Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Page 13
sjúkrahúsið í Hollandi taka Med-
Eye í notkun. Innleiðingin hefur
gengið framar vonum og lausnin
hefur þegar sannað gildi sitt. Þó
að hollensk sjúkrahús standi mjög
framalega í lyfjaöryggi og verk-
ferlar á ADRZ ISO séu vottaðir,
þá er MedEye samt daglega að
stoppa lyfjamistök, bæði stór og
smá. Hjúkrunarfræðingar eru
einnig mjög ánægðir, enda sparar
þetta þeim tíma þar sem MedEye
sér um alla skriffinnsku sem fylgir
lyfjagjöfum,“ segir Gauti Þór.
Mint Solutions hefur náð sam-
starfi við leiðandi fyrirtæki á
markaði í Hollandi, Bretlandi og
Noregi. Nú er unnið að því að
setja MedEye á markað á þessum
svæðum og viðræður hafnar við
sjúkrahús. Að sögn Gauta Þór hóf
Mint Solutions sölustarf í Hollandi
þar sem það þykir standa einna
fremst í lyfjaöryggismálum. M.a.
eru öll sjúkrahús skyldug til að
hafa lyfjafyrirmæli rafræn, sem
gerir innleiðingu MedEye auðveld-
ari í alla staði. „MedEye er nú
þegar aðgengilegt fyrir 60%
sjúkrahúsa í Hollandi og viðræður
hafnar við mörg þeirra um hvern-
ig er best að bæta lyfjaöryggi
með MedEye. Þetta ár verður
áhugavert þar sem við ætlum okk-
ur stóra hluti,“ segir Gauti Þór.
Næsta stopp Bandaríkin
Nýsköpunarsjóður, Investa, Guð-
mundur Jónsson og Tækniþróun-
arsjóður standa að Mint Solutions.
Gauti segir að frá því að hug-
myndin fæddist hafi mikið vatn
runnið til sjávar. „Við höfum átt
einstaklega gott og gefandi sam-
starf við hjúkrunarfólk og það
jafnast ekkert á við að sjá alla
þessa vinnu skila árangri. Það er
stórt skref.
Að fá viðurkenningu á hug-
myndinni frá alþjóðlegum sam-
tökum sem berjast fyrir sjúklinga-
öryggi, á sama tíma og við erum
að koma fyrsta sjúkrahúsinu í
gang, hefur verið mjög dýrmætt.
Þessa dagana erum við að vinna
að nýjum innleiðingum og fjár-
mögnun fyrirtækisins til að standa
undir vexti á öðrum mörkuðum,
m.a. í Bandaríkjunum,“ segir
Gauti Þór að lokum.
*Verkefnið er óvenjulegt og hefur MintSolutions sótt starfsfólk úr ýmsumgreinum, eins og stærðfræði, stjarneðl-
isfræði og tölvunarfræði.
26.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Sýningum lýkur í vor!
Miðasala 551 1200 | midasala@leikhusid.is
Engar samfelldar upplýsingar liggja fyrir um lyfja-
mistök og tíðni þeirra hér á landi og því erfitt að
henda reiður á hversu algengt það er að mistök
verði við lyfjagjöf.
Niðurstöður erlendra rannsókna benda til þess
að ástæður lyfjamistaka megi oft rekja til vinnu-
umhverfis hjúkrunarfræðinga en 65 til 78% hjúkr-
unarfræðinga á sjúkrahúsum telja sig einhvern
tímann á starfsferlinum hafa gert lyfjamistök. Stór
hluti vinnutíma hjúkrunarfræðinga fer í lyfja-
umsýslu. Árið 2010 var gerð rannsókn á Landspít-
ala - háskólasjúkrahúsi þar sem fylgst var með átta
hjúkrunarfræðingum að störfum í samtals 64
klukkustundir. Þar kom fram að að meðaltali fóru
17% vinnutíma hjúkrunarfræðinga í lyfjaumsýslu. Á
þeim tíma sem lyfjaumsýsla stóð yfir var vinna
þeirra rofin 11,4 sinnum að meðaltali og hætta á
mistökum því talsverð. Í rannsókn sem gerð var
2003 á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 2003
töldu 65% hjúkrunarfræðinga sig hafa átt aðild að
lyfjamistökum á starfsferlinum.
Lítið fylgst með
lyfjamistökum
Morgunblaðið/Kristinn
Við lyfjaumsýslu fylgja hjúkrunarfræðingar regl-
unni um R-in 5
Rétt lyf
Réttur tími
Réttur skammtur
Rétt gjafaleið
Réttur sjúklingur
Algengar orsakir lyfjamistaka
Þreyta
Skortur á verklegri færni
Að geta ekki lesið skrift lækna
Að lyf eru með svipuð heiti
Verkferlum er ekki fylgt
Skortur á þekkingu, t.d. ónógur skilningur
á lyfjum og lyfjafræði
Samskiptavandamál milli starfstétta
Samskiptavandamál milli vakta
Flókin lyfjafyrirmæli
Erfiðar skammstafanir
Að þekkja ekki ástand sjúklings
R-in fimm