Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.5. 2013
HEIMURINN
ÍR
ndrrverafy
ngsMdiEsfa
arandihMahm
14.seforseta,
ðir íjúní. Fra
ðstaiandstöð
ð aðs. Siðtog
hnekkt.unarn
BANDARÍKIN
MOORE 24 íbúar
í Moore, útborg
Oklahomaborgar í
fiðBandaríkjunum, létu lí
þegar gríðarlega öflug
skýstrókur gekk yfir. 3
manns slösuðust í óve
heimili ger
fjórum ský
til í Banda
mánudag v r
myndaðist
eftir sig 27
ON ð á Bretlandi þegar tMiki
Árásin var tekin umann á götu í London. g hafa
á hermanninn og réðust síðan ásýndar. Árásarmennirnir óku bílverið n
ð lögreglu og voru særðir skotsárumkjötsveðju. Mennirnir veittust aum og
N
ðja rit be
cheb
afrís
Fall A
selst
tiað
„Ég skal segja hvað mér finnst
um Pútín,“ sagði leikarinn
Gerard Depardieu í viðtali við
dagblaðið Komsomolskaja
Pravda fyrir viku og bætti við
að rússneski forsetinn væri
einn af mörgum rússneskum
vinum sínum. „Rússneska
þjóðin þarf einmitt á persónu
eins og honum að halda – með
rússneskt skap. Pútín er að
reyna að endurheimta örlitla
reisn fyrir þjóðina.“
Síðan bætti hann við: „Fyrir
mér er hann eins og Francois
Mitterrand [fyrrverandi
forseti Frakklands] og Jó-
hannes Páll páfi II. Ég hef
aldrei sagt blaða-
mönnum þetta
áður, en þetta
er mín skoð-
un.“
Gerard Depardieu var ummiðja liðna viku í Grosní,höfuðborg Tétsníu, ásamt
bresku leikkonunni Elizabeth Hur-
ley þar sem tökur voru að hefjast
á njósnamynd, sem nefnist Tur-
qoise, og svöruðu þau spurningum
blaðamanna. Þó ekki öllum og
voru blaðamenn beðnir um að
sýna „háttvísi“ í spurningum sín-
um. Þar var víst átt við spurn-
ingar um stöðu mannréttinda í
rússneska lýðveldinu.
Depardieu hitti einnig Akmad
Kadírov, leiðtoga Tétsníu, sem
hann kallar „mjög náinn vin“ sinn.
Kadírov hefur verið vændur um
pyntingar, mannréttindabrot og að
láta myrða óvini sína án dóms og
laga víða um heim. Hann neitar
þeim ásökunum.
Depardieu hefur verið hylltur
sem einn besti leikari sinnar kyn-
slóðar og besti leikari Evrópu.
Hann er einnig kraftbirting alls
þess sem franskt er, frumgallinn
holdi klæddur, hvort sem hann er
í hlutverki Dantons eða Steinríks.
Upphaf þess að leiðir Frakk-
lands og Depardieu skildi má
rekja til viðtals við Jean-Marc Ay-
rault, forsætisráðherra Frakk-
lands, í morgunsjónvarpsþætti um
miðjan desember. Ayrault var
spurður hvað honum þætti um
ákvörðun Depardieus um að færa
aðsetur sitt til þorpsins Nechin í
Belgíu til að komast undan 75%
skatti, sem franska stjórnin hafði
lýst yfir að yrði lagður á tekjur
yfir einni milljón evra.
Aumkunarverður?
Ayrault svaraði að sér þætti Dep-
ardieu aumkunarverður og notaði
franska orðið minable. Þessi skila-
boð næstvaldamesta manns lands-
ins til eins af borgurum þess
vöktu athygli. Vikuritið Le Nouvel
Observateur sagði að orðið mi-
nable væri „kjaftshögg“, orð sem
eitt og sér ýtti undir van-
metakennd leikarans og breytti
honum úr þjóðargersemi í son
ólæss verkamanns frá útkjálka.
„„Minable“,“ skrifaði blaðið.
„Þar með var horft fram
hjá öllu sem hann hafði
afrekað, einn, með eigin
hendi, 170 myndir og
meistaraverk, sívax-
andi fasteignaveldi
hans, myndastyttur, listasafn, vín-
ekrur, verslanir, veitingastaði …
Einkum þó gleymdist undirstaða
alls þessa, menning hans, hert í
óseðjandi lestrarfíkn og ástríðu-
fullri vináttu við [söngkonuna]
Barböru, [leikarann] Jean Carmet,
[rithöfundana] Francoise Sagan,
Marguerite Duras og Andre Man-
douze, latínumanninn sem kynnti
hann fyrir heilögum Ágústínusi.“
Fjórum dögum eftir viðtalið
birtist í sunnudagsblaðinu Le Jo-
urnal de Dimanche opið bréf frá
Depardieu til forsætisráðherrans.
„Aumkunarverður, þú sagðir
„aumkunarverður“?“ skrifaði hann.
„Þetta er vissulega aumk-
unarvert.“ Depardieu lýsti yfir því
að hann æltaði að afsala sér vega-
bréfi sínu og bætti við: „Hvorki vil
ég láta vorkenna mér né hrósa, en
ég hafna orðinu „aukmun-
arverður“.
Hann tók fram að á 45 árum
hefði hann borgað 145 milljónir
evra í skatta. Málið vakti miklar
umræður í Frakklandi. 3. janúar
lýsti Depardieu yfir því að hann
hefði ákveðið að taka boði Pútíns
um rússneskt ríkisfang. Tveimur
dögum síðar heimsótti hann Pútín
sumarhöll hans í Sochi við Svarta-
haf. Þar beið hans vegabréf með
gamalli mynd sem mun hafa verið
tekin af netinu þannig að minnti á
falsað skólaskírteini.
Á ferð og flugi
Síðan hefur Depardieu verið á
ferð og flugi. Nú er verið að
kynna dreifingaraðilum í Cannes
mynd um Dominique Strauss-
Kahn með honum í aðalhlutverki.
Hann á hús í Saransk í Mordóvíu
í Rússlandi, er tíður gestur í
Grosní, en skýtur einnig upp koll-
inum í Róm, Úsbekistan og New
York. Rússar hafa tekið Depardieu
upp á arma sína og rússneskir
fjölmiðlar kalla hann „rússenskan
leikara af frönskum uppruna“.
LEIKARINN GERARD DEPARDIEU OLLI UPPNÁMI ÞEGAR
HANN FLÚÐI FRAKKLAND VEGNA SKATTPÍNINGAR OG
GERÐIST RÚSSI. NÚ ER HANN DÁÐUR Í RÚSSLANDI, EN
FRAKKAR ÝMIST HÆÐAST AÐ HONUM EÐA STYÐJA.
Vladimír
Pútín
PÚTÍN SKJALLAÐUR
Gerard Depardieu heldur osti á lofti í ostaverksmiðju fyrir utan Saransk þar sem hann á heimili við Lýðræðisgötu 1.
AFP
Rússneskur
leikari af
frönskum
uppruna
* Enginn, sem yfirgefið hefur Frakkland, hefur verið særðurmeð sama hætti og ég.Gerard Depardieu í opnu bréfi til forsætisráðherra Frakklands í Le Journal de Dimanche.AlþjóðamálKARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is