingurinn hefur að
segja um makann og þann tíma
sem framundan er hjá fjölskyldum
ráðherranna. Völdum fylgir
ábyrgð og ný ríkisstjórn tekur við
völdum í andrými mikilla vænt-
inga.
Á tímamótum, eins og þegar
skipt er um ríkisstjórn, höfum við
öll væntingar um að hagurinn
vænkist. Að staða okkar verði betri
en hún er nú, eða að minnsta kosti
ekki verri. Kosningaloforðin að
þessu sinni voru kannski óvenju
fögur. (Eða kannski bara gleymum
við því inn á milli hversu fögur þau
voru í síðustu, þarsíðustu og þar-
þarsíðustu kosningum.) En þau
voru í það minnsta það fögur að við
væntum mikils nú. Kjósendur
munu ekki slá neitt af sínum kröf-
um til ráðamanna um blómlegri tíð.
Kosningar hafa farið fram, ríkis-
stjórnin mynduð og ekkert hægt
að gera annað en að krossleggja
fingur og vona það besta.
Á blaðamönnum hvílir sú skylda
að skýra út fyrir kjósendum hvern-
ig til tekst að efna loforðin. Því
megum við aldrei gleyma. Kjós-
endur sitja uppi með ríkisstjórnina
í fjögur ár og í millitíðinni er það
fjölmiðla að gagnrýna, varpa ljósi á
og skýra út hverju fram vindur,
hvað þarf að laga, hvernig farið er
með almannafé og hvernig gengur
að efna loforðin fögru.
Margir hafa orðið til að óska
nýrri ríkisstjórn velfarnaðar. Full
ástæða er hins vegar til að óska
kjósendum og fjölmiðlafólki vel-
farnaðar næstu árin og óska þess
að þeirra samstarf verði farsælt.
Kjósendur verða að geta reitt sig á
fjölmiðla – ekki síður en rík-
isstjórnina.
RABBIÐ
Óskir um velfarnað
Eyrún Magnúsdóttir
Á Ylströnd höfuðborgarinnar við Nauthólsvík úir gjarnan og grúir af fólki þegar sólin lætur loks á sér kræla. Á góðviðrisdögum má þar jafnan sjá fjöl-
skyldur snæða nesti saman á útbreiddu teppi, blakmenn eigast við af miklum móð eða jafnvel ljósmyndara í leit að áhugaverðu augnabliki.
Á meðal gesta Ylstrandarinnar í vikunni var þessi fjörugi stúlknahópur sem var myndaður í bak og fyrir á meðan hann iðkaði framandi hópfim-
leikakúnstir. Óskandi er að myndirnar af öðrum hvorum snjallsímanum hafi heppnast vel því líklega ber hópurinn ekki gæfu til þess að endurtaka leikinn í
góðviðri þessa helgina, þar sem veðurfræðingar spá að mestu rigningu á höfuðborgarsvæðinu á næstu dögum.
AUGNABLIKIÐ
Morgunblaðið/RAX
STEMNING MYNDAST
Á SUMRIN LOSNAR UNGDÓMURINN ÚR PRÍSUND NÁMSBÓKA OG PRÓFA OG ÖÐLAST LOKS FRELSI TIL AÐ
LYFTA SÉR Á KREIK Í SUMARSÓLINNI, TIL DÆMIS Á YLSTRÖND HÖFUÐBORGARINNAR Í NAUTHÓLSVÍK.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hvað? Fyrsta mótið af sex í Eimskips-
mótaröðinni í golfi.
Hvar? Á Garðavelli á Akranesi.
Hvenær? Alla helgina.
Fyrsta golfmótið
Hvað? Gamanleik-
urinn Kvennafræð-
arinn eftir Kamillu
Wargo Brekling í leik-
stjórn Charlotte Bö-
ving.
Hvar? Þjóðleikhúsið, Kassinn.
Hvenær? Á laugardaginn kl. 19:30.
Kvennafræðarinn
Í fókus
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Hvað? Vortónleikar Kvennakórs Ak-
ureyrar. Stjórnandi: Daníel Þor-
steinsson.
Hvar og hvenær? Blönduóskirkju,
laugardaginn 25. maí kl 15 og Hofi,
sunnudaginn 26. maí kl 16.
Vortónleikar
Hvað? Bandaríska
kvikmyndin The Place
Beyond the Pines eftir
Derek Cianfrance
með Ryan Gosling,
Bradley Cooper og
Evu Mendes.
Hvar? Háskólabíó.
Hvenær? Almennar sýningar á laug-
ardag og sunnudag.
Place Beyond the Pines
Hvað? Burtfararprófstónleikar,
Aðalsteinn Már Ólafsson, barítón; Birg-
ir Karl Óskarsson, tenór.
Hvar? Salnum, Kópavogi.
Hvenær? Á sunnudag kl. 17.
Burtfararprófstónleikar
Hvað? Pepsideild karla í knattspyrnu:
FH - ÍA.
Hvar? Á Kaplakrikavelli.
Hvenær? Á sunnudag kl 19:15.
Stálin stinn í Hafnarfirði
* Forsíðumyndina ...