Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.5. 2013
Þ
essi málsháttur á vel við í stjórn-
málum og inntak hans er sér-
staklega mikilvæg áminning fyrir
okkur sem nú fáum að starfa sem
kjörnir fulltrúar þjóðarinnar. Þessi
orð minna á mikilvægi þess að hlusta á þjóðina,
hlusta á fólkið sem við þjónum og að leiða í
þágu þess. Þjóðin hefur ekki aðeins valið sér
nýja ríkisstjórn, því fólkið í landinu kallar líka
eftir því að á það sé hlustað, kallar eftir sam-
vinnu og víðtækri sátt. Síðast en ekki síst er
kallað eftir hugrekki til þess að ganga hreint til
verks í að leysa þau brýnu vandamál sem fjöl-
skyldurnar, fyrirtækin og heimilin í landinu
standa frammi fyrir.
Á næstu vikum og mánuðum mun vonandi
kveða við nýjan tón í íslenskum stjórnmálum.
Nýjan tón þar sem áherslan verður á að byggja
á því góða sem fyrir er en bæta það sem þarf að
gera betur. Nýjan tón þar sem ábyrgar og
metnaðarfullar áherslur nýs stjórnarsáttmála
eru í fyrirrúmi, farið verður nýjar leiðir og unn-
ið verður að þverpólitískri sátt fyrir fólkið í
landinu.
Með því að hlusta á þjóðina stefnum við síður
að einhliða draumasamfélagi einstakra
stjórnmálaafla enda er það ekki draumur fólks-
ins. Draumur flestra snýst frekar um að lýð-
ræðið verði virt, raddir sem flestra fái að heyr-
ast og svo taki stjórnmálamenn ákvarðanir á
grundvelli niðurstaðna kosninga. Stjórnmál
dagsins í dag verða að snúast um þessi vinnu-
brögð, þessar áherslur og hugrekkið sem þarf
til að fara nýjar leiðir. Tökum fagnandi þeirri
ábyrgð sem við berum á framtíðinni, ábyrgðinni
sem felst í því að byggja upp gott samfélag fullt
af tækifærum fyrir komandi kynslóðir.
Við sem gegnum embætti ráðherra í ríkis-
stjórn Íslands sitjum öll í fyrsta sinn við
ríkisstjórnarborðið. Í því felst mikið tækifæri.
Tækifærið til þess að þora að breyta venjum
sem standa í vegi fyrir árangri, þora að leita
ráða víða, auka samráð og samvinnu. Það er
gríðarlegur heiður að fá tækifæri til að vinna
fyrir þjóðina. Í þeirri ábyrgð felst einmitt að
gleyma ekki að hlusta, gleyma ekki fyrir hverja
við erum að vinna dag og nótt. Með því að halda
þessu til haga munum við uppskera árangur
erfiðis okkar en fyrst og fremst mun þjóðin
uppskera í formi auðveldari mánaðamóta, betra
samfélags og bjartari tíma.
Að tala er að sá –
að hlusta er að uppskera
* Á næstu vikum og mánuðum mun vonandikveða við nýjan tón í íslensk-
um stjórnmálum.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
hannabirna.kristjansdottir@reykjavik.is
Skálmeldingurinn Snæbjörn
Ragnarsson sýndi á fésbókinni
fyrr í vikunni að hann er ritfærari en
flestir þegar hann birti langa og ít-
arlega lýsingu sína
á því annars frem-
ur óáhugaverða
athæfi að fara út
að hlaupa. Lýsing
þungarokkarans á
hlaupaferðinni telur alls 1.342 orð
sem telst í lengra lagi fyrir stöðu-
uppfærslu á samfélagsvefnum. Hin
stílfærða færsla hlaut umsvifalaust
athygli þeirra sem lásu og tóku alls
225 vinir Snæbjörns á samfélags-
miðlinum sig til og deildu þessari
stöðuuppfærslu og um hundrað
tjáðu sig um málið á veggnum hans.
Margfeldisáhrif samfélagsmiðilsins
gera það svo að verkum að sagan
flaug víðar um vefinn en tölurnar að
ofan segja til um. Líklega má að ein-
hverju leyti rekja vinsældir færsl-
unnar til þess hve margir tengdu
við þjáninguna sem lesa mátti út úr
hinni óborganlegu hlaupaferðarlýs-
ingu. „Ég er frekar vambstór orð-
inn og komst að því að tunnan á
mér telur sennilega þónokkur kíló.
Í hverju þunglamalegu skrefinu lyft-
ist systemið í heilu lagi og við lend-
ingu togaði Newton óskaplega í allt
saman. Við þrálátar endurtekningar
leið mér orðið eins og vömbin væri
að rifna af festingunni. Í máttlausri
tilraun til að berjast á móti virðist
ég hafa spennt mína óvönu maga-
vöðva óskaplega, og strax fyrir
fyrstu labbpásu var ég orðinn log-
andi sár um mig miðjan, bæði að
innan og utan.“
Í upphafi lýsing-
arinnar greinir
þungarokkarinn
frá því að tilefni
hlaupaferðarinnar
var mynd sem
fréttamaðurinn Magnús Hall-
dórsson setti inn á sína fésbók-
arsíðu af sjálfum sér á hlaupum.
Mun Snæbjörn þá hafa hugsað með
sér að rétt væri að gera slíkt hið
sama. Á vefnum hun.is er lýsingin
birt í heilu lagi, en lokum hennar
lýsir Snæbjörn svo: „Pastarétturinn
minn brennir mig að innan, ég er að
drepast í löppinni, lungun eru svo
sár að ég get ekki andað nema hálfa
leið niður og mér líður eins og
spikið hafi rifnað frá sixpakkinu sem
vísast er þarna undir einhverstaðar.
Í stuttu máli er ég úrvinda og sár
eftir að hafa gert mig að fífli. En hey,
ég fór út að hlaupa.“
AF NETINU
því að við fengum tilkynninguna,“ segir Bragi
en stuðningsmannafélög Liverpool víðsvegar
að úr heiminum sóttu um þátttöku. „Við byrj-
um á Melwood og svo er mótið á þriðjudag.
Það verður ekki leiðinlegt að labba inn á An-
field á takkskóm. Maður segir ekki nei við
því.“ Alls mega átta leikmenn spila í einu en í
stjórn Liverpool-klúbbsins íslenska eru níu
menn. Það verður því einn að vera uppi í
stúku. „Það er einn sem reif vöðva í kálfanum
fyrir hálfum mánuði. Hann er búinn að vera í
sprautum og öðru hjá sjúkraþjálfara til að ná
sér góðum. Þetta er eitthvað sem menn vilja
ekki missa af,“ segir Bragi. Því má gera ráð
fyrir að hart verði barist um sætin átta.
Liverpool-klúbburinn á Íslandi datt heldur
betur í lukkupottinn þegar Liverpool FC dró
út nafn félagsins til að vera þátttakandi í sér-
stöku stuðningsmannamóti klúbbsins sem
haldið er á Anfield-vellinum í vikunni. „Liver-
pool gaf 400 stuðningsmannaklúbbum mögu-
leika á að senda inn umsókn. Það voru 36
klúbbar sem komust að,“ segir Bragi Brynj-
arsson, varaformaður Liverpool-klúbbsins á
Íslandi. Mótið er þannig að fimm leikmenn eru
á vellinum í einu en átta í liði. Stjórn íslenska
klúbbsins mun fara utan á sunnudag og taka
þátt fyrir hönd klúbbfélaga.
Alls munu þeir félagar spila fjóra til fimm
leiki á sjálfum Anfield, heimavelli Liverpool,
einhverjum frægasta velli sögunnar. Þar er
kyrjað Yoúll never walk alone eins og frægt er
fyrir hvern einasta leik svo heimsbyggðin
horfir á.
Á mánudag munu þeir fá að kíkja á Mel-
wood-æfingasvæðið sem er verið að endur-
opna eftir breytingar. „Þetta er svolítið spenn-
andi. Við tókum The Secret-aðferðina á þetta.
Töluðum aldrei um ef við yrðum dregnir út,
sögðum alltaf þegar við verðum dregnir út,“
segir Bragi.
Ekki leiðinlegt að labba
inn á Anfield á takkaskóm
„Það hefur verið hnútur í maganum alveg frá
Liverpool-klúbburinn
spilar á Anfield
Átta Íslendingar munu fá að taka þátt í boðsmóti
fyrir stuðningssveitir Liverpool út um allan heim.
AFP
Vettvangur